Morgunblaðið - 19.11.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
„()pnunarhátíð“ stórmarkaðs SÍS og KRON:
Látnir taka fána-
borgirnar niður
FORRAÐAMONNUM Miklagarðs,
hins nýja stórmarkaðar Sambands-
ins og KRON í Holtagörðum, var í
gær gert að taka niður fánaborgir
með merkjum fyrirtækisins á nokkr-
um stöðum í borginni.
„Þeir voru beðnir að taka fán-
Hermann
Stefánsson
á Akureyri
látinn
Akureyri, 18. nóvember.
í GÆR lést hér á Akureyri Hermann
Stefánsson, fyrrum íþróttakennari
við menntaskólann. Hermann var
fæddur á Miðgörðum á Grenivík 17.
janúar 1904. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Menntaskólanum á Akur-
eyri 1922 og prófi frá íþróttaskólan-
um í Ollerup í Danmörku 1929.
Að loknu prófi hóf hann kennslu
við MA og starfaði þar allt til
vorsins 1974 eða í 45 ár. Hefur
enginn kennari jafn langa kennslu
að baki við þá stofnun. Hermann
var forystumaður í íþróttamálum
á íslandi um áratuga skeið og
brautryðjandi í skíðaíþróttum og
blaki. Meðal annars var hann
landsliðsþjálfari Islands á vetrar-
ólympíuleikunum í St. Moritz
1948.
Eftirlifandi kona Hermanns
Stefánssonar er Þórhildur
Steingrímsdóttir, sem einnig var
íþróttakennari við MA um tugi
ára. Eignuðust þau hjón tvo syni,
Stefán og Birgi. G.Berg.
ana niður vegna þess að þeir hafa
ekki leyfi til að setja upp fána og
skilti víðsvegar um borgina," sagði
Ingi 0. Magnússon í samtali við
blm. Morgunblaðsins í gærkvöld.
„Við höfum ekki leyft auglýs-
ingaskilti við götur nema með sér-
stökum undantekningum og óttuð-
umst satt að segja fordæmið, sem
þetta gæfi. Við viljum ógjarnan
hafa þetta hér eins og t.d. í Banda-
ríkjunum."
Ingi sagði um auglýsingaskilti
og fánaborgir Kaupstefnunnar, að
þar gegndi nokkuð öðru máli enda
væri þar um að ræða sýningar
fyrir allan almenning. „Það er
annað en þegar prívatfyrirtæki er
að auglýsa sig upp. Það þarf að fá
leyfi bæði hjá mér, sem ber
ábyrgð á götumyndinni, og eins
lögreglustjóranum."
Gatnamálastjóri sagði að aug-
lýsingaskiltum meðfram götum í
borginni hefði fjölgað mjög að
undanförnu. „Það var orðin svo
mikil ásókn í þetta, að það horfði
til vandræða," sagði hann. „Þetta
var komið út um allan bæ. Strangt
til tekið vantar alveg reglur um
þetta en ég mun nú láta búa þær
til og leggja fyrir borgarráð. Hvað
varðar þessar fánaborgir Mikla-
garðs, þá hefði ég engar athuga-
semdir gert ef þetta hefði verið
minna og aðeins í einn dag en
þetta gekk full langt." Hann gat
þess, að í sömu andrá og hann
hefði óskað eftir að fánaborgirnar
væru fjarlægðar hefði borgar-
stjóri haft við sig samband og beð-
ið um að allt yrði tekið niður.
Jón Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri stórmarkaðarins,
sagði blm. Morgunblaðsins að
hann hefði fyrir nokkru rætt við
gatnamálastjóra um þann um-
ferðarvanda, sem fyrirsjáanlegur
væri vegna opnunar Miklagarðs.
„Þá nefndi ég m.a. að við vildum
fá að setja upp fánaborgir hér og
þar um borgina til að minna á
þessa miklu hátíð," sagði Jón.
„Hann taldi því ekkert til fyrir-
stöðu svo fremi að þetta væri að-
eins rétt á meðan opnað væri. Ég
fékk svo lánaðar fánastengur og
fleira í áhaldahúsi borgarinnar en
líklega hafa mínir menn farið
eitthvað glannalega og sett fána-
borgirnar upp of víða eða á of
áberandi hátt. I dag var ég svo
beðinn að fækka þeim og lagfæra
stöðuna. Nú hefur þetta verið sett
hér inn á bifreiðastæðin, enda er
hátíðin hér við húsið. “
Morgunblaðið/ Friðþjófur
Gaukurinn sestur á Stöngina
Nýr veitingastaður verður opnaður í hjarta Reykjavíkur í kvöld. Er það Gaukur á Stöng, Tryggvagötu 22. Þar
verður hægt að fá hressingu í formi matar og drykkjar um ófyrirsjáanlega framtíð, að sögn aðstandenda, sem í
gærkvöldi voru að leggja síðustu hönd á innviði. Og ekki varð annað séð en að vel muni fara um þá, sem þangað
leggja leið sína.
Alþjóðahafrannsóknaráðið um veiðar í Barentshafi:
Vill helmings niðurskurð
á loðnu- og þorskafla
Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur
að loknum fundi sínum í Kaup-
mannahöfn lagt til verulegan niður-
skurð á aflamarki fyrir þorsk og
loðnu í Barentshafi á næsta ári. Lagt
er til að þorskmarkið verði lækkað
úr 300.000 lestum í 150.000 lestir og
loðnumarkið úr 2,3 milljónum lesta í
Bláfjöll:
Nýr strengur með
hraði í skíðalyftuna
VONIR standa nú til að stólalyftan
nýja í Bláfjöllum komist í gagnið í
desember, þrátt fyrir óhappið sem
varð er strengur slitnaði. Hefur bor-
ist skeyti frá framleiðanda Dobble-
mayer um að nýr strengur fari í skip
25. þessa mánaðar. Hafa þeir sent
hann með hraði, því að venjulegur
afgreiðslufrestur á strengjum er 2
mánuðir.
Sérfræðingar þeir, sem komu til
að skoða verksummerki, eru farn-
ir utan og hafa með sér búta úr
strengnum. Mun mjög ítarleg
rannsókn fara fram í háskólanum
í Zúrich í Sviss til að kanna hvað
kom fyrir slitna strenginn, sem
ekki var búið að taka í notkun.
Kem beint heim að ljúka stúdentsprófí
— segir Unnur Steinsson, sem varð fimmta í Miss World-keppninni í Albert Hall í London
„ÞETTA HEFUR allt verið mjög skemmtilegt, og ég er að sjálfsögðu
mjög ánægð með árangurinn, mér datt aldrei í hug að ég kæmist í 15
manna úrslit, hvað þá að ég næði fimmta sæti í keppninni," sagði Unnur
Stcinsson í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Unnur náði
sem kunnugt er þeim árangri að verða fimmta af 73 keppendum í
fegurðarsamkeppninni Miss World, sem fram fór í Royal Albert Hall í
fyrrakvöld. Um tíu þúsund manns voru í salnum lokakvöld keppninnar og
talið er að um 550 milljónir manna í 40 þjóðlöndum hafi fylgst með í
sjonvarpi.
„Sjálf keppnin fór þannig
fram lokakvöldið, að við komum
fram á baðfötum og í samkvæm-
iskjólum," sagði Unnur. „Fyrst
allar og síðan við sem komumst í
úrslitin. Þá vorum við. einnig
spurðar spurninga á sviðinu, en
inn í sjónvarpsdagskrána var
svo bætt ýmsu öðru, sem tekið
hafði verið upp áður, svo sem
framkoma á þjóðbúningum og
fleira. Þar komu einnig fram
ýmsir skemmtikraftar, en af
þeim sem komu fram í Albert
Hall er Leo Sayer, söngvari, lík-
lega kunnastur. Fyrir úrslita-
keppnina höfum við svo víða far-
ið, og margt verið fyrir okkur
gert. Við fórum til dæmis til
Windsor-kastalann, fórum að
sjá ballett og í óperu, heimsótt-
um vaxmyndasafnið og báðar
deildir þingsins og margt fleira.
Inn á milli vorum við svo í
myndatöku og æfingum fyrir
lokakvöldið, en meira hefur ver-
ið um skoðunarferðir og
skemmtun en vinnu og þetta hef-
ur verið afar ánægjulegt.
Þá var einnig ánægjulegt að
kynnast þarna stúlkum hvað-
anæva úr heiminum, og ekki síst
var gaman að hitta aftur stelpur
sem verið höfðu með mér í Uni-
verse-keppninni. Þar voru til
dæmis stúlkur frá Noregi, Holl-
andi, Belgíu, Gambíu og Austur-
ríki.“
— Þú komst fram í kjól, sem
móðir þín gerði, Jórunn Karls-
dóttir. Vakti hann athygli?
„Já, mamma hefur hannað og
saumað flest mín föt og þau hafa
hjálpað mér í þessu, og eins var
Unnur Steinsson
með kjólinn nú. I keppni sem
þessari skiptir fatnaðurinn að
sjálfsögðu miklu máli, og það er
þýðingarmikið að koma fram í
fallegum kjól.“
— Og hvað svo með framhald-
ið. Kemur þú nú heim eða hafa
þér boðist sýningarstörf og
fleira þess háttar?
„Ég hef hugsað mér að koma
nú strax heim, enda er ég í próf-
um við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti þessa dagana, og von-
ast til að ljúka stúdentsprófi nú
í desember. Um annað hugsa ég
því ekki í bili, en fyrir sjálfa
keppnina hér hef ég fengið bæði
viðurkenningar og peningaverð-
laun, sem ég læt duga að sinni,"
sagði Unnur að lokum.
1,1 milljón. Framkvæmdastjóri sam-
taka norskra útgerðarmanna segir,
að verði af því að lækka aflamarkið
um helming, þýði það verulegt áfall
fyrir norskan sjávarútveg.
Norska blaðið Fiskaren hefur
eftir Öyvind Ulltang, fiskifræð-
ingi, að hvað varðar loðnuna séu
niðurstöðurnar byggðar á sameig-
inlegum rannsóknum Norðmanna
og Sovétmanna síðastliðið haust.
Þá hafi fundizt miklu minna af
loðnu en búizt hafði verið við og
sérstaklega minna af af tilvonandi
hrygningarloðnu.
Hvað varði þorskinn sé útlitið
ekki aðeins dökkt fyrir næsta ár
heldur einnig fyrir árin 1985 og
1986. Fiskifræðingar hafi áður
gefið skýrar ábendingar um þessa
þróun. Árgangarnir 1982 og 1983
séu betri en undanfarin ár, en úr
þeim beri ekki að veiða fyrr en
1989 eða 1990. Taki yfirvöld þessi
vandamál ekki alvarlega verði þau
enn meiri í framtíðinni.
Jökulfirðir:
Stóll fannst
LEIT AÐ líkum mannanna tveggja,
sem enn er saknað eftir þyrluslysið í
Jökulfjörðum í síðustu viku, var
haldið áfram í gær, en árangurs-
laust. Varðskipið Týr er á slysstað í
Jökulfjörðum, ásamt vélbátnum
Sigga Sveins frá ísafirði og hefur
fjörðurinn verið slæddur, en sem
komið er án árangurs. Einn stóll,
sem vantaði úr þyrlunni TF-RÁN,
kom þó í vörpuna hjá Sigga Sveins í
fyrradag.
Rannsókn flaksins af TF-RÁN
er haldið áfram. Ekkert frekar er
að frétta af rannsókninni eins og
er, en þrír menn komu til lands-
sins í gær til að aðstoða við rann-
sóknina.
e>
INNLENT