Morgunblaðið - 19.11.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
9
flásm&ö nÆ
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson
218. þáttur
Hefst þá dilkatal aö nýju.
Eftir minni málvenju og sam-
kvæmt þeim orðabókum, sem
mér eru tiltækar, merkir dilk-
ur, þegar það er haft um lif-
andi verur, afkvæmi tamins
húsdýrs, það sem sýgur móður
sína. Langsamlega algengast
er þetta um afkvæmi sauð-
kindarinnar, en í Grágás segir:
„Eigi varðar manni við lög,
þótt ær leiði dilka ómerkta, ok
skal þar móðir bera vitni,
hverr á; ok svá skal et sama,
þótt kýr eða gyltr eða geitr
leiði dilka." Fleiri svipuð
ákvæði er þar að finna.
í síðasta þætti var fundið að
málfari á fréttaklausum í
blöðum, þar sem ekki var ann-
að sýnna en orðið dilkur væri
haft í merkingunni kjöt-
skrokkur. Fjallalömb (gras-
lömb) voru að sjálfsögðu ekki
dilkar, eftir að fært hafði verið
frá ánum, og því síður nú full-
orðnir hrútar.
Frummerking orðsins dilkur
er „sá sem sýgur". Þetta er
skylt latnesku sögninni felare
= sjúga, femina = kona og eink-
um filius og filia = sonur og
dóttir, eiginlega brjóstmylk-
ingar. Samsvarandi orð má
mörg finna í skyldum málum.
f gamalli þýsku merkir tila =
geirvarta, á dönsku er die =
sjúga og í gotnesku daddjan.
Ymis orð í grísku af þessum
uppruna tákna eitthvað kven-
legt eða móðurlegt.
Út frá þessari merkingu,
sem nú hefur verið greind,
kemur svo hin, er orðið dilkur
merkir hluta af fjárrétt, og eru
ýmis orð af því leidd, svo sem
dilkadráttur. Getur það bæði
haft eiginlega og óeiginlega
merkingu. Dilkur er svo haft í
sömu merkingu og Danir hafa
orðið paahæng, til dæmis: Hún
hefur slæman dilk í eftirdragi.
Þá merkir orðið enn afleið-
ingu, einkum í hinu mynd-
hverfa orðtaki að draga dilk á
eftir sér. Það er víst einhaft um
illar afleiðingar, enda er þá
þess konar lýsingarorði oft
skotið inn á undan orðinu dilk-
ur.
í doktorsritgerð Halldórs
Halldórssonar tilfærir hann
einnig afbrigðin að draga dilk
eftir sig og leiða dilk eftir sig.
Er þá sem endranær jafnan
haft með eitthvert neikvætt
lýsingarorð, svo sem illur og
ófagur.
í sambandi við allt þetta
dilkatal var rifjuð upp fyrir
mér gömul gáta sem ég lærði
barn:
Sat ég og át,
og át af mér.
Át það sem ég á sat,
og át af því.
*
Ráðningin var: Kona með
barn á brjósti sat étandi á ét-
andi fylsugu (folaldsmeri).
Fyrir skemmstu undraðist
ég það í þáttum þessum að
fundur hefði verið auglýstur í
samkomuhúsinu Gafl-inn í
Hafnarfirði. Ekkert hef ég
heyrt eða séð frekar um það
mál fyrr en ég les í þessu blaði
ekki fyrir löngu svohljóðandi
frétt:
„Ágúst Ásgeirsson hefur
tekið þá ákvörðun að gefa kost
á sér til formennsku í frjáls-
íþróttasambandi íslands á
næsta ársþingi FRÍ sem fram
fer 26. nóv. næstkomandi. En
ársþing FRÍ fer fram í veit-
ingahúsinu Gaflinum (auð-
kennt hér) í Hafnarfirði."
Enda þótt fréttin mætti vera
betur stíluð, er þakkarvert að
þarna er orðið Gaflinn beygt að
réttu íslensku lagi, eins og ég
reyndar gerði ráð fyrir að eig-
endur staðarins ætiuðust til.
Eins og vera ber, vekja fyr-
irsagnir í blöðum oft athygli
manna og forvitni. Ég býst við
að mönnum detti ýmislegt
mismunandi í hug, þegar er
lesin er fyrirsögnin Skreið fyrir
olíu. Vafalaust má spyrja
margs, því að til lítillar skýr-
ingar er það, þótt í undirfyr-
irsögn sé haft eftir viðskipta-
ráðherra að hann líti jákvæð-
um augum á málið. Enn má
líka spyrja: hvernig eru já-
kvæð augu, og síðan er eftir sú
stóra spurning, hvað í fyrir-
sögninni felst.
Og við Þórir Áskelsson á
Akureyri höldum áfram að
gagnrýna eitt og annað af
vettvangi frétta og auglýsinga.
Okkur þótti báðum skrýtilega
til orða tekið, þegar sagt var
um mann nokkurn að hann
hefði rætt dóttur sína. Okkur
þykir sem forsetninguna um
megi ekki vanta þarna á undan
orðinu dóttir. Mér dettur í hug
að hér komi fram áhrif frá
ensku. Sögnin to discuss tekur
með sér andlag, en ekki for-
setningarlið.
Við Þórir látum okkur skilj-
ast að sumstaðar sé víðsýnt eða
gott útsýni (góð útsýn) o.s.frv.,
en víðsýnt útsýni, svo sem ein-
hver auglýsandi lofaði ferða-
mönnum, þekkjum við ekki.
Við þekkjum hins 'vegar víð-
sýnt fólk og fallegt útsýni.
Dæmi um samruna eru stöð-
ugt að birtast mér. Ekki fyrir
löngu mátti heyra í sjón-
varpinu í fréttaskýringaþætti,
að Arafat skæruliðaforingi
ætti við ramman reip að etja.
Hér er ruglað saman orðtak-
inu að eiga við ramman reip að
draga og orðasambandinu að
etja við einhvern. í orðtakinu,
sem fyrr var feitletrað, er und-
irskilið eitthvert orð sem tákn-
ar mann, en reip er eldri mynd
hvorugkynsorðsins reipi, sbr.
nest, sík, eng og beisl. Enginn
„rammur reipur" hefur verið
til. Ef ég á í erfiðleikum, get ég
sagt það á líkingamáli frá
reipdrætti (reiptogi). Ég á við
ramman = sterkan (mann) að
togast á um reip(i), á í reiptogi
við sterkan mann, stend í ein-
hverju sem mér er mjög erfitt,
jafnvel ofurefli.
*
Árni Þórðarson í Reykjavík
hringdi til mín undrandi og
sár, þar sem hann hafði, jafn-
vel úr kennarahópi, heyrt upp-
gjafartón gagnvart svonefndri
þágufallssýki eða mérunum.
Árni taldi vandalítið að út-
rýma þessu, minnti á að verra
hefði verið að fást við flámæl-
ið, sem þó hefði tekist að kveða
í kútinn á ótrúlega stuttum
tima með frábærri elju og
samstöðu barnakennara undir
stjórn dr. Björns Guðfinnsson-
ar.
Ég á von á skeleggu bréfi um
þetta efni frá Árna.
P.S.
í síðasta þætti misfórst
nafn. Þórhildur Sigurðardóttir
Briem átti að vera Líndal. Af-
sökunar er beðist á þessum
mistökum.
m
Fasteignasala — Bankastræti
SiMI 29455 — 4 LiNUR
Opiö í dag 1—4
Stærri eignir
Stigahlíð
Ca. 135 fm íbúö á efstu hœö í blokk. 2
stofur, 4 herb., rúmgott eldhús og búr,
manngengt rls yfir öllu. Verö 1900 þús.
Hafnarfjörður
Ca. 150 fm raöhús á tveimur hæöum.
Stofur og eldhús niöri, 4 rúmgöö herb.
og baö uppi. Bílskúrsréttur. Ákv. sala.
Vesturberg
Parhús ca. 130 fm og fokheldur bílskúr,
stofur og 3 svefnherb , eldhús meö
þvottahusi innaf. Vinsæl og hentug
stærö. Verö 2,5—2,6 millj.
Tjarnarbraut — Hafn.
Einbýli ásamt bílskúr á fallegum staö.
Húsiö er traust steinhús á 2 hæöum.
Grunnflötur ca. 70 fm. Mögulegt aö
skapa innréttingar eftir eigín höföi. Ákv.
sala. Verö 2,3 millj.
Meistaravellir
Góö ca. 145 fm íbúö á 4. hæö ásamt 24
fm bílskur. Stofa, herb. eöa boröstofa.
Eldhus meö búri og þvottahúsi innaf. Á
sérgangi eru 3 svefnherb. og gott baö-
herb. Góö eign á góöum staö. Ákv. bein
sala. Verö 2,1—2,2 millj.
Garðabær
Ca. 90 fm nýlegt raöhús á 2 hæöum.
Niöri er stofa, eldhús og baö. Uppi:
stórt herb. og geymsla. Bílskúrsréttur.
Verö 1800 þús.
Laxakvísl
Ca. 210 fm raöhús á tveim hæöum
ásamt innb. bílskúr. Skílast fokhelt.
Niöri er gert ráö fyrir eldhúsi meö búri,
stofum og snyrtingu. Uppi eru 4 herb.,
þvottahús og baö. Opinn laufskáli. Góö
staösetning viö Árbæ. Verö 2 millj.
3ja herb. íbúðir
Bollagata
ca. 90 fm kjallaraíbúö i þríbýli, stofa og
2 góö herb., geymsla inni i ibúöinni.
Þvottahús út frá forstofu. Sérinng.
Rólegur og góöur staöur. Verö 1350
þús.
Tjarnarbraut Hf.
Ca. 93 fm neöri sérhæö í tvíbýll. Sam-
liggjandi stofur og 1—2 herb. Geymsla
og þvottahus A hæöinni. Ný eldhusinn-
rétting. Akv. sala Verð t350—1400
þus.
Laugavegur
Ca 80 fm ibúö á 3. hæö í steínhúsi.
meö timburinnréttingum. Tvær góöar
stofur, 1 svefnherb. og gott baöherb.
ibúöin er uppgerö meö viöarklæöningu
og parketi. Verö 1200 þús.
Engjasel
Mjög góö ca. 96 fm ibúö á 1. hæö.
Góöar innréttíngar. Rúmgóö ibúö. Verö
1450 þús.
Nýbýlavegur
Ca. 90 fm ibúö á 1. hæö i 5 ibúöa
steinhúsi. 3 herb., stofa, eldhús og
sérgeymsla eöa þvottahús. Sérinng.
Góöar ínnréttlngar. Ákv. sala. Verö
1300—1350 þús.
Hörpugata
Ca. 90 fm miðhæö í þríbýli. Sérinng..
tvær stofur og stórt svefnherb Akv.
sala. Verð 1300—1350 þús.
2ja herb. íbúðir
Ægissíða
Ca. 60—65 fm íbúö á jaröhæö í þríbyli.
Stofa, stórt herb. og eldhús meö búri
innaf. Mikiö endurnýjuö, góö ibúö. Ákv.
sala. Verö 1150 þús.
Austurgata Hf.
Ca. 45—50 fm rlsibúö í tvíbýli. Nýlega
endurnýjuö, nýtt gler og karmar, endur-
nýjaö baöherb., viöarklæöningar i stofu
og svefnherb. Verö 950 þús.
Blikahólar
Ca. 60 fm ibúö á 3. hæö i lyftublokk.
Gott eidhús, stórt baöherb, stórar sval-
ir. Ákv. sala. Verö 1250 þús.
Austurgata Hf.
Ca. 50 fm ibúö á jaröhæö i steinhúsi.
Parket á stofu. Sérinngangur. Verö 1
millj.
Hamrahlíð
Ca. 50 fm mjög góö ibúö á jaröhæö í
blokk beint á móti skólanum. 1 herb.,
stofukrókur. Stórt og gott baöherb.
Geymsla inni i ibúöinni. Sérinng. íbúöin
er öll sem ný. Ákv. sala verö 1200 þús.
Gaukshólar
Ca. 65 fm góö ibúö á 1. hæö í lyftu-
blokk. Góöar innréttingar. Parket á
gólfi, góö sameign. Verö 1150—1200
þús. Möguleg skipti á 3ja herb. i Bökk-
unum eöa Háaleíti.
Friörik Stefónsson
viöskiptafræöingur.
/Egir Breiöfjörö sölustj.
EIGNIR ÚTI Á LANDI
Umboðsmaður Hverageröi, Hjörtur Gunnarsson, í síma 99-4225.
Selfoss — Vallholt, falleg neöri hæð í tvíbýli, 4 svefnherb., 50 fm
bílskúr. Sundlaug. Bein sala eöa skipti á 3ja herb. íbúö i Reykjavík.
Þorlákshöfn — Lyngberg, glæsilegt 200 fm einbýlishús, fullgert, 50
fm innb. bílskúr.
Þorlákshöfn — Setberg, 120 fm parhús svo til fullgert. Verö
1400—1450 þús.
Hveragerði — Borgarheiöi, 98 fm parhús svo til fullgert. Góöur
bílskúr. Ákv. sala.
Hveragerði — Borgarheiði, glæsilegt 76 fm parhús meö bílskúr.
Verð 1,2 millj.
Hveragerði — Borgarhraun, glæsilegt 130 fm einbýlishús. 4
svefnherb., bílskúrsréttur. Verö 2 millj.
Hverageröi — Frumskógar, 110 fm eldra einbýli. 45 fm bílskúr,
1200 fm lóö. Verð 1350 þús.
Hveragerði — Heiðabrún, 127 fm timbureinbýli, ekki fullgert. Bil-
skúrsplata. Verð tilb.
Selfoss, 2ja herb. íbúð i blokk. 70 fm. Verö 850—900 þús.
HÖFUM FJÖLDA EIGNA Á SKRÁ í HVERAGERÐI, ÞOR-
LÁKSHÖFN OG SELFOSSI. HAFIÐ SAMBAND VIÐ UM-
BOÐSMANN OKKAR í HVERAGERÐI, HJÖRT GUNNARSSON
í SÍMA 99-4225.
Gimli, fasteignasala, Þórsgata 26.
SIMAR 21150-21370
S01USTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N H0L
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Nýleg og góö í vesturborginni
Til sölu skammt frá KR-heimilinu. 4ra herb. íbúö á 2. hæð um 100 fm.
Tvennar svalir. Góö fullgerð sameign. Lltsýni.
Til kaups óskast 3ja herb. ibúö í vesturborginni helst nýleg. Skipti
möguleg á 5 herb. góðri íbúö á Högunum.
Meö sér þvottahúsi og kjallaraherbergi
4ra herb. nýleg og mjög góö íbúö við Leirubakka á 1. hæö viö Leiru-
bakka. Ágæt sameign. Sanngjarnt varö.
2ja herb. íbúðir við:
Krummahóla á 6. hæö um 65 fm háhýsi. Suöuríbúö, bílhýsi fylgir.
Æsufell 7. hæð um 60 fm góö vesturíbúö. Fullgerö sameign.
Hamrahiíö jaröhæö um 50 fm. Allar innréttingar nýjar. Sérinngangur.
Glæsileg íbúð við Furugrund í Kópavogi
3ja herb. um 80 fm. Nýleg og góð í enda. i kjallara fylgir. Einstaklings-
íbúð sem má tengja vlð íbúöina. Fullgerð sameign.
Skuldlaus eign við Eskihlíð
4ra herb. íbúð á 2. hæð um 100 fm, vel umgengin. Svalir Ákv. sala.
Úfsýni.
3ja herb. íbúðir í gamla austurbænum
Meðal annars i steinhúsi við Laugaveg og í timburhúsi á baklóö við
Laugaveg. Gott verö.
Skammt frá Landspítalanum
Til sölu: 5—6 herb. íbúð á 3. hæð og rishæð. Samtals um 130 tm.
Sérhitaveita, haröviðarhuröir, suðursvalir. Snyrting á báðum hæðum.
Skuldlaus eign. Getur losnaö fljótlega.
Til kaups óskast: 3ja—4ra herb. íbúö í nágrennl Landspítalans.
4ra—6 herb. sérhæöir:
Lindarbraut, Miðbraut. Skólagerði og Safamýri. Vinsamlega leitið
nánari upplýsinga.
Einbýlishús, raðhús og parhús
í borginni, í Kópavogi og í Mosfeilssveit. Leitið nánari upplýsinga.
Teikningar á skrifstofunni.
Einbýlishús í Garðabæ
óskasf fyrir fjársterkan kaupanda æskileg stærð 200—250 fm. Helst á
Flötum eða i Arnarnesi.
Einbýlishús í borginni
af stæröinni 200—250 fm óskast til kaups fyrir fjársterkan kaupanda.
Skipti möguleg á 150 fm einbýlishúsi á úrvalsstað i Árbæjarhverfi.
Þurfum að útvega góða 3ja herb. íbúð
i borginni má vera í háhýsi i Heimunum. Ennfremur óskast 3ja herb.
íbúö í háhýsi í Kópavogi. Laus 1. ágúst nk.
Góð 3ja herb. íbúð óskast helst miðsvæðis
í borginni
Rétt íbúð veröur borguö úf.
í nýrri viðbyggingu í Þingholtunum
30 fm kjallarahúsnæð', tullbúið undir tréverk. Sérhitaveita, tæki komin
á baó. Skuldlaus eign. Laus sfrax.
Opið í dag laugardag kl. 1 til
kl. 5. Lokað á morgun
sunnudag.
AIMENNA
FASTEIGNASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
m
O) co ifi co MetsöluNad á hverjum degi!