Morgunblaðið - 19.11.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
Enn um ómerkilegan og villandi
fréttaflutning Þjóðviljans
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Með fárra daga millibili hefur
Þjóðviljinn gefið mér tilefni til að
leiðrétta mjög villandi og ómerki-
legan málflutning blaðsins.
f þetta sinn er það afstaða Al-
þýðuflokksins við atkvæðagreiðslu
um launamál og verðbótagreiðslur
iauna.
í Þjóðviljanum í dag, 17. nóv-
ember, kemur fram að Alþýðu-
flokkurinn hafi greitt atkvæði
með ákvæðum bráðabirgðalag-
anna um afnám allra vísitölubóta á
laun í tvö ár. Þetta er alrangt og
skal það rökstutt nánar.
Vísitala og
kaupmáttartrygging
í 1. gr. bráðabirgðalaga um
launamál eru tvö ákvæði sem fram
koma í tveim málsgr., og snerta
vísitölugreiðslur launa.
í fyrsta lagi að verðbætur á
laun samkvæmt ákvæði laga um
stjórn efnahagsmála (það er það
vísitölukerfi sem í gildi hefur ver-
ið á undanförnum árum) skuli
ekki gilda á tímabilinu frá og með
1. júní 1983 til og með 31. maí
1985.
Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verðbóta-
kerfi yrði numið úr gildi, sem á
undanförnum árum hefur mælt
láglaunamanninum í krónum
lægri verðbætur en hálaunamann-
inum.
Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verðbóta-
kerfi yrði numið úr gildi sem átti að
mæla formanni Alþýðubandalagsins
8.800,- kr. í verðbætur 1. júní sl. en
verkamanninum og verkakonunni
2.200,- kr. En þetta kerfi vildu
þingmenn Alþýðubandalagsins
hafa áfram.
Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verðbóta-
kerfi sem Alþýðubandalagið sá
ástæðu til að grípa inn í með lögum
fjórtán sinnum á sínum valdaferli
yrði numið úr gildi.
Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verðbóta-
kerfi yrði numið úr gildi sem
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar,
Þröstur ólafsson, hefur lýst yfir
að sé gengið sér til húðar og tryggi
viðgang verðbólgu.
Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verðbóta-
kerfi yrði numið úr gildi sem Guð-
mundur J. Guðmundsson sagði um
á Alþingi 18. október sl. „Það er
enginn að heimta gamla vísitölu eða
gamalt vísitöluform." En þrátt
fyrir allar þessar yfirlýsingar
vildu þingmenn Alþýðubandalags-
ins viðhalda þessu gamla og
óréttláta vísitölukerfi.
Hinsvegar var einnig í 1. grein
bráðabirgðalaganna að finna
C RESCO'
thýyZJers/un og sýningarsalur
Laugavegi /j
mavoruri
cBgyal Worcester
rRoyal cBrierley
Christoph Widmann
Lovsjo
| Cjusunu
Eflirprenlanir efiir
mkum hins
hcimsþckkta norska
lísfmálara
Edrard Munch
Jóhanna Sigurðardóttir
„Þingmenn Alþýðuflokksins
sögðu já við því að það verð-
bótakerfi yrði numið úr gildi
sem átti að mæla formanni
Alþýðubandalagsins 8.800,-
kr. í verðbætur 1. júní sl. en
verkamanninum og verka-
konunni 2.200,- kr. En þetta
kerfí vildu þingmenn Al-
þýðubandalagsins hafa
áfram.“
ákvæði sem segir að óheimilt sé að
laun skuli fylgja breytingum vísitölu
eða annars hliðstæðs mælikvarða á
einn eða annan hátt fram til 31. maí
1985.
Við því sögðu þingmenn Alþýðu-
flokksins NEI. Vegna hvers?
Vegna þess að þó þingmenn Al-
þýðuflokksins hafi lagst gegn því
vísitölukerfi sem í gildi hefur verið,
sem mælir Svavari Gestssyni meiri
dýrtíðarbætur en verkamanninum,
þá telja þingmenn Alþýðuflokks-
ins sjálfsagt og eðlilegt að verka-
lýðshreyfingin hafi svigrúm til þess
að semja um aðra kaupmáttartrygg-
ingu en gamla vísitölukerfið, sem
tryggi á raunhæfan hátt kaup-
mátt launa í landinu. — Þingmenn
Alþýðuflokksins lögðust því með
fullum þunga gegn því, — að verka-
lýðshreyfingin gæti ekki samið
um annað verðbótakerfi eða hlið-
stæða mælikvarða á þessu tíma-
bili fram til 31. maí 1985 sem
tryggði kaupmátt t.a.m. lægri
launanna í landinu.
Afstaða Alþýðuflokksins
Formaður Alþýðuflokksins,
Kjartan Jóhannsson, gerði grein
fyrir þessari afstöðu Alþýðu-
flokksins við atkvæðagreiðslu um
þessa grein frumvarpsins um vísi-
töluviðmiðanir á Alþingi í gær (15.
nóv.) og sagði:
„Við alþýðuflokksmenn teljum að
gamla vísitölukerfið hafi verið orðið
ónýtt og óréttlátt og hafi gengið sér
til húðar og það eigi ekki að fram-
lengja. — A hinn bóginn teljum við
algjörlega rangt að hindra með laga-
setningu, að það sé unnt í framtíð-
inni að semja um skynsamlegar leið-
ir til kaupmáttartryggingar t.d.
hinna lægstu launa, sem virðist al-
gjörlega hindrað samkvæmt 2. mgr.
þessarar 1. gr.“
Að þessu sögðu getur svo hver
dæmt fyrir sig um heiðarlegan
fréttaflutning Þjóðviljans, sem
segir að Alþýðuflokkurinn hafi
greitt atkvæði með ákvæðum
bráðabirgðalaganna um afnám
allra vísitölubóta á laun í tvö ár.
Lágmarkslaun og vísi-
töluviömiðanir ríkisvaldsins
í annan stað gerir Þjóðviljinn
minna úr þeim breytingartillögum
sem Kjartan Jóhannsson formað-
ur Alþýðuflokksins flutti við þetta
frumvarp, og ástæða er til að gera
hér nokkur skil einnig.
Fyrri breytingartillagan var um
að lögbinda 15 þúsund króna lág-
markslaun í landinu fyrir fulla
dagvinnu og tilsvarandi hluta-
störf. — Til heildarlauna teldust í
þessu sambandi taxtalaun að við-
bættum hverskyns álögum, en án
orlofs.
Þetta fyrirkomulag skyldi gilda
þangað til verkalýðshreyfingin hefði
náð samningum, því var ekki verið
að ganga á rétt verkalýðshreyf-
ingarinnar til frjálsra kjarasamn-
inga á komandi mánuðum.
Og hversvegna flutti Alþýðu-
flokkurinn þessa tillögu? — Vegna
þess að það rfkir neyðarástand á
mörgum heimilum f landinu, sem
hreinlega eiga ekki til hnífs eða
skeiðar. — Og það neyðarástand
sem ríkir má ekki síst rekja til
óstjórnar Alþýðubandalagsins í
efnahagsmálum á undanförnum
árum.
Alþýðuflokkurinn taldi nauð-
synlegt við það neyðarástand sem
nú ríkir á láglaunaheimilunum, að
þessum heimilum yrði bjargað á
þennan hátt á næstu vikum eða þar
til verkalýðshreyfingin hefur náð
samningum. Þjóðviljinn hefur
ekki séð mikla ástæðu til að gera
þessari tillögu eins hátt undir
höfði á síðum Þjóðviljans og vill-
andi málflutningi blaðsins um af-
stöðu flokksins til vísitölumála og
dýrtíðaruppbóta.
Á sama hátt hefur Þjóðviljinn
heldur ekki séð ástæðu til að gera
annarri tillögu Alþýðuflokksins
við þetta frumvarp um launamál
ítarleg skil. — En það er breyt-
ingartillaga, sem einnig var flutt
um að banna sjálfvirkar heimildir
ríkisvaldsins til að hækka skatta og
gjöld á fólkið í landinu á sama tíma-
bili og vísitölubætur á laun væru
ekki í gildi. — M.ö.o. að sjálfvirkni
í vísitölu á gjöldum sem lands-
menn greiða til ríkisins verði
einnig afnumin þetta sama tíma-
bili, sem dæmi má nefna bensín-
gjald, en sifelldar hækkanir á
bensíni undanfarið hafa einmitt
verið af þessum toga.
Hugarheimur Þjóðviljans
Þessi málflutningur Þjóðviljans
sýnir landsmönnum ljóslega inn í
hugarheim þeirra Þjóðvilja-
manna, og gefur glögga mynd af
því að þeir leggja meira úpp úr
atkvæðaveiðum á fölskum for-
sendum en ábyrgum fréttaflutn-
ingi um það sem fram fer á Al-
þingi.
Jóhanna Sigurðardóttir er alþingis-
maður Alþýðuflokks fyrir Reykja-
víkurkjördæmi.
Basar í Kópavogi
Skátafélagið Kópar held-
ur basar til styrktar fé-
lagsstarfsemi sinni að
Hamraborg 1, Kópavogi,
á morgun, sunnudag, kl.
14.00. A basarnum verður
fjöldi glæsilegra hand-
unninna muna. Einnig
verður kökusala á staðn-
um og happdrætti.