Morgunblaðið - 19.11.1983, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
Fórnarlömb ofbeldisátaka í El Salvador.
Landgönguliðar
æfa í Hondúras
Tr gungalpa, 18. nóvember. AP.
BANDARÍSKIR landgönguliöar gengu á land í Hondúras í dag og er
það liður í sameiginlegum æfingum
sem stjórnarleiðtogar í Managua
Nicaragua.
í kjölfar innrásarinnar á
Grenada hefur stjórn sandinista
í Nicaragua aukið á undirbúning
fyrir hernaðarátök og kallað allt
varalið til herþjónustu.
Æfingar landgönguliðsins
fara fram við Karíbahafsströnd
Hondúras, skammt frá Puerto
Castilla. Um eitt þúsund banda-
rískir landgönguliðar taka þátt í
æfingunum, sem standa munu í
tvær vikur. Ásamt þeim gekk á
land eitt herfylki fótgönguliðs úr
her Hondúras. Eftir landgöng-
una var í ráði að sveitirnar héldu
yfir mýrlendi að stað sem er 19
kílómetra inni í landi.
Yfirvöld á Costa Rica lýstu í
herja Bandaríkjanna og Hondúras,
segja að sé undanfari innrásar í
dag yfir „ævarandi hlutleysi"
landsins, en sögðu að áfram
mundi eyríkið sinna hefðbundnu
hlutverki sínu í stjórnmálum
þessa heimshluta auk þess að
hvetja til aukins lýðræðis í
grannríkjunum.
Blaðamenn, sem ferðuðust til
þriggja borga í E1 Salvador í
dag, sögðust hafa séð 20 lík graf-
in á einum stað, og að þeim hefði
verið afhentur listi með 117
nöfnum manna, þ.á m. barna og
kvenna, sem stjórnarhermenn
hefðu ráðið af dögum. Af hálfu
hersins var sagt að hér hefði
verið um að ræða hryðjuverka-
og undirróðursmenn.
Alexander Kielland
sökkt við Stafangur
Osló, 18. nóverober. Frá fréttaritara Mbl.
íbúðapallinum Alexander Kiel-
land var í dag sökkt í Nedstrands-
fjord norðan við Stafangur og hvflir
nú á 712 metra dýpi, en 11 minútur
liðu frá því öflug sprengja eyðilagði
flotholt pallsins og þar til hann sökk
niður á fjarðarbotninn.
Kolgráan reykjarmökk lagði
upp af fjórum undirstöðum íbúð-
arpallsins eftir að 36 sprengju-
hleðslur sprungu nánast samtím-
is. Þungur sprengjudynkur dundi
við og bergmálaði í bröttum hlíð-
um beggja vegna fjarðarins.
Meðan sjór var að streyma inn í
flotholt og annað loftrými í íbúð-
arpallinum kraumaði í sjávarflet-
ERLENT
inum er loft streymdi til yfir-
borðsins. Skömmu eftir að pallur-
inn hvarf sjónum skaust eitt sívalt
flotholt eins og eldflaug upp úr
sjónum og flaut, en því verður
sökkt.
Með þessu er Alexander Kiel-
land íbúðarpallurinn allur, en
honum hvolfdi á Ekofisk-vinnslu-
svæðinu í Norðursjó 27. marz 1980
og fórust þá 123 starfsmenn á
borpalli í Norðursjó.
Nú í haust tókst að snúa pallin-
um við í höfninni í Stafanger eftir
aðra misheppnaða tilraun. í milli-
tíðinni hafa farið fram ótaldar
umræður á þingi og utan þess um
björgun pallsins.
Síðasta þingumræðan um íbúð-
arpallinn fór fram á þriðjudag og
hótaði Káre Willoch forsætisráð-
herra þá afsögn ef allir þingflokk-
ar samþykktu ekki tillögu um að
pallinum skyldi sökkt, en sumir
þingmenn vildu að nýtanlegum
hlutum pallsins yrði bjargað, en
samtals voru í honum 10 þúsund
lestir af stáli.
Þótt pallurinn sé allur er málið
þó ekki úr sögunni þar sem tjóns-
uppgjör á eftir að fara fram fyrir
dómstólum. Fyrir liggja bótakröf-
ur svo hundruðum skiptir og
hljóða þær upp á milljónatugi.
Arekstur
herskipa
Manila, 18. nóvember. AP.
BANDARÍSKI tundurspillirinn
Fife og rússneska beitiskipiö
Razyaschy rákust á á norður-
hluta Arabíuflóa, þar sem banda-
rísk flotadeild með flugmóður-
skipið Ranger í broddi fylkingar
var við æflngar.
Litlar skemmdir urðu á skip-
unum og engin slys, og héldu
þau áfram siglingu eins og ekk-
ert hefði í skorizt.
Af hálfu bandaríska sjóhers-
ins er áreksturinn sagður hafa
verið „minniháttar". Sovézka
skipið hefur verið að snuðra
um ferðir bandarísku skipanna
og fylgt þeim fast eftir.
Ellefu þingmenn
krata kæra Reagan
Washinf'ton, 18. nóvember. AP.
ELLEFIJ þingmenn demókrata hafa lagt fram ákæru á hendur Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta, og þremur úr ráðuneyti hans fyrir að hafa brotið
ákvæði stjórnarskrárinnar með innrásinni á Grenada.
Þingmennirnir sögðu að í ákæru
sinni væri að finna óyggjandi
sönnun þess, að Reagan hefði
brotið lög með ákvörðun sinni um
innrás á eyna. í ákærunni er þess
jafnframt krafist, að Bandaríkja-
stjórn kalli þegar í stað heim allt
herlið sitt. Þá er þess ennfremur
krafist, að stjórnvöld viðurkenni
brot á stjórnarskránni opinber-
lega.
Þótt forsetinn sé æðsti yfirmað-
ur Bandaríkjahers getur þingið
tekið ákvörðun um að lýsa stríði á
hendur andstæðingum landsins
samkvæmt 1. grein stjórnarskrár-
innar.
Auk nafns forsetans er nöfn
þeirra Caspar Weinbergers, varn-
armálaráðherra, George P. Shultz,
utanríkisráðherra, og John W.
Vesseys, æðsta yfirmanns banda-
ríska heraflans, að finna í skýrsl-
unni.
Sviku út
tryggingafé
San Jo.se, Kaliforníu, 18. nóvember. AP.
TVEIR menn voru í dag dæmdir í
fangelsi fyrir að reyna að svíkja fé
út úr tryggingum með því að höggva
fót annars af. Sá, sem lét höggva af
sér fótinn var dæmdur í 64 mánaða
fangelsi, en hinn í árs fangelsi. Báð-
um var gert skylt að endurgreiða 5,7
milljónir króna, sem tryggingafélag-
ið greiddi.
Saknar þess mest að
sjá ekki konunginn
Osló, 18. nóvember. AP.
LECH Walesa hefur skýrt frá því, að það, sem honum
þyki verst við að geta ekki farið til Noregs til að veita
friðarverðlaunum Nóbels viðtöku, sé að missa af því
tækifæri að hitta Ólaf Noregskonung.
„Sjáðu til, ég hef aldrei litið konung augum,"
sagði Walesa i viðtali við fréttamann norska
blaðsins Aftenposten. „Það hefur verið draumur
minn frá í bernsku að hitta einhvern konung. Ég
hafði hlakkað mest til þess.“
Blaðamaðurinn norski var hjá Walesa i Póllandi
þegar tilkynnt var um útnefningu verðlaunanna
þann 10. október sl., en viðtalið var ekki birt fyrr
en í dag.
Walesa hefur áður tilkynnt, að hann muni senda
konu sína, Danutu, til þess að veita verðlaununum
viðtöku. Sonur þeirra hjóna, Bogdan, verður með í
förinni. Að sögn pólskra yfirvalda fá þau tilskilin
leyfi afhent þann 3. desember.
„Ég held að það sé meira gagn að því að senda
þau til Oslóar, heldur en að þau verði um kyrrt
heima við verðlaunaafhendinguna," sagði Walesa
ennfremur í viðtalinu. Þetta er í fyrsta sinn í
sögunni, sem Pólverji hlýtur þessi verðlaun og fáir
í þessu landi hafa séð hvernig verðlaunaskjalið,
sem fylgir nafnbótinni, lítur út.“
SÖLUMADURINN OKKAR
REYNDUR í STARFI -TRAUSTUR í VIÐSKIPTUM.
Hann veitir þér alla nauðsynlega þjónustu, varðandi kaup eða sölu
á notuðum bifreiðum.
% BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
v/ BÍLASALA HÖFÐABAKKA9 SÍMI 39810 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRU
OPIÐ MÁNUDAGA TIU FÖSTUDAGA KL 9-18
(OPIÐ I HÁDEGINU) LAUGARDAGA KL 13-17