Morgunblaðið - 19.11.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
BRAGI ÁSGEIRSSON
SKRIFAR UM SÝNINGU
HARÐAR ÁGÚSTSSONAR
FERÐAST í ÞOKU MEÐ
PSYCHIC TV
TÆKNIBYLTINGIN
— Rætt viö Jón A. Skúlason,
póst- og símamálastjóra.
FÓLK ER FARIÐ AÐ
ÞREYTASTÁ KLÁMI
GEIMFERÐASTOFNUN
BANDARÍKJANNA
25 ÁRA
Á HÁRGREIÐSLU-
SÝNINGU Á BROADWAY
RAUNIR HINNA RÍKU
ÖRDEYÐA EÐA
MOKVEIÐI
— Veiöisögur frá síöasta sumri.
EINVÍGI KASPAROVS
OG KORCHNOIS
Sunnudagurinn bxrjar á síðum Moggans
Ný plata með Anne og Garðari:
Jólaplata sem endist
árið um
UV* - VVí' '\p \ýá
Aðstandendur plötunnar „Þú reistir mig upp“. Kra vinstri: Magnús Kjart-
ansson, Garðar Sigurgeirsson og Anne Marie Antonsen. Morgunblióií/KÖK.
I»Ú REISTIR mig upp heitir ný
hljómplata með hjónunum Anne
Marie Antonsen og Garðari Sigur-
geirssyni, en þau eru kunn fyrir
flutning trúarlcgrar tónlistar af létt-
ara tagi, svokallaðar „gospel-tónlist-
ar“. Fyrir tæpum tveimur árum
sungu þau, ásamt Agústu Ingimars-
dóttur, inn á hljómplötuna „Kristur
konungur minn“, en sú plata náði
miklum vinsældum og hefur selst í
um 15 þúsund eintökum. í kjölfar
þeirrar plötu var gerður sjónvarps-
þátturinn „Lífið við mig leikur nú“,
sem fékk góðar viðtökur og var til
þess að þau Anne, Garðar og Ágústa
fóru um landið og sungu söngvana
af plötunni við undirleik Magnúsar
Kjartanssonar og fleiri tónlistar-
manna. Magnús Kjartansson lék
einnig mikilvægt hlutverk við gerð
nýju piötunnar, „l*ú reistir mig
upp“, hann útsetti flest lögin, stjórn-
aði upptöku. auk þess að syngja með
og leika undir.
Á hljómplötunni eru þrettán
lög, flest erlend, við Ijóð Garðars
Sigurgeirssonar og Sigurðar Æg-
issonar. Tvö lög eru eftir Magnús
Kjartanssonar og eitt eftir Eyþór
Stefánsson við ljóð Jakobs J.
Smára. Platan var hljóðrituð í
Supreme-hljóðverinu í Stokkhólmi
í september sl., og eru allir hljóð-
færaleikararnir utan Magnúsar
sænskir. Blm. spjallaði nýlega við
þau Anne, Garðar og Magnús um
nýju plötuna og spurði þau hjónin
fyrst hver tilgangurinn væri með
því að hafa alla textana trúarlegs
eðlis.
„Það er einfalt að svara því, við
erum að flytja boðskap og til þess
eins er leikurinn gerður,“ svaraði
Garðar. „Við erum bæði trúuð og
lítum á það sem skyldu okkar að
að boða kristna trú. Og þetta er
mjög góð leið til þess.“
— Nú eru þið bæði meðlimir í
Hvítasunnusöfnuðinum. Mótar sú
staðreynd ykkar boðskap?
„Nei, engan veginn. Það skiptir í
Kristileg skólasamtök:
Tfmaritid „Veg-
urinn44 komið út
ÚT ER kominn „Vegurinn", Kristilegt
skólablaó, 37. árg„ 2. tbl. Útgefandi er
Kristileg skólasamtök, KSS. í blaóinu
eru greinar, sögur og viAtal. M.a. grein
um l.úther eftir sr. Olaf Jóhannsson,
o.n.
Blaðinu er dreift ókeypis til allra
unglinga á aldrinum 13—20 ára á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og nokk-
urra presta úti á landi.
KSS heldur fund í kvöld, 19. nóv.,
kl. 20.30, í húsi KFUM og K, að
Amtmannsstíg 2b, og er yfirskrift
þessa fundar: Til hvers er ég?
Leiðrétting
RANGT var farið með nafn fram-
kvæmdastjóra Árborgar hf„ eiganda
skuttogarans Bjarna Herjólfssonar,
í blaðinu í gær. Framkvæmdastjóri
fyrirtækisins heitir Kristinn Hall-
dórsson. Guðmundur Hólm Indriða-
son, sem rætt var við í Mbl. í gær, er
stjórnarformaður Árborgar hf.
Blaðið birst velvirðingar á þessu
mishermi.
Kvenfélag Garðabæjar:
Kökubasar í Safn-
aöarheimilinu
KVENFÉLAG Garðabæjar heldur
kökubasar i safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í dag, laugardag. Verða
þar á boðstólum kökur, laufabrauð,
jólamunir og fleira.
sjálfu sér engu máli hvaða kristn-
um söfnuði fólk tilheyrir," segir
Garðar. „Það er meira spurning
um hvar menn finna sig. Hvíta-
sunnusöfnuðurinn er okkar söfn-
uður og okkur þykir óskaplega
vænt um hann. Það þýðir ekki að
aðrir séu verri. Ég er til dæmis
mikill Frammari og gæti ekki
hugsað mér að ganga í Val. En
mér dettur ekki í hug að halda því
fram að það séu lélegri knatt-
spyrnumenn í Val en Fram.“
— Hvað með þig, Magnús. Ert
þú genginn í Hvítasunnusöfnuð-
inn?
„Þetta er furðuleg spurning, en
kannski á hún alveg rétt á sér. Ég
hef nefnilega orðið var við það að
kunningjar og vinir eru farnir að
velta því fyrir sér hvort ég sé kom-
inn með „trúardellu" og þar með
endanlega genginn af vitinu.
Furðulegir fordómar sem fólk hef-
ur. Nei, ég er ekki genginn í Hvíta-
sunnusöfnuðinn, þótt ég sé vissu-
lega trúaður á mína vísu.“
— Hvernig bar það til að þú
fórst að vinna með þeim Garðari
og Anne?
„Garðar var eini maðurinn sem
gat klippt mig almennilega, enda
margfaldur íslandsmeistari í hár-
skurði, og við fórum að ræða þessi
mál saman yfir klippingu. Og mér
fannst allt í lagi að athuga málið.
Við gerðum þarna eina plötu, sem
Ingunn Eydal opnar málverkasýn-
ingu á Kjarvalsstöðum laugardaginn
19. nóvember. Þetta er fyrsta einka-
sýning Ingunnar á málverkum og er
haldin í tilefni þess að 1983 hlaut
hún starfslaun Reykjavíkurborgar
og sýnir nú afraksturinn. Á sýning-
unni eru 44 olíumálverk, l'lest máluð
á þessu ári. Efni myndanna sækir
Ingunn að eigin sögn í sitt nánasta
umhverfi og hugleiðingar um dag-
legt líf.
fékk viðtökur framar okkar bestu
vonum. Seinna fórum við að spila
saman og syngja á samkomum, og
jukum þá smá saman við pró-
gramið. Nú, þegar það svo kemur í
Ijós að þau Garðar og Anne ætla
að „flygja land“, en þau fluttu til
Noregs í vor, þá áttum við í sarpi
okkar töluvert af lögum sem
okkur fannst tilvalið að koma á
plötu.
Það var ákveðið að gera þetta í
Svíþjóð, í hljóðveri sem er eitt það
fulikomnasta á Norðurlöndunum
og þótt víðar væri leitað. Ég er á
því að það hafi verið mjög viturleg
ákvörðun, því við vildum reyna að
fá fram hreinan og fínan „kirkju-
legan" tón, en til þess þarf full-
komin bergmálstæki. Og berg-
málstækin í þessu hljóðveri eru
ein sér dýrari en fullbúið íslenskt
stúdíó."
— Garðar, er þetta dæmigerð
jólaplata?
„Það held ég ekki. Það eru að
vísu fjögur lög á plötunni sem
falla mjög vel að jólahátíðinni, en
kristin trú er ekki bundin við einn
dag á ári og því eiga þessi lög við
allt árið um kring. En það má
kannski segja að þetta sé jólaplata
sem endist allt árið.“
Klukkan 17 í dag munu þau
Anne og Garðar kynna nýju plöt-
una í Fíladelfíukirkjunni, Hátúni
2. Allir eru velkomnir.
Ingunn nam grafík við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og
hefur tekið þátt í um 50 grafíksýn-
ingum hér heima og víða erlendis,
svo sem í Finnlandi, Svíþjóð og í
Bandaríkjunum.
Sýning Ingunnar opnar klukkan
tvö á laugardag og er opin daglega
frá kl. 14—22. Opnunardaginn er
þó lokað milli fimm og sjö. Sýning
hennar stendur til 4. desember.
Moiyunblaðid/ KOE
Ingunn Eydal opnar fyrstu einkasýningu sína á málverkum.
Ingunn Eydal með sýningu á olíumálverkum