Morgunblaðið - 19.11.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
Árni Kr. Sigurðs-
son — Minning
Árni Sigurðsson vinur okkar er
látinn. Hann lést í Landspitalan-
um í Reykjavík eftir langt og erf-
itt sjúkdómsstríð hinn 11. október
sl.
Árni er fæddur að Steinmóð-
arbæ og alinn þar upp með for-
eldrum sínum, Sigurði Árnasyni
bónda og konu hans, Ingibjörgu
Árnadóttur. Svo sem þá var títt
ólst Árni upp við öll venjuleg
sveitastörf. Hann vann við hey-
skap, hirðingu búpenings, en einn-
ig lagði hann ungur stund á sjó-
sókn, bæði á árabátum, vélbátum
og togurum. Snemma kom fram
góð greind Árna, enda hneigðist
hugur hans til frekari mennta en
þá var algengt. Árið 1928—29 var
Árni nemandi í alþýðuskólanum á
Laugarvatni og var í fyrsta nem-
endahópi þess skóla og komu þá
fram hinir góðu námshæfileikar
hans — þó að ekki yrði um frekara
nám að ræða. Árni var skáldmælt-
ur vel og varpaði bæði fram stök-
um og orti kvæði við ýmis tæki-
færi og nutu þau vinsælda meðal
Eg hef alla tíð trúað á Guð, en þegar eg hef beðið, hefur það
aldrei virzt hafa nein áhrif. Mig fýsir að biðja núna, því að eg
hef lent í miklum vanda, en er nokkurt gagn að því?
Mig uggir, að mörgum sé líkt farið og yður, að þeir
beini ekki huganum í neinni alvöru að Guði fyrr en í
nauðirnar rekur og þeir finna, að þeir þurfa á hjálp
að halda. Eg vil fullvissa yður um það, að Guð vill,
að þér snúið yður til hans, og hann vill hjálpa yður,
vegna þess, að hann elskar yður.
Hvers vegna getum við beðið? Við getum það fyrst
og fremst, vegna þess að Guð er persóna og lætur sér
annt um hag okkar. Guð er ekki einhver óljós og
ópersónulegur kraftur. Nei, hann er veruleiki.
En hér er líka annmarki: Við erum syndug og
höfum engan rétt á að koma í návist Guðs, sem er
algjörlega heilagur og hreinn. Við erum ekki verðug
að nálgast hann og eigum enga heimtingu á blessun
hans. Hví skyldum við ætlast til þess, að Guð heyri
bænir okkar, þegar við sjáum í Biblíunni að syndin
hefur rofið samband okkar við Guð? Biblían segir:
„Það eru misgjörðir yðar, sem skilnað hafa gjört
milli yðar og Guðs yðar, og syndir yðar, sem byrgt
hafa auglit hans fyrir yður.“ (Jes. 59,2).
Þetta er ein ástæðan til þess, að Kristur kom — til
þess að opna þér og mér veg til Guðs. Á krossinum
dó Kristur til þess að taka syndir okkar í burtu. Við
höfum afrækt Guð, en Guð fyrirgefur okkur vegna
þess, sem Kristur hefur gert fyrir okkur. Við getum
að nýju öðlazt sátt við Guð með því að trúa á Krist
og treysta honum. Þegar við setjum traust okkar á
hann, „höfum vér frið við Guð fyrir drottin vorn
Jesúm Krist, sem vér höfum aðgang fyrir með
trúnni til þessarar náðar, sem vér stöndum í“. (Róm.
5,1-2).
Þér þarfnizt Krists, og þér þurfið að helga honum
líf yðar með því að stíga skref trúarinnar. Þegar þér
gerið það, verðið þér barn Guðs og hafið aðgang að
hástóli Guðs sjálfs, hins himneska föður. „Þetta er
sú djörfung, sem vér höfum til hans, að ef vér biðj-
um um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss.“
(Jóh. 5,14). „Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp
í nauðum." (Sálm. 46,2).
sveitunga hans. Árni var og frá-
bær íþróttamaður — en einkum
skraði hann fram úr í sundíþrótt-
inni og um margra ára skeið
kenndi hann sund.
Hugur Árna hneigðist snemma
að félagsmálum og um árabil var
hann formaður ungmennafélags-
ins „Trausta". Var starfsemi þess
félags með miklum blóma um
langt skeið og þá ekki hvað síst í
formannstíð Árna. Má marka hve
störf Árna fyrir ungmennafélagið
„Trausta" voru vel unnin, að hann
var síðar kjörinn heiðursfélagi
þess. Fleiri félagsstörf mun Árni
hafa látið til sín taka — svo sem
safnaðarstörf — en ekki verður
nánar að því vikið í þessari stuttu
grein.
Árið 1931 kvæntist Árni sæmd-
arkonunni Isleifu Ingibjörgu
Jónsdóttur frá Borgareyrum undir
Eyjafjöllum og hófu þau hjón
búskap það sama ár.
Nýbýlið Bjarkaland byggðu
Árni og ísleif út úr jörðinni
Steinmóðarbæ árið 1933 og hafa
þau búið þar síðan. Bjarkalands-
heimilið er víðþekkt fyrir mynd-
arskap og rausn. Tún eru mikil að
vöxtum og gæðum, 80—90 ha, og
framleiðslan að sama skapi góð.
Gestrisni heimilisins er viðbrugð-
ið og ýmsir þeir er minna hafa
mátt sín hafa átt öruggt skjól hjá
þessu góða fólki. Jafnframt bú-
skapnum og því að reisa nýbýli
sem óx hratt, vann Árni mörg
sumur hjá Vegagerð ríkisins og
hafði aðalumsjón með sprenging-
um og öðrum hinum vandasöm-
ustu störfum og þá einkum við
fyrirhleðslu Markarfljóts og Þver-
ár en vann einnig að sömu störf-
um víða um Skaftafellssýslu.
Þeim hjónum, Isleifu og Árna,
varð fimm barna auðið. Fjórir
synir þeirra eru nú uppkomnir,
allir hinir mestu myndar- og
dugnaðarmenn, dóttur misstu þau
tæplega ársgamla.
Arni Sigurðsson var maður
gjörvilegur að vallarsýn og allri
framgöngu. Fastur var hann fyrir
en drengskap hans var viðbrugðið.
Vinfastur og traustur svo orð er á
gert.
Við hjón höfum verið þeirrar
gæfu aðnjótandi að tveir sona
okkar, Sigurjón og Björn Sveinn,
hafa, hvor á eftir öðrum, verið
sumardvöl að Bjarkalandi.
Fyrir það og alla vináttu og
tryggð munum við ávallt standa í
ógoldinni þakkarskuld við heið-
urshjónin ísleif og Árna á Bjarka-
landi. Skarð er nú fyrir skildi,
horfinn er vinur sem aldrei vékst
undan skyldum sínum. Sár harm-
ur er nú kveðinn að eftirlifandi
eiginkonu, frú Isleif Jónsdóttur,
og sonunum fjórum sem syrgja nú
góðan eiginmann og föður.
Við hjónin vottum ástvinum
hans dýpstu samúð okkar. Að leið-
arlokum þökkum við hjónin órofa
vináttu og tryggð við okkur og
biðjum Guð að gæta Árna og
biessa hann.
Sigríður og Björn Önundarson.
SARA MOON/SPANG OLSEN
BARA TVÖ AF ÓTAL ÞEKKTUM NÖFNUM SEM SJÁST Á
EFTIRPRENTUNUM FRÁ OKKUR. MARGAR STÆRÐIR OG ÖLL VERÐ.
Dalshrauni 13
S. 54171
Góð
merki
9°tt
verð
Það hafa margir gert góð kaup nú þegar á splunku-
nýjum vörum í Markaðshúsinu, Sigtúni. Með þess-
ari auglýsingu erum við að minna á okkur og þær
geysigóðu vörur sem á boðstólum eru:
Karnabær, Belgjagerðin (vinnuföt), Sportval (sportfatnaður),
Bikarinn (sportfatnaður), Henson (íþróttafatnaöur), Utilíf (sport-
fatnaður), Æsa (skartgripir), Assa (tízkuföt, barnaföt), S.K.
(sængurfatnaður), Libra (fatnaður), Gallerí Lækjartorg (hljóm-
plötur), Raftak (rafmagnsvörur), Lagerinn (fatn. á alla fjölskyld-
una), Tindastóll (S.H.-gluggatjaldaefni), G.M.-prjónagarn,
Prjónastofan Katla (ísl. prjónapeysur), K. Helgason (sælgæti),
M. Bergmann (sængurfatnaöur).
Þegar þú ert búin(n) að verzla, sestu niður í ró og næði á
kaffiteríunni.
Opiö mánud.—fimmtud. kl. 12—18, föstud. 12—19, laugard. kl. 12—16.
MARKAÐSHÚSIÐ, SIGTÚNI 3, 2. HÆÐ.