Morgunblaðið - 19.11.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
39
fclk í
fréttum
Eru frægir feður
vondir feður?
+ Frægir feöur eiga ósjaldan í erfiöleikum
með syni sína og segja sumir sálfræöingar,
aö þaö sé ekki nema eölilegt. Almenningur
gerir oft þær kröfur til sonanna, að þeir feti í
fótspor feöranna og kallar þá verrfeðrunga ef
þeir standa sig ekki í stykkinu. Svo er líka
hitt, aö synirnir þekkja þá hlið á feörum sín-
um, sem ekki snýr aö fjölmiölunum.
Sem dæmi um þetta má nefna son Bing
Crosbys, en ævisaga hans snýst mest um hvaö
pabbi hans hafi veriö vondur, og Ryan O’Neal,
sem nokkrum sinnum hefur lent í blóðugum
slagsmálum viö son sinn, m.a. slegið úr honum
tennur. Nú hefur Zak, sonur Ringo Starrs og
fyrrverandi konu hans, Maureen, einnig látiö í
sér heyra og hefur fátt gott um fööur sinn aö
segja. Hafi hann komið illa fram jafnt viö konu
sína og son og aldrei veriö heima þegar Zak
þurfti á honum aö halda. Heldur illa er líka
komiö fyrir Zak, sem nú er um tvítugt. Hann
hefur veriö ofurseldur áfengi og eiturlyfjum og
meö öllu óvíst hvernig honum reiöir af.
+ Lee Kil Woo geispar stór-
um og Ahn Gi Sook sýnir
líka á sér þreytumerki eftir
langa ferö frá Suöur-Kóreu
til Washington t Bandaríkj-
unum. Myndin var tekin
þegar Reagan, Bandaríkja-
forseti, og Nancy kona hans
komu heim úr sex daga
feröalagi um Japan og
Suöur-Kóreu en börnin tóku
þau meö sér til Bandaríkj-
anna þar sem þau eiga aö
gangast undir hjartaupp-
skurö.
+ Játvaröur Bretaprins
stundar nú fornleifafræði í
Cambridge og gerir sér
mikiö far um aö vera sem
alþýölegastur og lifa sama
lífi og aörir stúdentar. Þess
vegna geymir hann fína bíl-
inn sinn heima í bílskúr og
hjólar um borg og bý á fimm
gíra reiöhjóli. Hann fær þó
ekki aö fara alveg frjáls
feröa sinna, gæslumennirnir
fylgja honum eftir bæöi é
reiöhjóli og í bíl.
KJÖTHÁTÍÐ í
18. og 19.
nóvember
Á KJÖTHÁTÍÐINNI í BLÓMASAL verða á boðstólum
Ijúffengir lambakjötsréttir, auk fleira góðgætis.
Matreiðslumeistarar okkar laða fram bestu eiginleika
íslenska lambakjötsins.
Módelsamtökin sýna glæsilegan fatnað frá
MARÍUNUM, sem hanna og sauma fatnaðinn sjálfar.
Sérstæð tískusýning sem gleður augað.
Matseðill:
Forréttir:
Crafinn silungur að hætti vatnabóndans
og
Kjötseyði smalans
Aðalréttir:
Lambabuffsteik gangnamanna
eða
Marineraður lambageiri förumannsins
eða
Lambakóróna fjallakóngsins
eða
Léttreyktur lambahryggur að hætti sauðaþjófa
eða
Hvitlaukskryddað lambalæri hreppstjórans
Eftirréttir:
Rjómapönnukökur bústýrunnar
eða
Eplakaka heimasætunnar
verð kr. 550.-
Matur framreiddur frá kl. 19.
Borðapantanir í símum 22321 og 22322
Verið velkomin
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIÐA fSl HOTEL