Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 47
MorgunblaMA/ FriOþfótur
• Þorgils búinn aö skora eitt af fjórum mörkum sínum í leiknum í gær. Þrátt fyrir mikla tilburöi kom ísraelski markvörðurinn engum vörnum viö.
16 marka sigur FH-inga
TELJA má fullvíst aö lið FH sé
örugglega komiö í átta liöa úrslit
í IHF-keppninni í handknattleik.
FH-ingar gjörsigruöu ísraelska
liöiö Maccaby í Laugardalshöll-
inni í gærkvöldi meö 16 marka
mun 35—19. í hálfleik var staöan
17—8 fyrir FH. Þeir fjölmörgu
áhorfendur sem komu í Laugar-
dalshöllina í gærkvöldi hafa ör-
ugglega átt von á sterkara liö en
Maccaby var. Geta liösins var
mjög lítil. Leikmenn frekar smá-
vaxnir og liðið alveg skyttulaust.
Maccaby var því auöveld bráö
fyrir liö FH. Nokkur hraöi var í leik
liðanna og er líöa tók á leikinn fór
aö bera á nokkru kæruleysi í liöí
FH enda næsta sama hvernig
leikið var sigurinn var tryggöur,
og enginn hætta á aö FH geti tap-
aö síöari leiknum. FH-liöiö fékk
73 sóknir í leiknum, og reyndu 62
skot eöa meira en skot á mínútu.
Þetta gefur til kynna meira en
margt annaö aö ekki hafi verið
mikil alvara í leiknum. En vænt-
anlega mæta FH-ingar verðugri
mótherjum í næstu umferö.
Strax í upphafi leiksins mátti sjá
hvert stefndi. FH skoraöi tvö fyrstu
mörk leiksins úr hraöupphlaupum,
en ísraelsmenn jöfnuöu 2—2. Var
þaö í eina skiptiö í leiknum sem
staöan var jöfn. FH seig svo fram-
úr og þegar 20 minútur voru liönar
af leiktímanum var staöan orðin
10—4. FH bætti um betur og
komst í 15—5 og um þaö leyti fór
alvaran aö fara úr leiknum. Þegar
flautaö var til leikhlés var svo niu
marka munur.
Framan af síöari hálfleiknum
gekk FH frekar illa að ná enn
stærri forystu og þegar síöari hálf-
leikur var hálfnaöur var .tíu marka
munur. En undir lok leiksins fór aö
ganga betur og þegar upp var
staöiö var munurinn á liöunum
oröinn 16 mörk. Svo stór sigur aö
öruggt má teljast aö FH'sé komiö í
átta liða úrslit og útilokaö er aö
liðiö geti tapaö síöari leiknum sem
fram fer í Hafnarfirði á sunnudag.
Þar er aöeins spurning um hversu
stór sigurinn veröur.
Þaö er erfitt aö dæam liö FH
eftir þessum leik. Oft á tíöum brá
fyrir góöum leik hjá FH-ingum. Fal-
legar leikfléttur, gott línuspil. Sér-
staklega hefur Kristján Arason
gott auga fyrir Þorgils Óttar á lín-
unni. Atli Hilmarsson skoraöi gull-
falleg mörk í leiknum, og sma má
segja um Pélnia Jónsson sem nýtti
tækifæri sín í* horninu mjög vel.
Vörn FH heföi mátt vera betri. En
þess ber þó aö gæta aö oft er erfitt
aö leika á móti liðum eins og
„Dómarahneyksli“
— hrópuðu leikmenn UMFN
ÍBK sigraði Njarövíkinga í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í
gærkvöldi meö einu stigi, 61—60,
í æsispennandi leik, á heimavelli
Njarövíkinga. Þegar 6 mínútur
voru eftir, haföi lið ÍBK 11 stiga
forskot, 54—43. Þá loksins fóru
leikmenn UMFN { gang, en fram
aö því haföi lið þeirra leikiö illa.
Þegar ein mínúta og þrjár sek-
úndur voru eftir var staöan
60—58 fyrir ÍBK, þá héldu Keflvík-
ingar boltanum í 30 sek. vísvit-
andi og UMFN fékk boltann þegar
33 sek. voru eftir af leiktímanum.
Njarðvíkingar tóku lífinu meö ró
og léku af skynsemi og jöfnuöu
leikinn, 60—60, þegar sjö sek-
úndur voru eftir. Þaö var Sturla
Örlygsson sem jafnaöi metin með
fallegri körfu.
En dómari leiksins dæmdi um
leiö ruðning á Sturlu og Keflvík-
ingar fengu tvö vitaskot. Þorsteinn
Bjarnason fékk þaö hlutskipti aö
taka vítin og skoraöi úr ööru og
þaö nægöi til sigurs. Keflvíkingar
fögnuöu sígrinum ákaft á meöan
Njarðvíkingar hrópuöu „dómara-
hneyksli" og bættu við „enda dóm-
arinn úr Val“.
Keflvíkingar böröust vel í leikn-
um, á sama tíma og leikmenn
UMFN voru kærulausir í leik sín-
um. Og sem dæmi um kæruleysi
leikmanna UMFN þá misstu þeir
boltann sjö sinnum útaf í send-
ingum sínum bara í fyrri hálfleikn-
um. Þá var vítahittni UMFN slök.
Einn leikmaöur tók til dæmis níu
viti í fyrri hálfleik, en skoraói bara
úr einu.
Liö ÍBK átti sigurinn fyllilega
skiliö. Bestu menn í liði ÍBK voru
Þorsteinn Bjarnason og Jón Kr, þá
var Óskar góöur. i liði Njarðvíkur
var Valur aö venju bestur, en þeir
Gunnar og Sturla voru þokkalegir.
NJARÐVÍK: Valur 27, Sturla 12,
Gunnar 11, Ástþór 6, Júlíus 2, Ingi-
mar 2.
ÍBK: Þorsteinn 14, Jón Kr. 14,
Óskar 13, Björn 6, Hafþór 6, Guö-
jón 4, Siguröur 4.
ÓT/ ÞR
Maccaby sem halda boltanum
lengi og hnoöa mikiö inn í vörn
andstæöinganna. Dómarar í leikn-
um voru norskir og dæmdu þeir
vel, en voru stundum fullstrangir í
dómum sínum. Um liðiö er þaö aö
segja aö þaö er eins og þokkalegt
2. deildar liö en varla meira.
Mörk FH: Kristján 10,4v, Pálmi
7, Atli 7, Hansi 5, Þorgils 4, Val-
garö 1, og Guöjón 1. Tveimur
FH-ingum þeim Pálma og Kristjáni
vr vikiö af leikvelli í 2. mín hvor.
Einum leikmanni Maccaby var vik-
iö af leikvelli í 2. min. Leikur lið-
anna var prúömannlega leikinn.
—ÞR
• Þorsteinn Bjarnason skoraði sigurkörfu ÍBK í gær og var jafnframt
stigahæstur og besti maöurinn í liöi ÍBK.