Morgunblaðið - 01.12.1983, Page 23
V
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983
63
r
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
, TIL FÖSTUDAGS
Niðurrifsöflin vantar
aldrei sjálfboðaliða
Árni Helgason skrifar:
„Velvakandi.
Valdhafar hafa séð sig knúða til
að rýra kaup landsmanna á þessu
ári, og kannski ekki að ástæðu-
lausu. Þeir hafa einnig hvatt þjóð-
ina til sparnaðar og varað við allri
skaðlegri eyðslu.
Því vekur það undrun mína að
varaformaður Alþýðuflokksins sér
nú það eitt til heilla landi og lýð
að hefja bruggun sterks bjórs í
stórum stíl og bæta þannig við þau
vímuefni sem fyrir eru. Að sama
aðila detti í hug að minnka heldur
það sem fyrir er, t.d. með því að
bæta fyrir afgiöp Sighvats Björg-
vinssonar á sinni tíð? Síður en svo,
og svo á fólkið að kalla þennan
ósóma yfir sig.
Um leið og heilbrigðisþjónusta
Sameinuðu þjóðanna varar við
allri viðbót, um leið og Norðmenn
frændur vorir stynja undir afleið-
ingum bjórþambs og að maður tali
nú ekki um Dani, sem hafa bætt
pillunum við, og Svíum sem eyða í
slór og slark á bjórkrám, sjá þess-
ir alþingismenn sem nú standa að
þessu, ekkert heillavænlegra en
auka neyslu þess sem einungis
skaðar einstaklinginn. Og er það
ekki tímanna tákn að þeir sem eru
í fararbroddi eru þeir sem telja sig
málsvara alþýðunnar og smæl-
ingjanna. Með þessu fullyrða þeir
að fólk hafi nóga peninga til að
eyða á skemmtistöðum og bjór-
búllum og heimilin séu aukaatriði.
Hverskonar hugarfar er þetta?
Er nema von að menn spyrji. Nú
er rokið upp til handa og fóta og
ábyggilega ætla þessir „alþýðuvin-
ir“ landsmönnum þetta i jólagjöf.
Ekki svo að þeir ætli sér sjálfir að
vinna þetta verk. Þeir verða að
hafa tækifæri til að þvo hendur
sínar á eftir eins og Pílatus forð-
um, þegar ódæðið er orðið. Ætla
almenningi að hafa vit fyrir þing-
mönnum og er vel ef svo skyldi
takast, en þar sér áfengisauðvald-
ið um áróður og vita því flutn-
ingsmenn að þeim er nóg að
standa á bak við.
Svona er nú hugarfarið á árinu
1983; árum menningar og þekk-
ingar. Menn eru undrandi á öllum
herbúnaði, undrandi á að fólk
skuli leggjast á drykkju og eitur-
efni, en gleyma því að í stað þess
að sporna á móti þessum ófögnuði
hamast þingmenn við að opna sem
flestar flóðgáttir og eru hissa á
því á eftir að fólk skuli vera svo
vitlaust að flækja sig í netinu sem
þeir sjálfir hafa lagt.
Ég minnist æsku minnar þegar
Alþýðuflokkurinn var skeleggast-
ur í baráttu fyrir bindindi og holl-
um siðum, þegar hann var kyndill
á leið alþýðunnar til betri tíma og
bera svo saman við daginn í dag,
þar sem hann er orðinn „lampa-
ljós á leiðinni oní gilið“.
Niðurrifsöflin í heiminum vant-
ar aldrei sjálfboðaliða og nógir
eru til að loka augunum fyrir mis-
tökum og afsaka sig og þykjast
góðir á eftir.
Ég hefi aldrei vitað til þess að
þeir sem nú eru í framvarðarsveit
bjórfrumvarpsins á Alþingi hafi
lagt nokkurn skerf til mannbóta
eða hollra þátta í þjóðfélaginu,
enda hefir hugarfarið kannski alls
ekki staðið til þess. Nú, ef að þess-
ara manna áliti er hollast fyrir
land og þjóð að drekkja manndómi
og lífsgæfu í bjór og brennivíni þá
er það viðhorf út af fyrir sig; og þá
er hugsun í því að betra sé illt að
gera en ekki neitt."
• •
Orugg þróun vænlegust
til árangurs í framleiðslu-
og sölumálum búvara
Þráinn Bjarnason skrifar:
„Velvakandi.
Éftirminnilegum og jafnframt
ánægjulegum landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins er lokið. Störf
hans einkenndust af fuilkominni
samstöðu fundarmanna um
stefnumörkun flokksins og nýja
forystu hans.
Jafnframt fór ekki framhjá
neinum er þennan fund sóttu, að
fundarmenn kunna vel að meta og
þakka einarða, þrotlausa og
drengilega baráttu fráfarandi for-
manns, Geirs Hallgrímssonar,
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þrátt
fyrir erfiðar aðstæður að ýmsu
leyti.
Eitt var það þó sem olli mér
nokkrum vonbrigðum á þessum
fundi, en það voru tilraunir nokk-
urra þéttbýlismanna til þess að
slá sig til riddara í augum neyt-
enda landbúnaðarvara með til-
löguflutningi um málefni land-
búnaðarins, sem mér sýnist að
sanni hvort tveggja, mikla van-
þekkingu þessara manna á fram-
leiðslu- og markaðsmálum land-
búnaðarins, svo og takmarkaða
velvild þessara aðila í garð þess
fólks sem í sveitum býr, að ekki sé
fastar að orði kveðið.
Sem betur fór voru tillögur
þessar ekki samþykktar á fundin-
um, heldur vísað til miðstjórnar
að tillögu fráfarandi formanns
flokksins og fá þar vonandi þá af-
greiðslu, sem þeim hæfir.
í
Það er slæmt athæfi, þegar gerð
er tilraun til þess að skapa óvild
og sundurþykkju milli stétta
þjóðfélaginu. Við skulum, Sjálf-
stæðismenn, láta öðrum öflum eft-
ir það hlutverk.
Enda skal dregið úr þeirri nauð-
syn sem á því er að neytendur fái
sem ódýrastar og bestar landbún-
aðarvörur. Þar fara saman hags-
munir bænda og neytenda.
Að sjálfsögðu má ýmsu breyta
til batnaðar í framleiðslu- og sölu-
málum búvara. Þar mun örugg
þróun vera vænlegust til góðs
árangurs. Hitt, að ætla að koll-
varpa því fyrirkomulagi sem þró-
ast hefir, væri ekki til góðs, hvorki
fyrir bændur né neytendur."
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisröng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklcga þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Veðurfræðingar segja að þetta sé mesti
stormur sem komið hefur í mörg ár.
Rétt væri: Veðurfræðingar segja að þetta sé mesti
stormur sem komið hafi í mörg ár.
Eða: Að sögn veðurfræðinga er þetta mesti stormur
sem komið hefur í mörg ár.
S2P SIGGA V/öGA £ ‘llLVtRAM
Viðskiptavinir
athugið!
Vöruafgreiöslur okkar veröa opnar föstudagana 2., 9.
og 16. desember til kl. 18.45.
EIMSKIP
Vöruafgreiösla.
Hún veit
hvaö hún
vill
— og þaö er
aðeins
það besta
Schwarzkopf 9
i • ^
hársnyrtivörur
í hágæöafiokki.
,/0/v1 VÓ*/S>Nr
SOH SR •