Morgunblaðið - 30.12.1983, Page 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
299. tbl. 70. árg.
FOSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Miklu aflaári
lýkur í Noregi
Samdráttur varð þó í þorsk- og ýsuveiðum
OnIó, 29. deflember. Frá frétUriUra Mbi., Jan-Erik Lauré.
HEILDARFISKAFLI Norðmanna á
yfirstandandi ári, að bræðslufiski
undanskildum, var 300.000 tonnum
meiri en f fyrra. Aflamet var sett í
Jólahátíð á
klósettinu
Ósló, 28. deaember. Frá Jan Erik Lauré,
frétUriUra Mbl.
ÞAU URÐU ekki beint skemmtileg
jólin fyrir konu nokkra f Ósló, sem
varð fyrir því óláni að læsa sig inni
á baðherberginu og fara þannig á
mis við allan jólamatinn, að ekki sé
nú minnst á gjafirnar góðu.
Konan býr með annarri í íbúð-
inni og höfðu þær í sameiningu
þrifið íbúðina hátt og lágt og
baðherbergið líka en á hurðina
vantaði húnana þannig að ekki
mátti leggja hana að stöfum.
Á aðfangadag, þegar sambýl-
iskonan var farin til fjölskyldu
sinnar, brá hin sér á klósettið til
að snyrta sig aðeins þvi að hún
ætlaði einnig að vera að heiman
á jólunum. Henni brá hins vegar
í brún þegar hún ætlaði út aftur
því dyrnar höfðu lokast á eftir
henni.
1 tvo daga og tvær nætur var
konan á klósettinu og þótt hún
hrópaði og lemdi hurðina sundur
og saman kom það að engu haldi.
Jólunum varð hún að eyða á klós-
ettinu og svona til hátíðabrigða
fékk hún sér stundum vatnssopa
úr krananum.
Sambýliskonan kom heim á
annan dag jóla og varð þá Ijóst
hvað gerst hafði. Henni tókst þó
ekki að opna hurðina og leitaði á
náðir nágranna, sem kom þegar
til hjálpar. Honum tókst strax að
opna hurðina og sagði, að með
því að beita hyggjuvitinu eilítið
hefði auðveldlega mátt opna
hurðina innanfrá með tann-
burstaskafti.
rækju- og loðnuveiðum en samdrátt-
ur varð í þorsk- og ýsuveiðum.
Heildarfiskaflinn á árinu fyrir
utan bræðslufisk varð 2,9 milljónir
tonna og er aflaverðmæti upp úr
sjó rúmir 15 milljarðar ísl. kr.
Rækjuaflinn er nú 75.000 tonn, hef-
ur aukist um 23.500 tonn milli ár-
anna, og loðnuaflinn nærri fimm
milljónir lesta, 350.000 lestum
meiri en í fyrra. Á þessu ári jókst
síldaraflinn um 400.000 lestir.
Mikill samdráttur varð í þorsk-
og ýsuveiðum á árinu. Ýsuveiðin
var helmingi minni en í fyrra og í
ár veiddust 276.000. tonn af þorski
en 343.000 tonn á árinu 1982. Af
öðrum bolfiski var aflinn nokkurn
veginn sá sami.
Norðmenn óttast nú, að þeir
verði að hætta rækjuveiðum í Bar-
entshafi og kenna um mistökum
við gerð fiskveiðisamningsins við
Sovétmenn í lok síðasta mánaðar.
Það hefur alltaf gilt, að ef mikið er
af þorsk- og ýsuseiðum á rækju-
miðum skuli veiðunum hætt en í
síðasta mánuði var karfaseiðum
bætt við. Þau eru hins vegar úti um
allt og nú örvænta Norðmenn um
framhald rækjuveiðanna nema á
þessu verði ráðin bót.
Ungu brúðhjónin veifa af svölum furstahallarinnar.
Karólína giftist í trássi við kirkjuna
Monte Carlo, Mónakó, 29. desember. AP.
KARÓLÍNA prinsessa af Mónakó
og ungur og auðugur Itali voru í dag
gefin saman í hjónaband f fursta-
höllinni í Mónakó. Vígslan, sem var
borgaraleg, fór fram f speglasal
hallarinnar undir mynd af móður
Karólínu, Grace heitinni prinsessu.
Að vígslunni lokinni gengu
ungu hjónin, Karólfna og Steph-
ano Casiraghi, út á hallarsvalirn-
ar og veifuðu til fólks, sem safn-
ast hafði saman til að samfagna
þeim. Karólína verður 27 ára
gömul 23. janúar nk. en Stephano
er ekki nema 23 ára gamall. Að-
eins nánustu ættingjar og vinir
voru við vígsluna en nokkru fleiri
í veislunni á eftir.
Þetta er annað hjónaband
Karólínu að veraldlegum lögum
en ekki kirkjulegum, því kaþólska
kirkjan hefur ekki fallist á að
ógilda fyrra hjónaband hennar og
franska glaumgosans Philippe
Junot, sem var 17 árum eldri en
hún. Af þessum sökum fyrst og
fremst var vígslan jafn látlaus og
raun bar vitni og þeir 50 frétta-
ritarar, sem margir komu langan
veg til Mónakó, fengu lítið fyrir
sinn snúð. Þeir komust að því, að
brúðkaupstertan hefði verið
þriggja laga og með súkkulaði-
bragði. Öðru ekki.
ísraelskar herþotur
ógnuðu Sýrlendingum
Jerúsalem, Beirút, 29. desember. AP.
ÍSRAELSKAR flugvélar steyptu sér
yfir stöðvar Sýrlendinga í Bekaa-dal í
dag án þess að meira væri að gert.
Sýrlendingar brugðust við aðgerðun-
um með ákafri loftvarnaskothríð. Að-
stoðarutanríkisráðherra Egypta átti f
dag viðræður við ísraelska embætt-
ismenn í Jerúsalem. Miklar deilur
eru nú í ísraelsku stjórninni vegna
sparnaðartillagna fjármálaráðherr-
ans.
ísraelsku flugvélarnar gerðu
þrisvar í dag sýndarárásir á borgir
í Suður- og Austur-Líbanon og
stöðvar Sýrlendinga í Bekaa-dal og
svöruðu Sýrlendingar með ákafri
skothríð. ísraelsku flugvélarnar
slepptu fjölda loftbelgja til að villa
um fyrir flugskeytum og er ekki
vitað til, að nein vélanna hafi orðið
Sovéskur liðhlaupi í viðtali við austurrískt blað:
„Blekkingarvefurinn raknaði
á blóðvöllunum í Afganistan"
Vin, 29. desember. AP.
í VÍN í Austurríki var í dag birt viðtal við sovéskan hermann, liðhlaupa,
sem leitaði á náðir frelsissveitamanna í Afganistan. Segir hann þar, að
eiturlyfjaneysla sé orðin algeng meðal sovéskra hermanna og baráttuand-
inn enginn. Þegar hermennirnir snúi heim skilji þeir eftir blekkingarvef
hins sovéska kommúnisma innan um blóði drifin Ifk kvenna og barna í
bæjum og borgum Afganistans.
Viðtalið við sovéska hermann-
inn, Vladislav Naumov að nafni,
birtist f Vínarblaðinu Kurier en
ekki var þess getið hvar hann
væri nú niðurkominn. Að sögn
Naumovs ríkir óskaplegt hatur
meðal Afgana f garð Sovét-
manna, sem réðust með hervaldi
inn í landið fyrir fjórum árum.
Segir hann, að mannfall meðal
sovésku hermannanna sé miklu
meira en af sé látið en tölur um
það séu hins vegar hernaðar-
leyndarmál. „Sjúkrahúsin eru öll
yfirfull af særðum mönnum, ekki
aðeins í Afganistan heldur einnig
í Usbekistan, Tadzhikistan og
öðrum héruðum í Sovétríkjunum.
Um það má þó ekki tala, heryfir-
völdin gæta þess,“ segir Naumov.
„Hermennirnir nota hass og
önnur eiturlyf," segir Naumov,
„og jafnvel foringjarnir ota þeim
að hermönnunum áður en mann-
drápin hefjast." Naumov var f
vélhjóladeild sovéska herliðsins f
borginni Jalalabad skammt frá
landamærunum við Pakistan „og
þar kynntist ég fyrst hatrinu,
sem Áfganar leggja á Sovét-
Sovéskir hermenn í Afganistan.
menn“. „Ég er því feginn að ég
hljóp úr Rauða hernum. 1 þessu
stríði deyja svo margir og ör-
kumlast."
„óttinn við að deyja og and-
staðan við tilgangslausum fjölda-
morðum vex stöðugt meðal sov-
ésku hermannanna f Afganistan,"
segir Naumov. „Blekkingarvefur
hins sovéska kommúnisma um
mikilfengleik sinn og réttsýni var
fljótur að rakna á blóðvöllunum í
Afganistan.“
fyrir skoti. Sýrlendingar sendu
nokkrar véla sinna á loft en ekki
kom þó til átaka í lofti. Er litið á
þessar aðgerðir ísraela sem aðvör-
un til Sýrlendinga vegna aukinna
umsvifa skæruliða á yfirráðasvæði
Israela i Líbanon.
Safi Abdel-Hamid, aðstoðarut-
anríkisráðherra Egyptalands,
ræddi í dag við ísraelska embættis-
menn og ráðherra í Jerúsalem og
var umræðuefnið sem fyrr friður í
Miðausturlöndum. Hefur svo hátt-
settur Egypti ekki komið til ísraels
í rúmt ár en ísraelar segja hann
vera að endurgjalda líka heimsókn
til Kairó í fyrra mánuði. 1 Kairó er
því hins vegar hvíslað, að Mubarak,
Egyptalandsforseti, vilji á þennan
hátt þakka ísraelsstjórn, að hún
skyldi leyfa 'Arafat og mönnum
hans að fara óáreittum frá Tripoli
eins og Mubarak bað um. í ísrael
vill þó enginn láta það á sannast.
Þrír smáflokkar, sem standa að
ísraelsku stjórninni, hótuðu í dag
að hætta stuðningi sínum við hana
ef fjármálaráðherrann, Yigal Co-
hen-Orgad, fengi sparnaðartillög-
um sínum framgengt. Setja þeir
fyrir sig hugmyndir um að hætt
verði við frekara landnám á Vest-
urbakkanum í eitt ár, niðurskurð á
framlögum til tryggingamála, sem
kæmi illa við Sephardim-gyðinga,
fólk frá Arabalöndum, sem er fá-
tækari hluti landsmanna, og tillög-
ur um að foreldrar taki þátt í
kostnaði við menntun barna sinna.
Shamir forsætisráðherra ætlaði
síðar í dag að setjast á rökstóla
með ráðherrum sínum um stjórn-
arkreppuna.