Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 Samband eggjaframleiðenda klofnaði um dreifingarstöðina: Ráðherra að ákveða hvort stöðin verður stofinsett SAMBAND eggjaframleiðenda klofnaði á fundi sínum í Reykjavík í gær- kvöldi. Fyrir fundinum lá tillaga framkvæmdanefndar sambandsins um stofnun eggjadreifingarstöðvar, sem mjög hefur verið umdeild á undanförn- um mánuðum og misserum. Einnig kom fram frávísunartillaga frá 25 fram- leiðendum en þegar hún hafði verið felld með 21 atkvæði gegn 18 í leynilegri atkvæðagreiðslu gekk formaður félagsins af fundi og með honum þeir stuðningsmanna tillögunnar, sem sátu fundinn. Sögðu þeir þar með skilið við sambandið. Alls gengu fimm af sjö stjórnarmönnum úr sambandinu á fund- inum í gær. „Þeir, sem sátu eftir, eru með samtais 51.400 varp- og eldishæn- ur. Við, sem studdum frávísunar- tillöguna, erum með um 170 þús- und fugla, þannig að minnihluti þeirra, sem vilja stöðina, er mjög mikill og augljðs," sagði Gunnar Jóhannsson, hænsnabóndi á Ás- mundarstöðum, einn stuðnings- manna frávísunartillögunnar, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „í landinu eru um 300 þúsund fuglar hjá eggjaframleiðendum og þau 80 þúsund, sem þarna ber á milli, skiptast nokkuð jafnt á milli hóp- anna, heldur fleiri eru okkar meg- in. Af þessum 51.400 fuglum eru að minnsta kosti 15—20 þúsund á búum utan fyrirhugaðs dreif- ingarsvæðis stöðvarinnar, sem á að ná frá Mýrum austur að Lóma- gnúp. Eftir standa þá um 30 þús- und fuglar, eða um 10% fram- leiðslustofnsins." Gunnar sagðist telja það glóru- lausa dellu ef stöðin yrði stofnuð. „Nú er komið að landbúnaðarráð- herra að ákveða, hvort þessir framleiðendur fái óeðlilega fyrir- greiðslu af hálfu stjórnvalda — hvort hann staðfestir ákvörðun Framleiðsluráðs landbúnaðarins um 5,3 milljóna króna fjárveitingu til stöðvarinnar. Hann sagði fyrir mánuði siðan, að hann myndi ekki staðfesta fjárveitinguna nema samstaða næðist um stöðina og því trúi ég því ekki fyrr en á reyn- ir, að dreifingarstöðin verði að veruleika." Jón Gíslason, bóndi á Hálsi í Kjós, formaður framkvæmda- nefndarinnar, var kjörinn í nýja stjórn Sambands eggjaframleið- enda á fundinum, sem stóð í um fimm klukkustundir. Hann sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gær- kvöldi, að nýkjörin stjórn myndi koma saman fljótlega eftir ára- mótin, skipta með sér verkum og væntanlega senda frá sér yfirlýs- ingu um málið. „Það var samþykkt í febrúar sl., að þessi stöð yrði stofnsett," sagði Jón. „Núna var verið að takast á um fyrirkomulag og stærð. Eftir þennan fund er það skýrt að því miður verður ekki öll heildin með, heldur aðeins um helmingur. Sam- kvæmt okkar skýrslum eru eftir í Sambandi eggjaframleiðenda þeir, sem hafa um helming framleiðsl- unnar. Hærri tölur, sem þeir gefa upp hinir, hljóta að ná yfir ein- hverja fugla, sem ekki er vitað um.“ Jón sagðist ekki eiga von á öðru en að ráðherra myndi staðfesta ákvörðun Framleiðsluráðs land- búnaðarins um fjárveitingu til stöðvarinnar enda hefði ráðið staðfest, að alls ekki væri ætlunin að veita stöðinni einkasöluleyfi, eins og stuðningsmenn frávísun- artillögunnar héldu ákaft fram. „Það er vissulega áfall að svo stór hópur skuli nú hafa sagt skil- ið við Samband eggjaframleið- enda,“ sagði Jón Gíslason. „Við hörmum auðvitað allir að þetta hafi þurft að gerast en það var einfaldlega ekki hægt að ná sam- komulagi. Ég tel það hafa verið einstrengingslega afstöðu að hengja sig í frávísunartillöguna og að málflutningur þeirra standist ekki í öllu. Mér hefur sýnst að þeir séu að gefa sér ákveðnar forsend- ur með því að lesa á milli lína í lögum og jafnvel stjórnarskrá. Kjarni málsins er sá, að það stendur ekki til að veita eggja- dreifingarstöðinni einkaleyfi." m m WJj -r MffT I1 ■ * ... iairo*-,... 40 fengu jólaglaðning Morgunbladið/KEE. Fjönitíu manns fengu jólaglaðning í gær er verðlaun voru afhent í versluninni Víði í Austurstræti í samkeppni, sem staðið hefur síðustu vikur. Keppnin fólst í því að 10. desember voru settir sælgætiskassar í glugga Víðisverslana í Austurstræti og Starmýri. Getraunin fólst í því að geta rétt upp á fjölda kassanna og spreyttu yfir átta þúsund manns sig á getrauninni. Aðeins þrír gátu upp á réttri tölu, en kassarnir voru 448. Hinir 37, sem einnig voru verðlaunaðir voru með næstu tölur við, flestir 450. Verðlaunin voru myndarlegir kassar af Marabou Paradís- og Aladín-konfekti frá Vfði og Lorus-úr frá Garðari Olafssyni úrsmið við Lækjartorg. Stykkishólmsflugvöllur: Arnarflugsvél hlekkt ist á í lendingu í gær FLUGVÉL FRÁ Arnarflugi með sex manns innanborðs hlekktist á við lendingu í Stykkishólmi um klukkan 17 í gær. Vélin skemmdist nokkuð en engan mann sakaði. Birgir Sumarliðason flugstjóri flugvélarinnar sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að rangar upplýs- ingar um mokstur flugbrautarinnar hefðu valdið óhappinu. Ekki hefði verið rutt af allri brautinni, heldur aðeins rennu eftir henni endilangri, sem ekki hefði verið nægilega breið fyrir vélina, sem er af gerðinni Cessna 402. Vinstri vængur hefði því rekist í snjóruðninginn og hjól brotnað af. 21. Which of thesc countries has the ■ largest foreign deht (a) in dollars. (b) asl a proportion of gnp? @ Brazil. Philippines; France; Icelandjæ Vrgentma Erum við skulda- kóngarnir? VIÐ íslendingar erum alls staðar fremstir í flokki, eins og öllum er kunnugt, ef ekki fyrir tilverknað höfðatölureglunnar þá fyrir til- verknað einhvers annars. Nýjasta dæmi þessa, sem fyrir Morgunblaðið hefur borið, er I The Economist frá því 24. des- ember. Þar er að finna fréttaget- raun og í 21. spurningunni, þar sem spurt er um erlendar skuld- ir, komum við íslendingar við sögu. Spurningin er svohljóð- andi: „Hvert þessara ríkja skuld- ar mest erlendis a) í dollurum b) sem hlutfall af vergri þjóðar- framleiðslu?" Það eru gefnir fimm kostir á svari og hópurinn er þessi: Bras- ilía, Filippseyjar, Frakkland, ís- land, Argentína. í næsta hefti The Economist verður lausnin birt á getraun- inni. Birgir sagði vélina hafa verið lenta og ekki á mikilli ferð er óhappið varð. Hún hefði ekki stungist á nefið eða breytt um stefnu, heldur runnið áfram á hjólabúnaðinum. Höggið hefði verið það lítið að neyðarsendir fór ekki í gang, og trúlega yrði hægt að fljúga vélinni til Reykjavíkur eftir viðgerð á staðnum. Kristinn Arnarson frá Ólafs- vík, einn farþeganna í vélinni, sagði í samtali við Mbl. að högg- ið hefði verið lítið og engin skelfing hefði gripið um sig meðal farþega og flugstjórinn hefði greinilega haft öll tök á vél sinni. „Nú bíðum við þess að sjá hvort ný vél kemur að sækja okkur eða hvort við þurfum að fara með rútu. Fari svo, að flugvél komi í tæka tíð, vonum við bara að við fáum sama flug- stjóra áfram," sagði Kristinn. Vélin var að koma frá Rifi til Stykkishólms er óhappið varð og átti að fara þaðan til Reykja- víkur. Flugvélin tekur 9 farþega en í gær voru í henni 5 farþegar auk flugstjóra. Pilturinn sem lést PILTURINN sem fannst látinn á heimili sínu í Reykjavík síðdegis á Þorláksmessu, hét Þórður Jónsson, til heimilis að Fífuseli 7 í Reykjavík. Hann var 19 ára gamall, fæddur 28. desember 1%3. Garðabær: Útsvör lækki í 10,4% GARÐBÆINGAR fá lækkun á út- svarsprósentu úr 11% í 10,4% á kom- andi ári samkvæmt frumvarpi til fjár- hagsáætlunar fyrir árið 1984, sem lagt var fram á bæjarstjórnarfundi í gær- kvöldi. Aðstöðu- og fasteignagjaldapró- sentur verða óbreyttar, en fasteigna- gjöld eru með hæsta leyfilega afslætti. Aðstöðugjöld verða því á bilinu 0,33% til 1,3%, fasteignagjöld íbúð- arhúsnæðis 0,375% og 0,75% á at- vinnuhúsnæði, en þar er í báðum til- fellum veittur hæsti leyfilegi afslátt- ur eða 25%. Að sögn Jóns Gauta Jónssonar bæjarstjóra í Garðabæ eru sameig- inlegar heildartekjur samkvæmt frumvarpinu áætlaðar rúmlega 115 milljónir króna, en lögbundin rekstrarútgjöld eru rúmlega 91 millj. kr. Jón Gauti sagði ennfremur að samkvæmt frumvarpinu yrði verulegum fjármunum varið til að rétta fjárhagsstöðu bæjarsjóðs, en nokkur uppsafnaður vandi væri frá síðustu tveimur árum, að mestum hluta í formi skammtímalána. Lögreglufélag Reykjavíkur: Krefst rannsókn- ar vegna um- mæla Þorgeirs LÖGFRÆÐINGUR Lögreglufélags Reykjavíkur hefur farið þess á leit við ríkissaksóknara að fram fari opinber rannsókn vegna ummæla Þorgeirs iHtrgeirssonar, rithöfundar, sem hann hefur látið falla í tveimur greinum í Morgunblaðinu í desember. Fyrri greinin birtist í Morgun- blaðinu 7. desember undir yfirskrift- inni: „Hugum nú að. Opið bréf til Jóns Helgasonar dómsmálaráð- herra" og sú sfðari þriðjudaginn 20. desember og hét hún: „Neyttu á með- an á nefinu stendur ..." f bréfinu til ríkissaksóknara segir meðal annars: „f greinum þessum báðum, einkum þó þeirri fyrri, kem- ur fram grófur áburður, dylgjur og ærumeiðandi aðdróttanir, í garð lög- reglumanna. Álvarlegasti áburður greinarhöf- undar er sá að ungur maður hafi slasast svo af völdum lögreglu að hann hafi hlotið af mikla og varan- lega örorku. Stjórn Lögreglufélags Reykjavík- ur telur að hér sé um svo alvarlegar ásakanir að ræða í einu viðlesnasta blaði landsins að brýna nauðsyn beri til að mál þetta verði rannsakað til hlítar svo að stétt lögreglumanna verði hreinsuð af áburði þessum. Stjórn Lögreglufélags Reykjavík- ur leggur einnig þunga áherslu á það, að leiði rannsókn í ljós að ásak- anir þessar séu réttmætar verði þeim seka eða þeim seku stefnt til fullrar ábyrgðar á verkum sínum." Lögfræðingur Lögreglufélags Reykjavíkur er Svala Thorlacius hdl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.