Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 7 Flugelda- sala Óskum velunnurum félagsins og ödrum landsmönnum árs og friöar. Erum meö ódýra en fjölbreytta fjölskyldu- poka á kr. 300 og 600 auk mikils úrvals í lausasölu í Framheimilinu viö Safamýri. Fram A FULHUFA RAKETTIIR MEDFJÖRHM FLUGELDAMARKAÐIR HJÁLPARSVEITA SKÁTA Ár kjarnorkudeilna Hafi eitthvert eitt málefni sett svip sinn á umræður um heim allan á því ári sem nú er að líða eru það kjarnorkuvopnin. Hinn 20. nóvember var frumsýnd í Bandaríkj- unum sjónvarpskvikmynd sem er af- sprengi þessara umræðna. Um þessa mynd er fjallað í Staksteinum að þessu sinni. Er meðal annars vakin athygli á því að líklega hefur fjölmiðlaskrumið dregið úr áhrifamætti myndarinnar eins og svo mörgu öðru. Loks er greint frá því að sovéska sjónvarpiö vill ekki sýna mynd- ina enda finnst Kremlverjum best að hún veki einungis ótta og hræðslu á Vestur- löndum. Um myndina „Daginn eftir“ í bréfi fri New York sem birtist í Morgunblaö- inu í gsr segir Hallberg llallmundsson meðal ann- ars frá viðbrögðum við hinni margræddu mynd „Daginn eftir“, þar sem lýst er hörmungum kjarn- orkustyrjaldar. Mikið veð- ur var gert út af þessari mynd áður en hún var sýnd og telja nú ýmsir að fjöF miðlafárið hafi í raun kom- ið meira róti á hugi fólks en myndin sjálf og sam- ræmist það vel þeirri kenn- ingu að nú sé það helst i tísku hjá þeim fjölmiðla- mönnum sem telja sig best hæfa til að hafa vit fyrir öðrum að skrifa um þær þjáningar sem menn eigi kannski eftir að þola ef þeir taki ekki mark á öllu því stóru og smáu sem þessir sömu fjölmiðlamenn hafa til málanna aö leggja. I krafti friðarhreyfinganna hóta þeir mannkyni öllu gjöreyðingu, hvorki meira né minna. Um áhrif myndarinnar „Daginn eftir" á sig segir Hallberg Hallmundsson: „Sjálfum þótti mér myndin hvergi nærri eins hryllileg og ég hafði búist við og í rauninni fremur máttlaus, en kannski hefur það dreg- ið úr áhrifunum að ég sá hana á svart-hvítum skermi; kaun og blóðslett- ur eru alltént raunverulegri í litum." Eins og fiestir vita er ónauösynlegt að kastað sér kjarnorkusprengjum I kvikmyndum til að þar fbeði allt í blóði. En hvað um það þá tókst banda- rískum fjölmiðlum að fá fieiri Bandaríkjamenn til að horfa á þessa mynd en flestar aðrar sem þar eru sýndar í sjónvarpi og er það afrek út af fyrir sig. I»essi sama mynd hefur ekki vakið jafn mikla at- hygli og í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið sýnd í Evrópu, enda taka evrópskír fjölmiðlar öðru vísi á málum en hinir bandarísku og eru ekki eins opnir fyrir alls kyns þrýstihópum sem oft tekst að magna áhrif sín með margvíslegum fjölmiðla- brögðum. Eftir að myndin var sýnd í breska sjónvarp- inu komst Ian Davidson, blaðamaður, svo að orði í Kinaneial Times, að það ætti svo scra ekki að koma neinum á óvart að afleið- ingar kjarnorkustríðs yrðu ógurlegar og líklega mætti það helst að myndinni finna. aö hún lýsti þeim ekki með nægilega ógn- vænlegum hætti. Hið sama kemur fram í New York- bréfi Hallbergs Hall- mundssonar. í Bretlandi hættu menn unnvörpum að horfa á myndina „Daginn eftir" og völdu annað efni frekar að sögn blaðsins Wall Street Journal. Ekkert erindi til Sovét llmræður um myndina „Daginn eftir" munu halda áfram á meöan hún er enn sýnd í kvikmyndahúsum og sjónvarpsstöðvum víða um heim. Sovésk stjórn- völd hafa ákveðið að myndin eigi ekki erindi tii sjónvarspáhorfenda eða kvikmyndahúsagesta í Sov- étríkjunum. Nýlega lét Vla- dimir Posner, fréttaskýr- andi í sendingum Moskvu- útvarpsins á ensku, þau orð falla um „Daginn eft- ir“, að sovéska þjóðin gæti ekkert lært af þessari mynd. „I>ar sem hér gera menn sér glögga grcin fyrir ógn- arlegum afleiðingum kjarn- orkustríðs flytur myndin ekkert nýtt," sagði Posn- er. Jafnframt sagði hann það ámælisvert hve oft ýmsir bandarískir emb- ættismenn hefðu reynt að telja öðrum trú um að sov- ésk alþýða fengi ekki fulla vitneskju um hörmu- leg áhrif kjarnorkustríðs. „Þetta segja þeir," sagði Posner, „af því að sovésk alþýða fer ekki í göngur til að mótmæla stjórninni og stefnu hennar eins og almcnningur ( Vestur- Evrópu og æ fleiri gera í Bandaríkjunum. I»eir segja að við munum aldrei sýna „Daginn eftir" í sov- éska sjónvarpinu, af því við viljum ekki segja fólk- inu frá kjarnorkuhörm- ungunum," sagði Posner í útvarpssendingu sem ætl- uð var hlustendum ( Norö- ur-Ameríku. Og Posner hélt áfram: „Kaunar er málum þannig háttað að það er ekki sov- ésk alþýða sem þarf að fræðast um raunverulegar afieiðingar kjarnorku- stríðs heldur hin banda- ríska." Sovéskir leiðtogar teldu að kjarnorkustríð yrði hömlulaust og enginn gæti sigrað í því. Banda- rískir ráðamenn hefðu á hinn bóginn reynt að telja þegnum sínum heima fyr- ir og í Vestur-Evrópu trú um að sigur mætti vinna í kjarnorkustríöi, það væri unnt að takmarka slíkt stríð og bjarga sér undan geisla-ryki og roki með auðveldum hætti. Athygl- isvert er í þessu sambandi aö minnast þess að helsta gagnrýnin sem fram hefur komið á myndina „Dag- inn eftir" er einmitt sú, að þar er gert ráð fyrir að unnt sé að heyja takmark- að kjarnorkustríö. Nigel W'ade, fréttaritari Daily Telegraph í Moskvu, en á frásögn hans hefur verið byggt hér að ofan, segir að áhuga- leysi sovéskra stjórnvalda á því að sýna „Daginn eft- ir“ endurspegli þá skoð- un, að myndin sé góð til að ýta undir ótta og hræðslu á Vesturlöndum — og einungis á Vestur- löndum. ^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamióill! l iFlugeldar 1 til sölu á Lækjartorgi. Fjölskyldupakkar frá kr. 200 — 600. Fallhlífar, rakettur 6 í pakka á 200 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.