Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 30.12.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 11 Annáll úr Skagafirði — eftir Björn Jónsson í Bœ Árferði hér í Skagafirði 1983 hefir verið mjög óstillt svo að óvenjulegt má teijast, t.d. snjóaði í fjöll og jafnvel niður að sjó í öllum mánuðum ársins. Vetrarmánuðina voru þó ekki að jafnaði mikil snjó- þyngsli nema þá helst í Austur- Fljótum en mismunur þar og í framhéraði getur verið ótrúlegur. Ágæt snjómoksturstæki gerðu þó flesta vegi færa vikulega þó byljir kæmu í útsveitum. Vegir eru víð- ast orðnir góðir og vel viðhaldnir og smámsaman bætast við mal- bikaðir kaflar t.d. inn frá Sauðár- króki og á aðalvegi að sunnan. Það er þó eins og hálka á vegum að vetri fylgi betra vegakerfi og sama má segja um aksturshraða bíl- stjóranna. Á þessu ári hafa bílar vitanlega stórskemmst í óförum, en mér vitanlega ekki orðið bana- slys af þeim sökum. Rigningar og óþurrkar í sumar voru með því mesta sem menn muna, í júlí og ágúst voru nær 50 rigningardagar og aðeins þeir sem bestan vélakost höfðu og súg- þurrkun gátu náð inn frekar léleg- um heyjum. f ágúst var orðið vel sprottið og hey urðu víðast meiri en árið áður en nýttust heldur illa. í september gerði góða heyskap- artíð og bjargaði það heyfeng mjög margra. Fallþungi dilka reyndist nokkuð betri en árið áður. Var þetta þó misjafnt eins og alltaf er. Kartöfluuppskera var mjög rýr og sumsstaðar var ekki tekið upp úr görðum. Það er að verða árvisst að Skagafjörður sé fiskilaus og ekki hafa komið fiskigöngur inn á fjörðinn eins og áður var títt. Þurfa því skagfirskir sjómenn frá Sauðárkróki og Hofsósi að sækja að mestu á togaramið sem einnig hafa nú oft brugðist. Er því af- koma sjómanna frekar rýr að sögn. Laxveiði var ekki mikil og sil- ungsveiði í sjó um tíma sæmileg en stóð stutt yfir vegna átuleysis og kulda í sjónum. Grásleppuveiði var sáralítil. Tekjur sjómanna hafa því verið með minna móti og þarafleiðandi hefir vinna land- verkafólks við frystihúsin verið nokkuð stopul. Framkvæmdir í héraðinu eru alltaf nokkrar en hafa þó heldur dregist saman vegna fjár- magnsskorts, t.d. er nú í bili stöðv- uð bygging á dvalarheimilum á Sauðárkróki og Hofsósi sem er þó mikil þörf fyrir. Verið er að full- gera Búnaðarbankahúsið á Hofs- ósi og ráðgert að flytja í það á þessum vetri. Störf í félagsmálum eru alltaf töluverð í héraðinu, söngmál eru alltaf töluverð í framkvæmd, bæði Karlakórinn Heimir og blandaðir kórar syngja sig inn í hug fólksins. Um mörg ár hafa Skagfirðingar verið sem ein syngjandi fjöl- skylda. Lions-félagar í Skagafirði eru vel starfandi og hafa til dæmis gert mikið af því að styrkja og gleðja aldrað fólk. Og þá má ekki gleyma Hólum í Hjaltadal, en þar fer nú fram mikil uppbygging undir ágætri stjórn Jóns skóla- stjóra Bjarnasonar. Umsókn um skólavist var helm- Björn í Bæ ingi meiri en hægt var að taka við. Kennsla í skólanum fer fram í tveim önnum og fer nú kennsla einnig fram á heimilum út um sveitir. Gefur þetta góða raun. Mikill gestagangur var þar í sumar, þar fór fram Hólahátíð eins og að venju 14. ágúst og prestastefna daginn eftir. Hóla- sundlaug reyndist vel og var tölu- vert mikið sótt. Veit ég til að „unglingar" yfir 80 ára prófuðu hana. Kirkjan rekur heimili á Löngu- mýri á hverju sumri 10 daga í senn og eru þar 30 til 40 aldraðir í hvert skipti. Fyrir hönd kirkjunn- ar stjórnar þarna með ágætum Margrét Jónsdóttir. Er mikil ánægja dvalargesta að njóta þess- arar dvalar. Skagfirðingar eru hátíðaglaðir og samkomur yfirleitt vel sóttar. Efnileg ungmenni vaxa hér upp, og náttúran segir til sín því að sagt er mér að fleiri fæðist en deyi. Læknisþjónusta er góð og fólkið verður eldra en áður. Elsti maður Skagfirðinga er nú Sigurð- ur Þorvaldsson, Sleitustöðum, sem verður 100 ára nú um áramótin. Gengur hann ennþá beinn og óstuddur. Morgunblaðsfólki óska ég heilla og öll vonum við að árið 1984 verði öllum landsbúum heillaríkt. Kirkjur á landsbyggðinni: Áramótamessur BLÖNDUÓSKIRKJA: Gaml- ársdagur: Aftansöngur kl. 18. Sóknarprestur. MARTEINSTUNGUKIRKJA í Holtum: Nýársdagur: Hátíð- arguðsþjónusta kl. 14. Sókn- arprestur. MÖÐRUVALLAFRESTAKALL: Dvalarheimilið Skjaldarvík, guðsþjónusta gamlársdag kl. 14. Sóknarprestur. Hátíðar- guðsþjónusta í Möðruvalla- kirkju nýársdag kl. 14. Sókn- arprestur. ODDAKIRKJA: Gamlársdag- ur: Áramótaguðsþjónusta kl. 16. Sr. Stefán Lárusson. FATREKSFJARÐARKIRKJA: Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18. Sr. Þórarinn Þór. RAUFARHAFNARKIRKJA: Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18' Sóknarprestur. SIGLUFJARÐARKIRKJA: Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18. Nýársdagur: Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Þór Árnason. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Gamlársdagur. Áramóta- messa kl. 14. Sr. Stefán Lár- usson. VÍKURPRESTAKALL: Gaml- ársdagur: Aftansöngur kl. 18 í Víkurkirkju. Sólheimakapella: Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprestur Siglufjarðarkirkja. Jólastund - bara fyrir jólasveina? — eftir sr. Sólveigu Láru Guðmundsdóttur Jólaannir — jólastrit. Undir- búningi hinnar miklu hátíðar er lokið. Nú nýtur hver sem betur getur friðar og náðar þessara mestu gjafar, sem mannkynið hef- ur þegið alla tíma. Gjöf sonarins — gjöf frelsarans. Guð vitjar þín. Við erum á það minnt, að Guð hef- ur ekki yfirgefið manninn, heldur þvert á móti — fæðst sem barn — lifað hér, dáið og risið upp til eilífs lífs fyrir þig — og er með þér í öllu þínu amstri, striti og undirbúningi hátíðar frelsarans. Enginn boð- skapur segir þér jafnmikið um sjálfan þig — líf þitt og tilgang þess. Enginn boðskapur er jafn- heillandi og aðgengilegur barns- huganum. Á jóladag nú síðastliðinn var heill klukkutími tileinkaður börn- um í sjónvarpinu, sem bar heitið „Jólastundin okkar“. Lesandi góð- ur. Þú eyddir ef til vill umræddri stund með barninu þínu eða barnabarni. Renndu þá huganum til baka og íhugaðu: Hver var boð- skapur þessarar stundar? Hvert er innihald jólanna samkvæmt þessari stund? Hafa ábyrgir aðil- ar sjónvarpsins lagt blessun sína yfir þessa stund og aðrar þær stundir, sem ætlaðar eru börnum á sunnudögum í sjónvarpinu? Mér þætti vænt um að fá að vita hverj- ar skoðanir ábyrgðarmanns barnaefnis sjónvarpsins eru á kristindómi og boðskap jólanna? Eða hafði ef til vill alveg gleymst að taka hann með inn í myndina? Foreldrar! Er það ekki ábyrgð- arhluti að vera foreldri í dag og láta þátt þennan afskiptalausan? Getum við unnt þessu lengur? Ég hvet foreldra þessa lands og ráðamenn sjónvarpsins að íhuga þetta mál gaumgæfilega og kom- ast að niðurstöðú,' sem verður börnum okkar fyrir bestu — verð- Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir ur þeim gott veganesti fyrir fram- tíðina og fótfesta þeirra í lífinu er þyrnar lífsins og erfiðleikar fara að þyrma að þeim úr öllum áttum. Leiðum þau í þann sannleika, að líf þeirra allt er gjöf frá Guði og tilgangur þess sé að þjóna honum með því að þjóna náunga okkar og lifa saman í friði. Guð gefi öllum gleðilega jóla- hátíð og blessun á nýju ári. Sólreig Líra (luðmundsdóUir er móðir og aðstoðarpreslur í fllí- staðakirkju. Verðlagsstofnun: Allt að 100% hækkun þjón- ustugjalds á aukafrídögum Verðlagsstofnun hefur sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem vakin er athygli á því að á veitingahúsum er heimilt að innheimta hærra þjónustu- gjaldI á aukafrídögum en á öðrum dög- um. í fréttatilkynningu Verðlagsstofn- unar segir svo: Að gefnu tilefni vill Verðlags- stofnun vekja athygli á eftirfar- andi: Á s.k. aukafrídögum þjónustu- fólks er veitingahúsum heimilt vegna kjarasamninga að innheimta allt að 30% þjónustugjald í stað 15% t.d. á jóladegi, gamlárskvöldi og nýársdegi. Hefur það í för með sér 13,04% hækkun á verði á veit- ingum. Á 2. degi jóla var veitingahúsun- um með sama hætti heimilt að inn- heimta allt að 20% þjónustugjald í stað 15%, en það hafði í för með sér 4,35% hærra verð á veitingum en ella. Önnur umframverðlagning á veitingum en hér um ræðir er óheimil. Lögleidd hefur verið ritskoðun á kvikmyndir — eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Þau tíðindi hafa nú gerzt á ís- landi, að með lögum frá Alþingi hefur verið ákveðið, að ekki megi sýna, selja eða leigja kvikmyndir í landinu, nema þær hafi áður verið skoðaðar af starfsmönnum ís- lenzka ríkisins og fengið vottorð þeirra um að sýna eða dreifa megi myndunum. Gildir þetta um allar kvikmyndir, hvort heldur þær eru á venjulegum kvikmyndaspólum eða svokölluðum myndböndum. Það hefur með öðrum orðum verið lögleidd fullkomin ritskoðun á kvikmyndum í landinu. Þetta er ótrúlegt, en því miður satt. Lög nr. 33/1983 um bann við ofbeldiskvikmyndum og reglugerð menntamálaráðherra 21. desem- ber 1983, sett með heimild í lögun- um, fela þetta í sér. í lögunum er innflytjendum, framleiðendum, dreifingaraðilum og sýnendum kvikmynda gert skylt að kveðja skoðunarmenn ríkisins til þess að skoða kvikmyndir, áður en þær eru teknar til sýninga. Síðan er sagt, að löggæslumenn skuli hafa eftirlit með því, að aðeins séu sýndar kvikmyndir, sem hlotið hafi opinbert leyfi eða slíkt efni selt eða leigt á myndböndum eða myndplötum. Ég hefi ekki kannað, hvort ein- hver alþingismaður greiddi at- kvæði gegn þessari lagasetningu á Alþingi. Ég er næstum viss um að það var enginn. Málið varðar nefnilega hvorki vísitölu fram- færslukostnaðar, né höndlar það Jón Steinar Gunnlaugsson um úthlutun skattpeninga til von- aratkvæða í kjördæminu „heima". Það varðar bara tjáningarfrelsið í landinu og stjórnarskrárvernd þess. Og hvaða þingmaður hefur áhuga á svoleiðis smámunum? Ef einhver slíkur er til, bið ég hann að gefa sig fram. Maður veltir því fyrir sér á hvaða leið þjóðin er, þegar hún þegjandi og hljóðalaust, fyrir til- styrk þeirra þjóðkjörnu fulltrúa. sem hún líklega verðskuldar, er farin að setja sér reglur af þessu tagi. Niðurstaða þeirra hugleið- inga ér dapurleg. Við virðumst ekki valda því að viðhalda megin- reglum um pólitískt og persónu- legt frelsi, sem menn áður börðust fyrir. Jón Steinar Cunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.