Morgunblaðið - 30.12.1983, Page 25

Morgunblaðið - 30.12.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 25 Bragi Ólafsson lœknir - Minning Fæddur 18. nóvember 1903 Dáinn 19. desember 1983 Að sjá á bak ágætum vinum vekur alltaf sárindi og söknuð, og svo var um mig er mér var til- kynnt um lát hollvinar míns Braga Ólafssonar læknis. 50 ár eru nú liðin síðan við sáumst fyrst og svo vildi til að strax fyrsta dag- inn myndaðist vinátta okkar á milli. Hann var að koma snögga ferð til að líta á læknishéraðið sem hann hafði valið sér og sótt um 1933. Þá voru ekki flugvélar og fátt um bíla en menn treystu mest á þarfasta þjóninn, hestinn, og svo á sína eigin fætur. Þetta var nú þannig að Bragi hafði komið til Siglufjarðar með skipi að sunnan en opinn trillubátur frá Bæ var staddur þar og tók þennan vænt- anlega héraðslækni með til Skaga- fjarðar. Það var kalt í veðri og sjóveður ekki of gott á opnum báti. Læknirinn var látinn vera þar sem minnst var hætta á ágjöf en ekki hafði hann annað til hlífð- ar en eitt teppi. Um 5 klukkutíma var báturinn á ferð til heimahafn- ar á Bæjarklettum, og í minn hlut kom að bera þennan kalda og hrjáða mann í land, en vitanlega var hann ekki vanur svona vosbúð. Þetta var eiginlega forspil að því sem hann átti eftir að reyna. í land komst læknirinn og þann veg myndaðist strax okkar einlæga vinátta. Heim að Bæ fórum við, kona mín lét hann hátta niður i rúm og raðaði heitum flöskum i kring um hann, og þar með var mynduð einlæg vinátta þeirra. Oft átti Bragi eftir að tala um þessar fyrstu móttökur Kristínar konu minnar. Hann var léttur á fæti á þessum tíma, ekki vanur skíðamaður sem ekki var von, borinn og barnfædd- ur í Keflavík syðra en hann hafði mikinn áhuga á að æfa sig og varð býsna góður í greininni enda áhuginn mikill. Sama má segja um hesta sem vitanlega voru þá mest notaðir. Hann setti sér að eignast góða hesta og lét sér mjög annt um þá eins og allt og alla sem hann þurfti að hlúa að. Bragi var læknir á Hofsósi í 11 ár. Vitanlega lenti hann oft í erf- iðum ferðalögum og þá sérstak- lega er hann var kallaður til starfa á vetrum í Fljótin. Hann var félagsmálamaður ágætur og söngmaður í betra lagi, glaðsinna og hvers manns hugljúfi sem hon- um kynntust. Mér þótti verulega vænt um læknishjónin eins og raunar fleiri er ég hefi kynnst á langri leið. Sigríður kona Braga var ekki allra eins og sagt er, en trygg vinum sínum. Eg var nokk- urskonar heimagangur hjá þeim hjónum því að oft þurfti ég að fara í Hofsós á þeim árum og alltaf var ég velkominn fann ég. Það var því ekkert undarlegt að bréfaskipti voru nokkuð tíð okkar á milli eftir að þau fluttu til Eyrarbakka 1945 og í nokkur skipti heimsótti ég þau þangað. Eftir að Bragi og Sigríður fluttu til Reykjavíkur í Barmahlíð 9, gerði ég mér að skyldu að heim- sækja þau er ég kom suður. Ég fann að þeim þótti vænt um það. Nú síðast talaði ég við Braga á afmæli hans 18. nóvember, og mjög rækilegt samtal áttum við saman 28. nóvember sl., þá var okkur báðum hulið að það væri síðasta samtalið. Að eiga sér tryggan vin í 50 ár hlýtur að skilja eftir spor hjá þeim sem eftir lifa. Kolbeinn frá Skriðulandi var okk- ur Braga mikill vinur, nú eru þeir báðir farnir. Hver veit nema við sjáumst allir fljótlega. Björn í Bæ Látinn er grandvar og góður maður, góður læknir. Hvar sem hann fór var hann verðugur full- trúi sinnar stéttar, vel lesinn, íhugull, vandvirkur og traustur. Sagnir hefi ég af því, að hann hafi verið áhugasamur um velferð sjúklinga sinna, umhyggjusamur Dagur Halldórsson sjómaður - Minning Fæddur 7. maí 1904 Dáinn 22. desember 1983 Tveim dögum áður en jólahátíð- in gekk í garð lést hann Dagur afi okkar í Landspítalanum eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Það er erfitt að sætta sig við að hann sé farinn frá okkur og henni ömmu, en hann var orðinn svo þreyttur. Fram á hinstu stund sýndi hann sama dugnaðinn og viljafestuna og fylgt höfðu honum alla hans löngu og gæfusömu starfsævi. í yfir fimmtíu ár hafði hann afi starfað sleitulaust á hafinu, án þess að lenda í verulegum háska, að eigin sögn. Að vísu sagði hann okkur sögur af vondum veðrum og siglingum til Englands á stríðsár- unum, en hann sigldi þau öll. En allar hans sögur enduðu vel eins og ævintýrin og sögurnar sem hann var óþreytandi við að segja okkur og samdi þær líka oft jafn- óðum. Eftir að afi hætti á sjónum vann hann heima í kjallara í húsinu hans og ömmu á Sogavegi 127, við að dytta að veiðarfærum fyrir Vörðufell hf. 1, 12 tonna bát sem hann og sonur hans Halldór gerðu út og áttu. Til afa og ömmu á Sogavegi var alltaf gott að koma og þær voru ófáar stundirnar sem við áttum hjá þeim. Þar var oft glatt á hjalla. Þau höfðu alltaf tima til að sinna okkur og áhugamálum okkar. Afi gerði við þau leikföng sem aflaga fóru hjá okkur og smíðaði ný, því að hann var völ- undarsmiður. Jólin voru alltaf ofarlega í huga hans. Það má segja að hann hafi breyst í barn, þegar þau gengu i garð. Gleði og hátíð jólanna áttu greiðan aðgang að hjarta hans. Hin hörðu lífskjör og það starf sem hann stundaði, höfðu engu breytt um hjartahlýjuna. Hann var sjómaðurinn með barnshjart- að. Eftir hann afa stendur stórt skarð sem aldrei verður fyllt. Minningin um hann og það sem hann gerði fyrir okkur mun lifa í hjörtum okkar strákanna, barna- barnanna hans, og allra þeirra sem þekktu hann um ókomin ár. Blessuð sé minning hans. Við biðjum góðan guð að vernda og vaka yfir henni ömmu sem hef- ur misst svo mikið. Kveðja frá strákunum hans afa. og mannúðlegur. Hann hafi því verið virtur mjög og vinsæll í læknishéruðum þeim, er hann á sínum tíma sinnti. Þegar Bragi gerðist aðstoðarborgarlæknir (1967—76) reyndist hann hinn besti samstarfsmaður, öruggur og áreiðanlegur læknir, hæglátur en skemmtilegur félagi. Alla sína starfsævi fylgdi Bragi gamalli lífsskoðun: Virðuleg hlédrægni hæfir læknum best. Hann var minnugur vel og honum lét einkar vel að segja frá kímilegum atvik- um, en ekki vildi hann meiða nokkurn mann með sögum sínum. Meira prúðmenni hefi ég vart kynnst, en prúðmennska og snyrtimennska einkenndu alla hans framkomu. Bragi Ólafsson var sonur hjón- anna Þórdísar Einarsdóttur og Ólafs Ófeigssonar kaupmanns í Keflavík. Hann varð læknakandí- dat frá Háskóla tslands 1929, stundaði framhaldsnám í Þýska- landi 1929—31 og í Bandaríkjun- um 1947. Starfaði sem læknir í Hafnarfirði og Reykjavík 1931— 34, var síðan skipaður héraðs- læknir í Hofsóshéraði 1934—1944 og í Eyrarbakkahéraði frá 1945 og jafnframt í Laugaráshéraði frá 1947, uns hann varð aðstoðarborg- arlæknir frá 1967—76. Bragi kvæntist 1929 Amalíu Sigríði Jónsdóttur, sem lést fyrir nokkrum árum. Hann eignaðist tvær dætur, Kristínu, bókasafns- fræðing, gift Sveini Magnússyni lækni, og Eddu, hjúkrunarfræð- ing, gift Ingibergi Elíassyni. Barnabörnin eru samtals átta. Ég sakna góðs vinar og sendi nánustu aðstandendum hans hlýj- ar kveðjur. Jón Sigurðsson Kveðja Einhverntíma kemur hinsta kallið fyrir hvern og einn. Það er lögmál vors jarðneska lífs. Og nú er vinur minn, Bragi Ólafsson læknir, horfinn sjónum vorum eft- ir langt og gæfuríkt starf. Og hann er kært kvaddur. Sá, er þess- ar línur ritar, kynntist Braga þeg- ar hann var að byrja læknisnám við Háskóla íslands. Það var árið 1924. Það ár fékk ég heimild hjá próf. Guðmundi heitnum Hannes- syni til að nema líffærafræði (anatómíu) þótt ekki hefði ég stúdentspróf. Tveimur árum síðar ákvað ég að halda vestur um haf til Bandaríkjanna til frekara náms. Og þegar ég er að því kom- inn að stíga á skipsfjöl, þá kemur Bragi ásamt Sigurði Sigurðssyni, fv. landlækni, til að kveðja mig og óska mér fararheillar. Þessu gleymi ég aldrei. Og þess vegna verð ég að játa að ég kveð þennan vin minn með söknuði. Mörgum árum síðar áttu leiðir okkar að liggja saman á nýjan leik. Það var þegar Bragi vinur minn gerðist aðstoðarborgar- læknir. Það var mér sönn gleði- stund að hitta Braga vin minn aft- ur. Og með okkur tókst vinsamlegt samstarf og einlæg vinátta, sem endast mun mér til hinsta dags. Nokkrum dögum áður en mér barst andlátsfregn Braga, hringdi hann í mig til að þakka mér fyrir vinsemd mína í sinn garð á undan- förnum samstarfsárum. Ég hafði ekki síður ástæðu til að þakka honum vinsemd hans í minn garð. Þessi hugulsemi Braga kom méF raunar á óvart, en það gladdi mitt aldna hjarta. Bragi Ólafsson var með þeim heilsteyptustu mönnum, er ég hef kynnst um ævina. Hann var full- komlega einlægur gagnvart sjálf- um sér og öðrum. Hann vann öll sín störf af alúð og umhyggju fyrir velferð annarra. í brjósti hans sló göfugt hjarta. Hann bar hlýjan hug til alls og allra, og fæð- ingarstaður hans, Keflavík, var ekki undanskilinn. Þangað ók ég oft með honum á björtum sumar- dögum og ég gladdist með honum. Þannig var tryggð hans gagnvart öllu því, sem honum þótti vænt um. Hann var fullkomlega einlæg- ur og heill gagnvart sjálfum sér og öðrum. Hann var hreinlyndur, hugrakkur og sannur eins og ljós dagsins. Hann vildi öllum vel og gerði öllum gott, sem komust í kynni við hann. Hann var hljóð- látur, en í barmi hans barðist göf- ugt hjarta. Og þess vegna er minn- ingin um þennan mæta og hljóð- láta mann eins og bjart ljós í þess- um dimma, jarðneska táradal. S. Sörenson Guðmundur Magnús Árnason - Minning Fæddur 19. ágúst 1897 Dáinn 5. desember 1983 Mig langar til að festa á blað nokkur orð um vin minn, Guð- mund Árnason frá Þorbjargar- stöðum. Guðmundur fæddist í Víkum á Skaga 19. ágúst 1897, sonur merkishjónanna Onnu Tóm- asdóttur og Árna Guðmundssonar smiðs og bónda þar. Guðmundur var elstur af níu systkinum. Hann ólst upp með foreldrum sínum og systkinum í Víkum. Á unga aldri fór hann í Búnað- arskólann á Hvanneyri og nam þar búfræði. Eiginkona Guðmund- ar var Kristín Árnadóttir frá Syðra-Mallandi, hin mesta dugn- aðarkona. Var hjá þeim hið besta hjónaband. Kristín var alsystir Guðrúnar skáldkonu frá Lundi. Þau hjón hófu búskap fyrst í Efra-Nesi árið 1925 og voru þar í tvö ár. Árið 1927 keyptu þau Þorbjargarstaði í Laxárdal. Þar bjuggu þau til ársins 1970 er þau brugðu búi og fluttu til Sauðár- króks. Þeim hjónum varð fjögurra sona auðið; Árni elstur, nú for- stjóri á Sauðárkróki, þá Ingólfur, verkstæðisformaður á sama stað, Haukur verkamaður og yngstur Ásgrímur. Hann varð úti við fjár- leit í vonskuveðri 1969, mikill efn- ismaður í blóma lífsins. Guð- mundur var maður mikill á velli og myndarlegur. Hann var prúð- menni mikið og hógvær. Glaðvær var hann jafnaðarlega og skipti sjaldan skapi. Hann hafði gaman af víni og fór honum vel. Jafnan var hann hrókur alls fagnaðar þar sem gleðskapur var. Margar ánægjustundir áttum við eldri sveitungar hans með honum. Vel eiga við Guðmund þessar ljóðlín- ur: „Þéttur á velli og þéttur í lund/ þrautgóður á raunastund". Hann var sem fyrr segir mikill vexti og hraustur vel. Enginn fór með Guðmund, það sem hann ekki vildi, hvorki í orði né verki. Þrautgóður var hann líka, það kemur fram seinna i þessum lín- um. í hreppsnefnd var hann í yfir tuttugu ár og oddviti lengi og þótti farast það vel úr hendi. Hann var mjög góður skrifari og frágangur á öllu skrifuðu sem frá honum fór fádæma góður. Skagapóstur var hann í 24 ár. í þeim ferðum sýndi hann oft mikið þrek og karl- mennsku. Þurfti hann að fara 150 km vegalengd i hverri ferð, þar sem hann átti heima miðsvæðis milli Sauðárkróks og endastöðvar. Fyrst fór hann hálfsmánaðarlega en seinna á tíu daga fresti. Végir voru á þessum tíma svo bágbornir hér að fara varð á hestum strax og eitthvað snjóaði og oft langt fram á vor, því aldrei var mokað á þeim árum. Það fóru því að vetrinum sex dagar í ferðina. Oft er færð vond og veður válynd á þessari leið. Yfir Laxárdalsheiði er að fara og er hún mjög snjóasöm. Á heimili mínu var endastöð fyrir póstinn og hafði hann því hér næturstað. Oft er mér minn- isstætt er Guðmundur ruddist hér inn utan úr stórhríðinni og nátt- myrkrinu. Fannst mér karl þá býsna mikilúðlegur, fannbarinn frá hvirfli til ilja og stundum lík- ari klakastólpa en manni. Hestamaður var Guðmundur góður og átti duglega og góða hesta. Vel fór hann með hesta siní., enda bauð hann þeim mikið. Ekki veit ég til að nokkur núlif- andi maður hafi ferðast meira á hestum en Guðmundur. Á seinni árum fór hann að fara ferðir þess- ar á jeppa, að einhverju eða öllu leyti, þegar gaf til þess. Ekki mun það þó oft á tíðum hafa verið létt- ara fyrir hann að fara á bílnum, því tíðlega þurfti hann að moka sig áfram. Einu sinni í slíkri ferð fór hann með konu sem átti von á sér til Sauðárkróks. Er komið var á Laxárdalsheiði tók konan létta- sótt og skömmu síðar sat bíllinn fastur í skafli. Fór nú bóndi kon- unnar, sem auðvitað var með, að leita aðstoðar við að koma kon- unni til bæja, sem ekki var mjög langt. Er mér sagt að Guðmundur hafi verið kominn til móts við að- stoðarfólkið með konuna í fang- inu. Konan komst til bæja og fæddi þar barnið og allt gekk vel. Mun hann þá hafa verið kominn yfir sextugt. Árið 1970 hættu þau hjón bú- skap og fluttu til Sauðárkróks. Ekki voru þau búin að vera þar lengi er kona hans missti heilsuna og fáum árum seinna fékk hann áfall og lamaðist annarsvegar. Fáum dögum eftir að hann fékk áfallið kom sá sem þetta ritar til hans. Ekki var á honum að merkja að honum fyndist neitt til um ásigkomulag sitt. Það var sama glaðværðin og æðruleysið sem áð- ur. Guðmundur var maður sem reyndist vel í raun. Gott væri að eiga að marga slíka. Eftir áfallið hresstist hann svo að hann varð rólfær. Var það þakkað viljastyrk hans og hörku við endurhæfingu. Kona Guð- mundar lést fyrir tveimur árum og var þá búin að vera í sjúkrahúsi í nokkur ár. Síðustu árin var Guðmundur á heimili sínu, Hólavegi 30, ásamt Hauki syni sínum og Helgu mág- konu sinni. Annaðist hún um hann með mestu prýði, þar til hún veiktist fyrir nokkru. Guðmundur lést 5. desember síðastliðinn eftir stutta legu í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Aðstandendum Guðmundar flyt ég mina innilegustu hluttekningu. Lýk ég svo þessu með ljóðlínum sálmaskáldsins mikla: „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Rögnvaldur Steinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.