Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 31

Morgunblaðið - 30.12.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 Stenmark og Wenzel munu ekki keppa á 01-leikunum NÚ HEFUR þad verið endanlega tilkynnt af alþjóðaólympíunefnd- inni, avo og alþjóðaskíðaaam- bandinu, að þau Ingemar Sten- mark, sænski skíðakóngurinn, og Hanni Wenzel fái ekki að taka þátt í vetrarólympíuleikunum í Sarajevo. Þau hafa bæði verið dæmd atvinnumenn í íþrótt sinni og þrátt fyrir mjög breyttar reglur varöandi ólympíuleikana fá þau ekki þátttökurétt. Þetta þykir mörgum súrt og mikiö er talaö um tvískinnungshátt ólympíunefndarinnar. Allir sem til þekkja vita mæta vel, aö allir bestu skíöamenn heims eru á sérstökum samningum hjá stærstu skíðaverk- smiöjunum og auglýsa grimmt fyrir þá vöru þeirra. Þaö er löngu þekkt fyrirbrigði aö renna skíöagleraug- unum strax aftur á hnakka þannig aö vörumerkið á teygjubandinu sjáist vel í sjónvarpinu. Og um leiö og skíöamennirnir koma í mark, þá taka þeir af sér skíöin og lyfta þeim upp. Stenmark og Wenzel hafa ekk- ert viljaö segja um máliö ennþá. Þau taka bæöi þátt í heimsbikar- keppninni og hafa veriö sigursæl þar. Þau hafa miklar tekjur af íþrótt sinni og margir telja Sten- mark vera tekjuhæsta skíöamann heimsins. 275 þúsundum úthlutaó úr afreksmannasjóói NÝLEGA samþykkti stjórn af- reksmannasjóðs ÍSÍ að veíta 275 þúsund krónur til fjögurra sér- sambanda með tilliti til frammi- stööu einstakra keppenda þess- ara sérsambanda á mótum er- lendis fyrr á árinu. Frjálsíþróttasambandinu var út- hlutaö 110 þúsund krónum, en þaö sótti um úthlutun úr sjóönum vegna þátttöku í ýmsum mótum áriö 1983, t.d. bandaríska há- skólameistaramótinu, 6 landa keppni í Edinborg, heimsmeistara- mótinu í Helsinki, Kalottkeppni í í Noregi og svo ýmsum alþjóölegum mótum. I umsókninni var sérstak- lega getiö árangurs Einars Vil- hjálmssonar, Þórdísar Gísladóttur, Óskars Jakobssonar, Þráins Haf- steinssonar, Kristjáns Hreinssonar og Ragnheiöar Ólafsdóttur. Júdósambandinu var úthlutaö 60 þúsund krónum vegna þátttöku og árangurs í opna breska meist- aramótinu, Evrópumeistaramótinu í París og opna sænska meistara- mótinu. Lyftingasambandiö hlaut 70 þúsund krónur m.a. vegna Norður- landamóts unglinga, sem haldiö var í Danmörku, og heimsmeist- aramóts unglinga, sem haldið var í Egyptalandi. Sundsambandiö hlaut 35 þús- und krónur meö tilliti til góörar frammistööu einstakra keppenda. Formaður afreksmannasjóös ÍSÍ er Þóröur Þorkelsson. Reykjavíkurmót í lyftingum REYKJAVÍKURMÓTIÐ (lyftingum verður haldiö á morgun, laugar- dag 31. des., gamlársdag. Mótið fer fram í Ármannsheimilinu við Sigtún og hefst kl. 14.00. Meðal þátttakenda á mótinu veröa Bald- ur Borgþórsson og Ingvar J. Ingv- arsson, en þetta veröur þeirra síðasta mót sem unglingar. Þeir félagar hafa báöir hug á því aö kveöja unglingsárin meö nýjum Noröurlandametum, ekki er ólík- legt aö þaö takist, því Ingvar setti nýtt Norðurlandamet í jafnhend- ingu (193,5 kg) nú fyrlr skömmu og Baldur er handhafi Noröurlanda- meta i snörun (150 kg) og saman- lögöu (327,5 kg) og hyggst nú reyna aö slá metiö í jafnhendingu einnig í 90 kg þyngdarflokki. Af framansögöu má því sjá aö von er á skemmtilegu móti á morgun. • Ingemar Stenmark og Hanni Wenzel keppa bæði (heimsbikarkeppninni á skíðum, en fá ekki aö taka þátt í ólympíuleikunum í Sarajevo og þaö þykir mörgum súrt ( broti, þvf af þeim þykir mikill sjónarsviptir. TÖLVUVÆÐING ÁN TÖ'LVU ? Góöur tölvubúnaöur er dýr fjárfesting og valiö milli tegunda er vandasamt. Erfiöleikar fjölmargra fyrirtækja og félagasam- taka eru einmitt fólgnir í vali og nýtingu tölva í sína þágu. Er hægt aö forðast fjárfestingaslys á þessu sviði, en njóta þó öruggrar tölvuþjónustu á hagkvæman hátt? TÖLVUMIÐSTÖÐIN Á SVARIÐ •Tölvumiðstöðin býðst til að annast allt bókhald og veita margs konar tölvuþjón- ustu til fyrirtækja og félagasamtaka. •Tölvumiðstöðin býður hraða og sveigjan- lega þjónustu. •Tölvumiðstöðin býr að sérfræðiþekkingu og afburða tæknibúnaði. •Tölvumiðstöðin finnur það kerfi sem best hentar hverjum viðskiptavini. •Tölvumiðstöðin sparar fjárfestingu í vél- og hugbúnaði, en veitir ódýra og örugga þjónustu sem byggir á 10 ára reynslu. HRINGIÐ STRAX! Ólafur Tryggvason mun veita allar nánari UPPLÝSINGAR f SÍMA 85933 Karate-menn fá góða heimsókn Þeir Arild Engh 1. kyu og Har- ald Eriksen 1. dan koma hingað til lands 30. des. á vegum Karate- félagsins Þórshamars og Karate- deildar Gerplu. Þeir uröu NM- meistarar með sveit Noregs á síðasta NM-móti í Osló í okt. ’83. Að margra áliti eru þeir með allra efnilegustu karatemönnum á Norðurlöndum. Hér er því kjörið tækifæri fyrir karateunnendur aö sjá þá leika listir sínar. Þriöjudaginn 3. janúar kl. 20.30—22.00 í nýja glæsilega íþróttahúsinu, Digranesi í Kópa- vogi, þar mun á stuttum tíma vera keppni í opnum flokki kumite og nokkur sýningaratriöi, þ.á m. mun Ólafur Wallevik 1. dan sýna hvern- ig hægt er aö verjast voþnuöum andstæöingum og hann mun einn- ig sýna þýöingu Kata á móti 4. andstæðingnum. Meö öllum þrem- ur veröa haldnar æfingabúöir dag- ana 28. des. til 4. jan., þær eru opnar öllum sem hafa lokiö byrj- endanámskeiöi í Karate. AUK hf Auglysmgastofa Knstmar 96 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.