Morgunblaðið - 17.01.1984, Page 1

Morgunblaðið - 17.01.1984, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 13. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 Prentsmiöja Morgunblaðsins Reagan hvetur til betri samskipta stórþjóðanna „Styrjaldaróttinn er skiljanlegur en ástæðulaus,“ sagði hann í ræðu um utanríkismál WmHhington, 16. janúnr. AP. wnn RONALD Reag- an, Handaríkja- forseti, sagði [ ræðu í dag, að '•"■ÉWJJ ■ aukinn ótti fólks jfl við styrjöld milli ■ stórþjóðanna væri „skiljanlegur en ástæðulaus með öllu“. Sagði hann, að vegna meiri styrks Bandaríkj- anna væri heimsbyggðin í raun ör- Olof Palme, forsætisráðherra Svía, sagði í dag um ráðstefnuna, að hún væri „táknræn fyrir þá von manna, að stórveldin settust aftur að samningaborðinu". Gromyko, utanríkisráðherra Sovétmanna, sagði við komuna til Stokkhólms, uggari og Sovétmenn ólíklegri til ævintýramennsku. Reagan skoraði á Sovétmenn að taka höndum saman við Bandaríkjamenn og bæta sam- skipti þjóðanna og ástandið í heims- málunum. 1 ræðu sinni fjallaði Reagan ein- göngu um utanríkismál og var henni sjónvarpað um öll Banda- ríkin og um gervihnött til Evrópu. Reagan sagði, að á árinu 1984 að stjórn sín væri reiðubúin til að leggja sitt af mörkunum til bættra samskipta austurs og vesturs og Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hvatti til nýrra við- ræðna milli stórveldanna um af- vopnunarmál í Genf. „Reagan for- væru Bandaríkin betur í stakk bú- in en fyrr til raunsærrar sam- vinnu og samskipta við Sovét- menn. Um árabil hefði verið að halla undan fæti fyrir Bandaríkj- unum en nú hefði þeirri þróun verið snúið við og ráðamönnunum í Kreml væri orðið það ljóst. „Það er liklega þess vegna sem Kreml- verjar spara ekki stóru orðin og þau hafa ýtt undir ótta manna við seti hefur sent mig til Stokkhólms til að leggja áherslu á mikilvægi ráðstefnunnar og þá þýðingu, sem hún getur haft fyrir öryggi í Evr- ópu og um allan heim,“ sagði Shultz. Shultz og Gromyko munu hitt- ast á morgun og verður það fyrsti fundur þeirra frá því í september sl. Fulltrúi íslands á Stokkhólms- ráðstefnunni verður Geir Hall- grímsson, utanríkisráðherra, og kom hann þangað í dag. Geir verð- ur fundarstjóri á ráðstefnunni á miðvikudag en á fimmtudag mun hann flytja ræðu sína. hættu á styrjöld. Það er skiljan- legur ótti en með öllu ástæðulaus," sagði Reagan. Reagan sagði, að hagsmunir Bandaríkjamanna og Sovétmanna væru þeir sömu, að koma í veg fyrir stríð. Þess vegna ættu þeir að leggjast á eitt og koma í veg fyrir, að valdi væri beitt til að út- kljá deilumál, komast að sam- komulagi um að draga úr vígbún- aði og vopnabirgðum og auka sam- vinnu og gagnkvæman skilning milli þjóðanna. „Ef Sovétmenn vilja frið, þá mun verða friður. Saman skulum við tryggja friðinn og hefjast handa strax,“ sagði Reagan. Ræðu sína flutti Reagan tveim- ur vikum áður en búist er við, að hann tilkynni, að hann muni leita eftir endurkjöri sem forseti. Vakti það ekki síst fyrir honum með ræðunni að fullvissa Evrópumenn um einlægan vilja sinn til að kom- ast að samkomulagi um afvopnun og bæta samskipti austurs og vesturs. Sovétmenn höfðu í dag það að segja um ræðu Reagans, að þar hefði „hernaðarhyggjan“ verið fal- in í fögrum umbúðum og kváðust ekki mundu láta blekkjast. Sir Geoffrey Howe, utanrikisráðherra Breta, hefur fagnað ræðu Reagans og sagði hann, að með henni hefði verið brotið í blað hvað varðaði viðleitnina til bættra samskipta austurs og vesturs. Talsmaður vestur-þýsku stjórnarinnar tók í sama streng. Versnandi veður á Bret- landseyjum London, 16. janúar. AP. VEÐUR fer nú mjög versnandi á Bretlandseyjum og í kvöld kyngdi niður snjónum í Skotlandi og á ír- landi. Ofsaveður var víða og nú þeg- ar hafa þrír menn látist, en þeir urðu fyrir trjám, sem rifnuðu upp með rót- um. Nýja lægðin lét fyrst til sín taka á Norður-írlandi og í dag féllu stór tré, sem vindurinn hafði rifið upp, í gegnum þak á tveimur skólahúsum. 30 stúlkur voru i skólahúsunum og slösuðust 15 þeirra, en ekki þó alvarlega. 1 Saintfield, fyrir sunnan Belfast, lét slökkviliðsmaður lífið þegar tré féll á bíl hans, en hann var að koma frá því að bjarga öðrum tveimur, sem höfðu orðið fyrir því sama. Miklir erfiðleikar eru nú víða í Skotlandi vegna gífurlegrar ófærðar á vegum og hefur mörg- um þjóðleiðum verið lokað af þeim sökum. Talið er, að flakið af belg- íska togaranum, sem saknað er í Norðursjó, sé nú fundið og eru mennirnir, fimm talsins, taldir af. í gær rak á land í Skotlandi hol- lenska flutningaskipið Pergo, sem var yfirgefið í ofsaveðri sl. föstu- dag. „Tákn fyrir vonina um nýjar viðræður“ — sagöi Olof Palme um öryggismálaráð- stefnu Evrópu sem hefst í Stokkhólmi í dag Stokkhólmi, 16. janúar. AP. AFVOPNUNAR- og öryggismálaráðstefna Evrópu hefst á morgun í Stokk- hólmi og hafa fulltrúar þeirra 35 þjóða, sem eiga aðild að henni, verið að koma til borgarinnar í dag. George P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, og Andrei A. Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sitja ráð- stefnuna fyrir hönd sinna þjóða og munu eiga með sér fund á morgun, þriðjudag. Fulltrúi íslands er Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra. Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, kom í gær til Stokkhólms þar sem hann mun sitja afvopnunar- og öryggismálaráðstefnu Evrópu. Geir er hér á tali við Pierre Schori, aðstoðarutanríkisráðherra Svía, sem tók á móti honum á flugvellinum AP Daglöng árás á Austur-Beirút Beirut, 16. januar AP. LÍBANSKIR drúsar, sem Sýrlendingar styðja, skutu í dag á hverfi kristinna manna í Austur-Beirút og féllu margir óbreyttir borgarar. Kristnir menn svöruðu árásunum í sömu mynt. Drúsar létu í dag rigna yfir Austur-Beirút og nágrenni fall- byssukúlum og eldflaugum í meira en 10 stundir og urðu hundruð fjölskyldna að leita hælis í kjöll- urum og loftvarnarbyrgjum. Að sögn lögreglunnar féllu 10 óbreyttir borgarar og 40 særðust. Drúsar segjast hafa verið að svara árásum kristinna manna á þorp í fjöllunum en kristnir menn kenna drúsum um upptökin. Saad Haddad, majór, sem ráðið hefur fyrir hluta af Suður-Líban- on og notið við það fulltingis ísra- ela, lést sl. laugardag af krabba- meini. Yitzhak Shamir, forsætis- ráðherra fsraels, var í dag við út- för hans í Marjayoun í Líbanon. Sjá ennfremur á bls 18. Glistrup laus úr fangelsinu: Segir dómsmálaráðherra vera sekan um landráð Mogens Glistrup var fagnað með blómum þegar hann kom í danska þingið í dag í Kristjánsborg Nordfoto Kaupmannahöfn, 16. janúar. Frá fréttaritara Mbl. Ib Björnbak. MOGENS Glistrup, stofnandi Framfaraflokksins og eini fanginn, sem kosinn hefur verið á þing í Danmörku, var í dag látinn laus úr fangelsi. Glistrup hefur sakað þá um landráð, sem stöðvuðu hann sl. fimmtudag, þegar hann ætlaði á brott úr fangelsinu, þar á meðal Erik Ninn-Hansen, dómsmála- ráðherra. „Ég býst enn við að verða for- sætisráðherra þessarar þjóðar einn góðan veðurdag," sagði Glistrup þegar hann kom til danska þingsins í Kristjánsborg- arhöll þar sem hann ætlaði að sitja þingflokksfund. Það kom nokkuð á óvart að Erik Ninn- Hansen, dómsmálaráðherra, skyldi láta Glistrup lausan í dag því að enn hefur hann ekki feng- ið kjörbréfið í hendur eins og áð- ur var sett sem skilyrði. Glistrup hefur formlega kært þá fyrir landráð, sem stöðvuðu brottför hans úr fangelsinu sl. fimmtudag og þ.á m. Ninn- Hansen, dómsmálaráðherra. í lögum segir, að „hver sá, sem heftir frelsi danskra þingmanna eða gerir það að skipun annarra, er sekur um landráð". Dóms- málaráðuneytið batt friðhelgi Glistrups sem þingmanns við af- hendingu kjörbréfsins en Glist- rup mótmælir þeirri túlkun þar sem það hafi verið orðið ljóst sl. fimmtudag, að hann hafði verið kjörinn á þing. Búist er við, að danska þingið svipti Glistrup þinghelgi daginn eftir að það kemur saman, 25. janúar, en Glistrup kvaðst viss um, að hann hefði ráðrúm til að hafa „afgerandi áhrif“ á dönsk stjórnmál áður en hann færi aft- ur í fangelsið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.