Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 Grundarfjörður „Verðum víst að taka þessum erfiðleikum eins og veðrinu" Rætt við nokkra Grundfirðinga Alvarlegt atvinnuástand er nú í Grundarfirði. Hátt á annað hundr- að manns eru atvinnulausir í þessu 800 manna sjávarplássi. Báðir togarar staðarins hafa verið bundnir við bryggju frá því á Þorláks- messu og eru frystihúsin því verkefnalaus. Nú fyrir helgina tókst að leysa vanda annars togarans til bráðabirgða og fór hann á veiðar um helgina en ekki er vitað hvort hann landar í Grundarfirði, allt eins getur fariö að hann sigli með aflann. I»á er einnig óvissa með 3—4 báta og er allt útlit fyrir að a.m.k. einn bátur verði seldur frá Grundarfirði. Blaðamaöur og Ijósmyndari Morgunblaðsins voru í Grundarfirði fyrir helgina og ræddu við heimamenn um þessi mál. Leggst ekki vel í neinn „Ég bíð bara eftir að komast af stað aftur, en mér skilst að það verði einhvern tíma í enda mánað- arins," sagði Kristbjörn Rafnsson, netamaður á Runólfi, er við hittum hann að máli. Sagðist hann hafa verið atvinnulaus frá því á Þor- láksmessu, er Runólfur kom að landi úr síðustu veiðiferð, og hafi síðan verið á atvinnuleysisbótum. „Svona stopp leggst ekki vel í neinn,“ sagði Kristbjörn, „þetta var rétt fyrir hátíðirnar og hefur verið erfiður tími.“ Kristbjörn sagði að enga vinnu væri að hafa í Grund- arfirði þegar togararnir væru stopp en hann hefði verið að hugsa um að fara út í Ólafsvík og beita en færðin ekki boðið upp á það að und- anförnu. Sagðist hann vera að byggja í Grundarfirði þannig að hann hlypi ekkert frá því þó honum byðist vinna annars staðar á land- inu. Aðspurður um atvinnumálin almennt sagði Kristbjörn: „Þau hafa yfirleitt verið í góðu lagi hér en þó veit maður ekki hvað verður. Nú er verið að setja kvóta sem maður veit ekki hvernig kemur út. Annars virðist enginn þorskur vera eftir í sjónum, bara karfi, þannig að eitthvað verður að gera.“ Um skelina sem Grundfirðingar vilja fá að veiða í auknum mæli sagði Kristbjörn: „Vilja ekki allir fá að drepa hana? Launin við það eru svo há. En ekki fer ég að skipta mér af því.“ Batnar ekki þó maður berji sér „Ég missti vinnuna 5. janúar þegar hráefnið var búið,“ sagði Bára Pétursdóttir er við hittum hana að máli. Hún vann hálfan daginn í frystihúsinu hjá Sæfangi hf. „Maður vonast auðvitað til að þetta lagist en það fer að minnsta kosti mánuður úr. í þessari vinnu er allskonar fólk, unglingar að vinna fyrir skólanum, ekkjur með börn og húsmæður sem vinna af því að ekki nást endar saman hjá heimilinu öðruvísi. Fólkið verður því að minnka við sig á meðan á þessu stendur. Margt af þessu fólki fær ekki nema fjórðungs atvinnu- leysisbætur vegna þess að það hef- ur misst úr vinnu á sumrin vegna lokun leikskólans. Þetta kemur einnig á slæmum tíma að því leyt- inu að nú eftir áramótin eru að hellast yfirmann allskonar rukkan- ir: tryggingarnar, rafmagnið, sím- inn og fleira. Við vitum að vinnu- veitendurnir hafa gert það sem þeir geta til að halda þessu gang- andi, en fyrir áramótin var lítið að gera og þá var unnið upp ýmislegt sem annars hefði verið hægt að vinna við nú. Það er auðvitað mjög einstaklingsbundið hvernig þetta kemur við fólk. Ég er með stórt heimili en börnin eru uppkomin. Sonur minn missti að vísu vinnuna um leið og ég því hann vann á sama stað. Ég held að fólkið skilji það yfirleitt að þetta eru erfiðleikar sem ekki verða umflúnir og ekkert þýðir að vera að væla yfir þessu, við vonum bara að þetta lagist. Maður verður víst að taka þessu eins og veðrinu, bíða eftir að stytti upp. Þetta batnar ekkert þó maður berji sér. Það sem auðvitað er verst við þetta stopp er að við þetta vinna konur sem eru með börn á framfæri, ekkjur og einstæðar mæður, og ekki hafa aðrar tekjur, en atvinnuleysisbæturnar eru ekki fyrir mat hjá þessum konum, það veit ég, hvað þá fyrir öllum öðrum útgjöldum þeirra," sagði Bára Pét- ursdóttir. Á ekki fyrir mat „Það er auðvitað sárt að missa vinnuna, þó skiljanlegt sé að menn geti ekki endalaust gert út við þær aðstæður sem þessi atvinnurekstur býr við,“ sagði Rósa Ámundadóttir, Kristbjörn Rafnsson er við hittum hana að máli á heim- ili hennar. Rósa er ekkja með 3 börn, 2 þeirra heima. Vann hún all- an daginn hjá Sæfangi og missti vinnuna 5. janúar þegar hráefnið í frystihúsinu kláraðist. „Atvinnu- leysisbæturnar eru ekki komnar enn, en þær duga ekki einu sinni fyrir mat, hvað þá öðru. Það sem ég fæ með börnunum úr tryggingun- um dugar síðan fyrir rafmagni og upphitun, þannig að ég næ engan veginn saman endum. Þó ég væri í fullri vinnu fyrir áramótin var það á nippinu að endarnir næðust þá saman og varð ég að taka víxil fyrir jólamatnum og átti ekki fyrir jóla- fötum á börnin. Þá var verið að draga skattana af mér en auk þess stend ég í að kaupa þessa íbúð. En sjaldan er ein báran stök, það sýndi sig sama daginn og og ég missti vinnuna, en þá fékk ég bréf frá Ragnar Elbergsson oddviti: Stjórnvöld skapi rekstrar- grundvöll fyrir togarana „ÞAÐ ER gífurlegt alvörumál aö hér er hátt á annað hundrað manna á atvinnuleysisskrá,“ sagði Ragnar Elbergsson oddviti Eyrarsveitar í samtali við blm. Morgunblaðsins sem vor á ferð í Grundarfirði nýlega. Ragnar sagði einnig: „Við erum auð- vitað uggandi yfir afkomu sveitarfé- lagsins undir svona ástandi og fólks- ins hér almennt og höfum bent á leið- ir til úrbóta með ályktun sem sam- þykkt var fyrir jólin. Hér hefur veirð blómleg útgerð og atvinnulíf. Það eru fyrirmynd- armenn sem rekið hafa þessi fyrir- tæki en þeir hafa þurft að leggja togurunum þar sem rekstrargrund- völlur er ekki fyrir hendi. Þess vegna krefjumst við þess að stjórn- völdum að skapaður sé grundvöllur til að reka þessi skip. Hjá bátaflot- anum er tímabundið ástand á hverju ári þegar ekki er hægt að gera út af neinu viti. Vertíðirnar hafa einnig brugðist þrjú undan- farin ár. í þessu sambandi leggjum við til að opnuð séu togsvæði á Breiðafirði fyrir minni bátana en að bátum héðan verði heimilað að veiða skelfisk sem nemur 70 tonn- um á bát í mánuði, og að sá afli verði unninn hér heima. Við erum að tala um að 7—8 bátar fái að veiða 70 tonn á mánuði í mánuðun- um nóvember til febrúar til að brúa ákveðið tímabil hjá þeim. Áhrif þessa atvinnuleysis núna eru þau að gjöld til sveitarfélagsins innheimtast 1—2 mánuðum seinna en í eðlilegu árferði. En einnig þýð- ir þetta gífurlegan tekjumissi fyrir fólkið sem missir atvinnuna, og er ekki á bætandi hjá fólkinu. Þetta nær nánast inn í hverja einustu fjölskyldu og kemur við hvern mann í byggðarlaginu. Við vonum að þessir tímabundnu erfiðleikar leysist. Við erum full bjartsýni og trúum á Grundarfjörð, en erum að tryggja okkar framtíð með því að leggja okkar að mörkum til að leysa þessi mál,“ sagði Ragnar. Kagnar Elbergsson Emilsson Árni Emilsson hreppsnefndarmaður: Það leysir engan vanda að ráðstafa skipinu annað „ÞAÐ SEM er alvarlegast hjá okkur er það að við byggjum okkar hráefn- isöflun að % hlutum á togurunum Runólfi og Sigurfara. Þeir sem þar eiga hlut að máli hafa lagt allt að veði við að eignast þessi skip sem síðan er ekki hægt að reka,“ sagði Árni Emilsson hreppsnefndarmaður í Grundarfirði í samtali við blm. „Þetta er það lang alvarlegasta fyrir byggðarlagið. Vanda bátanna má heldur ekki gleyma, þar er um mik- inn vanda að ræða. Við viljum hjálpa þeim með því að nýta landhelgina betur með því að opna svæði hér í Breiðafirði. Ef einhver vill leysa vanda tog- araútgerðanna til bráðabirgða fara þeir út upp á nýtt fiskverð sem væntanlegt er 1. febrúar. Hinsvegar sér maður ekki að mennirnir geti rekið skipin — átt fyrir daglegum útgjöldum — með 15% halla í hverri veiðiferð. Þann- ig að þeir verða að bíða lengur eft- ir rekstrargrundvelli, ef hann fæst þá einhvern tímann. Skuldir ann- ars aðilans eru orðnar það miklar að hægt væri að ráðstafa skipinu annað. Það er vandi Fiskveiða- sjóðs, en ég fæ ekki séð að það leysi neinn vanda, því ég get ekki séð að aðrir aðilar geti gert betur út. Atvinnureksturinn hér í Grund- arfirði, sem allur er í eigu félaga og einstaklinga, hefur yfir höfuð gengið mjög vel. Við erum fyrst og fremst að bregðast við nægjanlega tímanlega til að firra okkur þeim vandræðum sem virðast ætla að verða vegna hinna miklu vanda- mála sem sjávarútvegurinn á við að stríða. Við höfum bent á ákveðna erfiðleika og bendum á ákveðnar úrlausnir," sagði Árni Emilsson. Frá atvinnumálafundinum í Grundarfirði. Valdimar Indriðason alþm.: Færa verður skipin niður á stofnverð „ÞAÐ ER von að uggur sé hér í mönnum þar sem hér er svo mikið byggt á sjávarútvegi," sagði Valdimar Indriðason alþingismaður á fundi sem haidinn var fyrir skömmu til að ræða alvarlegt ástand í atvinnumálum í Grundarfirði. Valdimar sagði meðal annars: „Stjórn- völd hafa ekki tekist á við vanda útgerðarinnar ennþá en ekki verður gefið út fískverð nema einhverjar ráðstafanir fylgi — hvort þær verða nægian'^ar veit ég hins vegar ekki. Ég þekki vel olíukostnaðinn hjá þessum togurum og veit að það gengur ekki að gera þá út með yfir 40% olíukostnaði. í þessu efni verður að fara einhverja milli- færsluleið. Ég legg áherslu á að þessum aðgerðum verði flýtt því við leysum engan vanda með því að taka eitt og eitt skip og leggja þeim eða flytja í annað byggðar- lag. Hér til dæmis yrði landeyða ef slíkt yrði gert.“ Valdimar sagði að athuga yrði sérstaklega skuldamál þeirra skipa sem smíðuð hafi verið innanlands og þann skell yrði þjóðin öll að taka á sig. Útgerðin gæti ekki staðið uppi með skuldir sem byggðar væru á röngum út- reikningum og sem aldrei myndu innheimtast. „Það verður að færa þessi skip niður á stofnverð þann- ig að þau geti hafið rekstur," sagði Valdimar, en sagði jafnframt að sennilegast kæmust þessi mál ekki á hreint fyrr en í seinnihluta febrúarmánaðar. Þingmennirnir lögðu á það áherslu að þessi vandi sem Grundfirðingar stæðu nú frammi fyrir væri vandi útgerðar- innar allrar og það myndi engan vanda leysa að flytja togarana á milli byggðarlaga. INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.