Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
5
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
ferðaskrif-
stofuleyfi
Samgönguráðuneytinu hefur
borist umsókn um ferðaskrifstofu-
leyfi. Umsækjandi er Umboðssala
Jóhönnu Tryggvadóttur Bjarnason
hf., en hún fer fram á heimild til að
reka alhliða ferðaskrifstofu.
Matthías Bjarnason sam-
gönguráðherra sagði í viðtali við
blaðamann Mbl. í gær, að um-
sóknin hefði verið send ferða-
málaráði til umsagnar. Hann
vildi ekki tjá sig um afstöðu til
málsins fyrr en svar hefði borist
frá ferðamálaráði.
Framkvæmdastjóri Umboðss-
ölu Jóhönnu T. Bjarnasonar er
Björgvin Guðmundsson fyrrum
forstjóri Bæjarútgerðar Reykja-
víkur.
V atnsleysuströnd:
Sjóvarnagarðar
illa leiknir
Vogum, 16. janúar.
Sjóvarnagarðar á Vatnsleysu-
strönd eru illa leiknir eftir vestan-
veðrið er gerði í byrjun mánaðarins
og olli miklu tjóni víða, t.d. í Sand-
gerði og á Akranesi.
Víða splundruðust sjóvarna-
garðarnir og dreifðust viða. Tún
líta út sem urð og grjót, og eru
illa leikin. Þar sem ástandið er
verst í Brunnastaðahverfi voru
hús i hættu vegna flóða, t.d.
Sunnuhvoll. Stendur byggðin í
Brunnastaðahverfi opin fyrir
sjónum, og gætu hús verið í mik-
illi hættu vegna flóða.
I samtali við íbúa í Brunna-
staðahverfi bentu þeir á að fyrir
nokkrum árum hefði verið reist-
ur nýr sjóvarnagarður fyrir
framan Neðri-Brunnastaði, sem
hefði sýnt ágæti sitt nú. Þá kom
fram að þeir teldu mikla nauðsyn
á að haldið yrði áfram á þeirri
braut sem byrjað var á, enda
gæti mikil hætta steð.jað að
byggðinni.
Talið að smithætta geti fylgt slíkum innflutningi
TVEIR aðiiar hafa nú sótt um það
til landbúnaðarráðuneytisins að fá
leyfi til innflutnings á glerál með
álarækt í huga. Vitað er um fleiri
aðila, sem áhuga hafa á álarækt
hér á landi, en umsóknir þar að
lútandi hafa enn ekki borizt ráðu-
neytinu. Sigurður Helgason, fisk-
sjúkdómafræðingur, telur að
Umboðssala Jóhönnu
T. Bjarnason:
Sækir um
smithætta geti stafað af innflutn-
ingi gleráls, en ráðuneytið hefur
ekki enn tekið afstöðu til þessa
máls.
Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að umsögn frá
Sigurði Helgasyni væri nýkomin
til ráðuneytisins og málið yrði
væntanlega tekið fljótlega til
frekari umfjöllunar og af-
greiðslu. Helztu niðurstöður
skýrslu Sigurðar væru, að hlut-
laus hagkvæmnikönnun á álaeldi
hérlendis væri nauðsynleg,
rannsaka þurfi betur möguleika
á öflun gleráls hér á landi, að
smithætta fylgi innflutningi
gleráls, sem margfaldist vegna
síendurtekins innflutnings, en
með aðgerðum megi þó draga úr
líkum á því, að smit berist frá
glerálnum í íslenzka laxfiska.
Fyrirtækin, sem sótt hafa um
innflutning á glerál, eru Sjávar-
rannsóknir hf. í Vestmannaeyj-
um og fyrirtæki á vegum Árna
Gunnarssonar, fyrrverandi al-
þingismanns.
Kobbi kona (Andrés Sigurvinsson) býður Söndru (Ásdísi Toroddsen) og
Jónasi (Bessa Bjarnasyni) í garðveislu.
Skilaboð til Söndru í Regnboganum
SKILABOÐ til Söndru, kvikmynd-
in sem gerð var eftir samnefndri
skáldsögu Jökuls Jakobssonar,
verður tekin til sýningar í Regn-
boganum í dag, þriðjudag, og sýnd
þar klukkan þrjú, fimm, sjö, níu
og ellefu á næstunni.
Auk þess verður myndin fljót-
lega tekin til sýningar úti á lands-
byggðinni. Með aðalhlutverk í
„Skilaboðum til Söndru" fara
Bessi Bjarnason, sem leikur Jónas,
og Ásdís Thoroddsen, sem fer með
hlutverk Söndru. Meðal annarra
sem leika í myndinni má nefna
Andrés Sigurvinsson, Bryndísi
Schram, Benedikt Árnason, Bubba
Morthens, Jón Laxdal og Rósu
Ingólfsdóttur.
SYNUM BIL ARSINS '84
Uno!
LAUGARDAG 10—17
SUNNUDAG 13—17
VIRKADAGA 9—19
Landbúnaðarráðimeytið:
Tvö fyrirtæki sækja um
innflutningsleyfi á glerál