Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
Akureyrarkirkja:
Bauð dagvistarbörnum
í heimsókn á aðventu
Akureyri, 13. janúar.
NÚ Á nýliðinni aðventu var hér á
Akureyri tekin upp sú nýbreytni, að
fóstrur á dagheimilum bæjarins fóru
með öll börn sem á dagvistum eru í
heimsókn í Akureyrarkirkju. Tildrög
þessa eru þau, að sóknarnefnd Ak-
ureyrarkirkju fór þess á leit við Ak-
ureyrardeild fóstrufélags íslands, að
fulltrúi kirkjunnar fengi að koma í
heimsókn á dagvistir og ræða þar
við börnin. Var af hálfu sóknar-
nefndar haft í huga að um árabil
hefur Hrefna Tynes heimsótt dag-
vLstir í Reykjavík og rætt við börnin
þar um kristileg málefni. Slíkar
heimsóknir hafa ekki tíðkast hér á
Akureyri.
Á fundi í Akureyrardeild fóst-
urfélagsins var- beiðni sóknar-
nefndar tekin fyrir og varð niður-
staða fundarins sú, að fóstrur
vildu leggja það alfarið í vald for-
eldra hvort og/eða hvaða trú þeir
vilji innræta börnum sínum og að
foreldrar sem kysu börnum sfnum
trúarlegt uppeldi gætu sótt með
þeim sunnudagaskóla og aðrar
þær samkomur sem ýmis trúfélög
bjóða upp á. Hins vegar lýstu þær
sig fúsar til heimsóknar með
börnin í Akureyrarkirju og þá
með leyfi foreldra. Tilgangur
heimsóknanna væri þá að skoða
kirkjuna undir leiðsögn prests í
tilefni jólahaldsins.
Sóknarnefnd tók gild og taldi
eðlileg rök fóstranna fyrir því að
hafna heimsóknum á dagvistirnar
og tók að sér að taka á móti börn-
unum í fylgd fóstranna í kirkj-
unni. Þóttu heimsóknir þessar
takast með afbrigðum vel og verð-
ur væntanlega framhald á þeim.
G.Berg.
Sýslunefnd V-Húnavatnssýslu:
Telur rangt að verðlauna
skotmenn fyrir seladráp
Mbl. hefur borist eftirf. fréttatilk.
Á AUKAFUNDI sýslunefndar
Vestur-Húnavatnssýslu sem hald-
inn var 21. desember var gerð svo-
hljóðandi ályktun varðandi sela-
dráp:
„Aukafundur sýslunefndar V.-
Hún. haldinn 21.12. ’83 lýsir undr-
un sinni á þeirri aðferð sem við-
höfð er við að halda niðri sela-
stofninum við landið, þar sem
skotmenn eru verðlaunaðir fyrir
seladráp. Það hefur m.a. leitt til
þess að bændur hafa orðið fyrir
mikilli ágengni skotmanna, jafn-
vel á friðlýstum varplöndum og
sellátrum. Sýslunefnin bendir á,
að mun eðlilegra væri að styrkja
þá sem áður stunduðu selveiðar og
höfðu af því tekjur, þannig að þeir
gætu áfram nýtt sér kópveiði í
ábataskyni, enda er sá veiðiskapur
raunhæfasta og eðlilegasta leiðin
til að halda selastofninum niðri.“
Þessi samþykkt var samþykkt
samhljóða með öllum greiddum
atkvæðum. Sýslunefndarmenn líta
svo á að enn sé í gildi hið forn-
kveðna að „á skuli að ósi stemma".
Það muni sem sagt vera heppi-
legra að vinna á ungviðinu, eins og
gert er t.d. við grenjavinnslu,
heldur en að skotmenn séu að
þenja sig út og suður um allan sjó
til þess að skjóta fullorðna seli.
Tuttugu erlendir vísindamenn til íslands:
Rannsaka vetrarstorma
á norðurhveli jarðar
UM TUTTUGU bandarískir og
breskir vísindamenn koma hingað
til lands í vikunni til rannsókna á
veóurfari og vetrarstormum á norð-
urhveli jarðar. Vísindamennirnir
koma hingað á vegum bandarískrar
stofnunar, National Oceanic and At-
mospheric Administration, og for-
ingi hópsins er Stig Kossby frá Mi-
ami í Kandaríkjunum.
Vísindamennirnir munu hafa
aðsetur hér á landi á meðan á til-
raununum stendur, en fara í flug-
ferðir frá Keflavíkurflugvelli
norður á bóginn til rannsókna.
Utanríkisráðuneytið veitti leyfi
til fyrrnefndra rannsókna, að
fenginni umsögn Veðurstofu ís-
lands. Hlynur Sigtryggsson veð-
urstofustjóri sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að Veðurstofan myndi ekki taka
beinan þátt í athugunum hinna
erlendu vísindamanna. Niðurstöð-
ur athugana þeirra yrðu hins veg-
ar vafalaust heimilar Veðurstof-
unni að vild, enda væri mjög gott
samstarf og samvinna milli ís-
lenskra og erlendra aðila í þessum
efnum og náið samstarf við veður-
athugunarmenn Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Tannlæknafélag íslands:
Fyrirlestur
Göran Koch
HÉK á landi er staddur Göran Koch,
prófessor í barnatannlækningum við
tannlæknaháskólann í Gautaborg.
Hann mun í dag, þriðjudag, flytja
erindi um „Topical f1uorides“ fyrir
meðlimi Tannlæknafélags íslands.
Göran Koch prófessor stjórnar
rannsókn á tönnum skólabarna í
Reykjavík, sem nú er að hefjast.
Tilgangur rannsóknarinnar er að
kanna áhrif 5 mismunandi teg-
unda fluortannkrems. 1188 fjöl-
skyldur í Reykjavík munu næstu 3
árin fá ókeypis fluortannkrem.
Börnin, sem rannsóknin nær yfir,
munu fá tilsögn um notkun
tannkremsins og leiðbeiningar í
munnhirðu.
Talið er, að hægt sé að draga úr
tannskemmdum allt að 25% með
notkun fluortannkrems.
Rannsóknina framkvæma 3 ís-
lenskir tannlæknar í samvinnu við
skólatannlækningar Reykjavík-
urborgar.
FrétUtilkynning
Leikskólinn Glaðheim-
ar tekur til starfa
Jón Fr. Einarsson byggingameistari afhendir Kristínu Magnúsdóttur form. byggingarnefndar lyklana að
leikskólanum.
Bolungarvík:
ÞANN 30. desember sl. var nýr og
glæsilegur leikskóli formlega
opnaður hér í Bolungarvík.
Leikskólinn sem hlotið hefur
nafnið Glaðheimar hóf síðan starf-
rækslu 2. janúar sl.
Það var árið 1975 að bæjarstjórn
Bolungarvíkur fór aö huga að
leikskólabyggingu og var það mál í
umræðu og undirbúningi bæjar-
stjórnar það ár.
Árið 1976 skipaði Lionsklúbb-
ur Bolungarvíkur þriggja manna
nefnd til að stuðla að byggingu
leikskóla sem bæjarsjóður hafði
ætlað stað við Hlíðarstræti,
jafnframt höfðu verið sam-
þykktar teikningar eftir arki-
tektana Guðmund Kr. Guð-
mundsson og Ólaf Sigurðsson.
Leikskólanefnd Lionsklúbbs-
ins leitaði samstarfs annarra fé-
laga í bænum og uppúr því var
stofnuð svokölluð framkvæmda-
nefnd skipuð fulltrúum frá
Lions, kvenfél. Brautin og
kvennadeild Slysavarnafélags-
Börn að leik í leikskólanum.
Samstarfsnefndin hélt sinn
fyrsta fund 4. júlí 1977 og var
Ingibjörg Sölvadóttir kosin
formaður nefndarinnar en Sig-
urjón Sveinbjörnsson skipaður
einskonar framkvæmdastjóri
verkefnisins.
Aðildarfélög samstarfsnefnd-
arinnar lögðu fram vinnu við
mótahreinsun og þ.h. meðan á
verkþættinum stóð.
I ágústlok 1981 var húsið síðan
fokhelt með frágengnu þaki,
gleri í gluggum og útihurðum.
Á þessu byggingarstigi ákvað
framkvæmdanefndin að afhenda
bæjarsjóði bygginguna.
Bæjarstjórn kaus síðan bygg-
ingarnefnd fyrir leikskólann í
júní 1982, nefndina skipuðu þau
Guðmundur Agnarsson, Jón S.
Ásgeirsson og Kristín Magnús-
dóttir sem var formaður nefnd-
arinnar. Sú breyting varð síðar á
nefndinni að Guðmundur Agn-
arsson flutti úr bænum og í hans
stað tók Örn Jóhannsson sæti í
nefndinni.
Nefndin auglýsti eftir tilboð-
um í fullnaðarfrágang hússins.
Eitt tilboð barst í verkið, var það
frá Byggingarþjónustu Jóns Fr.
Einarssonar, Bolungarvík.
Leikskólabyggingin, sem er
234 ferm., er ætluð fyrir 2x20
börn og er byggingarkostnaður
miðað við 1. desember sl. kr.
3.549.000,00.
Leikskólinn Glaðheimar leysir
af hólmi dagheimili sem rekið
hefur verið við þröngan kost í
gamla skólahúsinu um nokkurra
ára skeið.
Glaðheimar starfa í tveimur
deildum og eru nú þegar full-
setnir, auk þess eru nokkrir á
biðlista eftir plássi.
Starfsstúlkur Glaðheima eru 9
í hálfu starfi auk forstöðukonu,
Selmu Friðriksdóttur fóstru,
sem er í fullu starfi.
— Gunnar
Á árinu 1977 var unnið við að
gera byggingarlóðina tilbúna.
Árið 1978 var Sigurður Ólafs-
son byggingarmeistari ráðinn til
verksins og við það miðað að
gera húsið fokhelt. Þess var
óskað í samningnum við Sigurð
að hann miðaði framkvæmdir
við framkvæmdafé og jafnframt
að það sjálfboðastarf sem í boði
var nýttist sem best.