Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 t Eiginmaöur minn, GUÐMUNDUR RAGNAR ANDRÉSSON, ■imaverkstjóri, lést í Landakotsspítala aö morgni 14. janúar. Hulda Brynjúltsdóttir. t SÆMUNDUR GUDJÓNSSON, Boróeyrarbas, lést í sjúkrahúsinu Hvammstanga sunnudaginn 15. janúar. Börn hins létna. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ARNDÍS KJARTANSDÓTTIR, éóur aö Jófríöarstaóavegi 9, Hafnarfírói, andaöist á Hrafnistu Hafnarfiröi, laugardaginn 14. janúar. Sigrún Elfasdóttir, Guóvaröur Eliasson, Vilfríóur Guönadóttir, Kjartan Elíaaaon, Hulda Hafntjörö, Hanna Elfasdóttir, Ingvar Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir mín, ANNA J. LOFTSDÓTTIR, hjúkrunarkona, lést í Landspítalanum 14. þessa mánaöar. Fyrir hönd aöstandenda. Björn Loftsson. t Faöir minn, SIGURDUR ÓLAFSSON, Hofi, Grindavfk, andaöist í Landspítalanum 15. janúar. Margrét Siguröardóttir. t Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, FRIÐÞJÓFS I. JÓHANNESSONAR, loftskeytamanna, Bérugötu 36, sem andaölst 10. janúar, fer fram frá Fríkirkjunni ( Hafnarfiröi miövikudaginn 18. janúar kl. 13.30. Þeir sem vlldu mlnnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Sigrföur Guómundsdóttir, Jóhannes I. Friöþjófsson, Rakel Bessadóttir, Kristjén Friöþjófsson, Regfna Ólafsdóttir, Sigfríöur Friöþjófsdóttir, Björn Christensen og barnabörn. ■ Sonur okkar, h SVAVAR SIGURDSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 19. janúar kl. 10.30. Siguröur Þorvaldsson, Erla Frsdsrikssn. t Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUORÚNAR KALDAL, Laugarésvegi 20, sem andaöist 10 janúar, veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudag- inn 17. janúar kl. 10.30. Jón Kaldal, Steinunn Kaldal, Dagmar Kaldal, Ágúst Friöriksson, Ingibjörg Kaldal og barnabörn. Guðrún Aradóttir — Minningarorð Fædd 27. apríl 1909 Dáin 2. janúar 1984 Þær voru fallegar, Arasysturn- ar fimm, þegar þær voru „upp á sitt besta", eins og sagt var hér áður fyrr. Ég kallaði þær frænkur mínar. „Dúdda frænka“ var aðeins nefnd Guðrún við hátíðleg tæki- færi. Ég hugsa, að hálfur bærinn hafi kannast við Dúddu á árunum fyrir stríð og í stríðsbyrjun, því hún vann í 14 ár á sama stað, á horninu á Laugavegi og Klappar- stíg, í Skóverzlun B. Stefánssonar. Ég veit, að faðir minn, Björgólfur, og móðir mín, Oddný, mátu hana mikils. Og hvernig var annað hægt? Dúdda var nákvæm í starfi, strangheiðarleg og alltaf í góðu skapi. Eftir því, sem meira var að gera í verzluninni, því betur lá á Dúddu. Hún geislaði. Og fólk, sem ekki man eftir útsölunum fyrr á árum og biðröðunum í stríðinu og skóslagnum, þegar hin langþráða sending af skóm loksins kom til landsins, getur ekki ímyndað sér það álag, sem þá var á afgreiðslu- fólkinu. En Dúdda virtist aldrei vera þreytt. Foreldrar mínir fóru til útlanda einu sinni á ári til þess að kaupa inn vörur fyrir verzlunina. Þá var það Dúdda, sem gætti bæði bús og barna, ásamt Önnu systur sinni. Og þá var gaman. Á kvöldin vildi ég fá að vera í friði með mína bók, en Dúdda gat aldrei setið kyrr. Hún vildi syngja, dansa og spila á spil. Þetta urðu meiri háttar kvöldvökur. Dúdda lét okkur systkinin syngja og læra öll góðu, gömlu ættjarðarljóðin, hún kenndi okkur heil ógrynni af alls konar spilum og leikjum og eitt af því fyrsta, sem ég man eftir mér var í fanginu á Dúddu, þegar hún sveif með mig í dansi um stofurn- ar við hljóðfall af tangó frá upp- trekta grammófóninum. Einn dag, þegar ég var um fermingu, sagði Dúdda. „Viltu koma með mér um helgina upp í Kerlingarfjöll?" Þetta var eitt- hvað nýtt og spennandi. Það hafði rignt alla vikuna og ég sagðist ef- ast um það, að ég fengi að fara í þessu óveðri. „Það er alltaf sól í Kerlingarfjöllum," sagði Dúdda, stutt og laggott. Þá var eftir að fá samþykki hjá móður minni. Hvað fegurð fjalla áhrærði, þá var það ekkert vafamál hjá móður minni, að fjöllin í Breiðdal væru einu fal- legu fjöllin á Islandi, sem borgaði sig að skoða. Hún og faðir minn höfðu hlaupið um þessi austfirzku fjöll á kúskinnsskóm sem smalar í sínu ungdæmi. En maður átti ekki að gera sér leik að því „að príla í klettum". En enginn stóðst ákafa Guðrúnar og sannfæringarkraft, og henni var treyst til þess að sjá um að „ekkert kæmi nú fyrir barnið". Þvílík dýrðarsýn, þegar við stóðum loks á efsta tindinum í glampandi sólskini! Nú sá ég Dúddu í essinu sínu. Hrifnæmi hennar og lífsgleði fengu að njóta sín og það síaðist brátt inn í mína barnsvitund, að maður mætti aldrei gefast upp fyrr en tindinum væri náð, að ailir ættu alltaf að vera í góðu skapi á ferðalögum, hvað sem á bjátaði, og að það ætti að umgangast náttúru landsins með varúð og lotningu. Ef rusl varð á vegi okkar uppi í óbyggð- um, þá var sjálfsagt að grafa það niður. Svo mælti Dúdda. Þegar ég kvaddi Dúddu í stríð- inu og hélt yfir úfið haf til lang- skólanáms í Ameríku sagði hún hálf kvíðin: „Heldurðu, að þú kom- ir nokkurn tímann aftur?" Þá sagði ég við hana: „Engin hætta, ég kem aftur," án þess að gera mér grein fyrir því, að hún meðal ann- arra höfðu fyrir löngu sannfært mig um það, að ísland var og yrði bezta landið í heiminum, og að á íslandi byggi áreiðanlega bezta fólkið. Guð fylgi henni Dúddu minni. Oddný Thorsteinsson Hveragerði: Rausnarleg- ar gjafir frá Gísla Sig- urbjörnssyni ÞANN 13. desember sl. bauð Gfsli Sigurbjörnsson, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, fulltrúum ýmissa félaga og stofn- ana í Hveragerði og Ölfusi til kaffidrykkju. Þessi félög og stofnanir voru: Sundlaugin Laugaskarði, Leik- félag Hveragerðis, Hveragerð- iskirkja, Kirkjukór Hveragerðis og nágrennis, Skátafélag Hvera- gerðis, Hjálparsveit skáta, Hveragerði, Foreldrafélag Leikskólans, Hveragerði, Kven- félag Hveragerðis, Kvenfélagið Bergþóra, ölfusi, Kirkjan, Þor- lákshöfn og Ungmennafélag Hveragerðis og Ölfuss. Gísli Sigurbjörnsson afhenti hverju þessara félaga og stofn- ana fimmtán þúsund krónur að gjöf, en áður hefur Gísli stutt þessi félög og stofnanir á ýmsan hátt. Um leið og Gísla Sigurbjörns- syni er óskað velgengni á ný- byrjuðu ári, eru honum færðar alúðarþakkir fyrir þann hlýhug sem hann sýnir ofangreindum félögum og stofnunum með þessum stóru gjöfum. t Frænka okkar, KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR frá Kirkjubóli 1 önundarfirði, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju þriöjudaginn 17. janúar kl. 13.30. Vandamsnn. t Útför systur minnar og mágkonu okkar, ÖNNU THORLACIUS, Ásvallagötu 7, veröur gerö frá Dómkirkjunni mlövlkudaginn 18. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd okkar og annarra vandamanna, Þóra Thorlacius, Sigríöur Thorlaciua, Jóhanna Thorlacius. t Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö, umhyggju og vinsemd viö andlát eiginkonu minnar, DORRlÉT KAVANNA. Kristján Jóhannsson. t Innilegar þakklr öllum þelm sem auösýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, GUDLAUGS H. GUÐLAUGSSONAR frá Ysta-Hóll. Sólvsig Halldórsdóttir og börn, fósturdóttir, tsngdabörn og barnabörn. Lokað í dag, 17. janúar, frá kl. 13.00—15.00 vegna jarðar- farar KRISTJÓNS KRISTJÓNSSONAR, forstjóra. Landleiöír hf., Norðurleiö hf., Reykjanesbraut 10. Lokað vegna jaröarfarar GUÐRÚNAR KALDAL. Arko, teiknistofa. Sigrún

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.