Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
15
Bára Pétursdóttir Rósa Ámundadóttir Ólafur Hjálmarsson
skattstjóra ásamt annarri ekkju
hér í Grundarfirði, þar sem lagður
er 36 þúsund króna viðbótarskattur
á okkur hvora um sig vegna þess að
við gleymdum að telja fram trygg-
ingabætur okkar, mæðralaunin og
ekkjulífeyrinn. Ég sé ekki hvernig
ég á að fara að greiða þetta, þegar
ég á ekki fyrir mat, en það sem mér
þykir merkilegast við þetta er það
að ég, sem er einstæð og ekkja, er
allt í einu komin í hóp þeirra hér í
Grundarfirði sem breiðust hafa
bökin. Gæti ég nefnt dæmi um
nágranna mína sem berast mikið á,
fara í tvær heimsreisur á ári og
safna bifreiðum, en skattstjórinn
sér ekkert athugavert við þeirra
framtöl þó þeir greiði sama eða
heldur minna en ég, enda fá þeir
engar tryggingabætur. Þetta hefur
allt tekið mikið á taugarnar, enda
hef ég verið við rúmið af áhyggjum.
Ég veit varla hvernig ég á að kom-
ast áfram í lífinu, það er eins og
allar bjargir séu bannaðar," sagði
Rósa Ámundadóttir.
Óvissan er verst
„Við erum að gera klárt til að
fara út, taka olíu, ís, veiðarfæri og
kost. Nú er allt að verða klárt til að
fara ut á morgun," sagði Ólafur
Hjálmarsson, 1. vélstóri á togaran-
um Sigurfara, er við hittum hann
um borð í togaranum í Grundar-
fjarðarhöfn. Sigurfari var búinn að
vera stopp síðan á Þorláksmessu
vegna rekstrarerfiðleika útgerðar-
innar. Ólafur sagði: „Ég fæ 100
þúsund lítra af olíu og dugar það í 2
túra. Maður er að vona að tíðin sé
að lagast, en að undanförnu hefur
tæplega verið veður til að fara. Það
þýðir ekkert að spyrja sjómenn
hvert farið verður og ekki heldur
hvenær komið verður heim, það
veit enginn. Við förum bara þangað
sem fiskivon er. Ég hef verið á
tryggingu í stoppinu sem yfirmað-
ur, en það segir ekki mikið þegar
maður er að byggja. Óvissan með
framhaldið er verst og með kvóta-
skiptinguna, hvernig hún verður.
Við vitum ekki enn hvort við meg-
um veiða það sem við fengum í
fyrra. Við höfum fiskað sæmilega,
fengum 3500 tonn í fyrra sem verð-
ur að teljast viðundandi afli, en það
hefur engan veginn dugað til að
halda þessu gangandi. Én annars
held ég að heldur létti yfir mann-
skapnum að komast út á nýjan leik
á morgun. Sjórinn heillar alltaf að
vissu marki," sagði Ólafur Hjáim-
arsson.
Hótel Loftleiðir
stærsta hótel landsins.
Gisting í Reykjavík í
algjörum sérflokki.
Hótel Loftleiðir eina hótelið sem býður gestum sínum
aðgang að sundlaug, gufubað-
stofu, vatnsnuddpotti og hvíldarherbergi.
Auk þess er á hótelinu fjölbreytt þjónusta svo sem
hárgreiðslu og rakarastofa, snyrtistofa að óglevmdum
veitingum eins og hressandi kaffi og Ijúffengum réttum.
Kynnið ykkur kiörin hjá okkur.
Sími 91-22322.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA Æm HÓTEL