Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.01.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984 Neitaði aö ræða við Walesa, hindraði starfs- bróður og missti vinnuna fyrir vikið: Óttaðist að falla í ónáð í A-Evrópu Osló, 16. janúar. Frá Per A. Borglund, frétUriUra Mbl. NORSKA ríkisútvarpið hefur sagt einum fréttamanna sinna upp störfum í þeim forsendum að hann h'afi neitað að eiga viðtal við Lech Walesa eftir að hann hafði verið útnefndur handhafi friðarverðlauna Nóbels í fyrra og lagt stein í götu annars fréttamanns, sem reyndi að ná tali af Walesa. Fréttamaðurinn, sem um ræðir, Dag Halvorsen, hefur í áraraðir haft umsjón með fréttum frá Austur-Evrópu fyrir bæði norska sjónvarpið og útvarpið. Þá hefur hann unnið fyrir danska sjónvarp- ið. Halvorsen neitaði að ræða við Walesa á þeim forsendum, að við það kynni hann að falla í ónáð hjá stjórnvöldum í A-Evrópu. Þegar ríkisútvarpið ákvað að senda ann- an fréttamann í hans stað til Pól- lands reyndi hann að koma í veg fyrir að starfsbróðir hans fengi vegabréfsáritun. Mál þetta hefur valdið miklum úlfaþyt í norskum fjölmiðlum og hefur forráðamönnum NRK, norska ríkisútvarpsins, verið borið á brýn að hafa sjálfir átt sök á því að fréttamaðurinn fékk ekki vega- bréfsáritun. Hann hafi einfaldlega verið of seinn á ferð. Það var einkum og sér í lagi sú ákvörðun Halvorsen, að leggja stein í götu starfsbróðurins, sem orsakaði uppsögnina. Þrátt fyrir að honum hafi verið sagt upp föst- um starfssamningi mun hann þó áfram vinna fréttir frá A-Evrópu fyrir ríkisútvarpið. Fregnir frá Póllandi verða þó í höndum ann- ars fréttamanns. Hussein Jórdaníukonungur: Hvetur PLO til „raun- hæfrar stefnumörkunar“ Jackie í sumarleyfi Á myndinni hér að ofan sést hvar Jackie Kennedy Onassis gengur að minjagripaverslun. Hún er í sumarleyfi í Nýju-Delhí um þessar mundir. Okunnur fylgdarmaður er næstur á eftir henni. Kölnarlögreglan finn- ur „tvífara“ Kiesslings: Höfðar mál vegna brott- vikningar Köln, 16. janúar. AP. LÖGREGLA tilkynnti í gær, aó hún heföi haft upp á manni, sem væri nauðalíkur Giinther Kiessling, vara- hershöfðingja, sem sagt var upp störfum hjá NATO vegna gruns um kynvillu. Sá, sem um ræðir, hefur ekki brotið neitt af sér, en hefur vanið komur sínar á veitingastaði og vínstúkur, sem kynvillingar sækja mjög. Hann var yfirheyrður á laugardag. Lögregla hefur neitað að hafa sent myndir af honum til Manfred Wörner, varnarmálaráðherra, sem leysti Kiessling frá störfum á gamlársdag. Hinn 58 ára gamli Kiessling hefur þráfaldlega neitað nokkrum tengslum við kynvillinga og segist ekki hafa vanið komur sína á helstu samkomustaði þeirra. Það voru menn úr gagnnjósnahreyf- ingu hersins, sem kváðust hafa komið auga á Kiessling á vinsælli vínstúku á meðal kynvillinga. Lögfræðingur Kiesslings til- kynnti í dag, að hann myndi fyrir hönd skjólstæðings síns höfða mál á hendur þeim mönnum, sem bera því við að hafa séð hann á um- ræddri vínstúku. Verða þeir menn sakaðir um róg og falskan vitnis- burð. Ammin, 16. janúar. AP. HIISSEIN Jórdaníukonungur ávarp- aði í dag jórdanska þingió, og hvatti þá leiótoga PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, til að hjálpa við að marka „raunhæfa stefnu'* er miðaði að því að ná á ný yfirráöum á vestur bakka Jórdanár. Hússein kom í þingið frá sjúkrahúsi fyrir utan Amman þar sem hann dvaldist í viku til læknismeðferðar graftarsárs. I ávarpi sínu áréttaði Hussein að lausn Palestínuvandamálsins væri sem fyrr höfuðmarkmið stjórnar sinnar. Hann varaði við skipulegri útþenslustefnu fsra- elsmanna, og sagði að þeir yrðu því aðeins sigraðir að Arabar stæðu einhuga og samhentir gegn þeim. Það þýddi að Egyptar yrðu að slást í hópinn, en þeir gerðu vegna opins sérstakt friðarsamkomulag við ísraelsmenn árið 1979. Eitraða rækjan í Hollandi: Þréttán eru látnir og um hundrað alvarlega veikir Amsterdam og Osló, 16. janúar frá AP og Per A. Borglund fréttaritara Mbl. Heilbrigðisyfirvöld í Hollandi Bandarískur hermaður segir sér hafa verið rænt: Lögregla útilokar ekki aö um gabb sé að ræða SrhwábwrM.mtind, V Pýskalandi, 16. janúar. AP. V-ÞÝSK og bandarísk herlögregla leitaði í dag að hópi mannræningja úr röðum kjarnorkuandstæðinga, sem handarískur hermaður ber við að hafi rænt sér og haldið föngnum í 43 klukkustundir um helgina. Ber hermaðurinn því ennfremur við, að hópurinn hafi hótað sér lífláti yrðu 9 Pershing flaugar, sem herdeild hans kom fyrir og hefur nú eftirlit með, ekki fjarlægðar. Hermaðurinn, hinn 21 árs gamli Liam Fowler, dvelst nú í sjúkra- húsi í Stuttgart, þar sem hann nýtur góðrar aðhlynningar. Hann var orðinn nokkuð þjakaður af kulda er hann var leystur úr prís- undinni. Svo virðist, sem engin vitni hafi verið að mannráninu og ekkert hefur heyrst frá meintum ræn- ingjum Fowlers. Að sögn þeirra, sem rannsaka málið, er enn sem komið er litið svo á, að um mann- rán hafi verið að ræða, en sá möguleiki, að hér sé einungis um gabb að ræða, er ekki útilokaður. „Það eru nokkur atriði í frásögn Fowler, sem ekki hljóma eins og þau ættu að gera, hafi verið um raunverulegt mannrán að ræða," sagði einn rannsóknarnefndar- manna í viðtali við AP-fréttastof- una gegn því að nafns hans yrði ekki getið. „Þó má ekki gleyma að taka það með í reikninginn, að Fowler virtist slæptur og ringlað- ur.“ Fowler kom í leitirnar snemma á sunnudag og var þá í hlöðu við bóndabæ í Bæjaralandi, um 225 kílómetra til suðurs frá Schwáb- isch-Gmúnd, þar sem hann starf- ar. í samtali við eiginkonu sína snemma á sunnudag kvað hann sex ræningja hafa ekið aftan á bif- reið sína og gert hana óökufæra. Síðan þust út og tekið hann hönd- um. Mikil leit stendur nú yfir að bifreið Fowlers. hafa bannað innflutning á unninni rækju frá Suðaustur-Asíu um eins mánaðar skeið. Þrettán manns hafa látið lífið síðustu vikurnar eftir að hafa neytt rækju sem flutt var inn frá Bangladesh. Um hundrað aðrir eru alvarlega veikir. Allir hinir látnu voru eldra fólk. í rækjum frá Bangladesh hefur fundist sýkill sem nefndur er Shigella, og algengur er í hitabelt- inu en mjög sjaldgæfur á norður- slóðum. Hann veldur ógleði, háum hita og niðurgangi. Heilbrigðisyfirvöld telja að sýk- illinn hafi komist í rækjurnar á meðan á vinnslu þeirra stóð í Bangladesh. Fimm hinna látnu bjuggu á elli- heimili í borginni Utrecht, en rækjukokkteill var borinn fram á heimilinu á jóladag. Önnur fórn- arlömb eitrunarinnar bjuggu í höfuðborginni Amsterdam og í Amersfoort. Sá misskilningur hefur komist á kreik í Hollandi að rækjurnar frá Bangladesh séu norskar, og var m.a. frá því skýrt í fyrstu fréttum ýmissa evrópskra blaða af eitrun- armálinu. Norðmenn óttast að ekki takist nægilega vel að eyða þessum misskilningi, og kunni það að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir rækjuútflutning þeirra. ERLENT Að umdeildum Saad Haddad látnum DAUÐI Saads Haddads, hins umdeilda majórs og hæstráðanda yfir nokkru landsvæði í Suður-Líbanon, hefur vakið upp vangaveltur manna á meðal, hvernig málum verði skipað á næstunni og hvaða áhrif þetta kunni að hafa á baráttu kristinna hægri manna gegn múhameðstrúarmönnum, drúsum og fleiri deiluaðilum í Líbanon. Saad Haddad tók að koma við sögu árið 1976, þegar borgara- stríðið stóð enn í Líbanon. Hann klauf sig þá út úr líbanska hernum ásamt um eitt þúsund manna liði í suðurhluta landsins. Hann tók upp nána samvinnu við ísraela, sem varð mjög umdeild meðal landa hans, en liðsmenn hans stóðu með honum gegnum þykkt og þunnt. ís- raelsstjórn hefur að honum látn- um vottað honum opinberlega virðingu sem einum helzta vini Ísraelsríkis. Þeir voru hins vegar ófáir, sem sögðu að Haddad væri einvörðungu leikbrúða í höndum ísraela og „sjálfstæði" landsvæðis- ins í Suður-Líbanon sem hann gerði að einkaríki sínu fyrir fáein- um árum, væri aðeins í þágu ís- raela. Engum blandaðist framan af hugur um að Haddad var einlægur og dyggur þegn Líbanons. Honum gramdist mjög að Líbanonstjórn hafði látið það óátalið að skærulið- ar Palestínumanna hreiðruðu um sig í suðurhluta landsins og hryðjuverk, sem þeir beindu að vísu einkum gegn Norður-Israel, urðu vitanlega einnig til að grafa undan öryggi íbúða Suður- Líbanons. Ágreiningur hans og vinstrisinnaðra hermanna, múhameðstrúar flestir, magnaðist smám saman með þeim afleiðing- um að Haddad sagði endanlega skilið við landa sína og hefur af meirihluta Líbana verið litinn hornauga og margir hafa kallað hann svikara og landráðamann. Enginn vafi er á því að Haddad vann merkt starf er hann reyndi að hreinsa Suður-Líbanon og búa íbúum þar griðastað. Það tókst ekki fyrr en ísraelar gerðu innrás- ina í Líbanon 1982. Haddad majór gerðist svo með árunum kæru- minni um hag landa sinna, en sótt- ist mjög eftir athygli fjölmiðla. Haun taldi að Bandaríkjamenn hefðu svikið Líbanon á sínum tíma fyrir olíuhagsmuni og hann sagði að ísraelar væru einu sönnu vin- Saad Haddad irnir sem Líbanir ættu. Vafamál er auðvitað hvort landar hans taka einum rómi undir það. Ég hitti Saad Haddad í fyrsta skipti í Metulla í Norður-Israel haustið 1977 og var hann þá þung- orður í garð fjandmanna sinna, sem honum fannst vera í flestum áttum. Andstaða gegn honum magnaðist þó eftir það og þegar við Haddad majór sáumst síðast, í febrúarmánuði í fyrra, var hann breyttur maður og bugaður. Veik- indi voru tekin að hrjá hann og stóðu honum fyrir þrifum. Hann virtist óraunsær á það ástand sem ríkti i Líbanon, en talaði því meira um eigin afrek. Menn hafa sagt að Saad Haddad hafi áreiðanlega verið hugsjón- amaður sem dreymdi um að frelsa og friða Líbanon. Og hann er sagð- ur hafa borið í brjósti djarfa drauma um að hann yrði kallaður til að verða einn af æðstu mönnum hins nýja Líbanons. Nú að honum látnum ríkir að vísu óvissa um hver verður framvinda mála í syðsta hluta Líbanons, sem í reynd hefur verið sl. ár öllu meira undir stjórn ísraela en manna Saads Haddads majórs. Hugsjónir viku fyrir metnaðaráformum, sem hann var ekki maður til að standa við. Saad Haddad var ættaður frá þorpinu Majhayon. Hann var fjörutíu og átta ára þegar hann lézt. hk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.