Morgunblaðið - 17.01.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
29
Stjórn veitustofnana í Reykjavík:
Farið fram á 25%
hækkun gjaldskrár
Hitaveitu Reykjavíkur
STJORN veitustofnana Reykjavíkur hefur farið fram á 25% hækkun
gjaldskrár Hitaveitu Reykjavíkur, að því er Sigurjón Fjeldsted formaður
stjórnarinnar sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær.
Borgarráð hefur enn ekki tekið afstöðu til þessarar beiðnar, en gerir það
væntanlega á fundi í dag, þriðjudag. Það voru þrír fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í stjórn veitustofnana, sem samþykktu að óska hækkunarinn-
ar, andvígir voru fulltrúar Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Á sama
fundi var ákveðið að fresta afgreiðslum á hækkunum taxta Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
Sigurjón Fjeldsted sagði í
samtali við blaðamann í gær, að
25% hækkunin þýði hækkun úr
12 krónum í 15 hvert tonn af
heitu vatni. Stofngjöld munu
hins vegar hækka mun minna,
eða aðeins um 7%. „Þessi hækk-
un er nauðsynleg til þess að
Hitaveitan nái að rétta úr kútn-
um,“ sagði Sigurjón, „en eins og
öllum er kunnugt hefur fyrir-
tækinu undanfarin ár verið neit-
að um eðlilegar og nauðsynlegar
hækkanir, sem hafa gert það að
verkum að ekki hefur verið unnt
að standa að nauðsynlegum
framkvæmdum. Það gerir það
svo aftur að verkum til dæmis,
að núverandi kuldakast þarf
ekki að standa miklu lengur, til
þess að notendur heita vatnsins
fari að finna fyrir því, að full-
komlega eðlilegt hefur verið að
fara fram á þessar hækkanir. Þá
er einnig rétt að vekja athygli á
því, að þótt þessi hækkun kunni
að þykja mikil, og hart sé í ári,
þá er gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur áfram miklum mun
lægri en þekkist annars staðar á
landinu."
Sigurjón Fjeldsted sagði, að
brýna nauðsyn bæri til þess að
Hitaveitan fengi þær hækkanir,
sem nauðsynlegar væru til að
tryggja öryggi notenda og unnt
væri að verða við óskum æ fleiri
notenda. „Á hverri sekúndu á
álagstímum er dælt upp um
þremur tonnum af heitu vatni
hjá Hitaveitunni," sagði Sigur-
jón, „og árlega bætist við ný
byggð, sem samsvarar öllum
Keflavíkurbæ eða hálfri Akur-
eyri.“
Flugleiðir:
Miklar bókanir á
N-Atlantshafinu
„ATLANTSHAFSFLUGIÐ hefur gengiö mjög vel í vetur og nú er staðan sú,
að allar vélar félagsins eru fullar á Norður-Atlantshafinu fram í febrúar,“
sagði Sæmundur Guðvinsson, fréttafulltrúi Flugleiða, í samtali við Morgun-
blaðið.
Það kom fram í samtalinu við
Sæmund Guðvinsson, að á síðasta
ári varð um 25% aukning á far-
þegaflutningum á Norður-Atl-
antshafinu, en á árinu 1982 var
aukningin liðlega 32%.
Sæmundur Guðvinsson sagði að
þrátt fyrir ótíðina að undanförnu
hér á landi hefðu verið fluttir
töluvert fleiri farþegar það sem af
er ári, en á sama tíma í fyrra. Frá
áramótum til 12. janúar sl. voru
fluttir samtals um 5.600 farþegar
innanlands, en til samanburðar
um 4.500 á sama tíma í fyrra.
Aukningin milli ára er liðlega
24%.
Þá hafa verið flutt um 40 tonn
af vörum milli staða innanlands,
en til samanburðar voru flutt um
23 tonn á sama tíma í fyrra.
Aukningin er því tæplega 74%
milli ára.
Töluverðar stöðu-
breytingar ákveðn-
ar innan Flugleiða
TÖLUVERÐAR stöðubreytingar hafa verið ákveðnar innan Flugleiða og
hefur Morgunblaðinu borizt eftirfarandi fréttatilkynning þar að lútandi:
Barði Ólafsson, umdæmisstióri
á Vestfjörðum, með aðsetur á lsa-
firði, hefur verið ráðinn aðstoð-
arstöðvarstjóri á Keflavíkurflug-
velli. Við starfi Barða tekur Arnór
Jónatansson, aðstoðarafgreiðslu-
stjóri á Reykjavíkurflugvelli.
Jóhann D. Jónsson, sölufulltrúi í
markaðsdeild, flyst til London og
mun starfa þar sem sölu- og
skrifstofustjóri.
Gunnar S. Olsen, fulltrúi í
fraktdeild, mun taka við starfi
deildarstjóra í viðskiptaþjónustu-
deild.
Erlendur Á. Garðarsson, sölu-
maður í fraktdeild, hefur flust yfir
í markaðsdeild og tekið við starfi
sölumanns þar. Þórunn Reynis-
dóttir hefur verið ráðin í frakt-
deild í stað Erlends.
Birgir Bjarnason, yfirmaður
fraktafgreiðslu innanlands, flyst í
farþegaafgreiðslu á Reykjavíkur-
flugvelli og tekur við starfi aðstoð-
arvaktstjóra.
Þorgils Kristmannsson, aðstoð-
arstöðvarstjóri Flugleiða á Heath-
row-flugvelli í London, flytur til
Glasgow og verður fulltrúi félags-
ins í Skotlandi.
Marinó Einarsson hefur hafið
störf við markaðsrannsóknir, en
hann gegndi áður starfi auglýs-
ingafulltrúa.
Þá hefur Svandís Árnadóttir
verið ráðin í starf launagjaldkera
i stað Kristjáns Fr. Jónssonar,
sem lést fyrir skömmu.
Mynd/ Jóhann Hauksson
Maðurinn sem slasaðist í Hestvíkinni við Þingvallavatn fluttur um borð í þyrlu Varnarliðsins.
Slasaðir menn flutt-
ir með þyrlu úr
Hengli og Hestvík
BJÖRGUNARÞYRLA Varnarliðs-
ins sótti á laugardag tvo slasaða
menn og flutti tii Reykjavíkur.
Annar hafði hlotið alvarleg meiðsl
í Hestvík við Þingvallavatn þegar
snjósleði sem hann ók, fór fram af
hengju og hinn hafði fallið í hlíð-
um Hengilsins og brotnað illa.
Um klukkan 14 á laugardag
var hringt frá Nesjavöllum í
Þingvallasveit til Slysavarnafé-
lags fslands og tilkynnt um al-
varlegt slys. Fimm menn voru
saman á snjósleðum í Nesjalandi
í Þingvallasveit. í Hestvík ók
einn þeirra fram af hengju og
hlaut alvarlega áverka. Maður-
inn marðist mikið á höfði og
kvartaði yfir verkjum í baki.
Þess var óskað að maðurinn yrði
sóttur í þyrlu, þar sem óttast var
að hann hefði hlotið alvarleg
meiðsl i baki.
Slysavarnafélagið hafði sam-
band við björgunarsveit Varn-
arliðsins og óskaði eftir að þyrla
yrði send á vettvang til þess að
sækja hinn slasaða mann. Auk
þess var óskað eftir lækni frá
sjúkrahúsinu í Keflavík. Um það
leyti sem þyrlan var að fara í
loftið, klukkan 14.48, barst til-
kynning ofan úr skíðaskála ÍR
til lögreglunnar í Reykjavík og
var tilkynnt um alvarlega slas-
aðan mann. Slysið átti sér stað i
vesturhlíðum Skeggja, sem er
hæsti tindur Hengilsins. Maður-
inn hafði fallið niður hlíðar
fjallsins og hafnaði í urð. Hann
lærbrotnaði illa, skarst í andliti
og fékk þungt högg á brjóst og
hlaut innvortis blæðingar. Auk
þess skaddaðist maðurinn á
mjöðm. Með honum voru vanir
fjallamenn, sem hlúðu vel að fé-
laga sínum á meðan aðstoðar var
beðið.
Slysavarnafélagið kom þess-
um boðum til þyrlunnar og var
ákveðið að báðir hinir slösuðu
menn yrðu sóttir i sömu ferð-
inni. Fyrst var farið í Hestvíkina
og sjúkraliðar þyrlunnar sinntu
hinum slasaða manni þar. Á
meðan fór þyrlan upp á Heng-
ilssvæðið og var læknirinn skil-
dnn eftir hjá skíðamanninum.
Pví næst var farið í Hestvíkina
og hinn slasaði sóttur og að því
loknu var aftur haldið upp í
Hengil og hinn maðurinn sóttur.
Þyrlan kom með mennina til
Reykjavíkur klukkan 16.40.
„Þetta gekk ákaflega vel í alla
staði og gott að vinna með björg-
unarsveit Varnarliðsins," sagði
Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélagsins í
samtali við blm. Mbl.
f
Morgunbladid/ Kristján Einarsson
Þyrla Varnarliðsins í Hestvík. Sjúkraliðar hlúa að hinum slasaða manni ásamt félögum hans.