Morgunblaðið - 17.01.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nyujÆnýi-'UJZ'tJ n
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur les-
endur til að skrifa þætt-
inum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til
— eða hringja milli kl.
11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og
orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrit-
uð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að
fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir
ástæða til að beina því
til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins,
að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Þó ekki væri
nema eitt lag
Hclena H. og nokkrir fleiri
skrifa:
„Velvakandi.
Við erum hér nokkrir krakkar
sem viljum koma þeirri ósk á
framfæri að athugað verði hvort
ekki sé hægt að fá Michael
Jackson á listahátíð hér í sumar.
Eftir því sem við best vitum
fer hann með öðrum í hljóm-
leikaferð um Evrópu í sumar.
Þess vegna væri ekkert mál að
fá hann til íslands til að syngja
'þó ekki væri nema eitt lag.
Við aðdáendur hans hér erum
viss um að það eru fleiri sem dá
þennan frábæra söngvara."
Micháel Jackson
Nei, Hann er vegurinn, hinn eini
vegur, því allir aðrir vegir lenda
á heljarslóðum. Einnig er hann
ekki einn sannleikur af mörgum,
heldur hinn eini rétti Sannleik-
ur. Hann er ekki bara lífsstefna,
heldur Lífið sjálft. Hann er hinn
eini meðalgangari milli Guðs og
manna, eins og Páll postuli reit
til vinar síns og bróður í Kristi,
Tímóteusar.
(2. Tím. 2:5)
Þessari fullyrðingu átti fólk
erfitt með að trúa, og postularn-
ir og aðrir fylgjendur Jesú virt-
ust aldrei hafa þennan sann-
leika nógu oft yfir, og vantrúin
var mikil. Eitt sinn er Pétur og
Jóhannes gjörðu kraftaverk í
nafni Jesú með því að lækna
sjúkan mann í Jerúsalem, kröfð-
ust æðstu prestarnir, höfðingj-
arnir, öldungarnir og fræði-
mennirnir skýringa á þessu at-
hæfi. Og við þetta tækifæri
gafst möguleiki að brýna fyrir
fólkinu enn einu sinni hve sér-
stæður Kristur er. Þá sagði Pét-
ur við þá, fylltur heilögum anda:
„Ekki er hjálpræðið í neinum
öðrum, því að eigi er heldur
.feöLíi iij aoioi i Bg9v nunti
annað nafn undir himninum,
er menn kunna að nefna, er oss
sé ætlað fyrir hólpnum að
verða."
(Pos. 4:12)
Pétur kom víða við í trúboðs-
ferðum sínum. Eitt sinn fór
hann á fund hundraðshöfðingj-
ans, Kornelíusar í Sesareu. Við
það tækifæri sagði hann Korn-
elíusi og öllum sem viðstaddir
voru frá fagnaðarerindinu um
Krist sem er Drottinn allra.
„Hann bauð oss að prédika
lýðnum og vitna, að hann er sá
af Guði fyrirhugaði dómari lif-
enda og dauðra. Honum bera
allir spámennirnir vitni, að
sérhver sem á hann trúir fái
fyrir Hans nafn syndafyrir-
gefningu."
(Post. 10:42-43)
Miklir hafa þeir dásemdar-
tímar verið er Jesús gekk um á
jörðinni meðal mannanna. Hve
yndislegt það hefur verið að
vera í návist hans, frelsarans
sem dó á krossi bæði fyrir þig og
mig.
„Hann var fyrirlitinn, og menn
forðuðust Hann, harmkvæla-
maður, kunnugur þjáningum,
líkur manni, er menn byrgja
fyrir andlit sín, fyrirlitinn og
vér mátum Hann einskis; — en
vorar þjáningar voru þær er
Hann bar, og vor harmkvæli er
hann á sig lagði; vér álitum
Honum refsað, hann sleginn af
Guði og lítillættan, en hann
var særður vegna vorra synda,
og kraminn vegna vorra mis-
gjörða; hegningin sem við
höfðum til unnið kom niður á
Honum, og fyrir Hans benjar
urðum vér heilbrigðir. Vér fór-
um allir villir vegar, sem sauð-
ir, stefndum hver sína leið, en
Drottinn lét n\isgjörð vor allra
koma niður á Honum."
(Gamla testamentið,
Jesaja 53:3—6)
Guð hefur auðsýnt okkur mik-
inn kærleika, því Kristur er dá-
inn og upprisinn fyrir brot
okkar gagnvart Guði. Hann býð-
ur okkur að hver sem vill geti
i komið til sín og tekið ókeypis
lífsvatnið, m.ö.o. trúna á sig,
sem leiðir til eilífs lífs.
(Opinb. 22:17).
Þó tíðarandinn ali ekki beint
á guðrækni og auðmýkt frammi
fyrir Guði, þá vitum við þó að
orð Guðs er rétt, og framar ber
að hlýða Guði en mönnum.
„Því að hver, sem blygðast sín
fyrir mig og mín orð hjá þess-
ari hórsömu og syndugu kyn-
slóð, fyrir hann mun og
mannssonurinn blygðast sín
þegar hann kemur í dýrð föður
síns með heilögum englum."
(Mark. 8:37)
„Hver sem því kannast við mig
fyrir mönnunum, við hann
mun ég einnig kannast fyrir
föður mínum á himnum."
(Matt. 10:32)
Við sjáum á þessum orðum, að
það er mikilvægt fyrir hvern og
einn að taka afstöðu til Jesú.
Framtíð okkar veltur á því.
Þetta vissi Páll postuli og því
gat hann í djörfung og trú ritað
trúsystkinum sínum í Filippí
þennan fallega vitnisburð sem
enn þann dag í dag hrífur hugi
manna og kvenna um heim all-
an:
„Lífið er mér Kristur og dauð-
inn ávinningur."
(Fil.br. 1:21-22)
Með kveðju.“
ocj h^arangur e° á
ga 6 litrU01
~ Uðie9a *
'"að nlt>a""‘3a
íða.ltvennu't3uti .
oQ nn km*ir
iu á 8^ vrraða
a
n seK- ^ a pöGÚ
u et sérStaltle3
'ð' eáia'Va^