Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 1
80 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 18. tbl. 71. árg. SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Austur-Berlín: Sex leituðu hæl- is í sendiráði Berlín, 21. janúar. AP. SEX Austur-Þjóðverjar, fimm karlmenn og ein kona, komu í gær í bandaríska sendiráðið í Austur-Berlín og báðust þar hælis sem pólitískir flótta- menn að því er vestur-þýska sjónvarpiö sagði. Fólkið er á aldrinum 20—28 ára en ekki er vitað um nöfn þess. Það kom í sendiráðið síðdegis í gaer og ræddi við starfsmennina nokkra hríð en þegar sendiráðs- fólkinu fannst kominn tími til fyrir fólkið að fara aftur neituðu sexmenningarnir því. Kváðust þeir hafa skrifað Reagan, Banda- ríkjaforseta, og sagt honum frá högum sínum, m.a. frá árangurs- iausum tilraunum þeirra til að komast úr landi. „Lífið í þessu landi er óþolandi. Við viljum komast til lands þar sem frelsi og lýðræði ríkja. Tvö okkar hafa þegar setið í fangelsi fyrir að reyna að flýja Austur- Þýskaland," hafði vestur-þýska sjónvarpið eftir einum mann- anna. Sovéskur ráð- herra snupraður Moskvu. 21. janúar. AP. Orkumálaráðherra Sovét- ríkjanna, hinn 73 ára gamli Petr Neporozhnyi, var opin- berlega snupraður fyrir van- rækslu í starfi á vikulegum fundi hins 13 manna stjórn- málaráðs Sovétríkjanna í gær. Fjórir aðrir ráðherrar í minni háttar embættum voru einnig snupraðir, en Nepor- ozhnyi var nú opinberlega skammaður í annaö skiptið. „Knginn verður óbarinn biskup" segir máltækið. Þessi litli snáði lét fallið ekki hafa nein áhrif á sig þar sem hann skautaði á Tjörninni er Ijósmyndarann bar að garði. Morgunbia&ið/ Friðþjófur Iranskir flóttamenn streyma til Svíþjóðar Stokkbólmi, 21. janúar. AP. SÆNSKA dagblaðið Dagens Nyheter greindi frá því í gær, að 60 íranksir flóttamenn hefðu komið til Arlandaflug- vallar meö farþegaþotu frá Tyrklandi og beðist hælis sem pólitískir flóttamenn. Frá áramótum hafa því 150 íranir gengið sömu bónar- leið. Um áramót hættu Svíar sam- kvæmt samkomulagi að vísa flóttamönnum frá sem komu frá Tyrklandi. Telja Svíar, að sér- hæfðir smyglarar hafi aðstoðað fólkið gegn háum greiðslum, en ír- anirnir ferðuðust á listilega föls- uðum skilríkjum. Einn sagðist hafa greitt 500.000 krónur sænsk- ar fyrir aðstoðina, að því er lög- regluyfirvöld í Stokkhólmi greindu frá. Flestir flóttamannanna eru sagðir úr röðum kúrda og allir til þessa hafa verið ungt fólk og efn- um búið. Karlmenn í miklum meirihluta, en einnig fáeinar kon- ur og börn. Hosni Mubarak Það var í maí síðastliðnum, að stjórnmálaráðið ávítaði orku- málaráðherrann fyrir spillingu í ráðuneytinu. Að þessu sinni barst stjórnmálaráðinu fregn um mengun í borginni Kemerovo í Síberíu sem er mikil iðnaðar- borg. Greinargerð stjórnmála- ráðsins gerði ekki grein fyrir um hvers konar mengun er að ræða, en sagði að tilvist hennar benti til að mengunarvörnum væri ábótavant og á því bæri ráðherr- ann ábyrgð. Það, að Neporozhnyi var ávít- aður í annað sinn, án þess að missa embætti sitt, þykir benda til þess að síðan Juri Andropov tók við æðsta embætti í landinu, séu embættismenn þrátt fyrir allt öruggari en áður í stöðum sínum. Sprengjuregn við for- setahöllina í Beirút Beirút og Washington, 21. janúar. AP. SKYTTUR drúsa skutu í morgun án afláts á hverfi kristinna í austur- hluta Beirút annan daginn í röð og beittu mjög öflugum vopnum. Höfn- uðu sprengjur m.a. í garði forseta- hallarinnar. Á milli hryðja var ekið um götur með gjallarhorn og íbúar húsa beðnir að halda sig innandyra. Þegar skothríðinni linnti loks til- kynnti líbanska útvarpið, að tveir hermenn Líbanonhers hefðu látið lífið. Ráðstefna múhameðstrúarríkja í Casablanca: Mubarak segir niður- stöðurnar sögulegar Kalró, 21. janúar. AP. HOSNI Mubarak, forseti Kgypta- lands, sagði í gær, að ákvörðun sam- taka múhameðstrúarríkja, að gefa Kgyptalandi kost á því að taka sæti sitt í samtökunum á ný, væri sögu- leg. Kkki gekk hann þó svo langt að hrósa ákvörðuninni, enda munu ýmsir skilmálar fylgja sem Kgyptar eiga eftir að vega og meta. Ummæli Mubaraks voru höfð eftir Zia UI-Haq, forseta Pakistan, sem fékk skeyti frá Egyptalands- forseta. Zia sagði Mubarak hafa verið mjög ánægðan með niður- stöður ráðstefnunnar og sérlega árangursríka fundi, „sem stuðlar að einingu múhameðstrúarríkja gagnvart þeim hættum sem að þeim steðja,” eins og Mubarak komst að orði í skeytinu. Ekki gat Mubarak þess hvort Egyptar myndu ganga að þeim skilmálum sem sagðir eru settir fyrir endurkomu þeirra í samtök- in, svo sem að ógilda Camp Dav- id-samkomulagið frá 1978. Á hinn bóginn bauð hann velkomna sendi- nefnd frá ráðstefnunni til Kaíró til viðræðna. Fjögurra manna sendinefnd var skipuð á ráðstefn- unni til slíks brúks, en ekki hefur verið ákveðið hvenær hún fer til Egyptalands. Að sögn lögreglu létu 11 manns lífið og 38 særðust í orrahríðinni í gær. Skothríðin í gær var víðtæk- ari en í morgun og náði m.a. til fjallaþorpa í grennd við höfuð- borgina. Allir þeir, sem urðu fyrir skotum, voru úr röðum óbreyttra borgara. Breska blaðið Daily Telegraph skýrði í morgun frá því, að Donald Rumsfield, sérlegur sendimaður Bandaríkjastjórnar i Miðaustur- löndum, hefði hitt þau Margaret Thatcher og Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Breta, að máli í Lundúnum í gærkvöld. Sagði blaðið Rumsfield hafa far- ið fram á það við þau Thatcher og Howe, að Bretar héldu gæsluliðum sinum áfram í Líbanon. Jafnframt bað hann þau að hafa áhrif á Frakka og ftali, sem hafa lýst yfir vilja til að kalla gæsluliða sína heim. Fundur þremenninganna fylgdi í kjölfar fundar, sem Howe átti með Elie Salem, utanríkisráðherra Líb- anon, í Lundúnum. Kom Salem frá París m.a. til þess að afla fregna af viðræðum Howe við Assad, Sýr- landsforseta, í siðustu viku. Talsmaður Hvíta hússins skýrði frá því seint í gærkvöld, að ráða- menn í Washington hefðu nú stór- felldar áhyggjur af hugsanlegum sjálfsmorðsárásum á bandarísku herskipin, sem liggja skammt und- an Líbanonströndum. Sagði hann hermdarverkamenn í Líbanon hafa komist yfir búnað, sem „gæti verið flugvélahlutar". Gætu þeir hugsanlega notað hann til sjálfs- morðsárása á bandarísku herskip- in. Hefur áhöfnum skipanna verið fyrirskipað að vera við öllu búnar dag sem nótt. Kráka kom upp um inn- brotsþjófa Baytown, Texas, 21. janúar. AP. HKKMIKRÁKA nokkur í Bay town hefur reynst eiganda sínum betri en enginn að undanförnu. Ekki aðeins hrakti hún tvo inn- brotsþjófa á brott úr húsi eigand- ans, er þeir hugðu sér gott til glóð- arinnar í fjarveru hans, heldur lagði hún nöfn þeirra á minnið og hefur skýrt lögregluyfírvöldum staðarins frá þeim. Að sögn lögreglustjórans í Baytown reyndist kráka ómet- anleg við rannsókn þessa máls. Hafa upplýsingar krákunnar, sem sögð er hafa óvenjulega gott minni af slíkum fugli að vera, leitt til handtöku tveggja manna. Við handtökuna viður- kenndu mennirnir að hafa átt þátt í fjöldamörgum öðrum inn- brotum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.