Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 5 Út og suður Jakob Magnús- son segir frá í þættinum „Út og suður“, sem verður á dagskrá útvarps- ins í dag kiukkan 10.25, segir Jakob Magnússon tónlistar- og kvikmyndagerðarmaður frá rúmlega eins mánaðar ferð til Brasilíu, en þá ferð fór hann árið 1980. í ferðinni fann Jakob marga afkomendur íslend- inganna sem fluttust til Brasilíu á síðustu öld og voru þeir mjög áhugasamir um að hafa samband við gamla landið. Kvikmynd um þessa för var sýnd í íslenska sjónvarpinu á sínum tíma. Frásöguþætti Jakobs Magnússonar er skipt í tvennt og verður síðari hlut- inn á dagskrá útvarpsins sunnudaginn 29. janúar á sama tíma og í sama þætti. Jakob Magnússon BSRB: „Sjúklinga- skatti“ mótmælt Á FUNDI stjórnar BSRB 16. jan. sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stjórn BSRB mótmælir ein- dregið þeim hugmyndum, sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt um að sjúklingar, sem leggjast þurfa á sjúkrahús, greiði sjúkra- húskostnað og lyf að hluta. Slíkur skattur á sjúkt fólk má ekki koma til greina. Bandalagsstjórnin telur að með hugmyndum um „sjúklingaskatt" sé verið að stíga alvarlegt skref frá því velferðarþjóðfélagi, sem íslendingar hafa verið að byggja upp á síðustu áratugum í sam- ræmi við þróun annars staðar á Norðuriöndum. Stjórn BSRB telur áframhald þróunar til samhjálpar í íslensku þjóðfélagi vera grundvallaratriði. „Sjúklingaskatturinn" er tákn- rænn um hugmyndir um fráhvarf frá þeirri samhjálp, sem velferð- arríkið byggir á. Fyrir þessa bjóðfélagslegu samhjálp eru Norðurlandaþjóðirnar þekktar um víða veröld. Með gagnkvæmum samningum hefur íslenska þjóðin orðið hluti af þessari fyrirmynd. Frá því megum við ekki hverfa." (FrétUtilkjnning.) Kór Langholtskirkju flytur álfalög „Tökum lagið“ nefnist þáttaröó, sem byggð er upp á „þjóðkórs- hugmynd“ og hefur göngu sína í sjónvarpinu í kvöld klukkan 20.45. Kór Langholtskirkju flytur nokkur lög í hverjum þætti og í sumum laganna taka áhorfendur undir. Þættirnir eru teknir upp í ís- lensku óperunni og er takmarkið með þessum þáttum, að sögn for- svarsmanna sjónvarpsins, að bjóða sjónvarpsáhorfendum vandaðan og skemmtilegan söng, sem hægt er að taka undir ef verkast vill. í því skyni mun lagatexti birtast á skjánum, um leið og lögin eru sungin. í fyrsta þættinum verða eink- um söngvar sem snerta álfa og þjóðtrú. Allar útsetningar eru allar eftir Gunnar Reyni Sveins- son, en stjórnandi kórsins og jafnframt umsjónarmaður þátt- arins er Jón Stefánsson. Sjónvarp kl. 18: Stundin okkar í Stundinni okkar í dag skemmta kínverskir fjöllista- menn og Smjattpattarnir. Tvær stúlkur, þær Jóna og Guðrún Benný, dansa og syngja og hljómsveitin Hrím . leikur. Ása fer í heimsókn upp í Fossvogsskóla og við sjáum verkefni sem krakkarnir þar hafa unnið að um umferðar- mál. Hvað viltu verða í framtíð- inni? Þessi spurning var lögð fyrir nokkra krakka í Stund- inni okkar fyrir 12 árum. Nú ætlar Ása að tala við þrjá af þeim sem spurðir voru og at- huga á hvaða framtíðarbraut þau eru núna 12 árum síðar. Eiríkur Fjalar er eitthvað lasinn þessa dagana og því kemst hann ekki í Stundina í dag, en í hans stað kemur náungi sem heitir Alli Bergdal og hann sýnir töfrabrögð eins og Eiríkur Fjalar. Á ÓLYMPÍUSLOTJUM t AUSTURRÍKI Þaö kom engum á óvart aö Austurríkis- menn völdu Axamer Lizum skíða- svæðið fyrir vetrarólympíuleikana 1964 og 1976. Hæð þess (1600-2400 m) tryggir frábæran skíðasnjó atlan veturinn og glæsileg og fjölbreytt aðstaðan hæfir jafnt ólympíu- meisturum sem byrjendum. Við fljúgum í leiguflugi frá Keflavík beint á staðinn - því örstutt er frá flugvellinum á gististaðinn, hvort sem þú velur fjögurra stjörnu hótelið í Axams m/hálfu fæði eða íbúðagistingu í Natters. Tveggja vikna ferðir 17.900 Innifalið: Flug fram og til baka. akstur til og frá flugvelli erlendis, fararstjórn, gisting í 14 nætur. Munið hóp- og barnafsláttinn Nú er ósvikin Týrólastemmning á skrifstofunni; videospóla í gangi og allar upplýsingar veittar með Týrólabros á vör. Brottfarardagar: 5. feb - 19. feb (Fá sæti taus) 19. feb - 4. mar (Biðlisti) 4. mar - 18. mar (Fá sæti laus) Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.