Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 t Maðurinn minn og faðir okkar, ELLERT ÓLAFSSON, bifraiðastjóri, Hrauntungu 89, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. janúar kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuö en þelm er vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Ingibjörg Júliusdóttir, Ólafur Ellertsson, Baldur Ellertsson. t Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ARNDÍSAR KJARTANSDÓTTUR, áöur aó Jófríðarstaðarvegi 9, Hafnarfirði, sem andaöist 14. janúar, fer fram frá Þjóökirkjunni i Hafnarfiröi mánudaginn 23. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á liknarfélög. Sigrún Elíasdóttir, Guðvarður Elíasson, Vilfríóur Guönadóttir, Kjartan Elíasson, Hulda Hafnfjörö, Hanna Elíasdóttir, Ingvar Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móöur okkar, MÁLFRÍÐAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Reykjavíkurvegi 33, Skorjafirói, veröur gerö frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 24. janúar kl. 15.00. Vilborg Sigurjónsson, Kristinn Sigurjónsson, Ásmundur Sigurjónsson. t Faöir okkar og afi, SÆMUNDUR GUDJÓNSSON, Boróeyrarbæ, sem lést 15. janúar, veröur jarösunginn frá Prestbakkakirkju þriöjudaginn 24. janúar kl. 14.00. Ferö frá Umferöarmiöstööinni sama dag kl. 8.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, HAUKUR KRISTJÁNSSON, Þúfubarói 11, Hafnarfirói, veröur jarösunginn þriöjudaginn 24. janúar kl. 13.30 frá Þjóökirkj- unni. Fyrir hönd vandamanna, Jóna Siguröardóttir. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUÐMUNDUR RAGNAR ANDRÉSSON, símaverkstjóri, Meistaravöllum 9, veröur jarðsunginn í Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 24. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Hulda Brynjúlfsdóttir, Guölaug Guðmundsdóttir, Bryndís Guómundsdóttir, Andrjes Guómundsson, Rannveig Fannberg, Hildur Andrjesdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför, ÞORSTEINS DÍÓMEDESSONAR, Hvammstanga. Fyrir hönd vandamanna, Benedikt Stefónsson. Arndís Kjartans- dóttir - Minning Færld 8. júní 1897 Diin 14. janúar 1984 Þann 14. janúar lést að Hrafn- istu í Hafnarfirði Arndís Kjart- ansdóttir, áður til heimilis á Jó- fríðarstaðavegi 9, Hafnarfirði. Arndís Kjartansdóttir fæddist í Naustakoti á Vatnsleysuströnd 8. júní 1897. Foreldrar hennar voru Þuríður Jónsdóttir og Kjartan Runólfsson. Kjartan faðir hennar var dugmikill sjómaður og þótti hann í fremstu röð bestu for- manna, en hann hafði með dugn- aði og krafti eignast skip sem á þeim tíma var ekki auðvelt. Arndís átti þrjú systkini, eftir lifir Margrét, en látnir eru Guð- laugur og Sigurjón. Þuríður móðir hennar lést er Arndís var smábarn og var henni komið fyrir hjá móðursystrum sínum í Kjós, sem bjuggu ásamt fjölskyldum sínum í Hvammi og Hvammsvík í Kjós. Þar var hún fram yfir fermingu. Snemma hóf hún störf á Vífils- staðaspítala og henni lét vel að hjúkra veikum og líkna bágstödd- um. Hún giftist 18. maí 1922 Elíasi Gíslasyni, sjómanni frá Hafnar- firði. Þau hófu búskap í Hafnar- firði fyrst á Vesturhamri, sem þá var svo nefndur og síðar eignuðust þau lítið hús við Jófríðarstaðaveg. Þau áttu fjögur börn, þau Sigrúnu, sem gift var Páli S. Pálssyni, sem lést fyrir nokkrum árum, Guð- varð, kvæntan Vilfríði Guðna- dóttur, Kjartan, kvæntan Huldu Hafnfjörð. og Hönnu, gifta Ingv- ari Sveinssyni. Barnabörnin eru 11 og barnabarnabörn 10. Mikil fátækt og atvinnuleysi ríkti í Hafnarfirði á þessum árum og margar fjölskyldurnar áttu erf- itt með að komast af. 30. mars 1936 lést Elías eftir stutt veikindi og hún stóð ein eftir með börnin sín fjögur yngsta 3ja mánaða og hin eldri, 10,12 og 13 ára. Hófst þá tími ennþá meiri erfiðleika og bar- áttu við að halda heimilinu og börnunum. Það tókst henni með saumaskap og hjálp góðra sem hún átti að. Þegar börnin voru farin að heiman stundaði hún ýmis störf, vann m.a. tíma við að aðstoða sjúkt, gamalt fólk í heimahúsum. Árið 1973 bregður hún búi, selur húsið sitt við Jófríðarstaðaveg og flyst á Hrafnistu í Reykjavík. Fljótlega eftir það hófst bygging Hrafnistu í Hafnarfirði. Þangað flytur Arndís 1979. Hún var fegin að komast aftur til Hafnarfjarðar, því henni þótti mjög vænt um bæ- inn sinn. Þegar hin nýja sjúkradeild Hrafnistu í Hafnarfirði var opnuð 1982 var hún ein af fyrstu vist- mönnum þar enda hafði heilsu hennar farið hrakandi og þurfti hún stöðuga umönnun. Bestu þakkir eru færðar öllu starfsfólki Hrafnistu er annaðist hana af alúð. Ég kynntist tengdamóður minni ekki fyrr en hún var komin á efri ár. Hún Arndís mín var hrein og bein kona. Ég held að fáar mann- eskjur hafi lifað önnur eins erfið- leikaár eins og árin eftir að hún missti Elías. Hún talaði sjaldan um þessi ár, en fátt gladdi hana meira en að sjá hve vel börnum hennar vegnaði. Stundum þegar við töluðum saman hafði ég það á t Innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinsemd viö andlát og jaröarför, NÓA MATTHÍASSONAR. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, RAGNARS Þ. GUÐMUNDSSONAR, Skaftahlíö 14. Guömundur Ragnarsson, Dúfa S. Einarsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Eygló Gunnarsdóttir, Margrét Ragnarsdóttir, Pétur G. Pétursson. t Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför, HELGA GUÐMUNDSSONAR, sælgætisgeröarmanns, Hólmgaröi 54. Sérstakar þakkir færum viö öllum þeim er önnuðust hann síöustu æviárin. Guöríður M. Helgadóttir, Guömundur Helgason, Áróra Helgadóttir, Ásta Helgadóttir, Elín Helgadóttir, Gunnar Ármannsson, Svava Viggósdóttir, Jóhannes Kr. Árnason, Þorbjörn Friöriksson. t Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför, GUDMUNDAR BERGMANNS ÞORSTEINSSONAR, bónda, Holti. Jóhann Guömundsson, Björg Helgadóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Ulríke D. Guómundsson, Halldór Guómundsson, Bragi Guðmundsson, Ragnheiður Siguróardóttir, Bryndis F. Guömundsdóttir og barnabörn. tilfinningunni að hún lifði þetta með þeim. Hún starfaði um árabil í slysa- varnadeildinni Hraunprýði í Hafnarfirði og var m.a. gjaldkeri þess félags um nokkurra ára skeið. Hún fylgdist síðustu árin vel með stöðu kvenna í þjóðfélaginu og þótti mikið til koma að kona var forseti íslands og vildi að kon- ur yrðu áhrifameiri á hinum ýmsu sviðum þjóðmála. Hún lést 14. janúar sl., sofnaði hægt og ljúft og var fegin hvíld- inni sem hún hafði lengi þráð. Ég þakka tengdamóður minni samfylgdina og veit að ég er lán- samur maður að hafa kynnst slíkri konu. Blessuð sé minning Arndísar Kjartansdóttur. Ingvar Sveinsson Mig langar að minnast hennar ömmu minnar, Arndísar Kjart- ansdóttur, sem kvaddi þennan heim eftir skammvinn veikindi að Hrafnistu í Hafnarfirði þann 14. janúar sl. Hún var alla tíð sem ég man eftir henni hraust og dugmikil kona. Amma sat aldrei aðgerðar- laus. Ég man að alltaf er hún var ekki að elda mat eða hugsa um heimilið tók hún í hannyrðir. Enda vann hún fyrir sér með myndarskapnum þegar hún varð fyrir þeirri lífsreynslu að missa manninn sinn þegar hún var tæp- lega fertug og átti fjögur börn. Hún sá vel fyrir þeim, hana brast ekki kjarkinn, þessi ár hafa verið henni afar erfið. Amma mín var trúrækin kona, ég man að hún lagði mikla áherslu á að kenna mér að segja aldrei ósatt, og aldrei tala illa um náung- ann, það gerði hún aldrei. Það var gott að ræða málin við ömmu, hún var alltaf hreinskilin þegar maður leitaði ráða hjá henni. Amma var snyrtileg, og alltaf vel til höfð. Fjólublátt var hennar uppáhaldslitur. Það var gaman að koma til hennar úr skólanum þegar ég var litil, og fannst mér alltaf gaman að fá að hjálpa henni að laga til. Hana skorti ekki þolinmæðina þó að ég væri nú kannski ekki mjög vandvirk við húsverkin, hún gerði það þá bara aftur sjálf. Húsið hennar sem var við Jófríðarstaða- veg I Hafnarfirði kölluðum við systkinin alltaf Jóffa. Garðurinn hennar ömmu fékk verðlaun á sín- um tíma fyrir snyrtimennsku og gott skipulag. Hann var hennar prýði. Þegar hún var komin á Hrafn- istu í Hafnarfirði þótti henni mjög gaman að fara í smá bæjarferð og skoða gamla húsið sitt sem hún bar svo sterkar taugar til, enda bjó hún þar í tæp 50 ár. Ég kveð hana ömmu mína að sinni í minningu um yndislega konu, sem var mér alla tíð mjög góð, með kvöldbæninni sem hún kenndi börnum sínum og barna- börnum: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Sara Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.