Morgunblaðið - 22.01.1984, Side 39

Morgunblaðið - 22.01.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 39 Guðrún Sigurgeirs- dóttir - Minningarorð Fædd 15. maí 1925 I)áin 27. desember 1983 Lífið er fljótt, líkt er það elding, sem glampar um nótt. Ljósi sem titrar í tárum, tindrar á bárum. (M.J.) Niður vanga mína runnu titr- andi tár, er ég frétti lát elskulegr- ar vinkonu minnar, sem í nærfellt 40 ár hafði verið mér tryggur og kær vinur. Trygglyndi var áber- andi þáttur í fari hennar, þó gat hún á stundum verið erfiður sam- ferðamaður, sökum þess hve hún var sjálfstæð og dul. Hún bar ekki tilfinningar sínar á torg, heldur söng hún nóttinni ljóð sín. Guðrún Sigurgeirsdóttir, sem ætíð var kölluð Lilla af ættingjum og vinum, fæddist í Reykjavík 15. maí 1925. Foreldrar hennar voru hjónin Ingibjörg Jónína Jónsdótt- ir og Sigurgeir Sigurðsson, sjó- maður. Þau fluttu til Hafnarfjarð- ar árið 1928, er Lilla var þriggja ára og keyptu þá fljótlega húsið á Hverfisgötu 42. Þar ólst Lilla upp í ást og umhyggju góðra foreldra ásamt bróður sínum, Sigurði. 1. desember 1941 dimmdi í lfti og sorgin knúði dyra á mörgum sjómannaheimilum í Hafnarfirði, þar á meðal Hverfisgötu 42, er togarinn Sviði týndist í hafi, er hann var á leið til hafnar af fiski- miðum. Ég man þá harmafregn, er Sviði fórst með allri áhöfn og tug- ir hafnfirzkra barna misstu feður sína, eins og systkinin á Hverfis- götu 42. Þegar þetta gerðist var Lilla 16 ára og nemandi í Flens- borgarskólanum. Hún var greind og bráðþroska og þær mæðgur urðu mjög samrýndar, enda reyndist Lilla móður sinni góð dóttir til hinstu stundar. Jónína, dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði og horfir nú sorgmædd á eftir elskulegri einkadóttur. Á árunum hér áður, þótti það mjög við hæfi, að ungar stúlkur færu í húsmæðraskóla. Því skeði það, að haustið 1946 fórum við Lilla norður og hófum nám í Hús- mæðraskóla Akureyrar, ásamt 46 öðrum glöðum ungmeyjum. Skóla- stýra var þá Helga Kristjáns- dóttir. Frá þeim tíma er margs að minnast, en hæzt rís í minning- unni hjálpsemi og vinátta Lillu. Frá þeim tíma vorum við mikið saman. Hún ákvað og skipulagði — skíðaferð um páska, göngu á Snæfellsjökul um hvítasunnu, ör- æfaferð um verzlunarmannahelgi, og ég sagði já. Hún skipulagði sníðanámskeið, saumanámskeið, postulínsmálun, og ég sagði já. Allt vakti gleði og tilhlökkun. Um jólin 1952, breyttust mínir hagir, ég gifti mig og fór að eign- ast börn. En Lilla kom í heimsókn til að gleðja og gefa, öllu heimilis- fólkinu þótti vænt um hana og all- ir kölluðu hana Lillu vinkonu. Lilla eignaðist ekki börn, en henni þótti ákaflega vænt um bróður- börnin sín þrjú, Sigurgeir, Elísa- betu og Ingibjörgu. Ég efast ekki um að það var gagnkvæmt, börnin elskuðu og virtu góða frænku. Á þessum árum var Lilla hesta- kona, átti góða hesta og var traustur hlekkur í Hestamannafé- laginu Sörla og gjaldkeri félagsins um árabil. í þeim félagsskap eign- aðist hún mjög góða vini, sem hún mat mikils. Þeir góðu vinir sakna nú líka vinar í stað. Sumarið 1970 breyttust hennar hagir, forlögin gripu um beislis- taumana. Ég hringdi til hennar og bauð henni í ferðalag yfir hálend- ið, bóndi minn og nokkrir vinir ætluðu á hestum norður Kjöl, og ég hafði tekið að mér að aka bíln- um með vistir og viðleguútbúnað. Nú var það Lilla sem sagði já. Þessi ferð var einstaklega skemmtileg, það var hlegið, sungið og ort í faðmi blárra fjalla og er við að kvöldi komum í áningar- stað, létum við daginn geyma minningu hins liðna og drauma hins ókomna. Okkur fannst við eiga heiminn. Á þessu ferðalagi kynntist Lilla Guðmundi Erlendssyni, múrara, góðum dreng, sem síðar varð eig- inmaður hennar. Guðmundur og Guðrún giftu sig 31. desember 1972 og reistu sér fallegt hús að Heiðvangi 42 í Hafnarfirði. Þar ber allt vott um snyrtimennsku og góða umgengni. Lilla var alla tíð útivinnandi, og það ber vott um trygglyndi hennar að vinnustaðirnir urðu aðeins tveir. í 13 ár vann hún á bæjar- skrifstofunum í Hafnarfirði og í 27 ár var hún gjaldkeri hjá Isbirn- inum hf. í Reykjavík, þar þótti henni vænt um bæði vinnuveit- endur og samstarfsfólk. Ég kveð nú með söknuði elsku- lega vinkonu. Við hjónin vottum ástvinum hennar innilega samúð. Sjálf kveð ég hana með ljóðlínun- um sem hún hafði svo oft yfir, er hún hitti þá sem henni voru kærir: „Þú ert eitthvað sem kemur og eitthvað [sem fer, eitthvað sem hlær og grætur “ Helga Guðmundsdóttir. Arni Jónsson í Kúnst - Minning Ég var að fara til útlanda og skrapp til Árna Jónssonar upp á Landspítala áður en ég fór. Árni var fárveikur, en hress í máli eins og venjulega, og sagði: „Farðu nú að koma þér til Grikk- lands, og vertu ekki að slóra þetta hérna, og ef þau eru þarna enn á Olympstindi Seifur gamli og fjöl- skylda, skilaðu kveðju frá mér, og kannske lít ég við hjá þeim bráð- um.“ Við tókumst í hendur að skilnaði og báða grunaði að við sæjumst ekki aftur. „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir“, sagði Árni brosandi, þegar hann sagði okkur nokkrum vinum, að skapadægur sitt væri skammt undan. Hann barðist hetjulega við Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. banvænan sjúkdóm, sem lagði hann að velli á einu ári, langt fyrir aldur fram. Árni var einhver besti húmor- isti, sem ég hefi þekkt, og í góðra vina hópi, þar sem hann lék á alls oddi, gátu gamanmál hans orðið hrein listgrein, illkvittni var ekki til í hans munni, en það var stund- um betra að geta svarað fyrir sig í orðaleiknum, því hrjúfur gat Árni verið í orðaskylmingum við góðan vin, ef hann vissi að viðmælandinn kunni að meta grínið. Árni Jónsson átti raunar ekki langt að sækja kímnigáfuna, því Þura í Garði var föðursystir hans, og margir frægir þingeyskir húm- oristar náfrændur. Það hafa margir skrifað um Árna látinn, svo ég rek ekki feril hans, fram að þeim tíma að hann hóf sölu á afsteypum af högg- myndum og kenndi íslendingum að meta höggmyndir, sem híbýla- prýði, og er það framtak hliðstæða við litprentanir málverka, sem Ragnar í Smára gerði á sínum tíma. Fyrir, að mig minnir 15 árum, átti ég leið um Laugaveginn, sem oftar, og rak í rogastans er ég sá í glugga Húsgagnaverslunar Árna Jónssonar útstilltar myndir eftir heimsfræga myndhöggvara, eins og Majol, Rodin, Picasso, Degas og Modigliani, svo nokkrir séu nefnd- ir, þetta voru vandaðar kopíur og vel steyptar, þarna voru komin nokkur frægðarverk fyrrihluta 20. aldar, til sölu, vægu verði, á Laugaveginum. Ég notaði náttúrlega tækifærið og fékk að koma með nemenda- hópa úr myndhöggvaradeild Myndlistaskólans í Reykjavík, i verslunina til Árna, og hann lán- aði mér myndir í skólann, þegar fjallað var um þessa snillinga. Árni breytti verslun sinni brátt í listmunagallerí og nefndi hana verslunina „Kúnst“, hann og Sig- urlaug kona hans skruppu oft til Evrópu og leituðu uppi kúnst- keramik-verkstæði, sum smá, og þaðan fluttu þau inn keramik, steinleir og postulín. Fyrir nokkrum árum hitti ég þau hjón í London, og við eyddum saman einni viku á söfnum og sýn- ingum, það voru eftirminnilegir dagar þar sem húmorinn var hafð- ur í hávegum, áhugi Árna var svo mikill áð hann margskoðaði „Tate-gallerie“ og önnur söfn, þar sem verk uppáhaldsmyndhöggv- ara hans voru til sýnis. Það var aldrei meðalmennska í nálægð Árna. Hann sagðist vera gæfumaður og var það. Framúr- skarandi kona er Sigurlaug Jóns- dóttir, ekkja Árna, og þeirra barnalán er mikið. Ég syrgi Árna í „Kúnst" og það munu þeir gera, sem þekktu hann. En þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Ragnar Kjartansson myndhöggvari. Kveöja: Dorriét Kavanna Það er sagt, að næturgalar eld- ist ekki, heldur velti skyndilega útaf í blóma lífsins og séu þá allir. Og það má til sanns vegar færa, að næturgalaeðli Dorriét Kavanna hafi ekki einungis komið fram í því, hvernig hún söng, heldur einnig og ekki síður í því, hvernig hún kvaddi hinn jarðneska heim. Við vissum að vísu, að Dorriét var veik, mikið veik, en samt efast ég um, að nokkurn hafi grunað, þegar hún stóð á íslenzku tónlist- arsviði í hinsta sinn, 24. nóvember síðastliðinn, að endalokin væru svo skammt undan. En þó var söngurinn öðru vísi en áður. Röddin var að vísu áfram næturgalarödd, sem glitraði skær- ast á efsta tónsviðinu og tónarnir af þeirri gerð, sem næturgala- barkanum er eðlilegra að fram- leiða en þeim manniega. En að þessu sinni var það ekki röddin sjálf, sem skipti sköpum, heldur mannleg og um fram allt kvenleg hlýja, sem braut allar hefðir næturgalalögmálsins, umvafði áheyrendur í innileika og sann- leika, leyfði Dorriét að bjóða þróttleysi sjúks líkama birginn og lyfta verkefnunum í æðra veldi. Oðru minnisstæðara var „Depuis le jour“ úr óperunni „Louise" eftir Charpentier sem er í senn ástar- óður til eiginmanns, heittelskaðs umhverfis og sjálfs lffsins eða með öðrum orðum ástaróður til alls þess, sem skiptir mannshjartað mestu máli. Þannig vil ég muna Dorriét Ka- vanna. Fyrir hönd Tónlistarfélagsins vil ég votta Kristjáni Jóhannssyni og öllum ættingjum dýpstu sam- Halldór Hansen Ég fylltist miklum harmi þegar ég frétti að Dorriét Kavanna væri nú farin frá okkur. Því miður urðu tækifærin ekki nógu mörg til að hittast sökum búsetu Kristjáns og Dorriét erlendis, en þegar ég hafði tækifæri til þess að hitta þau hjón var það ávallt tilhlökkunarefni og eru það mjög ljúfar endurminn- ingar sem ég hef um Dorriét frá þeim tíma. Það var sérstaklega ánægjuleg samvinna sem við átt- um varðandi þá tónleika sem hún kom fram á hjá Tónlistarfélaginu. Dorriét var í mínum huga alltaf kát og lífsglöð manneskja, sem un- un var af að umgangast vegna þeirrar smitandi gleði og hlýju sem fylgdu henni. Dorriét Kav- anna kom tvisvar fram á tónleik- um hjá Tónlistarfélaginu ásamt eiginmanni sínum. Fyrri tónleik- arnir voru haldnir í Háskólabíói vorið 1981. Þeir tónleikar voru stórkostlegir og hlutur Dorríet dásamlegur og eru þessir tónleik- ar mér ákaflega minnisstæðir ekki síður vegna þess hve ánægjulegt og gaman var að vinna að undir- búningi þeirra. Síðustu tónleikar sem Dorriét kom fram á voru í Austurbæjarbíói þann 24. nóv- ember á vegum Tónlistarfélagsins. Tónleikarnir voru mjög áhrifa- miklir og var söngur hennar und- urfagur þetta kvöld. Dorriét var búin að vera veik, en stóð sig eins og hetja á þessum tónleikum. Ekki var á henni að finna að hún gengi með jafn alvarlegan sjúkdóm og fram hefur komið. Túlkun Dorriét einkenndist af svo djúpum tilfinn- ingum og miklum þroska að hver einasta sál sem til heyrði hefur varla verið ósnortin. Ráðgert var að halda aukatónleika laugardag- inn eftir þessa tónleika en Dorriét gat þá ekki komið fram, því veik- indi hennar höfðu náð yfirtökun- um. Við Dorriét kvöddumst með þeim orðum að við hittumst heil í vor, en ráðgert var að hún syngi á Listahátíð ’84. Hver skilur það samspil lífs og dauða þegar ung, fögur og gáfuð kona sem Dorriét Kavanna var, er kölluð burtu þeg- ar allt lífið virtist brosa við henni, mikil hamingja, frægð og frami. Elsku vinur, Kristján, við Ásta sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðju og vonum að Guð styrki þig í sorg þinni, því mikið hefur þú misst. Haukur H. Gröndal Islensk húsgögn Allt í stil í barna- og unglingaherbergiö. Veljum baö besta í barnaherbergin. Vinsæl og vönduö húsgögn, viö bjóöum aöeins ekta viö. Margar viðartegundir. Opið sunnudag kl. 14—16. Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfiröi, s. 54343.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.