Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.01.1984, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 41 Fuglafóður og Sólskríkjusjóður — eftir Erling Þorsteinsson Nú í vetur eins og marga undan- farna vetur hafa ýmsir haft sam- band við mig og spurst fyrir um fuglafóður handa Snjótittlingun- um, hvaða fóður sé heppilegast og hvar þar sé helst að fá. Margir haida að Sólskríkjusjóð- urinn, sem ég hefi all lengi veitt forstöðu, hafi nóg af slíku fóðri í sínum vörslum. Vegna þeirra, sem ekki eru þess- um málum kunnugir, ætla ég að byrja á því að skýra stuttlega frá uppruna sjóðsins. A æskuheimili mínu, í Þing- holtsstræti 33, var fuglunum allt- af gefið, þegar snjór þakti jörð. Þegar ég fyrst man eftir, voru það hrísgrjón, haframjöl og brauðmolar, sem gefið var, en síð- ar svonefnt ungafóður, sem aðal- lega var fínkurlaður maís. Móðir mín Guðrún Jónsdóttir Erlings barðist mikið fyrir því að smáfuglunum væri gefið, og á sjötugsafmæli sínu 10. jan. 1948, stofnaði hún Sólskríkjusjóðinn og afhenti hann dýraverndunarfélag- inu í minningu manns síns, Þor- steins Erlingssonar skálds, sem einnig var mikill fuglavinur, svo sem kunnugt er. Meðan henni entist aldur aflaði hún sjóðnum árlega nokkurra tekna með útgáfu jólakorta og minningarspjaida, sá um kaup á korni og dreifingu. Á þessi jólakort voru prentaðar fuglavísur eftir föður minn og fuglamyndir eftir ýmsa bestu listamenn okkar. Ég hjálpaði móður minni að sjálfsögðu við þetta, og að henni látinni, árið 1960, tók ég við stjórn sjóðsins. Síðan hefi ég reynt að halda í horfinu, afla sjóðnum tekna með útgáfu jólakorta o.fl., útvega hent- ugasta fuglafóður, sem völ hefur verið á og senda það út um byggðir landsins. Það hefur gengið á ýmsu með að fá hentugt fóður og ekki of dýrt. Fyrstu árin notuðum við „unga- fóðrið", en reyndum einnig ýmis- legt annað eins og valsað bygg og ómalað hveitikorn. En svo var far- ið að flytja inn svonefnt miló- korn, sem notað var í fóðurblönd- ur handa húsdýrum. Okkur leist vel á það. Kornin að stærð og lögun svipuð sagógrjón- um, en brúnleit og sjást því vel í snjó. í nokkur ár meðan miló-kornið fékkst hér notuðum við það ein- göngu. En fyrir um áratug síðan hætti það að flytjast til landsins. Var þá aftur gripið til þess að nota ómalað hveitikorn og valsað bygg, en mér líkaði hvorugt nægi- lega vel. Þá frétti ég að Fóðurblandan hf. hefði fengið fullkomin tæki til að kurla maís í hæfilega stærð og hrista mjölið úr kurlinu. Síðan hefi ég notað maískurlið og hefur kornastærð orðið jafnari og hæfi- legri með árunum og minna af mjöli, sem nýtist ekki. Fljótlega eftir að ég tók við stjórn Sólskríkjusjóðs varð mér ljós nauðsyn þess að fuglafóður fengist í verslunum, og í hæfilega stórum pakkningum. Fékk ég þá pökkunarverksmiðj- una Kötlu til að pakka því í eins kg plastpoka og koma því á mark- aðinn. Allar götur síðan við vorum með „ungafóðrið" eða röska tvo ára- tugi, hefur Katla séð um þessa hlið málsins og „Sólskríkjupok- arnir" orðið þekktir meðal al- mennings. Auðvitað verður kornið mun dýrara þegar það er selt í smápok- um en ekki í 40—50 kg sekkjum, og þeim, sem mikið gefa, finnst að vonum dýrt að kaupa mikið af smápokum. Ýmsir hafa hringt til mín á liðnum árum vegna þessa og hefi ég getað bent þeim á að Katla hafi selt fólki einn og einn heilan sekk. í byrjun nóvember sl. keypti Sólskríkjusjóður um 70 sekki af maískurli hjá framleiðandanum, Fóðurblöndunni, svipað magn og á undanförnum árum og sendi korn- pokana aðallega í flugi til flestra barnaskóla á Vestur-, Norður- og Austurlandi og einnig til nokkurra skóla sunnanlands. Flugleiðir og Arnarflug hafa mörg undanfarin ár veitt Sól- skríkjusjóði þessa ágætu þjónustu endurgjaldslaust, og flutt sekkina á nær alla staði, sem þessi félög fljúga til. Þökk sé þeim fyrir það. Ég vil nota tækifærið og biðja skólastjóra barnaskólanna, sem Sólskríkjusjóður sendi fóður, um leið og ég þakka hjálpina, að láta mig vita hvort það hafi komist til skila og verið nægilegt. Auk þess fuglafóðurs, sem sent er til skólanna, kaupum við alltaf nokkra poka til þess að geta gefið fólki eitthvað, þegar það er í vand- ræðum og leitar til okkar. Sumir gefa fuglunum ótrúlega mikið og jafnvel meira en þeir hafa efni á. Hingað til eða þar til nú í vetur hefur pökkunarverksmiðjan Katla verið nær eini aðilinn, sem látið hefur kornið í „Sólskríkjupokana" og dreift þeim til verslana, en nú gerir Fóðurblandan hf., framleið- andi maískurlsins það einnig auk fyrirtækisins Hagvers, sem nú er að pakka nýtísku „ungafóðri" handa sólskríkjunum, en það mun mestmegnis vera maískurl. I stað maískurls lætur Katla nú miló-korn í pokana og flytur það sjálf inn. Þessir þrír aðilar hafa tjáð mér, að þeir muni selja einstaklingi heilan kornsekk, þegar mögulegt sé, en rétt sé að hringja til þeirra fyrst og kanna möguleikana. Hvort miló-kornið eða maísinn er betra fóður, get ég ekki um dæmt. Sennilega er hvorugt full- komin fæða fyrir fuglana ef þeir ættu að lifa á því eingöngu í lang- an tíma, en aðalatriðið er að þeir fái eitthvað í svanginn þá daga eða vikur, sem snjórinn þekur jörðina með öllu, svo að þeir farist ekki úr sulti. Sjálfsagt eru þessar kornteg- Krlingur Þorsteinsson undir góðar hvor með annarri, þar eð ekki er talið hollt mönnum né málleysingjum að neyta of ein- hæfrar fæðu. Fyrir nokkrum dögum las ég í dálkum Velvakanda í Morgunblað- inu viðvörun frá konu um að hættulegt gæti verið að gefa smá- fuglum haframjöl, það gæti drepið þá. Eins og ég gat um hér að fram- an, þá gáfum við á mínu æsku- heimili fuglunum haframjöl ýmist óblandað eða með hrísgrjónum og brauðmolum. Þeir borðuðu hafra- mjölið með bestu lyst og aldrei sá ég veikan eða dauðan fugl alla þá vetur. Þetta mál var á dagskrá fyrir nokkrum árum og hafði ég þá samband við fuglafræðing út af því og taldi hann fráleitt að hafra- mjölið gæti verið fuglum skaðlegt. Ég leitaði nú aftur álits annars fuglafræðings og hafði hann svip- aða skoðun og bætti við að hann teldi, að ef aukinn þrýstingur yrði í sarpi fuglsins, hætti hann bara að borða í bili, annars hefði hann hvergi rekist á neitt um þetta í fræðum sínum. Hvað sem þessu líður, þá er eng- in ástæða til að nota haframjöl, þegar annað betra og mun ódýrara fóður er fáanlegt, en hafi einhver slæma reynslu af haframjölsgjöf, þætti mér vænt um að frétta um það. í sambandi við mataræði fugla, vil ég rétt minnast á, að skógar- þrösturinn okkar lítur ekki við korninu, sem snjótittlingar eru sólgnir í. Aftur á móti vilja þrestir allskonar „mannamat". Það er því gott að gefa þeim ýmsar matar- leyfar, svo sem kjöt og fitu, fisk og kartöflur. Stundum hafa kaupmenn safn- að kjötsagi fyrir fólk til þess að fóðra þrestina með. Þannig hef ég fengið kjötsag, hnoðað úr því bolta, geymt þá í frysti og gefið þá svo smám saman út á gaddinn, oft ásamt floti eða annarri fitu. Þá hefur komið fyrir að skógar- þrestir hafa ekki setið einir að matnum, en fjöldi starra hópast að, og oft hrakið þá burtu. Þó ýmsum þyki starrar frekir og heldur óskemmtilegir fuglar, þurfa þeir nú líka eitthvað að borða. Ekki hef ég séð snjótittlinga hreyfa við þrastarmatnum, en þó munu þeir borða eitthvað úr dýra- ríkinu. Ég vil hvetja fólk til að gefa fuglunum þegar jarðbönn eru og gefa helst strax þegar birtir af degi í skammdeginu. Einnig hvet ég matvörukaup- menn, um land allt, að hafa fugla- fóður á boðstólum. Fott er að gefa á bílskúrsþök eða annarstaðar þar sem kettir ekki ná til fuglanna, og best er að kisa sé inni á meðan þeir matast. Svo ég víki aftur að Sólskríkju- sjóðnum, þá vil ég taka það fram, að þetta er ekki gildur sjóður og lítils megnugur enn sem komið er. Ég verð að játa að ég hef ekki verið nógu duglegur með jólakort- in, engin ný kort gefið út nýlega. Þau síðustu seldust upp í fyrravet- ur. Hvort mér tekst að gefa út ný kort fyrir næstu jól, veit ég ekki. Nokkuð er enn til af minningar- spjöldum, sem ég sel á lækn- ingastofu minni. Tekjur sjóðsins eru því heldur litlar nú, og eiginlega ekki aðrar en þau 5% sem hann fær af and- virði seldra „Sólskríkjukornpoka" auk gjafa, sem honum berast frá gjafmildum fuglavinum og þakka ég þær kærlega fyrir hönd sjóðs- ins. Það hefur lengi verið von mín og ósk, að sjóðurinn gæti auk korn- gjafa til barnaskólanna, greitt niður verð „Sólskríkjupokanna" til almennings í stað þess að þiggja hluta af andvirði þeirra. Vonandi á Sólskríkjusjóðurinn eftir að vaxa og stækka mikið í höndum komandi kynslóða. Að lokum vil ég þakka Marteini Skaftfells, kennara, fv. formanni Dýraverndunarfélags Reykjavík- ur, kærlega fyrir mikið og fórn- fúst starf í þágu sjóðsins, svo og öðrum, sem aðstoðað hafa mig í þessum málum á liðnum árum og allt til þessa dags. F.rlingur Þorsteinsson, læknir veit- ir Sólskríkjusjóðnum forstöóu. KANARÍEYIAR-TENERIFE EYJA HINS EILÍFA VORS — STÆRST OG FEGURST KANARÍEYJA VIÐ BJOÐUM KANARÍEYJAFERÐ, SÓLSKINSPARADÍS í SKAMMDEGINU MEÐ NÝJU SNIÐI FJÓRÐA VIKAN ÓKEYPIS — HÆGT AÐ STANSA í LONDON í 2Va DAG Á HEIMLEIÐ ÁN AUKAKOSTNAÐ- AR OG í MIÐBORGINNI HÓTEL MEÐ BAÐI OG SJÓNVARPI INNIFALIÐ. 10,17, 24 eða 31 dags ferðir Brottfarardagar: 25. jan. 1., 8., 15., 22. og 29. febr. 2., 9., 16., 23. og 30. mars. 6., 13., 20., og 27. april. 4., 11., 18. og 25. maí. Nú getiö þiö fengiö tvær feröir í einni og sömu feröinni á ótrúlega hagstæöu veröi. Notiö hvíldar og skemmtunar í fegurstu sólskinsparadís Kanarieyja og átt viðburöaríka daga í heimsborginnl London, meö heimslns mesta leiklist- ar- og tónlistarlifi og hagstæðum verslunum. Einnig allur tíminn á Kanrí, án Lundúnastopps. AÐRAR FERÐIR OKKAR: Thailand, — Bangkok — baöstrandarbærinn Pattay, brottför 8. febr. og 7. mars. Karníval í Rio. Ævintýraferö til Brasilíu, brottför 2. mars. Hægt er aö velja um um dvöl á glæsilegum fjögurra stjörnu hótelum og íbúöum á stærsta og fjölsóttasta feröamannastaönum á Kanarieyjum, Pu- erto de la Cruz. Þar eru tugir næturklúbba, diskóteka og hundruö frábærra matstaöa. Sjórinn, sólskiniö og skemmtanalífiö eins og fólk vill hafa þaö. Hundruö verslana hlaönar tollfrjálsum varningi, m.a. myndavélum, hljóm- tækjum, rafeindatækjum og tískufatnaði frá frægustu fataframleiöendum heimsins Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferöir. Flugferðir — sólarflug Vesturgötu 17. Símar 10661, 22100 og 15331.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.