Morgunblaðið - 22.01.1984, Page 48
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
EITT KORT ALLS STAÐAR
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Týndu stúlkurnar:
Tvær fundust
bjargarlitlar
— sú þriöja í góðu yfir-
læti hjá ættingjum
l'RJÁK stúlkur, sem lögreglan í
Reykjavík leitaði að í fyrrakvöld,
fundust allar skömmu eftir að leit
hófst.
Sú yngsta þeirra var níu ára og
hafði ekki sést síðan hún fór í
skólann á föstudagsmorgun. Lýst
var eftir henni og kom þá í ljós, að
hún dvaldist í góðu yfirlæti hjá
ættingjum sínum, en þeim hafði
láðst að láta vita af henni.
Einnig var leitað tveggja sextán
ára stúlkna, eins og fram kom í
blaðinu í gær. Lék grunur á að
þær hefðu neytt lyfja og væru
e.t.v. bjargarlausar, því í stað þess
að taka inn örvandi lyf höfðu þær
tekið inn astmaiyf, sem veldur
neytandanum verulegum óþæg-
indum. Um klukkan hálfeitt í
fyrrinótt fundust stúlkurnar við
verslanamiðstöðina í Arnarbakka.
Þær voru bjargarlitlar og voru
fluttar á Slysadeild Borgarspítal-
ans, þar sem dælt var upp úr þeim.
Hafa þær nú náð heilsu aftur.
Lögreglumað-
ur nefbrotinn
ÖLVAÐUR eiginmaður í Keflavík,
sem lögreglan þar ætlaði að færa af
heimili hans að ósk eiginkonu og á
lögreglustöðina í fyrrinótt, réðst á
einn lögreglumannanna og barði
hann tvívegis í andlitið.
Talið er að lögreglumaðurinn sé
nefbrotinn auk þess sem annað
augað er mjög bólgið.
í gærmorgun hafði runnið af
manninum mesti móðurinn og við-
urkenndi hann strax að hafa veitt
lögreglumanninum áverkann.
LIÐLEGA sjö mánaða gamalt barn
var í gærmorgun flutt með TF-
SÝN, flugvél Landhelgisgæslunn-
ar, á sjúkrahús í London. Var
reiknað með að vélin yrði komin
þangað um kl. 14 í gær og átti að
flytja barnið rakleiðis í sjúkrahús.
Myndin var tekin á Reykjavíkur-
flugvelli skömmu áður en lagt var
af stað.
Barnið er með hjartagalla og
þurfti að flytja það mjög skyndi-
lega í sjúkrahús ytra. Ekki var
vitað hvernig aðgerðin hafði
gengið þegar Mbl. fór í prentun.
Með í vélinni voru foreldrar
barnsins og læknir auk sex
manna áhafnar flugvélarinnar.
Flugstjóri í ferðinni var Páll
Halldórsson, skipherra Helgi
Hallvarðsson.
Miðað við skuldastöðuna
er tapið á togurunum 28%
— segir Kristján Ragnarsson
„SKULDASTAÐAN er um 10% hærri en þessi afkomumynd Þjóðhagsstofn-
unar. Miðað við það, að um '/5 af þessum vanskilum verði greiddur á þessu
ári, er greiðslustaðan þannig, að um 27 til 28% halli er á rekstri togaranna.
Það kemur fram í lýsingu Þjóðhagsstofnunar á rekstrarstöðu útgerðarinnar,
að hún sé afleit við ríkjandi skilyrði. Þetta undirstrikar ástandið eins og það
er í dag mjög rækilega,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður og fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, er Morgunblaðið innti hann álits á niðurstöðum Þjóð-
hagsstofnunar um rekstrarafkomu útgerðarinnar.
„Hitt vil ég taka fram, að Þjóð-
hagsstofnun hefur nú tekið upp
nýja aðferð við þessi reikningsskil
og gerir þessa mynd betri en hún
hefur verið miðað við eldri aðferð-
ir. Við vitum að á undanförnum
árum hafa safnazt veruleg vanskil
og rekstrarstaða útgerðarinnar
verið afleit. Þess vegna finnst mér
engin ástæða til þess nú, að taka
upp nýja viðmiðun eða breyta
þessu rekstraruppgjöri á þann
hátt að gera myndina betri en efni
standa til. Það er verið að gylla
myndina, sem er þó búið að stað-
festa í rekstrinum undanfarin ár,
að hann hefur verið afleitur.
Þessi vandi er mikill en þess eði-
is að hann verður ekki leystur méð
gengisbreytingu, slík lausn kæmi
bara í hnakkann á okkur mjög
fljótlega vegna þess hve útgerðin
er háð erlendum aðföngum og
gengistryggðum lánum. Því verð-
ur að koma til millifærslna af ein-
hverju tagi, en hve stór upphæð
það er, skal ég ekki segja. Halla-
dæmið miðað við þessa venju-
bundnu aðferð, sem nær þó aðeins
til togara og báta undir 100 lestum
að stærð, nemur rúmum milljarði
miðað við að Vs vanskila yrði
greiddur. Þetta þýðir þó eftir sem
áður, að þeir sem eru í mestum
vanskilum og með dýrustu og erf-
iðustu skipin í rekstri bjargast
ekki við þetta. Fiskverðsbreyting
getur að einhverju leyti lagað þes-
sa stöðu og hún verður að koma
til,“ sagði Kristján Ragnarsson.
Stokkhólma-
Rauður veginn
af ásetningi
— segir eigandi
hestsins
Stóðhesturinn Stokkhólma-Kauður
618 frá Kolkuósi, sem skotinn var í
haga norður í Skagafirði fyrir tæpum
tvcimur árum, var ekki fórnarlamb
voðaskots, heldur var hann veginn af
ásetningi, segir Halldór Sigurðsson,
eigandi hestsins, meðal annars í sam-
tali við Morgunblaðið í dag. — Rauð-
ur 618, sem á sínum tíma var talinn
einn fremsti kynbótahestur landsins,
fannst sem kunnugt er dauður í stóði
sínu vorið 1982, og hafði hann verið
skotinn í ennið. Dráp hestsins vakti
mikla athygli á sínum tíma og fór
fram lögrcglurannsókn á málinu, en
það hefur aldrei upplýstst.
í viðtali við Morgunblaðið í dag
segir Halldór meðal annars: „Það
var engin tilviljun að hesturinn var
drepinn. Það þurfti að ganga langa
leið til að skjóta hann, hann var
valinn úr stóru stóði sem þarna var
á beit, og hæfður mitt í ennið. Það
er engin tilviljun, það þurfti bara
að ryðja hestinum úr vegi.“
Sjá viðtal við Halldór: „Gull-
smiðurinn og hestamaðurinn eru
tveir menn — en þeir eru perlu-
vinir" á blaðsíðum 58 til 61 í
Morgunblaðinu í dag.
Ungbarn í
bráöaaðgerð
til London
i Crl*
Morgunblaðiö/Friðþjófur Helgason.
Elzti íslendingurinn 105 ára á morgun:
Klæðist á hverjum
degi og gerir sína
daglegu leikfimi
„LÍKLEGA getur maður orðið þetta gamall af því að vera nægjusamur og
atorkusamur allt sitt líf,“ voru orð Jennýjar Guðmundsdóttur, elsta núlif-
andi íslendingsins, þegar Morgunblaðið heimsótti hana á Vífilsstaði. Jenný
heldur á morgun, þann 23. janúar, upp á 105 ára afmæli sitt og hafa aðeins
þrír íslendingar náð hærri aldri, þær Halldóra Bjarnadóttir, 108 ára, Helga
Brynjólfsdóttir, 106 ára, og María Andrésdóttir, 106 ára.
Jenný er fædd á Bakka i Land- ursforsetinn okkar ern og hress.
eyjum, 23. janúar 1879, dóttir
Kristínar Jónsdóttur og Guð-
mundar Diðrikssonar. Árið 1904
fluttist Jenný til Vestmannaeyja
ásamt manni sínum, Jóni Guð-
mundssyni.
„I Vestmannaeyjum vann ég
alla almenna vinnu og þar var
lífvænlegt að búa,“ sagði Jenný.
Hún bjó í Eyjum þar til gos hófst
árið 1973, og fluttist þá á Vífils-
staði. Var það í fyrsta sinn sem
hún kom á höfuðborgarsvæðið.
Sagði Jenný að sér líkaði vistin á
Vífilsstöðum prýðisvel og hún
kynni Hrafnkeli Helgasyni yfir-
lækni og starfsfólki hans bestu
þakkir fyrir.
Þrátt fyrir langa lífdaga er ald-
Hún klæðist á hverjum degi, gerir
sína daglegu leikfimi og notar
ekki gleraugu, þrátt fyrir að sjón-
inni sé farið að hraka. Jenný er
hannyrðakona mikil og hefur
hennar helsta tómstundagaman
löngum verið að hekla. Bar sú
handavinna sem blaðamaður sá í
heimsókninni vitni um að þar fór
saman handlagni og listrænt
auga. Ekki vildi Jenný meina að
hún heklaði mikið núorðið, en
þegar blaðamaður gaut augunum
að hespu sem stóð á náttborðinu
sagði hún: „Jú, ég tek nú í hana
stundum og hef gaman af þessu
dundi.“ Brosti síðan í kampinn og
sagði: „Ja, segir ekki einhvers-
staðar að tvisvar verði gamall
maður barn?“
Ljósm. Mbl./ RAX
Jenný Guðmundsdóttir, 105 ára, elsti núlifandi íslendingurinn.