Morgunblaðið - 01.02.1984, Page 32
EITT KORT AllS SIAÐAR
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
39 ÁRA GÖMUL kona fannst látin í íbúð í húsinu Njálsgötu 48a í
Reykjavík í gærkvöldi. Laust fyrir klukkan 19 hringdi maöur til
lögreglunnar í Reykjavík og tilkynnti aö hann hefdi orðið konu að
bana. Lögreglan fór þegar á vettvang og var konan látin í íbúðinni.
Tveir menn voru í íbúðinni
þegar lögregluna bar að garði og
voru þeir handteknir. Þeir voru
báðir ölvaðir, en samkvæmt
heimiidum Mbl. mun annar
þeirra hafa komið í íbúðina eftir
Reykjavík:
Kosið um
hundahald
árið 1986?
„ÞAÐ kemur til greina að heimila
hundahald í Reykjavík með ákveðn-
um ströngum skilyrðum fljótlega og
bera reynsluna af því fyrirkomulagi
undir kjósendur í næstu borgar-
stjórnarkosningum,“ sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri, á fundi um
borgarmálin sem Hvöt, félag sjálf-
stæðiskvenna í Reykjavík, gekkst
fyrir á mánudagskvöldið.
að voðaatburðurinn átti sér
stað. Sá er hringdi til lögregl-
unnar er 36 ára gamall en hinn
er 39 ára gamall. „Óljóst er með
hvaða hætti lát konunnar bar
að. En ég get sagt, að aðstæður
eru mjög krítískar," sagði Þórir
Oddsson, vararannsóknarlög-
reglustjóri ríkisins, í samtali við
blm. Mbl. í gærkvöldi.
Lítið var hægt að yfirheyra
mennina í gærkvöldi, þar sem
þeir voru báðir ofurölvi. Sam-
kvæmt heimildum Mbl. var fólk-
inu vísað úr biðstöð Strætis-
vagna Reykjavíkur við Hlemm í
gærdag vegna ölvunar. Rann-
sókn RLR var á frumstigi í
gærkvöldi og gæsluvarðhalds-
krafa hafði ekki verið sett fram,
en búast má við að svo verði gert
í dag.
Kjaradeila BSRB og ríkisvaldsins:
Lögreglumenn koma út úr hús-
inu Njálsgötu 48a í Reykjavík í
gærkvöldi. Voðaatburðurinn átti
sér stað í stofu íbúöarinnar.
Lögreglunni barst tilkynning um
atburðinn laust fyrir klukkan 19
í gærkvöldi.
Morgunblaftift/Júlíus.
39 ára kona fannst lát-
in í íbúð við Njálsgötu
Maður hringdi til lögreglu og tilkynnti
að hann hefði orðið konunni að bana
„Hundahald hefur verið bannað
í Reykjavík í 60 ár, en mönnum
hefur haldist uppi að brjóta þær
reglur í miklum mæli. Eðlilegra er
að setja ákveðnar reglur sem fælu
í sér ákveðið eftirlit með hundum í
höfuðborginni, sem hingað til hef-
ur ekkert verið, og gefa borgar-
búum kost á að meta hvort sú leið
sé til bóta eða ekki.“
Spurt og
svarað um
skattamál
Fyrstu svörin birtast í
Mbl. í dag
í Morgunblaöinu í dag birtast
svör ríkisskattstjóra við fyrstu
spurningum lesenda Morgun-
blaðsins um skattamál, en blaðið
aðstoðar að venju lesendur sína
við að leita upplýsinga hjá yfir-
völdum um skattamál.
Til að koma spurningum sín-
um á framfæri geta lesendur
hringt í síma Morgunblaðsins,
10100, milli klukkan tvö og
þrjú á daginn og beðið um um-
sjónarmann þáttarins „Spurt
og svarað um skattamál".
Hann tekur niður spurn-
ingarnar og kemur þeim til
ríkisskattstjóra, Sigurbjarnar
Þorbjörnssonar, sem hefur
fallizt á að svara þeim.
Svör ríkisskattstjóra munu
síðan birtast í blaðinu.
Sjá svör ríkisskattstjóra í
miðopnu.
Ríkisvaldið býður 12 þús-
und króna lágmarkslaun
NÝTT tilboð kom fram hjá ríkisvald-
inu í kjaradeilu þess við Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja á fundi
hjá ríkissáttasemjara í gær. BSRB
svaraði tilboðinu með því að ítreka
fyrri kröfur sínar og hittast deiluað-
ilar að nýju í dag klukkan 13.30.
Tilboð ríkisins felur í sér að lág-
markstekjur fyrir fulla dagvinnu
verði 12 þúsund krónur á mánuði.
Laun hækki almennt um 3,5% og
sérkjarasamningar verði fram-
lengdir óbreyttir hvað útgjalda-
hlið þeirra varðar. Samið verði um
sérstakar reglur um færslu milli
launaflokka þeirra sem grunnrað-
að er í 6. launaflokk og neðar.
Gildistími samningsins verði eitt
ár og verði á þeim tíma verulegar
breytingar á þeim forsendum
varðandi þróun efnahags- og verð-
lagsmála, sem fjárlögin byggjast
á, geti hvor aðili um sig á síðari
hluta samningstímans óskað við-
ræðna um áhrif þeirra á samning-
inn. Náist ekki samkomulag innan
mánaðar skal launaliður samn-
ingsins vera uppsegjanlegur.
BSRB ítrekar í svari sínu kröf-
una um 15 þúsund króna lág-
markslaun og að tryggður verði sá
kaupmáttur út samningstímabilið
sem samið verður um í upphafi, en
engin slík trygging felist í tilboði
ríkisvaldsins.
Samkvæmt því sem Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra,
sagði í gær, þýðir þetta tilboð
13,3% hækkun lægstu launa sem
merkir að lágmarkslaun verði
12.420 krónur á mánuði. Albert
sagði, er hann var spurður hvert
framhaldið yrði ef ekki yrði samið
á þessum grundvelli: „Ég álít að
þá eigi að kjósa upp á nýtt og að
stjórnin eigi ekki að sitja eftir að
stefna hennar springur. Það má
enginn láta sér þykja það vænt um
ráðherrastóla að þeir gangi fyrir
þjóðarhag."
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagði: „Okkar kröfugerð er
í slíku iágmarki að við höfum svo
til ekkert svigrúm til þess að slaka
til, enda höfum við miðað þessa
kröfugerð við það ástand sem við
viðurkennum að sé í þjóðfélaginu."
Sji samtöl við Albert Guðmunds-
son, fjármálaráðherra, og Kristján
Thorlacius, formann BSRB, á
blaðsíðu 2 í blaðinu í dag.
Menntamálaráðuneytið í Víðishúsið á þessu ári?
Umfangsmiklar skipulags
breytingar á ráðuneytinu
VERULEGAR breytingar eru fyrirhugaðar á skipulagi menntamálaráðuneyt-
isins og voru tillögur Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráðherra þar að
lútandi staöfestar af ríkisstjórninni í gærmorgun.
Hinu nýja skipulagi er ætlað að
afnema margþætta skipulagslega
vankanta á starfsemi ráðuneytis-
ins. í því skyni verða settar á stofn
þrjár skrifstofur í ráðuneytinu og
munu núverandi tíu deildir þess
verða settar undir skrifstofurnar,
þ.e. fjármálaskrifstofu, skóla-
málaskrifstofu og háskóla- og
mer.ningarmálaskrifstofu.
í forsendum tillagnanna segir
m.a. að deildir ráðuneytisins séu
of margar og smáar. Stjórnunar-
verkefni ráðuneytisstjóra verði af
þeim sökum illviðráðanlegt,
óhjákvæmilegt sé að koma á meiri
verkaskiptingu í yfirstjórn, skipt-
ing verkefna í ráðuneytinu sé
óregluleg og þótt samskonar mál
eigi stundum erindi til mismun-
andi deilda séu skörp skil á milli
þeirra. Einnig segir að skortur sé
á samnýtingu þekkingar, reynslu
og tækjabúnaðar.
Skipulagsbreytingarnar munu
m.a. hafa það í för með sér, að
skólarannsóknadeild verður íögð
niður í núverandi mynd, verkefni
hennar verða flutt til Námsgagna-
stofnunar, fjármálaskrifstofu,
Rannsóknarstofnunar uppeldis-
mála og aðila utan ráðuneytisins.
í skipulagstillögunum, sem unn-
ar voru af Rekstrarstofunni, kem-
ur fram að húsnæði ráðuneytisins
sé mjög óhentugt. Ragnhildur
Helgadóttir menntamálaráðherra
sagði í samtali við blaðamann
Mbl., að kraftur yrði nú settur i
endurbætur á Víðishúsinu, m.a.
með því að selja húsnæði Náms-
gagnastofnunar í Tjarnargötu.
Ekki væri útilokað að síðar á ár-
, inu verði hægt að taka í notkun
tvær hæðir í Víðishúsinu.