Morgunblaðið - 05.02.1984, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
51
i
i
TEXTI: GUÐMUNDUR GUOJÓNSSON
TEIKNINGAR: HERDlS BENEDIKTSDÓTTIR
Músarrindill.
Ljósm.: Grétar Eiríksmn.
mátt framkvæma með aðstoð
músarrindla. Til dæmis gat sá sem
bar volgt músarrindlablóð i augu
sín séð jafnt á nóttu sem degi. Þá
mátti halda menn f greipum
svefnsins að vild með því að
hengja höfuð af músarrindli yfir
höfðalagið. Vaknaði þá maðurinn
ekki fyrr en höfuðið var fjarlægt.
En er músarrindillinn eitthvað
annað en fallegur lítill fugl? Göm-
ul sögn segir að hann sé voldugur
loftandi í álögum og í raun ná-
skyldur erninum. örninn er sam-
kvæmt sömu sögn ekki síður vold-
ugur loftandi. Sagan segir að þeir
hafi verið hnepptir í álög af æðri
máttarvöldum vegna mikils deilu-
máls sem ekki er getið hvað var.
Og þeir losni ekki úr álögunum
fyrr en deilan er leyst. Það er
kannski eigingirni, en vonandi
leysist deilan ekki, því þá hverfa
kannski músarrindlar og ernir.
En það voru ekki allir sáttir við
að rindillinn litli væri illur andi og
galdrakvikindi. Þeir voru margir
sem þóttust vita að krossmörkin á
strompunum héldu rindlunum í
burtu einfaldlega vegna þess að
þeir væru góðar og guðhræddar
sálir sem ekki vildu óvirða kross-
inn með fótasparki. Þeir sem voru
þessarar skoðunar settu ekki
krossa á strompa sína og sáu ekki t
eftir nokkrum kjötmolum ofan í
litlu skinnin. Rindlarnir þóttu oft
borga fyrir sig með veðurspám. Til
dæmis voru til þeir sjómenn sem
veigruðu sér við að róa ef þeir sáu
músarrindil skjótast í fjörunni er
þeir gerðu sig klára. Sáu þeir
m
*
oftast ekki eftir því að hafa tekið
mark á spánni. Þetta hlaut þó að
vera stopul veðurspá, því að öllu
jöfnu ber ekki mikið á músarrindl-
um í fjörum á vetrum, þeir eru svo
strjálir.
„Söngvar himinsins“
Þeir sem trúðu engu illu upp á
þennan smælingja vísuðu einnig
til raddarinnar, en músarrindill-
inn þykir syngja afar fallega.
Sögðu sumir að það væru „söngvar
himinsins" sem hann syngi og ekki
væri til illt í þeim.
í bók Björns J. Blöndal, „Dagg-
ardropar" er falleg saga sem við
hæfi er að enda þetta spjall um
stórmerkilegan lítinn fuglakóng.
Björn leggur hana í munn gamals
manns sem er kallaður ólafur
gamli. Svona er sagan:
— Músarrindlinum var gefin sú
gáfa að geta sungið sumar og vet-
ur. Glatt sjálfan sig og aðra með
undrafögrum söng. Hann er eini
fuglinn á ísalndi sem syngur á
dimmum skammdegisdögum.
Einu sinni var ég móður og þre-
yttur í smalamennsku. Þá var
norðanbylur. Þetta var í örnólfsd-
alsskógi. Ég kastaði mæðinni í
skjóli af skógivöxnum kletti. Þá
heyrði ég þann fallegasta sam-
söng, sem ég hef heyrt á ævinni.
Fyrst hélt ég, að huldufólk væri að
syngja. En svo sá ég Htið brúnt
höfuð gægjast út úr klettaspr-
ungu. Vissi «ég þá, að það voru
músarindlar, sem sungu.
- m-
Opnum á morgun nýja
tegund verslunar á íslandi
Vöruloftió er á 600 fm gólffleti í Markaóshúsinu, Sigtúni 3. Viö tökum frá framleióendum, heildsölum,
verslunum og einstaklingum og önnumst söluþjónustuna.
Vörurnar eru margvíslegar, t.d. uppþvottalögur, 0,75 I, á 16 kr., gallabuxur á 295 kr.,
barnabuxur á 145 kr., slæður á 8 kr. Þú getur líka keypt 6 tölur á 8 kr., en þeim fylgir
líka blússa. Úlpur á 495 kr. og margt fleira. Sjampó, 0,5 I, á 16 kr.
Eins og þú sérð, gerir þú vart betri kaup í dag. w í
Betri eru tveir fuglar í hendi en einn í skógi.
Opið frá kl. 12—18 virka daga,
föstudag kl. 12—19,
laugardag kl. 10—16.
Vöruloftið
Sigtúni 3.
Namm....
3Ó3Ó
hrinfir
....ein af rpi Eagnarsvörunum
i