Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984 60 H RAFNINN FLÝGUR nákvæmlega eftir sögulegum heimildum um giæsilega búninga heldur einnig tekiö mið af því efni sem fyrir var á þessum tíma svo og aðstæðum. Söguhetjurnar eru auk þess illa rakaðar og grútskítugar enda hafa menn sjálfsagt haft um annað að hugsa en hreinlæti við þessar aðstæður. En allt frá því er hinir norrænu víkingar birtast fyrst á tjaldinu fær maður á til- finninguna að einmitt þannig hafi þetta sennilega verið. Ofan á þetta bætist svo að myndin er tekin illviðrasumarið 1983 og bera sum atriðin þess glögg merki, þar sem menn öskra upp í vindinn og vaða drulluna í hné í blautum skinnfötunum. Fyrir bragðið verður myndin trúverðugri en ella því auðvitað hefur verið rok og rigning á íslandi á landnámsöld, ekki síður en nú. Tilbúningur og raunveruleiki Leikarar eru allir íslenskir og með aðal- hlutverk fara Jakob Þór Einarsson, sem leikur Gest, Edda Björgvinsdóttir sem leikur systur hans, Helgi Skúlason og Flosi Ólafsson í hlutverkum þeirra fóstbræðra Þórðar og Eiríks, Egill Olafsson sem leik- ur bróður Þórðar, Gottskálk Sigurðsson sem leikur son írsku konunnar og Þórðar og Sveinn M. Eiðsson sem leikur einn af mönnum Eiríks. Fleiri mætti nefna sem einnig skila sínu með miklum ágætum þótt skemur njóti við. Að mínu mati hefur þeim, ásamt leikstjóranum, tekist að skapa trúverðuga mynd af fóikinu og líf- inu í landinu á þessum tíma. Að vísu er þetta fólk talsvert frábrugðið þeim hug- myndum sem ég hafði gert mér af land- námsmönnum samkvæmt bókunum, en eftir á að hyggja gæti þetta allt eins hafa verið svona. Hrafn Gunnlaugsson er leikstjóri og höfundur myndarinnar „Hrafninn flýgur“. Og það er ekki aðeins hrafninn sem flýgur heldur hefur hugmyndaflug höfundar einnig fengið byr undir báða vængi. Hér er ekki stuðst við sögulegar heimildir heldur hefur Hrafn skapað þessari sögu sinn eig- in heim. Sagan er tilbúningur, en hefði allt eins getað gerst, og eitthvað svipað þessu hefur sjálfsagt oft átt sér stað á öllum tímum víðsvegar um heiminn. Atburða- rásin er spennandi og dramatíkin fær að njóta sín og söguþráðurinn svo skýr, að ekki ætti að vefjast fyrir neinum um hvað atburðirnir snúast. Menn eru vegnir, eins og óhjákvæmilegt er í umfjöllun um slíka atburði frá víkingaöld. Þau atriði ættu þó ekki að fara fyrir brjóstið á neinum og sjálfsagt verða einhverjir fyrir vonbrigð- um með að Hrafn skuli ekki hafa gefið þann höggstað á sér að þessu sinni. Heiðursþátttaka í Berlínarhátíð Að lokum skal þess getið, að Hrafni Gunnlaugssyni hefur borist bréf frá for- svarsmönnum kvikmyndahátíðarinnar í Berlín, þar sem „Hrafninn flýgur" er boðin heiðursþátttaka (Sondervorstellung) í að- aldagskrá hátíðarinnar, sem haldin verður nú í febrúar. Að dómi þeirra ber myndin með sér framúrskarandi tilraun í sögu- legri kvikmyndagerð eða eins og segir í bréfinu: „Seeing your film we were soon captured by this outstanding effort in combining history and cinematography. One can say: These images will sur- vive ... “ M á af þessu ráða að „Hrafninn flýgur" hefur þótt hin athyglisverðasta hjá þeim kvikmyndahátíðarmönnum, en hátíðin í Berlín er ein hin virtasta sinnar tegundar og er þetta því mikil viðurkenning fyrir aðstandendur myndarinnar og ætti um leið að geta orðið lyftistöng fyrir íslenska kvikmyndagerð í framtíöinni. Sv.G. Það erfíðasta sem ég hef lent í segir Edda Björgvinsdóttir sem leikur írsku konuna Edda Björgvinsdóttir i hlutverki (rsku konunnar, stillir sér upp fyrir framan Ijóskastarann í upptöku i einu atrióanna í „Hrafninn flýg- ur“. „ÞetU er fyrsU og eina kvik- myndin sem ég hef leikið í og var því mikil reynsla fyrir mig,“ sagði Edda Björgvinsdóttir, sem leikur írsku konuna í „Hrafninn flýgur“. Edda er fyrst og fremst þekkt sem gamanleikkona og hefur komið víða við á því sviði að undanfornu, svo okkur lék forvitni á að viU hvort það hefði ekki einnig verið ný reynsla fyrir hana að koma fram í þessu fremur alvarlega hlut- verki í myndinni. „Fyrsta hlutverkið sem ég fékk eftir að ég lauk prófi frá skólanum var að vísu mjög al- varlegs eðlis. Það var í „Sonur skóarans og dóttir bakarans" eftir Jökul Jakobsson, en þar lék ég handalausa stúlku frá Víet- nam, sem var ákaflega alvarlegt hlutverk. Síðan hef ég í rauninni ekki þurft að takast á við neitt alvarlegt verk, sem höfðar til til- finninganna, fyrr en nú, þannig að það má kannski segja að þetta hafi verið ný reynsla hvað það varðar. Alla vega var þetta gjör- ólíkt öllu sem ég hef áður reynt, bæði þetta að leika í kvikmynd og svo hlutverkið sjálft. Ég féll strax fyrir handritinu um leið og ég las það fyrst. Bæði fannst mér það spennandi og manneskjuleg. Ég hef aldrei ver- ið neitt sérlega spennt fyrir þessum tíma eða íslendingasög- unum yfirleitt, en það að þurfa að færa sig svona aftur í tímann og leika manneskju, sem á mann, bróður og og barn, vakti mig á vissan hátt til umhugsunar um lífið í landinu á þessum tíma. Maður hefur alltaf litið á þessar sögur sem einhverjar hasarsög- ur, þar sem menn höggva mann og annan, en lítið hugsð um, að á þessum tíma bjó hér venjulegt fólk, sem átti við sín vandamál að glíma, bæði stór og smá, rétt eins og fólk sem uppi er í dag. Vinnan við gerð myndarinnar var lífsreynsla út af fyrir sig. Aðstæður vord mjög frumstæð- ar og slæmt veður angraði okkur þannig að það má segja að þetta hafi verið hörð lífsbarátta, bæði hjá leikurum og tækniliðinu. Það er ótrúlega mikil og erfið vinna í sambandi við gerð svona mynd- ar. Ég hafði aldrei hugsað út í það fyrr en ég reyndi það sjálf. Maður fór í bíó og sat þar í tvo tíma og leyfði sér svo að dæma hvernig til hefði tekist. Eftir þessa reynslu fer ég á bíó með öðru hugarfari. Að leika í kvikmynd er gjör- ólíkt því að leika á sviði. Kvik- myndin er tekin upp í bútum og hlaupið fram og aftur í tíma þannig að maður þarf á fáum mínútum að setja sig inn i eitthvert hugarástand, sem fylg- ir því atriði sem verið er að taka hverju sinni. Síðan er kannski stoppað og tekið aftur, og maður þarf þá aftur að skutlast inn í þetta hugarástand. Ég held að þetta sé það erfiðasta en jafn- framt það skemmtilegasta sem ég hef lent í.“ Læknastofa Hef opnaö stofu aö Álfheimum 74, tímapantanir í síma 86311. Siguröur Stefánsson, sérgrein: Háls-, nef- og eyrnalækningar. fUtripmMitMÞ Gódan daginn! GET BÆTT VIÐ VERKEFNUM þorsteinn ThorlacLis Vidskiptafræöhgur Laugavegi 116 -105 ReykjcMk Simi17850 TELEX 2168 BRAGA IS. Sl JZUKI Opiö 13—17. BÍLASÝf ^ Sveinn Ea 4ING i dag. ilsson hf Nýr Suzuki SA 310. suzukjI Skeifan 17, sími 85100 M M M M M M M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.