Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984 54 Úr heimi kvikmyndanna: Krikmyndahátíð 1984 land í Brest. Fólkið sem hann hittir verður þrælar hans. Hann myrðir Vic félaga sinn meö köldu blóði til þess aö fá frjálsar hend- ur aö selja Nónó vændisbús- stjóra allt þaö ópíum sem félag- arnir smygluðu í land. Morðiö kemst ekki upp svo Querelle ákveður aö velja sjálfur eigin refsingu. Hann lætur Nónó nauöga sér og kemur síðan Gil nokkrum í hendur lögreglunnar sem moröingja Vics." í heimildarmyndinni um „Quer- elle" bað Fassbinder um að ákveönir textar yrðu notaöir og þar á meðal var sagan sem hann sagöi af því þegar hann eitt sinn var á göngu í smábæ einum og maður gekk fram á hann og sagöi: „Þér líkist leikstjóranum fræga, Rainer Werner Fassbind- er.“ „Hann er alltof frægur til þess aö vera á gangi hér á þess- ari götu," svaraði Fassbinder. Þannig eru til margar sögur um þennan þýska leikstjóra. Þegar hann lést sagöi einn vinur hans: „Menn héldu aö Rainer langaöi til aö veröa Orson Welles en í raun var þaö Marilyn Monroe sem hann vildi líkjast." Kanada Ein mynd er frá Kanada á há- tíöinni, „The Gray Fox" eöa Bragöarefurinn, frá 1983. Leik- stjóri er Philliþ Borsos. Myndin er byggö á sannri sögu af Bill nokkrum Miner, sem var „heiðar- legur" þjófur j Bandaríkjunum og Kanada á seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Bill var þjóövegaræningi sem sérhæföi sig í ráni póstvagna. Hann var handtekinn fyrir morö og sat í 33 ár í hinu illræmda San Quentine-fangelsi. Hann var orö- inn aldraöur maöur þegar hann var látinn laus og haföi þá heim- urinn tekiö miklum breytingum. Ein var sú aö í staö póstvagna voru komnar járnbrautarlestir. Þaö var fátt sem honum stóö til boöa gömlum manninum svo hann tók upp sitt fyrra líferni, nema nú réöist hann á lestir og rændi þær i staö póstvagnanna áöur og hróöur hans sem lestar- ræningja barst víöa. Áöur en langt um leiö var hann eftirlýstur á nýjan leik um Bandaríkin og Kanada Bretland Ein bresk mynd er á hátíöinni, „The Draughtsman's Contract" eöa Teiknarinn. Leikstjóri hennar er Peter Greenaway en meö aö- alhlutverk fer Anthony Higgins. Myndin gerist á Englandi sumar- iö 1694. Teiknarinn er metnaö- arfullur glæsilegur ungur maöur sem feröast um milli landsetra og gerir snyrtilegar teikningar af hí- býlum og húsum fólks gegn vægu gjaldi. Á einu hallarsetrinu lætur hann til leiöast aö gera myndaröö af höllinni sem kona hallareigandans ætlar aö koma húsbóndanum á óvart meö. Teiknarinn vill fá borgaö í fríöu og reynist konan undarlega fús til samninga. Dóttirin fer einnig fram á samskonar viöskipti. Teiknarinn nýtur lífsins i botn og gerir sér enga grein fyrir aö veriö er aö gera hann aö vitorösmanni í morömáli. Á endanum tekur hann aö gruna eitt og annaö en endalokunum heföi hann aldrei óraö fyrir. Finnland Ein mynd frá Finnlandi er sýnd á hátíöinni og heitir hún „Jon" eöa Jón. Hún er frá 1983 og leik- stjóri er Jaakko Pyhalá. í sýn- ingarskrá segir aö myndin um Jon hafi vakiö einna mesta at- hygli finnskra mynda á síöustu árum. Hún segir frá Joni sem bú- inn er aö fá sig fullsaddan af slæpingjahætti t Helsinki. Hann gengur í skrokk á vinkonu sinni vegna misklíöar og flýr borgina undan lögreglunni. Hann ræöur sig í vinnu á smáeyju nyrst í Nor- egi þar sem hefst viö skrautlegt samfélag manna í nágrenni viö heljarmikla herstöö. Jon veröur aöalstjarnan í heimildarmynd um farandverkamenn sem sænska sjónvarpiö er aö gera og á meö- an á upptökum stendur kynnist Jon náunga sem er ekki bara fiskimaður og olíubormaöur heldur líka blaöamaöur, rithöf- undur og heimshornaflakkari. Indland Kvikmyndagerö á Indlandi stendur með miklum blóma þó sjaldan berist myndir þaöan hingaö upp til íslands. Kvik- myndahátiöin býöur nú uppá eina indverska kvikmynd og heit- ir hún á frummálinu „Kahrij" sem þýtt hefur veriö á íslensku sem Afgreitt mál. Myndin er frá síö- asta ári og leikstjóri er Mrinal Sen. I sýningarskrá hátiöarinnar segir aö Sen eigi þegar langan feril aö baki og er hann oft nefndur í sömu andrá og Satyajit Ray sem þekktastur er ind- verskra kvikmyndahöfunda á Vesturlöndum. Sagan í myndinni er á þessa leiö: Krakki í þjónustu millistéttarfjölskyldu í Kalkútta deyr á voveiflegan hátt lokaöur inni í eldhúsi. Fjölskyldan, hjón og ungt barn þeirra, höföu fram aö þessu lifaö áhyggjulausu lífi en nú snýst þaö lif upp í martröö. Allir vilja bjarga eigin skinni á annarra kostnaö. — Aörar myndir og gestir — Hér hefur í stuttu máli veriö tæpt á nokkrum þeirra mynda sem Kvikmyndahátiö 1984 býöur uppá. Plássleysisins vegna er ekki hægt aö greina frá öllum þeim myndum sem standa mönnum til boöa á hátíðinni. Ónefndar eru tvær myndir frá Danmörku, „Historien om Kim Skov" og „Parallel Corps", filipp- ínska myndin „Bona", kínverska myndin „Minningar mínar um gömlu Peking", hollenska mynd- in „Smaak van Water" eöa Vatnsbragö, sem hlaut Gulljóniö á Feneyjahátíðinni 1982 fyrir fyrstu mynd, sænsku myndirnar „Hemligheten" eöa Leyndarmál og „Mot at leva", Lífsþróttur, og loks má nefna sovésku myndina „Vokzal dlia dvoih" eöa Braut- arstöö fyrir bæöi eftir Eldar Riaz- anov. Listahátíö í Reykjavík hefur boöiö nokkrum erlendum gest- um til aö vera viö opnun kvik- myndahátíöarinnar. Má þar nefna kvikmyndatökumanninn Tony Forsberg sem kvikmyndaði „Hrafninn flýgur", Peter Cowie frá Bretlandi sem er ritstjóri Int- ernational Film Guide og er sér- fræöingur í kvikmyndum Noröur- landa, Yves Boisset frá Frakk- landi sem leikstýrir myndinni Áhættuþóknun sem minnst var á hér aö framan, Jack Hofsiss frá Bandaríkjunum sem er leikstjóri myndarinnar Darraöardans og kvikmyndaleikstjórann banda- ríska John Waters, en þrjár mynda hans eru á hátíöinni. Kvikmyndahátíðina er aö finna í Regnboganum og stendur hún til 12. febrúar. Samantekt: — ai. HAFA New Line Sænskar baðinnréttingar í sérflokki sem henta inn á öll baðherbergi. Fáan- legar af lager. w -j m m w-k m Vald Poulsen Suðurlandsbraut 10, sími 86499. RENAULT 18 GÆÐABÍLL Á GÓÐU VERÐI Getum nú boöiö örfáa Renault 18 fólksbíla og stationbíla á einstaklega hagstæöu veröi eöa frá aðeins kr. 337.000.- OPIÐ LAUGARDAGA KL. 1-5. RENAULT - SPARNEYTINN, RÚMGÓÐUR OG TRAUSTUR <$> KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANOSBRAUT 20, SÍMI 86633

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.