Morgunblaðið - 05.02.1984, Qupperneq 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984
Kvikmynd
Hrafns
Gunnlaugssonar
frumsýnd
r
i
Háskólabíói
íslenskir kvikmyndagerðar-
menn hafa verið iðnir við kolann
að undanförnu þótt afraksturinn
hafi ef til vill ekki alltaf verið í
réttu hlutfalli við fyrirhöfn. Kaun-
ar má segja að það sé þrekvirki út
af fyrir sig að ráðast í kvikmynda-
gerð hér á landi við núverandi að-
stæður og víst er, að ekki skortir
þá hugrekki sem leggja út í slíkt
áhættuspil. íslenskri kvikmynda-
gerð hefur vissulega vaxiö fiskur
um hrygg á undanfornum árum
og frumsýning nýrrar kvikmyndar
er merkisatburður í íslensku
menningarlífi. Slfkur atburöur
átti sér einmitt stað nú um helg-
ina er kvikmynd Hrafns Gunnl-
augssonar, „Hrafninn flýgur“, var
frumsýnd í Háskólabíói. Hrafn
hefur cft komið mönnum á óvart
með verkum sínum og ef að líkum
lætur mun þessi kvikmynd koma
mörgum á óvart, þó á annan hátt
en oftast áður enda er myndin
gjörólík öllu því sem hann hefur
fengist við til þessa.
Á írlandi búa kristnir menn og ala börn
sín upp samkvæmt þeirri kenningu að „hið
mjúka muni sigra hið harða“. En þegar
lítill drengur horfir upp á norræna víkinga
drepa foreldra sína, brenna heimilið og
nema systur sína á brott, gleymist hinn
kristni siðaboðskapur og hefndarþorstinn
grefur um sig í hjarta barnsins. Sjálfur
var drengurinn of ungur til að koma að
gagni sem þræll þeirra fóstbræðra Þórðar
og Eiríks, en „nógu gamall til að hafa séð
of mikið". Tuttugu árum síðar hefur leik-
urinn borist til hinnar nýfundnu eyju í
Norðurhöfum, fslands, þangað sem Þórður
og Eiríkur hafa flúið, ásamt mönnum sín-
um, undan Haraldi hárfagra. Þangað er
einnig kominn dularfullur maður, sem á
erindi við þá fóstbræður og dregur nú
brátt til mikilla tíðinda. Um það hvort hið
mjúka sigrar hið harða skal ósagt látið,
enda aukaatriði í þeirri atburðarás sem
myndin lýsir. Hins vegar hefur maður á
tilfinningunni, þegar upp er staðið, að allt
eigi þetta eftir að endurtaka sig.
Það hefur stundum örlað á þeirri gagn-
rýni, að nýjar íslenskar myndir hafi verið
„frumsýndar í fjölmiðlum", og hefur um-
fjöllunin ekki alltaf þótt vera í samræmi
við efni og ástæður. Hér skal því reynt að
sneiða hjá hástemmdum yfirlýsingum
enda er grein þessi ekki kvikmyndagagn-
rýni. Hér verður aðeins drepið á nokkrar
staðreyndir varðandi gerð þessarar nýju
kvikmyndar og væntanlegum áhorfendum
látið eftir að dæma hvernig til hefur tekist
enda viðbúið að myndin tali sínu máli
sjálf.
Kammíslensk mynd með
alþjóðlegu yfírbragði
Framleiðendur verksins eru FILM
Reykjavík, Viking Film og Sænska kvik-
myndastofnunin og eru flestir úr hópi
tæknimanna sænskir. Má þar ef til vill
finna skýringu á því að „Hrafninn flýgur"
hefur á sér annað yfirbragð hvað tækni-
Verslunarstaöur viö suöurströnd
íslands í upphafsatriöi myndar-
innar.
Hin stórfenglega leikmynd af
bæjarstæöinu undir Drangshlíö,
hönnuö af Gunnari Baldurssyni og
íslenskum náttúruöflum.