Morgunblaðið - 14.02.1984, Page 1
I
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
35. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
Prentsmiðja Morgunblaösins
Konstantin Chernenko aðalritari sovéska kommúnistaflokksins:
Þröngvum ekki skoöun-
um okkar upp á aðra
Moskvu, 13. febrúar. AP.
„VIÐ SOVÉTMENN mununi mæta hverri þeirri ógnun sem
kann aö stafa af hernaðarsinnuðum ævintýramönnum á Vest-
urlöndum. Við sjáum mætavel, að heiminum stafar í dag hvað
mest hætta af óvarkárum ævintýramönnum sem láta stjórn-
ast af árásargjarnri heimsvaldastefnu. Við munum ekki
þröngva okkar stefnu og skoðunum upp á neinn, en því síður
leyfa því hernaðarjafnvægi sem skapast hefur að breytast,“
sagði Konstantin Chernenko, sem í dag var kjörinn aðalritari
sovéska kommúnistaflokksins að Juri Andropov látnum.
Það var forsætisráðherrann,
Nikolai Tikhonov, sem stakk upp á
Chernenko á fundi miðstjórnar
Steingrímur
gekk fram
hjá börum
Andropovs
STEINGRÍMUR Hermannsson,
forsætisráðherra, er nú staddur í
Moskvu ásamt Guðmundi Bene-
diktssyni, ráðuneytisstjóra í for-
sætisráðuneytinu, og mun verða
við útfor Yuri V. Andropovs, sem
fram fer í dag, þriðjudag.
í stuttu símtali, sem blm.
Mbl. átti við Steingrím, kom
m.a. fram, að í gær hefði hann
gengið framhjá börum Andro-
povs og hefði þar margt stór-
menni verið samankomið víðs
vegar að úr heiminum. Það hef-
ur vakið nokkra athygli hér á
landi, að forsætisráðherra skuli
verða við útför Andropovs
vegna þess, að þegar Leonid
Brezhnev, fyrrum leiðtogi Sov-
étríkjanna, lést var islenski
sendiherrann í Moskvu fulltrúi
þjóðarinnar við útför hans.
Sagði Steingrímur, að sam-
komulag hefði orðið um að hafa
nú þennan háttinn á og nefndi
það m.a., að við útför Brezhnevs
hefði aðeins vantað forsætis-
ráðherra þriggja Evrópuríkja,
íslands, Albaníu og Möltu. For-
sætisráðherrar hinna Norður-
landanna væru nú allir komnir
til Moskvu auk Koivistos, for-
seta Finnlands.
stjórnmálaráðsins, sem fram fór
strax eftir að aðilar ráðsins gengu
að kistu Juri Andropovs og vott-
uðu hinum látna leiðtoga virðingu
sína. í ræðu sinni fetaði Tikhonov
milliveg í lofgjörðum um nýja
leiðtogann og eftirmælum um
látna leiðtogann. Útnefning og val
Chernenkos vakti mikla athygli,
því það var jafn vel talið að
stjórnmálaferill hans væri á enda
er Andropov tók við af Leonid
Breshnev en ekki Chernenko. Ekki
síst þar sem Andropov hafði
styrkt mjög stöðu stuðnings-
manna sinna áður en hann féll frá.
Þá er hinn 72 ára gamli Chern-
enko elsti maður sem tekur við
embætti aðalritara flokksins.
Nýi leiðtoginn:
Konstantin Chernenko.
viðbrögð sovéskrar alþýðu. Einn
vestrænn fréttamaður gerði
skyndikönnun á götu úti í Moskvu
er Chernenko hafði verið kjörinn
aðalritari og tók fólk tali af
handahófi. Voru skoðanir mjög
skiptar, allt frá því að sagt var að
mikill meirihluti Rússa væri á
móti Chernenko og að því að hann
væri verðugur og góður eftirmað-
ur Andropovs. Ýmsir voru þeirrar
skoðunar að Andropov hefði verið
betri leiðtoginn og Chernenko
fengi nú aðeins að spreyta sig
vegna þess að betri maðurinn væri
ekki lengur í veginum.
Útförin
Juri Andropov, hinn látni leið-
togi, verður jarðsettur á morgun,
þriðjudag, og hafa hundruð hátt-
settra ráðamanna frá mörgum
löndum lagt leið sína til Moskvu.
Auk þeirra Bush og Thatchers má
nefna Helmut Kohl kanslara
Vestur-Þýskalands og utanríkis-
ráðherra hans, Hans Dietrich
Genscher, Wojciec Jaruzelzki
hershöfðingja hinn pólska, Indiru
Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands, Mika Spiljak forseta Júgó-
slavíu, Poul Schluter forsætis-
ráðherra Danmerkur og Andreas
Papandreu forsætisráðherra
Grikklands svo einhverjir séu
nefndir.
Sjá „Verður hann aðeins leiðtogi
skamma hríð“ á blaðsíðu 18.
Frá vinstri: Chernenko, Nikolai Tikhonov, Andrei Gromyko og Dmitri Ustinov, „eldri“
um Sovétríkjanna, röðuðu sér fremstir við líkbörur Juri Andropovs.
mennirnir í æðstu valdastöð-
Símamynd-AP.
Gæsluliðið
burt innan
30 daga?
Washington, 13. febrúar. AP.
RONALD Reagan forseti Bandaríkj-
anna vinnur nú að því í samvinnu við
varnarmálaráöherrann, Caspar Wein-
berger, að allir bandarísku friðar-
gæsluliöarnir í Líbanon verði fluttir út
í herskip úti fyrir ströndum landsins
innan 30 daga „ef hernaðar- og póli-
tíska staðan býöur upp á það, sem
flest bendir nú til,“ sagði Larry
Speaks, talsmaður Reagans í dag.
Viðbrögð
George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, sem kominn er til
Moskvu til að vera viðstaddur út-
för Andropovs, sem fram fer á
morgun, þriðjudag, sagði, að hann
væri kominn til Sovétríkjanna
ekki aðeins til að votta sovésku
þjóðinni samúð bandarísku þjóð-
arinnar, heldur einnig til að
„kanna mikilvæga möguleika á þvi
að draga úr spennu í heiminum og
vinna þannig að batnandi sambúð
austurs og vesturs". Búist er við
því að Bush eigi fund með Chern-
enko áður en hann hverfur aftur
til síns heima. Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, er
einnig komin til Moskvu og bendir
vera hennar þar einnig til þess að
leiðtogar Vesturlanda ætli þegar í
byrjun að nýta leiðtogaskiptin í
Sovétríkjunum til þess að slaka á
spennunni.
Lítið er vitað um raunveruleg
Símamynd-AP.
Diana prinsessa kemur heim frá
Osló í gær.
Diana á
von á sér í
september
Lundúnum, 13. febrúar. AP.
TILKYNNT var í gær, að Diana
Bretaprinsessa væri kona eigi ein-
sömul um þessar mundir. Hún
gengi með annað barn þeirra
Karls Bretaprins undir belti og
ætti von á sér síöla í september.
Það var talsmaður krúnunnar
sem ekki vildi láta nafns getið
sem lét hafa fregnina eftir sér í
gær. Hann sagði að Diana hefði
komið heim frá Noregi á sunnu-
dagskvöldið þar sem hún dvaldi
í einn dag og kom fram við
opnun á sýningu. Hún væri í
„eins góðu likamlegu ásigkomu-
lagi og hugsast gæti um þessar
mundir og ekki væri búist við
öðru en að hún myndi halda
fyrirfram ákveðna dagskrá sína
allt fram í ágúst".
Talsmaðurinn sagði jafn-
framt, að kóngafólkið breska
væri í sjöunda himni yfir tíðind-
unum og þau Karl og Diana
manna kátust. „Þau hafa oft
sagt að þau vilji eiga fleiri börn
en eitt og þeim er alveg sama
hvort barnið verður karl- eða
kvenkyns," sagði hinn ónafn
greindi talsmaður.
Stríðið við Persaflóa:
Stórskotahríð á
óbreytta borgara
Baghdad og Teheran, 13. febrúar. AP.
ÍRANIR héldu í dag uppi stórskota-
hríð á fjórar írakskar borgir og frak-
ar lýstu strax yfir að þeir myndu
svara „grimmilega“ í sömu mynt.
Þetta var annar dagurinn í röð sem
íranir skjóta af fallbyssum á íraksk-
ar borgir, en á sunnudaginn skutu
þeir á sjö borgir í írak og írakar
svöruðu þá með sams konar skothríð
á fjórar borgir í íran.
I öllum tilvikum vöruðu stríðs-
aðilar andstæðinga sína við yfir-
vofandi árásum þannig að
óbreyttir borgarar gætu flutt á
brott eða leitað skjóls. Eigi að síð-
ur segja franir íraka hafa drepið
minnst 36 manns og sært rúmlega
140, en frakar segja írani á hinn
bóginn hafa vegið 14 manns með
sprengjuregni sínu og sært um 90,
auk þess sem í öllum tilvikum
varð gífurlegt eignatjón.
„Almenningsálitið í heiminum
hlýtur að sætta sig við að við skul-
um vara fólk við árásum i tíma,“
sagði Hossain Musavi, forsætis-
ráðherra íran. Báðir stríðsaðil-
arnir sögðu árásir sínar hafa verið
í hefndarskyni fyrir fyrri árásir
og ekkert lát yrði á slíkum „hefnd-
araðgerðum".