Morgunblaðið - 14.02.1984, Page 41
ftlorflimlilntnft
ÓLYMPÍULEIKARNIR í SARAJEVO:
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 14. PEBR0AR 1984
Hamalainen komin
með tvö gull í göngu
Sjá nánar/24
Gífurleg
öryggis-
gæsla í
Sarajevo
AD SÖGN íslenska skíöafólksins
sem keppir í Sarajevo er örygg-
isgæslan gífurleg á staðnum.
Fyrir utan allar byggingar í
Ólympíuþorpinu eru öryggisverö-
ir meö 50 metra millibili allir
vopnaöir vólbyssum. Viö alla
keppnisstaöi er líka mjög mikiö
eftirlit. Veröir voru meö 100 metra
millibili viö allar skíðagöngu-
brautir og allir verðir eru vopnað-
ir. Þaö er her og lögregla sem sér
um þessa miklu gæslu í Sarajevo.
Menn eru þess greinilega minn-
ugir hvaö skeöi á Ólympíuleikun-
um í MUnchen áriö 1972.
Einar Ólafsson:
„Sæmilega ánægðir
með frammistööuna“
— VIÐ erum sæmilega
ánægðir meö frammi-
stööu okkar í 15 km
göngunni. Þetta gekk
ágætlega, færið var gott
og smurningin á göngu-
skíðunum var eins og
best verður á kosiö.
Brautin var aö vísu mjög
Einar arkar hér áfram í 15
km göngukeppninni í
gær.
Morgunblaðiö/Símamynd AP.
erfið en við erum sáttir
við frammistöðuna þegar
á heildina er litiö. Keppn-
in er oröin svo gífurlega
hörö, og sekúndubrot
skilja oröið á milli manna.
Viö erum um miðjan hóp
og þaö er ágætt sagöi
Einar Ólafsson göngu-
maöur er Mbl. spjallaði
við hann í gærkvöldi.
Einar varö í 49. sæti i 15
km göngunni í Sarajevo í
gær og félagi hans Gott-
lieb Konráðsson varð í 55.
sæti. 92 keppendur tóku
þátt í 15 km skíöagöng-
unni og luku 88 keppni.
Tveir voru dæmdir úr leik
og tveir hættu keppni.
Einar sagði i gær að
ekki væri loku fyrir það
skotiö að hann myndi taka
þátt í 50 km göngunni.
Hann myndi ákveöa fljót-
lega hvort svo yrði.
— Allt skipulag hér er
eins og best verður á kos-
ið og það er alveg sérstök
upplifun aö taka þátt i
leikunum. Allur aöbúnað-
ur, matur, húsnæöi og
önnur aöstaða, er eins
góður og hugsast getur,
sagöi Einar.
— ÞR.
• Kevin Keegan
Pétur skoraði á
fyrstu mínútu
ANTWERPEN átti góðan leik um
helgina og þetta er allt fariö aö
ganga betur hjá okkur núna. Viö
erum í sjötta sæti og eigum eftir
að færa okkur rólega upp töfluna.
Viö sigruðum Lierse 3—0, en leik-
urinn heföi allt eins getaö endað
5—0. Ég átti nokkur góö mark-
tækifæri, sem ég var óheppinn aö
nýta ekki. En nú er ég farinn aö
leika miöherja aftur eftir eitt og
hálft ár, sagði Pétur Pétursson í
gær.
— Ég skoraði fyrsta mark leiks-
ins meö skalla strax á fyrstu mín-
útu leiksins. í hálfleik var staöan
2—0 fyrir okkur og sigurinn var
Keegan hættir
Fré Bob Henneesy fréttaritara
Mbl. é Englandi.
KEVIN Keegan sem verður 33 ára
í dag tilkynnti í sjónvarpi í gær-
kvöldi aö hann myndi hætta aö
leika knattspyrnu þegar keppn-
istímabilinu lýkur. Orðrétt sagöi
Keegan í fréttatíma BBC: „Ég hef
ákveöið að hætta aö leika knatt-
spyrnu þegar keppnistímabili
mínu meö Newcastle lýkur f vor.
Ég finn að ég hef ekki löngun til
aö keppa lengur og þá er ekki
rétt aö halda áfram. Þegar ég tek
svona stóra ákvöröun í lífi mínu
og tilkynni hana opinberlega
stend ég viö hana,“ sagöi Keeg-
an.
Keegan hefur 80 þúsund sterl-
ingspund í árslaun núna sem
knattspyrnumaöur og miklar tekjur
fyrir auglýsingar. Hann er búinn aö
vera í fremstu röö um langt árabil
sem knattspyrnumaöur. Þjálfari
hans hjá Newcastle sagöi í gær-
kvöldi aö Keegan gæti vel leikiö
knattspyrnu þar til hann væri orö-
inn fertugur, hann væri svo léttur á
sér og hæfileikar hans og létt skap
væri einstakt.
Rúm 70.000 fyrir
11 rétta í Getraunum
í 23. LEIKVIKU komu fram
fimm raöir meö 11 rétta í 1.
vinning og hlýtur hver röö kr.
72.585,- í vinning. í 2. vinning
komu fram 99 raöir meö 10
rétta og vinningur á hverja
röö kr. 1.571.-.
aldrei í hættu. Við bættum einu
marki viö í síöari hálfleik en þau
heföu átt aö vera fleiri. Liö okkar
er núna heilsteyptara en fyrir ára-
mótin og meiri barátta í leik-
mönnum.
Pétur sagöist vera búinn aö
skora mörk í síöustu þremur leikj-
um sínum. Þá sagöist hann hafa
gert glæsilegt mark gegn Stand-
ard í fyrri viku en þaö heföi verið
dæmt af á einhvern óskiljanlegan
hátt. „Þetta var æðisgengiö mark
af löngu færi beint í samskeytin og
því sárgrætilegt aö þaö skyldi vera
dæmt af, sagöi Pétur. Úrslit í
Belgíu um helgina uröu þessi:
Fc Mechlin — Beerschot 0—1
Beringen — Anderleicht 0—1
Beveren — Kortryk 2—1
FC Bruges — Seraing 3—1
Waregem — SK Bruges 2—1
RWD Molenb. — Waterschei 0—0
Standard — FC Liege 0—2
Antwerp — Lierse 3—0
Lokeren — Ghent 2—1
Staöan i Belgíu:
Beveren 16 5 1 1 45—23 37
Seraing 13 4 5 44—24 30
Anderlecht 11 7 4 48—29 29
FC Bruges 10 8 4 39—24 28
Standard 11 5 6 34—23 27
Antwerp 8 8 6 36—27 24
FC Mechlin 7 10 5 26—26 24
Waregem 9 5 8 32—28 23
SK Bruges 9 4 9 25—22 22
Waterschei 7 6 9 20—33 20
Lokeren 7 5 10 23—31 19
Kortryk 6 7 9 23—29 19
Beerschot 5 9 8 29—41 19
FC Liege 6 5 10 20—31 17
Lierse 6 3 13 26—41 15
RWS Molenbeek 3 9 10 20—31 15
Beringen 5 4 12 20—44 14
Ghent 4 4 14 18—35 12
m
• Pétur Pétursson skoraöi fyrir Antwerpen um helgina. Hann leikur nú |
í stööu miöherja aö nýju.
V*
Jia
• Bryndís Hólm
Bryndís hlaut
silfur á norska
meistaramótinu
BRYNDÍS Hólm frjálsíþrótta-
kona úr ÍR stóð sig vel á norska
innanhússmeistaramótinu í
frjáisíþróttum um helgina, varö
í öðru sæti í langstökki og aö-
eins þremur sentimetrum frá ís-
landsmeti sínu.
ÍR-ingar sendu Bryndísi og Jó-
hann Jóhannsson til norska
mótsins, sem fram fór í Dramm-
en i Noregi. Jóhann vann sinn
riðil i 100 metra hlaupinu á 11,35
sekúndum, en varö síöan fjóröi í
milliriöli, einnig á 11,35 sekúnd-
um, og komst því ekki í úrslitin.
Erlingur Jóhannsson UBK,
sem stundar nám í Ósló og kepp-
ir fyrir Óslóarfélagið Tjalve,
keppti einnig í 100 metra hlaup-
inu, varö fjóröi í sínum riöli á
11,50 og komst því ekki áfram.
f langstökkinu sigraöi dönsk
stúlka, Lisbeth Petersen, stökk
6,04 sentimetra, eöa átta senti-
metrum lengra en Bryndís. Sú
danska á miklu betri árangur.
Á mótinu kepptu 430 norskir
frjálsíþróttamenn auk 20 Dana
og Svía og íslendinganna
þriggja. Var þaö úrtökumót
Norðmanna fyrir Evrópumeist-
aramótiö innanhúss, sem fram
fer í Gautaborg fyrstu heigina í
marz. —ágás.