Morgunblaðið - 14.02.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
35
NM í skólaskák:
„Hamingjudísirnar
gengu í lið með mér“
Karl Þorsteins, Noröurlandameistari í skák, á þarna í höggi við Lars
Schandorfí frá Danmörku. Hann tryggði sér sigur í mótinu með því að
leggja Danann að velli.
EINBEITNIN skein af hverju and-
liti, leikgleðin í algleymingi í
llvassaleitisskóla um helgina. Þar
fór fram Norðurlandamót í skóla-
skák og 50 unglingar frá öllum
Norðurlöndum voru mættir til leiks.
Þar skiptust á skin og skúrir, gleði
og vonbrigði en íslendingar höfðu
ríka ástæðu til að gleðjast. íslend-
ingar eignuðust Norðurlandameist-
ara í þremur flokkum af Hmm og
íslenskir skákmenn urðu í öðru sæti
í tveimur flokkum. Sannarlega góð
útkoma á velheppnuðu móti. Karl
Þorsteins vann í flokki 17—20 ára,
Davíð Ólafsson í flokki 15—16 ára
og llannes Hlífar í flokki 11 — 12
ára.
Þeir Karl Þorsteins, Verslun-
arskólanum, og Elvar Guðmunds-
son, Garðabæ, höfðu mikla yfir-
burði í A-flokki og kom á óvart að
Jonny Hector frá Svíþjóð og Lars
Schandorff frá Danmörku, sem
talið var að myndu veita þeim
harða keppni, stóðu Karli og Elv-
ari langt að baki. Kepnnin í
A-flokki snerist upp í einvígi
Karls og Elvars. Þeir gerðu inn-
byrðis jafntefli í 3. umferð og úr-
slitin réðust ekki fyrr en í síðustu
umferð mótsins. Þá vann Karl
Þorsteins Schandorff frá Dan-
mörku og tryggði sér sigur. Dan-
inn lék af sér í jafnteflislegri
stöðu og Karl stóð uppi sem sigur-
vegari. Hlaut 5Vi vinning en Elvar
hlaut 5 vinninga.
Karl Þorsteins er 19 ára gamall
og hefur þegar unnið mörg alþjóð-
leg mót. Hann sló í gegn í Puerto
Rico 14 ára gamall þegar hann
vann skákmót Sameinuðu þjóð-
— sagöi Karl I»orsteins
eftir að hafa orðiö Norö-
urlandameistari —
íslendingar sigursælir í
NM í skólaskák
anna. I Brazilíu vann hann mikið
unglingamót, þar sem saman voru
komnir unglingar víðs vegar að úr
heiminum og í fyrra várð hann
Norðurlandameistari í skólaskák
og tókst nú að verja titil sinn.. Þá
eins og nú var Elvar Guðmunds-
son helsti keppinautur hans.
Hamingjudísirnar gengu
í lið með mér
— En hver er skýringin á vel-
gengni Karls við skákborðið —
hæfileikanum til að verða fremst-
ur? „Ég get ekki skýrt það, en auð-
vitað spilar heppni inn í og oftast
næ ég að halda ró minni og það
held ég sé mikilvægt," svaraði
Karl Þorsteins og bætti við; „svo
er mér mjög illa við að gefa fyrsta
sætið eftir, þannig að þetta hefst
einnig á skapinu. Annars var Elv-
ar óheppinn að hafna í öðru sæti.
Við gerðum stutt jafntefli, en í
síðustu umferð lék Daninn illa af
sér í jafnteflislegri stöðu. Ég var
kannski með heldur betra þegar
hann lék af sér hrók, eða varð mát
ella. Þannig snerust hamingjudís-
irnar á sveif með mér.“
— Standa íslenskir unglingar
jafnöldrum sínum á Norðurlönd-
um framar í skák? „Já, tvímæla-
laust — skákin nýtur almennra
vinsælda hér og eins er ungl-
ingastarf innan Taflfélags
Reykjavíkur mjög gott. Þar hefur
Ólafur H. Ólafsson ásamt fleirum
unnið mikið þrekvirki."
— Hvað er framundan?
„Ég mun taka þátt í Reykjavík-
urskákmótinu og síðan snúa mér
að náminu en ég lýk stúdentsprófi
í vor. Hvort ég legg skákina fyrir
mig? Ég get ekki svarað því — það
yrði mjög freistandi ef árangurinn
yrði viðlíka og hjá Jóhanni Hjart-
arsyni," sagði Karl Þorsteins.
Elvar í þriðja sinn
í öðru sæti
„Þetta er í þriðja sinn sem ég
hafna í öðru sæti á NM,“ sagði
Elvar Guðmundsson í samtali við
blm. Mbl. „En ég er þokkalega
ánægður með taflmennsku mína.
Ég lít á mótið fyrst og fremst sem
æfingu fyrir Reykjavíkurskákmót-
ið,“ sagði Elvar ennfremur.
„Sigurinn kom
mér á óvart“
I B-flokki — flokki unglinga 15
og 16 — ára vann Davíð Olafsson,
Hólabrekkuskóla, öruggan sigur
— hlaut 5 vinninga af 6 möguleg-
um. Hafði tryggt sér sigur fyrir
síðustu umferð mótsins og tapaði
þá fyrir Fredrik Dahl frá Noregi.
Þetta var í fyrsta sinn, sem Davíð
náði að bera sigur úr býtum á
Noðurlandamótinu í fjórum til-
raunum. Hann hefur tekið þátt í
öllum mótunum. Því lá beinast við
að spyrja hvort sigurinn hefði
komið honum á óvart. „Já.það kom
mér nokkuð á óvart, sérstaklega
þar sem ég er á fyrra ári í flokkn-
um. Ég hafði ekki verið nærri því
að sigra áður — komst næst því í
Svíþjóð í fyrra. Þá þurfti ég að
vinna í síðustu umferð til að ná
efsta manni, en gerði jafntefli. En
sigur hefði ekki einu sinni dugað,
þar sem andstæðingur minn hefði
verið hærri á stigum.
Það ber að hafa í huga að
sterkasti skákmaður Norðurlanda
í þessum aldursflokki, Norðmað-
urinn Simen Agdestein, tefldi ekki
hér í Reykjavík. Hann er mjög öfl-
ugur, varð Noregsmeistari í
fyrra,“ sagði Davíð.
Lærði mannganginn
5 ára gamall
Þriðji Norðurlandameistarinn
okkar er Hannes Hlífar Stefáns-
son, 11 ára gamall. Hann varði tit-
il sinn frá í fyrra, hlaut 5 vinninga
af 6 mögulegum. Gerði 2 jafntefli.
„Ég lærði mannganginn 5 ára
gamall og fór í Taflfélag Reykja-
víkur 7 ára,“ sagði Hannes Hlíðar.
Sigur í mótinu kom honum ekki á
óvart, enda að verja titil frá í
fyrra þegar hann sigraði í flokki
skákmanna 10 ára og yngri. „Það
er því miður ekki mikill áhugi
fyrir skák í Fellaskóla, svo ég fer
oft í Taflfélag Reykjavíkur,“ sagði
hann. Hannes les skákbækur og
Encyclopediu í skák. „Ef ég skít-
tapa fyrir einhverjum þá fer ég í
gegn um afbrigðið í encyclopedi-
unni og stúdera,“ sagði þessi ungi
skákmaður.
Ferdinand Hellers frá Svíþjóð
varð hlutskarpastur í C-flokki,
flokki 13—14 ára, en Tómas
Björnsson og Þröstur Þórhallsson
höfnuðu í 2.-3. sæti með 4'k vinn-
ing.
I E-flokki, skákmanna 10 ára og
yngri sigraði Thomas Habekost,
Danmörku. Hann hlaut 5 vinninga
en Andri Björnsson hlaut 4yk
vinning og hafnaði í 2. sæti.
Elvar hafnaði í öðru sæti þriðja sinn f röð.
Morgunhlaðió Kristján Kinarsson.
Davíð Ólafsson til vinstri og Hannes Hlíðar — þeir urðu NM-meistarar í sínum flokkum.
Breiöholtsbúar
athugið
V/SA
Viö höfum
nú tekiö upp
nýja opnunartíma
sem hér segir:
Virka daga opið kl. 9—19.
Föstudaga kl. 9—19.30.
Laugardaga kl. 9—16.
VERIÐ VELKOMIN í VERSLANIR OKKAR.
Ásgeir Breiöholtskjör Hólagaröur
Tindaseli Arnarbakka Lóuhólum
Kjöt og fiskur Straumnes Valgaröur
Seljabraut Vesturbergi Leirubakka