Morgunblaðið - 14.02.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
37
Steinunn Kristins-
dóttir — Minning
Fædd 24. júlí 1915
Dáin 4. febrúar 1984
Það er svo margt sem kemur í
hugann, þegar ég minnist ömmu
minnar, bernskuminningar mínar
eru henni svo nátengdar á einn
eða annan hátt. Þar sem ég er elst
af 10 barnabörnum hennar og var
það eina í 8 ár, hef ég kannski
tengst henni sterkari böndum en
hin. Ég átti athygli hennar og ást-
úð ein og óskipt svo lengi að það
var pínulítið sárt þegar fleiri
bættust í hópinn. Það var alltaf
svo notalegt að koma til ömmu og
afa, alltaf hafði hún tíma til að
leika, lesa eða spila við mig, ég hef
oft hugsað um það hvað hún var
þolinmóð og góð.
Margar ferðir fórum við amma
tvær saman til Breiðdalsvíkur til
að heimsækja Ingu frænku. Mín
fyrsta sjóferð með ms. Esju var
með ömmu og saman fórum við til
Danmerkur ásamt fjölskyldum
okkar og margar stuttar ferðir
innanlands. Eftir að ég varð eldri
og komin í Fjölbrautaskóla
Breiðholts var notalegt að hlaupa
heim til ömmu þegar gat var í
kennslu, hún var alltaf heima,
aldrei fór ég svöng frá henni, heitt
kakó eða eitthvað sem hún vissi að
mér þótti gott.
Amma ólst upp í Hafnarfirði og
bjó þar lengst af ævinni, hún sagði
mér oft frá því þegar hún var að
alast upp og hvað allt hefði breyst,
sem betur fer til batnaðar, var
hún vön að segja. Ammar var sjó-
mannskona, svo það kom í hennar
hlut að mestu að annast heimili og
börn eins og sjómannskonur gera
enn í dag. Hennar börn ólust upp
við það að hún væri alltaf heima.
Hún var fyrst og fremst móðir og
húsmóðir og síðar elskuleg og góð
„Héðan skal halda, heimili sitt kveður
heimilisprýðin í hinsta sinn.
Síðasta sinni, sárt er að skilja
en heimvon góð í himininn “
(V.B.)
Hildur,
Trollháttan, Svíþjóð.
hjóna sem öll eru látin og fluttist
með foreldrum sínum og systkin-
um 3ja ára gömul til Hafnarfjarð-
ar og ólst þar upp og bjó þar
lengst af. Steinunn ólst upp við
þau kjör sem algeng voru hjá
barnmargri verkamannafjöl-
skyldu í þá daga, lífsbaráttan var
hörð og börnin fóru að hjálpa til
um leið og þau gátu.
Systkini sín missti hún eitt af
öðru, lengst fengu þær að vera
saman Guðríður, sú elsta, og hún,
sú yngsta. Þó að 18 ár væru á milli
þeirra systra voru þær mjög góðar
vinkonur og mat Steinunn systur
sína mikils og oft minntist hún
hennar. Guðríður lést árið 1970.
Steinunn giftist eftirlifandi manni
sínum, Dagbjarti Geir Guðmunds-
syni, sjómanni frá Keflavík, ann-
an dag jóla 1940. Þau stofnuðu
heimili í Keflavík, en fluttust til
Hafnarfjarðar 1941 og bjuggu þar
lengst af, í mörg ár á Hraunstíg 2,
í hennar foreldrahúsi og þar
fæddust börn þeirra, Kristín, Inga
og Guðmundur Ómar.
Hlutskipti Steinunnar sem sjó-
mannskonu var líkt og margra
annarra. Vegna fjarvista sjó-
mannsins frá heimilinu kom það í
hennar hlut að mestu að annast
uppeldi barnanna og heimilið. í þá
daga voru mæðurnar heima og
kunnu þau vel að meta það börnin
hennar, hvað það var gott að hafa
mömmu alltaf heima.
Steinunn hefði ekki kært sig um
neina lofræðu, hún var hljóðlát og
vönduð kona og lifði hljóðlátu fjöl-
skyldulífi.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Vinkona
Stykkishólmur:
Gísli Jóhannesson,
Skáleyjum, kvaddur
Steinunn fæddist í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Kristinn
Pálsson, sjómaður og verkamaður,
ættaður úr Borgarfirði, og Jónína
Sigurðardóttir, ættuð af Mýrum.
Hún var yngst 8 barna þeirra
Stvkkishólmi, 6. febrúar.
LAUGARDAGINN 4. þ.m. fór
fram frá Stykkishólmskirkju útför
Gísla E. Jóhannessonar bónda að
Skáleyjum í Breiðafirði, en hann
lést hér í sjúkrahúsinu 28. janúar
sl.
Gísli fæddist í Skáleyjum 1.
september 1901 og þar átti hann
heima alla tíð síðan. Foreldrar
hans voru Jóhanncs Jónsson
bóndi þar og María Gísladóttir, og
var Gísli einn af 8 börnum þeirra
sem á legg komust.
Hann kvæntist árið 1928 Sig-
urborgu Ólafsdóttur, Berg-
sveinssonar frá Hvallátrum og
eignuðust þau 7 börn, 4 stúlkur
og 3 drengi.
Á búskaparárum þeirra í
Skáleyjum nutu margir velvild-
ar þeirra hjóna og gestrisni og
þau voru ekki fá börnin sem þar
áttu sumardvöl og minnast
þeirra daga með hlýju.
Gísli var um langt skeið
hreppstjóri þeirra eyjamanna
og í sýslunefnd var hann mörg
ár, auk annarra trúnaðarstarfa.
Gísli hafði mikið yndi af söng,
enda góður raddmaður, fróð-
leiksmaður og unni öllu því sem
til bóta horfði í íslensku þjóðlífi.
Ég kynntist Gísla töluvert og
þeim mun meira sem við kynnt-
umst kunni ég betur að meta
drenglund hans og velvilja.
Góður íslendingur hefir kvatt
og vil ég nota þetta tækifæri til
að þakka samfylgd og senda
fólki hans kveðjur samúðar og
þakklætis.
Arni Helgason
mUREX^
Rafsuðu
vélar
BOCIFANSARC DC 300 OG 400
Jafnstraumsrafsuðuvélar, 300 og 400 A.
Nota þriggja fasa straum 220/380/420 V
Sjóða rafsuðuvír allt að 6.3 mm
Auðvelt að breyta í hlífðargasrafsuðuvélar með
föstu skauti TIG
Ákaflega auðveld suða, jafnvel fyrir byrjendur
vegna góðs kveikjueiginleika
Vélarnar eru á hjólum og með handföngum
— ótrúlega smávaxnar vélar
SINDRA
STALHF
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711.
Kvöld og helgarslmi: 77988.
Hafnfirðingar
Aðalfundur Styrktarfélags aldraðra verður haldinn í
Góðtemplarahúsinu þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20.30.
Kristján Guðmundsson, bæjarstjóri í Kópavogi verður
gestur fundarins.
Stjórnin.
m/j4SSE
Skiptinemar til
Bandaríkjanna
ASSE ISLAND gefur íslenskum unglingum
kost á því að fara sem skiptinemar til ársdval-
ar í Bandaríkjunum. Dvalartími er frá 15.
ágúst 1984 til 1. ágúst 1985.
Drengir og stúlkur fædd á tímabilinu 1. ágúst
1966 til 1. ágúst 1968 geta sótt um.
ASSE ISLAND eru nýstofnuð samtök og
starfa í tengslum við samsvarandi samtök á
hinum Norðurlöndunum og ASSE internation-
al í Bandaríkjunum.
Skrifið eða hringið eftir umsóknareyðublöö-
um og öllum nánari upplýsingum.
ASSE ISLAND,
American Scandinavian Student Exchange.
Pósthólf 10104, 130 Reykjavík.
Sími 91-19385 eftir kl. 14.
Skýrslutæknifélag
íslands
O © 3AFNRÉTTISRÁÐ
LAUCAVECI 116-105 REYKJAVIK
5IMI 27420
Ráðstefna um
tækni og jafnrétti
Skýrslutæknifélag íslands og Jafnréttisráð efna sameiginlega
til ráöstefnu um TÆKNI OG JAFNRÉTTI. Veröur hún haldin aö
Hótel Esju, 2. hæö. föstudaginn 17. febrúar nk. og hefst kl.
13.00.
Efni ráðstefnunnar er aö fjalla um áhrif tæknibreytinga á
atvinnulífið með tilliti til jafnréttis kynjanna.
DAGSKRÁ:
13.00 Setning ráöstefnunnar, Guðríður Þorsteinsdóttir, tor-
maöur Jafnréttisráös.
13.10 Ávarp félagsmálaráöherra Alexanders Stefánssonar.
13.20 Atvinnumálin m.t.t. jafnréttis kynjanna vegna tækni-
breytinga, Lilja Ólafsdóttir deildarstjóri.
13.40 Áhrif tæknibreytinga hjá einstökum fyrirtækjum, Jak-
ob Sigurösson, forstööumaöur tölvudeildar Flugleiöa.
14.00 Staöan og stefnan í tæknivæöingarmálum hjá Sam-
bandi bankamanna, Hrafnhildur Siguröardóttir skrif-
stofustjóri.
14.20 Kaffihlé.
14.50 Störf nefndar, sem kannar áhrif tölvuvæöingarinnar á
atvinnulífiö, Gylfi Kristinsson, ritari nefndarinnar og
fulltrúi i félagsmálaráöuneytinu.
15.00 Stefna Alþýöubandalagsins, Vilborg Haröardóttir út-
gáfustjóri/ Þorbjörn Broddason lektor.
15.10 Stefna Alþýöuflokksins, Kristin Tryggvadóttir kennari.
15.20 Stefna Bandalags Jafnaðarmanna, Frosti Bergsson
deildarstjóri.
15.30 Stefna Framsóknarflokksins, Helga Jónsdóttir, aö-
stoöarmaöur forsætisráöherra.
15.40 Stefna Kvennalistans, Sigurbjörg Aöalsteinsdóttir
deildarfulltrúi/ Guörún Ólafsdóttir lektor.
15.50 Stefna Sjálfstæöisflokksins.
16.00 Stefna Vinnuveitendasambands islands, Anna Birna
Halldórsdóttir viöskiptafræöingur.
16.10 Stefna Alþýöusambands íslands, Hilmar Jónsson.
16.20 Umræöur.
18.00 Ráöstefnuslit.
Fundarstjóri er Hjörtur Hjartar rekstrarhagfræðingur.
Þátttökugjald á ráöstefnuna er kr. 200,- og þar eru innifaldar
veitingar í kaffihléi. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til skrifstofu
Jafnréttisráös í sima 27420.
JWt£piijMaMI»
s
s
Gódcin daginn!