Morgunblaðið - 14.02.1984, Page 32
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
raðftnu*
ÍPÁ
HRÚTURINN
21. MARZ—19.APRÍL
Tími til aó lifa, tími til ad Ijúga,
tími til að hlæja, tími til ad
deyja. I>etta er da^urinn sem
allt heppnast. Lífið leikur við
þig. Farðu yfir reikninga <
skrifaðu bréf sem þú skuldar.
NAUTIÐ
it«| 20. APRÍL-20. MAÍ
Nánari samstarfsmenn þínir
lenda í einhverju veseni í dag
l>etta verður til þess að tefja
fyrir þér. I»ú skalt ekki reyna að
hrinda neinu nýju af stað. I>að
þarf lítið til þess að vekja illt
umtal.
/^j tvíburarnir
21. MAl —20. JÚNÍ
Per gengur illa að semja við
tengdafólk og ættingja maka
þíns. Þé verður fyrir vonbrigð-
ura í vinnunni í dag. Heilsan
truflar þig og tefur fyrir þér. t>ú
skalt ekki fara eftir því sem fag
fólk ráðleggur þér.
KRABBINN
21. JÚNl-22. JÚLl
Þú verður að fara sérlega var-
lega f fjármálunum. Ástamálin
eru bæði kostnaðarsöm og
valda þér vonbrigðum. I>ér
hættir til að gera mistök í dag.
Reyndu að vera ekki svona
ímyndunarríkur.
r®r»LJÓNIÐ
!TtU 23. JÚLl-22. ÁGÚST
á'
Vertu varkár ef þú þarft að
vinna með verkfærum utanhúss
í dag. I>að koma upp vandamál
fjölskyldu þinni sem eiga eftir
að draga dilk á eftir sér. I»ú
skalt ekki skrifa undir neitt.
MÆRIN
23. ÁGÚST-22. SEPT
Samstarfsmenn þínir eru
ósamvinnufúsir í dag og ráða
gerðir þínar varðandi viðskipti
óg samninga fara út um þúfur.
Farðu út með ruslið.
Wh\ VOGIN
W/l$4 23. SEPT.-22. OKT.
Iní skalt ekki hafa neinar
áhyggjur af fjármálunum. I»ú
ert búinn að spara svo mikið
upp á síðkastið, að nú er kom-
inn tími til að þú byrjir að eyða.
Ástamálin geta valdið vonbrigð-
DREKINN
23. OKT.-21. NÓV.
I*ú átt erfitt meA art fá adra til
þeaH aíl samþykkja ráAagerð
þína. I>ú skalt ekki fara í ferAa
iög í daj>. Ini fierð ekki það út úr
þeim sem til er ætlast. Fólk í
kringum þig er mjög gaKnrýniA.
m
BOGMAÐURINN
22. NÓV.-21. DES.
I>að þýðir ekkert að ætla að fara
á bak við fólk í dag. I»ú skalt
ekki skrifa neitt niður í dag sem
þú vilt að sé trúnaðarmál. Frest-
aðu því að taka mikilvægar
ákvarðanir.
m
STEINGEITIN
22. DES.-19. JAN.
Dagurinn verður ánægjulegur
og allt gengur að óskum. Allt
horfir á betri veg með fjármálin.
Bjóddu einhverjum sem er þér
kær út í kvöld. Ástin blómstrar.
*|f$ VATNSBERINN
,>aSSS 20. JAN.-18. FEB.
Láttu þér ekki hregóa þó þér
verói hoóió út í kvöld — og enn
minna ef þú veróur aó borga.
Kólk í krinf^im þif> á erfitt meó
aó fjera upp huff sinn f nokkru
máli. Hafóu stjórn á skapinu.
J FISKARNIR
19. FEB.-20. MARZ
l»að skapast engin ný vandamál
í dag ef þú forðast allt leyni-
makk. I»að er allt mjög hægfara
í dag. Frestaðu nýjum aðgerðum
þar til síðar. I»ú átt erfitt með að
einbeita þér að lestri eða skrift-
um.
X-9
Thil Mijrar vpp a
bakið c vci- ' - -
mennínv-' rtkur fyr,r lofrmtifl
lónpföfana,\ "
(Jliuttn vmm,
l E6 GBFST
DYRAGLENS
— © 1983 Trlbun* Company Syndlcat*. Inc -----------
FERDINAND
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
WHAT I THINK I LL QO 15 60
FR0M H0U5E TO HOU5E
TELLIN6 PE0PLE HOk) I
6AVE UP MV BLANKET
TuZT
X
I LL KN0CK 0N EVERV
POOR! i'll help allthe
LITTLE KIP5 IN THE
W0RLP WH0 CAN'T 6IVE
UP THEIR BLANKET5...
Ég held að ég gangi á milli
húsa og segi fólki frá því
hvernig ég hætti með teppið
mitt.
Ég kný allra dyra! Ég ætla að
hjálpa öllum litlu krökkunum
í heiminum sem geta ekki
hætt með teppin sín ...
Þér er ekki einu sinni heitt á
enninu!
BRIDGE
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Hvað veldur því að sumir
spilarar eru seigari við að
vinna mót en aðrir?“ spyr
Eddy Kantar í laufléttri grein,
sem eitt sinn birtist í The
Bridge World. Kantar sættir
sig ekki við svarið sem blasir
við: þeir eru betri. Nei, hann
heldur að fleira komi til og um
það fjallar greinin, sem heitir
„Fyrsta spilið". Kantar heldur
að framkoman við andstæð-
ingana eftir fyrsta spilið gegn
þeim sé stefnumarkandi um
áframhaldið. Þeir sem eru sig-
ursælir leggja sig í líma við að
pirra andstæðingana með
óumbeðnum athugasemdum
eins og „það standa alltaf þrjú
grönd í spilinu" þegar and-
stæðingarnir hafa látið sér
nægja að segja tvö, eða „þú
getur hnekkt samningnum
með því að skipta yfir í lauf
þegar þú ert inni á tígulkóng,"
eftir að andstaðan hefur
brugðist í erfiðu varnarspili.
Við getum kallað þetta sið-
leysi sigurvegaranna, og sver
sig raunar nokkuð í ætt við
Grosvenor-gambítinn sem við
höfum skoðað undanfarið.
Það er hægt að koma þess-
um skepnuskap víða við og
Kantar nefnir m.a. eftirfar-
andi spil sem dæmi:
Norður
♦ Á64
¥ ÁD43
♦ D64
♦ Á52
Vestur Austur
♦ 3 ♦ G2
¥ 10987 ¥ KG6
♦ K1098 ♦ Á532
♦ 10643 ♦ G987
Suður
♦ KDl 09875
¥52
♦ G7
♦ KD
Suður spilar fjóra spaða og
vestur kemur út með hjarta-
tíu. Sagnhafi svínar drottn-
ingunni, enda „gamblari" að
náttúru, og austur fær á kóng-
inn. Eftir langa yfirlegu skipt-
ir austur yfir í litinn tígul.
Vestur drepur á kóng og spilar
tíunni til baka upp á ás aust-
urs, sem sagnhafi trompar!!
Þegar andstæðingarnir hafa
náð sér af sjokkinu, líta þeir
hvor á annan með hörkulegum
fyrirlitningarsvip og geta
sennilega ekki stillt sig um að
láta óánægjuna brjótast út í
kvikindislegum athugasemd-
um. Austur segir kannski:
„Höfum við skipt um útspils-
reglur nýlega, makker, það er
að segja, síðustu fimm sekúnd-
urnar?"
Þessu svarar vestur vænt-
anlega um hæl með því að
biðja austur að kíkja á hjarta-
litinn sinn og vita hvort ekki
leynist þar tveir gosar.
Sagnhafi leyfir þessum sam-
ræðum að þróast upp í sæmi-
legasta rifrildi áður en hann
áttar sig skyndilega og hljóðar
upp: „Þvílíkur kjáni get ég ver-
ið, ég er hérna með tígul innan
um hjartahundana."
Það þarf ekki að fjölyrða um
það hvaða áhrif þetta hefur á
geðheilsu og þar með spila-
mennsku andstæðinganna:
þeir gera sér nú grein fyrir því
að þeir treysta ekki hvor öðr-
um og naga sig í handarbökin
fyrir hvatvísina að vekja at-
hygli sagnhafa á litarsvikun-
um. Eftir þetta fyrsta spil ætti
eftirleikurinn að vera auðveld-
ur.