Morgunblaðið - 14.02.1984, Síða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
Ljósm. Mbl./OI.K.M.
Ný afgreiðsla Landsbankans á fyrstu h*ð hússins á Höfðabakka 9.
Landsbankinn
opnar afgreiðslu
á Höfðabakka
„ÞESSARI afgreiðslu, sem Lands-
bankinn opnar hér í dag, er ætlað
að þjóna því ört vaxandi athafna-
hverfi sem sprottið hefur á Ár-
túnshöfða á undanfórnum árum,“
sagði Jónas H. Haralz, bankastjóri
Landsbankans, í ávarpi sínu við
opnun afgreiðslu bankans á Höfð-
ahakka 9 síðastliðinn fóstudag, 10
febrúar.
Með afgreiðslu Landsbankans
á Höfðabakka eru afgreiðslu-
staðir bankans orðnir tíu í
Reykjavík. Verður afgreiðslan
starfrækt í tengslum við Árbæj-
arútibú undir stjórn Richards
Þorlákssonar útibússtjóra, en 10.
febrúar voru einmitt liðin 16 ár
frá því að Árbæjarútibú var
opnað. Á Höfðabakka munu
starfa sex til sjö manns og verð-
ur öll almenn bankaþjónusta
veitt.
í máli Jónasar H. Haralz við
opnunina kom fram að Höfða-
bakkaafgreiðsian er sú þriðja
sem Landsbankinn opnar á tæp-
um tveimur árum, en að öðru
leyti hefur bankinn ekki opnað
afgreiðslu í 14 ár, eða frá árinu
1968 til 1982. Kvað hann leyfi
yfirvalda til að opna nýja af-
greiðslustaði ekki hafa fengist á
þessu tímabili, með þeim afleið-
ingum að þau útibú sem fyrir
voru hefðu vaxið umfram æski-
lega stærð. Jónas sagði að með
opnun Höfðabakkaútibús væri
stefnt að leiðréttingu á þessu
misræmi, auk þess sem komið
væri til móts við vaxandi þarfir
viðskiptavina. Þó væri því ekki
að leyna að frá öllum sjónar-
hornum séð hefðu fleiri, en
smærri, afgreiðslur verið æski-
legri en þau tiltölulega stóru út-
ibú sem bankinn rekur.
Jónas gat þess einnig að mikl-
ar breytingar ættu sér nú stað í
íslenskum bankamálum og væru
þær af tvennum toga. Annars
vegar ykist fjölbreytni í þjón-
ustu banka og sparisjóða, og að
sama skapi samkeppni þeirra á
milli. Hins vegar væri ný tækni í
auknum mæli að ryðja sér til
rúms.
Jónas Haralz ávarpar gesti við
opnunina.
f undirbúningi er að taka í
þjónustu Landsbankans tölvu-
kerfi þannig að beint samband
sé á milli bankanna og Reikni-
stofu þeirra. Má ætla að þeirri
þjónustu verði komið á fót á
næstu tveimur árum og var það
haft í huga við gerð innréttinga í
Höfðabakkaafgreiðslu. Þar er
gert ráð fyrir öllu fleiri gjald-
kerum en áður hefur tíðkast og
fækkar starfsmönnum „á bak
við“ að sama skapi. Hjá hverjum
gjaldkera verður komið fyrir
tölvuskjá, lyklaborði og prent-
ara, þannig að í stað þess fyrir-
komulags að viðskiptamenn fari
fyrst að afgreiðsluborði og haldi
síðan til gjaldkera verður þjón-
ustan öll í höndum gjaldkerans.
Karl B. Guðnason, skipulags-
stjóri Landsbankans, sagði að
slíku fyrirkomulagi fylgdi mikil
hagræðing, bæði fyrir viðskipta-
vini bankans og starfsfólk.
Um frekari afgreiðslur Lands-
bankans í náinni framtíð hafa
ekki verið teknar ákvarðanir, en
ýmsar hugmyndir eru uppi varð-
andi það. Þó mun bankinn, í
samvinnu við Iðnaðarbankann,
setja upp litla afgreiðslu í húsi
Öryrkjabandalagsins innan tíð
Hafnarfjörður:
Símastrengur með 800
línum fór úr sambandi
Viögerð lauk í gærdag
Símasambandslaust varð við stór-
an hluta Hafnarfjarðar í gærdag,
þegar símastrengur, með 800 línum,
á mótum Strandgötu og Linnetstígs
fór úr sambandi, að sögn Guðmund-
ar Einarssonar, stöðvarstjóra Pósts
og síma í Hafnarfirði.
Að sögn Guðmundar fylltist
brunnur við strenginn af vatni,
sem síðan komst í strenginn og sló
þá saman, þannig að strengurinn
varð óvirkur um tíma. í gærdag
var unnið við að dæla vatninu upp
og síðan þurrka strenginn. Síðdeg-
is í gærdag var komið á samband
og ekki reiknað með frekari eftir-
köstum.
Viðgerð á símastrengnum, sem fór úr sambandi í Hafnarfirði, lauk síðdegis í
gærdag.
Leikfélag Akureyrar:
„Súkkulaði handa
Silju“ í Sjallanum
LEIKRITIÐ „Súkkulaði handa
Silju" eftir Nínu Björk Árnadóttur
verður frumsýnt hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar fimmtudaginn 16. febrúar.
Leikritið var fyrst sýnt í Þjóðleik-
húsinu 30. desember 1982 og var
sýnt þar fyrir fullu húsi fram á vor.
Nú hefur höfundurinn, í samráði við
Hauk J. Gunnarsson, leikstjóra,
breytt leikritinu að hluta.
Leikritið verður sýnt í Sjallan-
um á Akureyri, en þar hefur verið
útbúin ágæt aðstaða til leiksýn-
inga með viðbótum við svið,
áhorfendapöllum og leiklýsingu.
Þar sem söngleikurinn „My Fair
Lady“ er enn á fjölum leikhússins,
hefur LA fengið sitt „litla svið“ í
Sjallanum. Þar mun leikhúsgest-
um verða gefinn kostur á sérstök-
um mat fyrir sýningar og fjöl-
breyttari veitingum fyrir og eftir
sýningar og í hléi.
Aðalhlutverkið, verkakonuna
Önnu, leikur Sunna Borg, Silju
dóttur hennar leikur Guðlaug
Man'a Bjarnadóttir, Dollý vinkonu
hennar leikur Þórey Aðalsteins-
dóttir, Theodór Júlíusson og Gestur
E. Jónasson leika tvo af mörgum
karlmönnum í lífi Önnu, Þráinn
Karlsson leikur fylgisvein Dollýj-
ar, vini Silju leika Gunnar Rafn
Guðmundsson og Ragnheiður
Tryggvadóttir og Edda V. Guð-
mundsdóttir er Hin konan, ráð-
gjafi Önnu.
Tónlistin, sem er eftir Egil Ól-
afsson, er flutt af Ingimar Eydal og
Ingu Eydal. Lýsingu annast Viðar
Garðarsson og hönnun leikmyndar
Umferðarslys á Egilsstöðum:
Sjö ára drengur
fluttur til Reykja-
víkur fótbrotinn
K£ils.Ntöóum, 13. febrúar.
LAUST eftir klukkan eitt í dag varð sjö ára drengur fyrir bifreið á Tjarnar-
braut, móts við nýja fþróttahúsið. Drengurinn var á leið yBr Tjarnarbrautina
og mun ekki hafa orðið bifreiðarinnar var, né bflstjórinn tekið eftir drengn-
um fyrr enn um scinan.
og búninga er eftir Guðrúnu Sig-
ríði Haraldsdóttur.
Önnur sýning á Súkkulaði
handa Silju verður sunnudaginn
19. febrúar.
„Súkkulaði handa Silju er
margslungið verk. Þar geta marg-
ir séð eitthvað í sjálfum sér, ein-
stæðar mæður, unglingar, mið-
aldra karlmenn með „gráa fiðr-
inginn" og aðrir þeir sem lífsbar-
áttuna heyja. Þungamiðja leiks-
ins er líf Önnu, einstæðrar móður
í láglaunavinnu og samskipti
hennar við 15 ára dóttur sína,
Silju, sem vill finna sér annan
lífsstíl en móðirin," segir í frétt
frá Leikfélagi Akureyrar.
c>*
Sveinn Jó-
hannesson,
sparisjóðs-
stjóri á Dal-
vik látinn
ÞANN 20. janúar sl. andaðist á
sjúkrahúsi í Reykjavík Sveinn Jó-
hannesson, fyrrum sparisjóðsstjóri á
Dalvík. Hann var fæddur á Dalvík
16. maí 1911 sonur Jóhannesar Jó-
hannssonar frá Háagerði og Rósu
Stefánsdóttur frá Hofsárkoti.
Sveinn ól allan sinn aldur á
Dalvík. Hann hóf snemma störf er
lutu að sjávarútvegi en árið 1959
réðst hann sem sparisjóðsstjóri
við Sparisjóð Svarfdæla og starf-
aði þar óslitið í 20 ár, en hann lét
af störfum aldurs vegna. Jafnhliða
þessu starfi gegndi hann um-
boðsstörfum fyrir Brunabótafélag
íslands hér á Dalvík og gegndi því
starfi til dauðadags.
Sveinn tók ungur þátt í starf-
semi UMF Svarfdæla og var
lengst af í stjórn þess félags.
Ásamt nokkrum piltum á Dalvík
stofnaði hann knattspyrnufélagið
Hauk en þrátt fyrir frumstæðar
aðstæður til knattspyrnuiðkunar
hér urðu þeir kunnir norðanlands
fyrir leikni sína. Sveinn var mikill
áhugamaður um skák og lagði
rækt við þá íþrótt. Tefldi hann
ætíð á 1. borði skáksveita Dalvík-
inga.
Sveinn Jóhannesson var einn af
stofnendum karladeildar SVFÍ á
Dalvík og var í stjórn þess félags
um áraraðir. Hann var kvæntur
Petrínu Zophoníasdóttur. Einka-
barn þeirra er Rósa, gift og búsett
í Kópavogi.
Útför Sveins Jóhannessonar var
gerð frá Dalvíkurkirkju 28. janúar
sl. við mikið fjölmenni.
Fréttaritarar.
Lenti drengurinn á hægra fram-
bretti bifreiðarinnar og kastaðist
nokkra metra. Hann fótbrotnaði,
en slapp ómeiddur að öðru leyti.
Að sögn lækna er brotið það
slæmt, að senda verður drenginn
suður til Reykjavíkur í meðferð.
Bifreiðin var á lítilli ferð er slysið
varð, ella hefði getað farið verr,
enda flughálka á götum hér.
— Ólafur.