Morgunblaðið - 14.02.1984, Side 40
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Deilt um fjölda háseta í áhöfn Fjallfoss:
Sjómannafélag-
ið hefur boðað
verkfall á morgun
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur sendi Vinnuveitendasambandi íslands
bréf dagsett 7. febrúar, þar sem tilkynnt var um vinnustöðvun um borð í
nýjasta skipi Eimskipafélags íslands, ms. Fjallfossi, frá 15. febrúar nk., þar
sem félagið hafi ekki farið að gildandi kjarasamningi farmanna varðandi
fjölda háseta á skipinu.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Sjómannafélags Reykjavíkur telja
að hásetar á skipinu eigi að vera 6
og heildarfjöldi í áhöfn því 11, en
Aframhald-
andi lækkun
vaxta
- Lækka væntanlega um
3—4% 21. febrúar nk.
ALMENNIR vextir munu enn
lækka 21. febrúar nk. samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Morgun-
blaðið hefur aflað sér. Enn hefur
ekki verið tekin ákvörðun um
hversu mikil lækkunin verður, en
þó er talið líklegt, að hún verði á
bilinu 3—4%. Ekki er reiknað
með lækkun vaxta af verðtryggð-
um inn- og útlánum.
Ákvörðun um lækkun vaxta
að þessu sinni er tekin með
hliðsjón af verðbólgustiginu
um þessar mundir, en sam-
kvæmt útreikningum Seðla-
banka fslands er verðbólgu-
hraðinn talinn vera á bilinu
10—12%. Við síðustu vaxta-
lækkun var tekið mið af verð-
bólgustigi, sem metið var um
15%.
í dag eru almennir víxilvext-
ir 18,5% og skuldabréfavextir
eru 21%. Vanskilavextir eru
2,5%. Ef litið er á innlánsvexti
eru þeir 15,0% á almennum
sparisjóðsbókum og 19,0% af
sparisjóðsbókum, sem bundnar
eru í 12 mánuði.
hins vegar telur Eimskip, að há-
setar eigi að vera 3 og heildar-
fjöldi í áhöfn 8.
Samningaviðræður aðila hafa
staðið yfir um nokkurt skeið, en
ekki orðið árangur af þeim.
Vinnuveitendasamband Islands
hefur vefengt boðunina um vinnu-
stöðvun á þeirri forsendu, að hún
hafi borizt of seint til sáttasemj-
Vegaskemmdir vegna flóða
Miklar vegaskemmdir urðu á Sudurlandi vegna flóða um helgina og í gær tók RAX þessa mynd skammt fyrir
austan Hvolsvöll. Sjá miðopnu.
Tillögur fiskifræðinga um 265 þúsund tonna aukinn loðnuafia:
Áukning á útflutningstekj
um 600—700 milljónir kr.
- Samdráttur þjóðarframleiðslu 1—2% minni en áætlað var
„LAUSLEGA áætlað þýðir 265 þúsund tonna aukning á loðnuafla á bilinu
600—700 milljónir króna í auknum útflutningstekjum,“ sagði Hallgrímur
Snorrason, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun, í samtali við Mbl. í tilefni
þess, að fiskifræðingar hafa nú lagt til, að heimilaðar verði allt að 640
þúsund lesta loðnuveiðar á árinu í stað 375 þúsund lesta, sem sjávarútvcgs-
ráðuneytið hefur þegar heimilað.
1—2%, þannig að samdfátturinn
yrði á bilinu 2,5—3,5%.
Hallgrímur Snorrason gat þess,
að lauslega mætti áætla, að 265
þúsund lestir af loðnu jafngiltu á
bilinu 40—45 þúsund lestum af
þorski.
Sjá ennfremur frétt á bls. 2 um
að loðnuverðinu hafi verið sagt
upp og ummæli Hjálmars Vil-
hjálmssonar, fiskifræðings, og
Halldórs Ásgrímssonar, sjávar-
útvegsráðherra, á bls. 31.
Heildarútflutningsverðmæti
sjávarafurða er áætlað verða
tæplega 15 milljarðar króna og
heildarútflutningsverðmætið alls
um 22,2 milljarðar króna. (Jtflutn-
ingsverðmæti 265 þúsund lesta af
loðnu er því á bilinu 4—4,5% af
verðmæti sjávarafurða og um 3%
af heildarútflutningsverðmætinu.
Síðasta endurskoðaða þjóð-
hagsspá gerði ráð fyrir um 2,5%
samdrætti í útflutningsfram-
leiðslu, en ef reiknað er með 265
þúsund lestum af loðnu til viðbót-
ar mun útflutningsframleiðsla
væntanlega aukast um 1—2%. Þá
gerir þjóðhagsspáin ráð fyrir 4,5%
samdrætti í þjóðarframleiðslu.
Aukning loðnuafla myndi vænt-
anlega koma til frádráttar upp á
Eigandi Fjalakattarins óskar leyfis til niðurrifs:
Nefndinni vart annað fært
en að heimila niðurrif
- segir formaður skipulagsnefndar
„UM FJALAKÖTTINN eru mjög skiptar skoðanir og það hefur ekki verið
tekin endanleg afstaða til þess hvort húsið eigi að standa áfram eða verða
rifið. Fram hefur komið að kaupverð húss og lóðar, ásamt endurbyggingar-
kostnaði, gctur numið allt að 60 milljónum króna og mér finnst það alvarlegt
íhugunarcfni hvort Reykjavíkurborg á að kosta þessum fjármunum til endur-
byggingar hússins,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulags-
nefndar Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið, en Vilhjálmur var
spurður að því hver yrði framtíð Fjalakattarins, Aðalstræti 8.
„Ég tel jafnframt að það standi
Þjóðminjasafni og/eða mennta-
málaráðuneyti nær að eigna.it
að milljónatugum af almannafé sé
varið í þeim tilgangi, nema mikið
sé í húfi.“
ÍSALrdeilan fær á sig nýja mynd:
Straumur minnkað-
ur í öðrum kerskála
SÁTTAFUNDI deiluaðila í ÍSAL-deilunni var frestað um klukkan 20.30 í
gærkveldi þar til á morgun, miðvikudag, og er þá ráðgert að aðilar hittist að
nýju klukkan 9 að morgni. Hcldur dræmt hljóð var í mönnum cr þeir gengu
af fundi i gærkveldi og vörðust samningamenn frétta. í gær var minnkaður
straumur á öðrum kerskálanum í Straumsvík, svo að Ijóst er að nú fer að
draga úr framleiðslu álversins. Mun slíkt koma niður á bónus-greiðslum til
starfsmanna, en þær eru tengdar framleiðslunni.
Sáttasemjari ríkisins, Guðlaug-, Ein þeirra hugmynda sem nú
ur Þorvaldsson, vildi það eitt segja mun rætt um er skammtímasamn-
um stöðu mála í gær, að fundi væri
frestað til miðvikudags og aðilar
væru að skoða hugmyndir sem
fram hefðu komið. í dag er gert ráð
fyrir að trúnaðarmenn á hverjum
vinnustað í álverinu hitti sína
menn í dag og ræði þeir málin.
ingur milli aðila, þar sem gildis-
tíminn næði ekki lengra en fram í
maímánuð. Er Morgunblaðið bar
þessa hugmynd undir samningsað-
ila í gær kváðu þeir engum dyrum
hafa verið lokað og kæmu margs
konar samningar til greina.
húsið og endurbyggja það, ef frið-
un þess verður ákveðin," sagði
Vilhjálmur.
„Það er allsendis ófært hvernig
komið hefur verið fram við eig-
anda hússins. Hann hefur ekki
mátt rífa húsið, hann hefur ekki
mátt nýta það nema að hluta en
eigi að síður hefur hann þurft að
standa straum af öllum gjöldum
vegna hússins. Nú liggur fyrir
byggingarnefnd borgarinnar
beiðni frá eiganda Fjalakattarins
um að fá að rífa húsið og fæ ég
ekki séð að byggingarnefnd verði
annað fært en að heimila niðurrif
hússins, ef tekið er mið af stöðu
málsins," sagði Vilhjálmur.
„Aðalstræti 8 er mjög illa farið
og í mikilli niðurníðslu. Umræðan
um örlög þess hefur nú staðið í
mörg ár og er mál að linni. Ef svo
kynni að fara að verndun og
endurbygging hússins yrði sam-
þykkt, þá verður slík afgreiðsla að
byggjast á þeim tilgangi sem
þessu húsi er að lokum ætlað að
þjóna. Varðveisla gamaila húsa er
tilgangslítil nema skýr rök séu
fyrir hendi og algjörlega óverjandi
Samstaða allra þingflokka um flutning þingsályktunartillögu:
Lýst verði samstöðu
með Grænlendingum
- og leitað verði samstarfs við aðrar þjóðir,
sem fiskveiðiréttindi eiga á norðurslóðum
NÁÐST hefur samstaða með öllum
þingflokkum um sameiginlegan
flutning á þingsályktunartillögu þess
efnis að Alþingi lýsi samstöðu með
Grænlendingum og óski eftir að leit-
að verði samstarfs við aðrar þjóðir,
sem fiskveiðiréttindi eiga á Norður-
slóðum, vegna tilboðs Efnahags-
bandalags Evrópu um kaup á fisk-
vciðiréttindum Grænlendinga í
Norðurhöfum.
Þingsályktunartillaga þessi
kemur fram á Alþingi í dag og
verða tveir flutningsmenn á henni
frá hverjum þingflokki. Fyrsti
flutningsmaður er Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, og sagði hann að-
spurður i gær það rétt vera að
samstaða væri milli allra flokka
um mál þetta. Hann sagði rétt
vera að tillagan kæmi fram í sam-
einuðu þingi í dag og yrði hún
jafnvel tekin til fyrstu umræðu
samdægurs. Henni yrði síðan vís-
að til utanríkismálanefndar og
e.t.v. afgreidd strax á fimmtudag.