Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 21 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Ríkissjóðsgatið Rúmum tveimur mánuðum eftir að alþingi afgreiddi fjárlög fyrir árið 1984 sem meðal annars var lýst þannig hér á þessum stað að þau væru til fyrirmyndar vegna þess hve raunhæf þau væru kemur í ljós að tæplega tveggja millj- arða króna gat er á fjárlögun- um. Það vantar sem sé um tvo milljarða króna til þess að endar nái saman hjá ríkis- sjóði, sú fjárhæð svarar til rúmlega 10% af niðurstöðutöl- um fjárlaga. Allt er á huldu um hvernig á þessum vanda verður gripið sem sýnist hafa komið ráðherrum og þing- mönnum í opna skjöldu. í Bandaríkjunum glíma stjórnvöld við mikinn halla á ríkissjóði og var ritað um hann í vikuritinu Time fyrir skömmu. Hófst sú frásögn með þessari sögu: Þegar Lúð- vík 16. var við völd í Frakk- landi á Maria Antoinette einu sinni að hafa spurt fjármála- ráðherrann: „Hvað ætlið þér að gera við gatið á ríkissjóði, ráðherra?" Og hann svaraði: „Ekkert, það er of stórt." Sag- an kemur í hugann þegar litið er á þau vandræði sem nú steðja að ríkissjóði okkar. Eitt er að finna ráð við því að minnka hallann og hitt að upplýsa almenning um það, hvernig á því geti staðið að að- eins fáeinum vikum eftir að fjárlög voru samþykkt séu þau í raun marklaus. Albert Guð- mundsson, fjármálaráðherra, skýrir rétt frá þegar hann seg- ir að nú séu spilin lögð á borð- ið en ekki látið reka á reiðan- um eins og gert hefur verið um alltof langan tíma. Ætlar Al- bert að gera alþingi grein fyrir vanda ríkissjóðs á fimmtudag- inn. Alþingi undirbýr ekkert mál jafn lengi og gaumgæfilega og fjárlagafrumvarpið. Þegar það er samið er byggt á upplýsing- um frá öllum ráðuneytum, rík- isstofnunum og hundruðum einstaklinga. Fjárlaga- og hagsýslustofnun annast út- *gjaldaþáttinn og Þjóðhags- stofnun tekjuþáttinn. Þrátt fyrir allt þetta blasir nú við að fjárlagadæmið var vitlaust reiknað í desember. Hvar er pottur brotinn? Til þess að sömu vitleysurnar gangi ekki aftur er nauðsynlegt að graf- ast fyrir um það hver ber ábyrgðina á skekkjunum. Hvernig getur til dæmis vant- að 350 milljónir króna í heil- brigðis- og tryggingakerfið fyrir utan þær 300 milljónir króna sem þar átti að spara? Sá enginn fyrir að 150 milljón- ir króna vantaði til að endar næðu saman í rekstri embætta sýslumanna og bæjarfógeta? Gleymdust loðnulán ríkissjóðs og héldu menn að Slippstöðin á Akureyri ætlaði borga skipið sem ríkið gaf Grænhöfðaeyj- um? Við úttekt á þessu öllu duga engin vettlingatök. Þá þýðir ekki heldur að láta deigan síga í sparnaðaratlögunni sem er óhjákvæmileg í ríkisrekstrin- um. Alltof slælega hefur verið staðið að framkvæmdum á því sviði. Helst hefur kveðið að Sverri Hermannssyni, iðnað- arráðherra. Hann hefur látið framkvæma rekstrarlega út- tekt á stofnunum sem undir hann heyra og hrundið tillög- um um sparnað og hagræð- ingu í framkvæmd. Iðnaðar- ráðherra hefur beitt sér fyrir sölu ríkiseigna. Auðvitað verð- ur ríkissjóðsgatið ekki bætt með skæruhernaði innan kerf- isins, það verður að segja eyðslunni stríð á hendur hvar sem færi gefst. Óneitanlega veldur það vonbrigðum hve hægt miðar að koma á nýskip- an í rekstri heilbrigðisstofn- ana sem hvetur til sparnaðar. Hvernig væri að kanna hag- kvæmni þess að koma á fót fleiri einkaskólum? Fyrir hinn almenna borgara er mesta hættan sú á tímum eins og þessum þegar athygli stjórnmálamanna beinist að ríkissjóðsgatinu að þeir sjái þá leið helsta að auka tekjur ríkisins með því að þyngja skattana. Embættismenn og þeir sem njóta góðs af fjár- streymi úr ríkissjóði standa nær stjórnmálamönnunum en skattborgaramir, að minnsta kosti þegar þrjú ár eru til kjördags. Þegar María An- toinette ávarpaði fjármálaráð- herra Lúðvíks 16. gátu ein- valdar skattpínt þegnana að eigin vild. Síðan hafa löggjaf- arþingin komið til sögunnar en frumskylda þeirra var að verja borgarana gegn miskunnarlausu ofríki í skattheimtu. Vonandi hafa þingmenn ekki gleymt því hlutverki sínu, þótt í brjóstum margra bærist sú von að geta skilið eftir sig álíka glæsileg opinber minnismerki og ein- valdarnir forðum daga. Hvad er til ráda gegn halla á fjárlögum? Lárus Jónsson formaöur fjárveitinganefndar: Komið í veg fyrir endurtekn- ingu vinnu- bragða undan- farinna ára LÁRUS JÓNSSON formaður fjárreit- inganefndar segir í viðtali við Mbl., að við afgreiðslu fjárlaga hafi skýrt verið tekið fram að fyrir hendi væru lausir endar. Ástandið hafi verið mjög slæmt frá fyrra ári, en þá hefðu raunveruleg útgjöld ríkissjóðs verið fjórðungi meiri en fjárlög þess árs gerðu ráð fyrir. Með því að upplýsa fólk nú um hina raunveru- legu stöðu og leggja málið fyrir Alþingi og ríkisstjórn til umfjöllunar og af- greiðslu væri verið að koma í veg fyrir endurtekningu vinnubragða undanfar- inna ára, að allt að 25% aukafjárveitingu, eins og gerðist á síðasta ári, væri veitt út í þjóðlífið án þess að fyrir iægi samþykki þings og þjóðar. Þá kvaðst Lárus vonast til að með því að hætta að fela, stinga undir stól, eða ýta á undan sér með lántökum, raunverulegum fjárhagsvanda, mætti ná betri skilningi og samvinnu við al- menning og þá sem fara með fjármuni úr sameiginlegum sjóðum lands- manna. Helstu ástæður þeirra 1.845 millj., sem nú stefnir í rekstrarhalla á sagði Lárus vera: í fyrsta lagi ívið meira af lausum endum, þ.e. vanáætlanir sem ekki varð séð fyrir á þeim tíma sem gengiö var frá fjárlögunum. í öðru lagi hefðu ný alvarleg mál komið á daginn og í þriðja lagi þættust menn vera að sjá fyrir nýja þætti, þó ekki væri lengra liðið á árið. Nefndi hann þar sérstaklega auknar útflutningsbætur til landbúnaðarins og yfirdráttarvexti. Auk þessa væri gert ráð fyrir um 200 millj. kr. ófyrirséðum útgjöldum. Lárus lagði ríka áherslu á, að þetta dæmi sem nú væri verið að kynna, væri alls ekki nýr hlutur. Hann sagði: „Ég hélt því til dæmis fram við af- greiðslu fjárlaga fyrir árið 1983 að fjárlögin þá hefðu verið afgreidd með raunverulegum halla upp á einn millj- arð króna. Þá var keppst við að leyna hinni raunverulegu stöðu og var það gert allt þar til ríkisstjórninni tókst ekki að leyna henni lengur, það er þeg- ar ríkisreikningurinn kom fram. Hug- myndin með því að gera þetta á þenn- an hátt er sú, að menn geri sér grein fyrir við hvað er að etja, og stjórnvöld hafi með því meiri möguleika til að stjórna niðurskurði." Varðandi leiðir til að mæta þessum erfiðleikum sagði Lárus ljóst að ekki mætti bæta á erlendar skuldir ef tak- ast ætti að halda þeim innan við áætl- að strik, þ.e. 60% af þjóðarfram- leiðslu, en þær eru þegar áætlaðar um 58%. Hann kvað sitt persónulega mat vera það að reyna ætti eftirtaldar leið- ir í svofelldri röð: I fyrsta lagi niður- skurð, og kvaðst hann fylgjandi því að reyna ætti til þrautar að ná 300 millj. kr. niðurskurðinum í tryggingakerfinu sem stefnt hefði verið að. í öðru lagi sparnaður. í þriöja lagi nefndi hann aukna kostnaðarhlutdeild almennings í þjónustu hins opinbera, en hann taldi þá leið einnig geta orðið til umtals- verðrar hagræöingar í opinberum rekstri. í fjórða lagi skattlagningu, en hana sagði Lárus geta haft slæm áhrif á lánamarkaðinn innanlands, sem þegar væri aðþrengdur. Þó væri skatt- lagning illskárri en að reka ríkissjóð lengi með halla, því þaö hlyti aö auka erlendar lántökur. Lárus sagði i lokin að hann vonaðist til að öll sú vinna sem lögð hefði verið í undirbúning og athuganir á stöðu ríkisfjármálanna allt frá í sumar bæri árangur. Hann sagði fjármálaráð- herra hafa skipað sérstaka nefnd í kjölfar þess starfs til að fylgja eftir því eftirliti með ríkisfjármálunum sem hafið væri. Með þessu væru tekin upp ný vinnubrögð, nú væri ekki leng- ur verið að fela vandann, og með upp- stokkun sem þessari næðist betri yfir- sýn yfir ríkisfjármálin og fjárlög, sem lýðræðislega væri að staðið. Magnús Pétursson hagsýslustjóri: Stór hluti vegna ríkisstjórnar- ákvarðana Magnús Pétursson hagsýslustjóri sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann teldi stóran hluta 1.845 millj. kr. dæmis- ins, sem stefnir í rekstrarhalla fjárlaga ársins meö, tilkominn vegna ríkisstjórn- arákvarðana. Hann segir það af og frá að legið hafi verið á upplýsingum, þegar fjárveitinganefnd Alþingis vann að fjár- lagagerðinni, en segir þó að ýmis upp- gjörsmái hafi komið upp eftir að Alþingi afgreiddi fjárlögin. Varðandi ríkisábyrgðina á 130 millj. kr. láni loðnudeildar Fiskveiðasjóðs sagði Magnús að enginn væri búinn að segja, að ríkissjóður ætti eða ætli að taka það lán á sig, komið gæti til skuldbreytinga. Hann sagði allt dæm- ið meira og minna á sama veg. Það gæti enginn sagt um það á þessu stigi hvort til dæmis tryggingagreiðslur, lán og fleira yrði eins og nú væri áætl- að. Magnús sagði mál þetta skiptast í þrjá meginþætti frá sínu sjónarmiði. „í fyrsta lagi hluti sem lágu fyrir við afgreiðslu fjárlaga og fjárveitinga- nefnd gekk ekki frá. Þá er stór hluti af þessu vegna ríkisstjórnarákvarðana. Ríkisstjórnin verður að svara því sjálf, hvers vegna hún vildi ekki setja meira fjármagn í útflutningsbætur á fjárlög- um. Menn töldu þá að þörfin yrði ekki meiri, en það veit í raun enginn hver hún verður. Hún gæti orðið meiri en nú er reiknað með.“ í þriðja lagði sagði Magnús að til hefðu komið ýmis uppgjörsmál eftir frágang fjárlag- anna, þannig að ekki væri sanngjarnt að halda því fram að fjárveitinga- nefnd hefði verið kunnugt um alla þessa hluti, þó henni hefði ekki verið dæmið ókunnugt að öllu leyti. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Hefðum ekki átt að lækka skatta og tolla FORSÆTISRÁÐHERRA segir nýjustu upplýsingar um stöðu fjárlaga ársins sér mjög mikil vonbrigði, sem varla sé hægt að finna einhlítar skýringar á. I»ó sé Ijóst, að ríkisstjórnin hefði ekki átt að lækka neina skatta eða tolla. Hann segir ennfremur, að vandinn verði alls ekki leystur með auknum erlendum lántök- um. Stærstu útgjaldaliðina telur forsæt- isráðherra í heilbrigðis-, trygginga- og menntakerfinu. „Fólk vill hafa þessa þjónustu og þá verður þaö að greiða fyrir hana. Það verður annað hvort gert með greiðslum þeirra, er hennar njóta, en gegn því er mikil andstaða. Þá er ekki um annað að ræða en skattlagningu," sagði hann. Forsætisráðherra var fyrst spurður um hið breiða bil í fjárlögum varðandi heilbrigðis- og tryggingamál og hvort ríkisstjórnin hefði gefið upp á bátinn að ná tilætluðum sparnaði á þeim lið, eins og t.d. þeim að fólk greiði hluta sjúkrahúskostnaðar. Hann sagði að verið væri að leita nýrra hugmynda og væri sérstök nefnd fulltrúa stjórnar- flokkanna að vinna að því. Um heil- brigðiskerfið sagði hann: „Það er að sliga okkur og til þeirra mála hefur stöðugt farið vaxandi hluti þjóðar- tekna. Ég held að það sé núna hátt í 10% þjóðartekna sem vegur náttúru- lega þungt, þegar þjóðartekjur drag- ast saman. Því miður hafa allar til- raunir til þess að reka heilbrigðiskerf- ið á hagkvæmari máta mistekist, margir ráðherrar glímt við og ekki tekist." Þá sagði forsætisráöherra að hann væri þess fullviss að gífurleg misnotk- un ætti sér stað varðandi meðalanotk- un. Hann sagðist hafa það frá fróðum mönnum að meirihluti lyfja sem gef- inn væri út iægi ónotaður í lyfjaskáp- um og þyrfti að eyðileggjast. „Eg taldi að þær breytingar sem gerðar hafa verið á reglum um lyfjanotkun ættu að leiða til betri notkunar, en það virð- ist víðs fjarri." Á útflutningsbætur er taliö vanta 120 millj. kr. Steingrímur sagði bænd- ur eiga rétt á að fá 10% framleiðslu- verðmætis í útflutningsbætur og hefðu þeir sl. þrjú ár fengið töluvert meira, þó ekki hefðu þeir notað þenn- an rétt að öllu leyti á síðasta ári. Hann sagðist telja ákaflega illa gert að laka þetta af þeim núna þegar þeir væru að komast út úr offramleiðsluvandræð- um. Varðandi rekstur embætta sýslu- manna og fógeta sagði ráðherrann að gert væri ráð fyrir að ýmsar tekjur þessara embætta stæðu undir rekstri, en það hefði aldrei tekist. Embættin hefðu safnað skuldum og velt a úndan sér í langan tíma. Forsætisráðherra var spurður í lok- in, hvernig hann teldi að til tækist að færa til innan fjárlagarammans þær 325 millj. kr. sem ætlaðar væru til hinna verst settu, miðað við þessar að- stæður. Hann svaraði: „Ég tel að það sé út af fyrir sig hægt og það er verið að skoða leiðir til þess, meðal annars niðurgreiðslur landbúnaðarvara, en það eru til fleiri leiðir." Hann ítrekaði í lokin að þessar upplýsingar væru sér mikil vonbrigði, en taldi að nú sæist til botns í þessu. Matthías Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra: Alvarleg vantalning á lyfjakostnaði MATTHÍAS Bjarnason segir að megin- hluti þess fjármagns sem vantalið var í fjárlagaafgreiðslunni vegna trygginga- mála sé fyrst og fremst vegna daggjalda- kerfisins, en ekki hafi verið reiknað með réttum legudagafjölda. Þá sé um mjög alvariega vantalningu á lyfjakostnaði að ræða, sem ráðherrann rekur til gengis- breytinga á fyrri hluta síðasta árs. Ráð- herrann segir einnig að ætlunin sé að breyta reglum um lyfjameðferð, þannig að þak verði sett á magn lyfja. Matthías sagði, að f útreikningum sjúkratrygginga við undirbúning fjár- laga sé miðað við greiðslur ársins á undan og þær framreiknaðar. Þegar komið hefði til greiðslna í janúar og febrúar sl. hefði komið í ljós veruleg vantalning og þá auðvitað verið gripið til þess ráðs að ræða um leiðréttingu þegar í stað. Hann kvað þetta fyrst og fremst vera í tengslum við daggjalda- kerfið, en þar hefði ekki verið reiknað með réttum legudagafjölda. Ráðherrann kvað hins vegar mjög alvarlega vantalningu hafa átt sér stað í sambandi við lyfjagreiðslur, en rakti hana til gengisbreytinga á fyrri hluta síðasta árs. I tilefni af umræð- um um lyfjadæmið sagði hann að löngu hefði verið ákveðið að breyta reglum um lyfjameðferð og að fljót- lega yrði sett þak á magn lyfja. Matthías Bjarnason sagði að lokum: „Þetta dæmi er ekkert nýtt. Þetta er búið að ganga svona árum saman, en það er bara brugðið fyrr við nú en jafnan áður.“ Ragnar Arnalds fyrrum fjármálaráðherra: Kemur á óvart að ríkisstjórnin skuli viðurkenna „FRETTIR um stórfelld „göt“ í fjárlaga- dæminu koma síður en svo á óvart. Þær staðfesta fyrst og fremst það sem við bentum á við afgreiðslu fjárlaga í haust," sagði Ragnar Arnalds þingmaður Al- þýðubandalagsins og fyrrum fjármála- ráðherra, í gær aðspurður um nýjar upp- lýsingar um stöðu fjárlaga. Ragnar sagði ennfremur: „Það sem kemur á óvart er að ríkisstjórnin skuli viðurkenna aðeins tveimur mánuðum eftir afgreiðslu fjárlaga hvernig ástatt er, án þess að nokkrar hugmyndir liggi fyrir um, hvernig brugðist skuli við. Ekki er tímabært að ræða einstaka liði málsins fyrr en fjármálaráðherra hefur opinberlega gert grein fyrir þeim. Fæst af þessu ætti að koma á óvart, eins og ég nefndi áðan, til dæm- is hefur lengi legið fyrir, að útflutn- ingssbætur samkvæmt 10% reglunni ættu að nema 450 millj. kr. en ekki 280 millj. kr., eins og er í fjárlögum. Síðan fjárlög voru afgreidd hefur ekkert nýtt gerst, sem breyta þyrfti fjárlagatölum, nema kjarasamn- ingarnir, en þeir eiga ekki að valda halla' hjá ríkissjóði, því að eins og löngum áður, skila aukin launaútgjöld sér nokkurn veginn aftur í hækkuðum veltusköttum, og nýjasti félagsmála- pakkinn, sem nemur 330 millj. króna, hefur enn ekki verið tekinn með í reikninginn, enda hefur staðið til að lækka niðurgreiðslur þar á móti. Heildarstærð þess sem vantar upp á fjárlögin kemur ekki í ljós fyrr en það skýrist, hvort sparnaðaráform ríkis- stjórnarinnar renna öll út í sandinn eða fyrst og fremst mikill hluti þeirra, eins og nú virðist reiknað með. Hitt má færa fjármálaráðherra til tekna, að hann skuli ljóstra upp leynd- armálinu um þetta stóra gat í fjárlög- unum, þegar svo skammt er liðið frá afgreiðslu fjárlaga. Hann slær sér kannski upp á stóra gatinu, þegar allt kemur til alls.“ Ragnar Arnalds sagði að lokum: „Er það ekki einmitt nýi stíllinn sem kom með þessari ríkisstjórn, að menn hag- nýta sér eigin mistök með nógu óvænt- um játningum?" Sullaveikin er langvinnur og kvalafullur sjúkdómur: Heilbrigðisyfirvöld telja hættuna enn fyrir hendi ÞAR SEM sullaveiki hefur skotið upp kolli á ný beinast augu manna að hugs- anlegum smitleiðum, hvernig háttað sé hundahreinsun á landinu og hvernig farið sé með innmat úr sláturfé. llm þessi efni er í gildi reglugerð um varnir gegn sullaveiki og lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, þar sem kveðið er á um hvernig að hundahaldi skuli stað- ið. Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, lagði á það áherslu í samtali við Mbl., að flestar af þeim ástæðum, sem til staðar voru þegar lög um hundahald og sullaveikivarnir voru sett í önd- verðu, væru fyrir hendi enn í dag. Sullaveikin væri ekki úr sögunni, bæði landlæknir og yfirdýralæknir hefðu beðið menn að halda vöku sinni þar sem hættan væri enn fyrir hendi. Ingimar sagði að hann teldi hundahreinsunarreglugerð ekki framfylgt sem skyldi, en langverst væri þó ástandiö þar sem hundahald væri bannað, svo sem í Reykjavík. Sveitarfélög hefðu meira og minna farið inn á þá braut að leyfa tak- markað hundahald þar sem það hefði sýnt sig að mjög illa gengi að framfylgja algeru banni við hunda- haldi. Páll Agnar Pálsson, yfirdýralækn- ir, taldi mestu máli skipta í þessum efnum, að gæta vel að sullum sem koma fyrir í dýrum á blóðvelli. Páll taldi að þeir sem ynnu við það, ræktu störf sín af trúmennsku. Páll gat þess að ígulsullir sem sýkja menn, hefðu fundist af og til í Suð- ur-Múlasýslu um árabil, síðast árið 1979. Þá var talið Iíklegt að sullirnir kæmu frá bandormaveikum, smygl- uðum hundum. Ekkert sannaðist i því efni, en grunsamlegir hundar voru aflífaðir. Páll taldi hundahreinsunarmálum sæmilega fyrir komið nema í Reykjavík, þar sem engin lögboðin hundahreinsun fer fram. Morgunblaðið leitaði til Magnúsar Guðjónssonar, dýralæknis í Reykja- vík, og innti hann eftir því hvort al- gengt væri að fólk kæmi af sjálfs- dáðum og óskaði eftir að láta hreinsa hunda sína með tillit til bandorma. Hann kvað það sárasjald- gæft. Hins vegar létu menn hreinsa hunda sína af spóluormum. Magnús kvaðst telja það ástand sem ríkti í Reykjavík mjög varhugavert, bjóða heim hættunni á sullaveiki. Hann taldi að í Reykjavík væru um fimm- tán hundruð hundar, fæstir þeirra hreinsaðir, og margir þeirra kæmust í námunda við hráan innmat er þeir fylgdu eigendum sínum í ferðalög út um land og í sumarbústaði. Magnús taldi að í nágrannabyggðarlögum Reykjavíkur væru um fimmtán hundruð hundar. Þar væru hunda- hreinsunarmál í góðu lagi, að því er hann best vissi. Magnús taldi ráðleg- ast að leyfa takmarkað hundahald í Reykjavík samkvæmt þeim tillögum sem Hundaræktarfélagið hefur sett fram. Það hefði sýnt sig að ekki væri hægt að framfylgja reglum um bann við hundahaldi. í samtalinu viö Magnús Guöjóns- son kom fram að hreinsun á hundum er þeim algerlega skaðlaus og kostar 150 krónur fyrir meðalstóran hund. Sullaveiki er eftir lýsingum lækna að dæma lúmsk veiki sem erfitt er að henda reiður á. Einkenni hennar eru margvísleg eftir því hvar sullurinn hreiðrar um sig. Hann berst gegn um þarmavegg og með blóðrásinni þangað sem mik- ið háræðanet er fyrir hendi. Þar er hans kjörlendi. Sullur í lifur þrýstir oft á gallgang og veldur verkjum. Komið getur fyrir að sullur springi og sái sér um kviðarholið. Þá verður fólk utan um sig eins og kona sem komin er að því að ala barn. Sullur í lungum veldur hósta og mæði. Springi sullurinn hóstar sjúklingur- inn upp greftri og sullungum. Grafi í sullum er það lífshættulegt ástand. Sullaveiki greinist á röntgen- myndum og að auki eru til sérstök húðpróf sem eru mjög nákvæm. Eina iækningin við sullaveiki er að nema meinið brott með skurðaðgerð. Hún er þó ekki algild. Kona af Snæfellsnesi fékk sulli í bein. Tvisvar sinnum var reynt að lækna hana með uppskurði en sulla- veikin dró hana að lokum til dauða árið 1961. Sullaveikin, sem getur verið lang- vinnur og kvalafullur sjúkdómur, var mjög algeng á íslandi meðan sá siður var landlægur að láta hunda um að hreinsa matarílát heimilis- fólks. Síðan sá siður var aflagður, farið var að gæta ströngustu varúð- arreglna um meðferð á innmat við slátrun og hreinsa hunda af band- ormum, hefur sullaveikin smám saman orðið sárasjaldgæfur sjúk- dómur. En heilbrigðisyfirvöld telja hættuna enn vera fyrir hendi. Konurnar eru í sloppunum utan yfir svunturnar til að leggja áherslu á þá kröfu sína að vinnuveitendur leggi þeim svuntur við vinnuna, en þeir leggja þeim til sloppana. Morgunbl»*ið/Sigurgeir. Verkakonur í frystihúsum í Eyjum fóru sér hægt viö vinnuna í gær: Sungu þegar verkstjórar lokuðu fyrir útvarpið í mótmælaskyni Það var ekki mikið að gera í bónusnum í Eyjum í gær. VERKAKONUR í þremur fisk- iðjuverum í Eyjum, Fiskiðjunni, ísfclaginu og Vinnslustöðinni, fóru sér hægt við vinnuna í gær, til að leggja áherslu á sérkröfur sínar í samningum við vinnuveit- endur. Meðal annars mótmæltu þær því að þurfa sjálfar að leggja sér til svuntur og hanska við vinn- una með því að vinna með svunt- urnar innan við sloppana, en vinnuveitendur leggja til sloppa og húfur. Samningur ASÍ og VSÍ var felldur af verkalýðsfélögunum í Eyjum. „Við erum búin að vera með sér- kröfur uppi á borðunum í samning- um síðan 1980 eða lengur og þeim hefur alltaf verið ýtt út af, og nú voru þær ekki einu sinni settar upp á borðið," sagði Jóhanna Friðriks- dóttir hjá verkakvennafélaginu Snót í Vestmannaeyjum um hæga- ganginn. „Okkur er sagt að þetta sé ekki á vegum verkalýðsfélagsins. Það er unnið í nokkrum hægagangi, en fólkið er að vinna, það er ekki hægt að segja annað. Ég þykist vita að með þessu sé fólk að knýja á um það að samningar takist hérna,“ sagði Arnar Sigurmundsson, hjá Sam- frost, sem er sameiginleg skrifstofa hraðfrystihúsanna í Eyjum. Hann sagðist telja þetta svipaðar aðgerðir og verið hefðu í Reykjavík nema hvaö fólk legði ekki niður vinnu. Samningafundur var með deilu- aðilum á föstudaginn var þar, sem kröfugerðin var kynnt og til nýs fundar hefur verið boðað í dag. „Það eru svona smáákvæði sem þær vilja fá inn eins og með vinnu- fatnað, svuntur og vinnuhanska, en það þurfa þær að greiða sjálfar. Þær eru að reyna að reka á eftir því að það verði samið við okkur,“ sagði Jóhanna. „Ég hef bara ekki hugmynd um það,“ sagði Jóhanna aðspurð um hvort að hún héldi að þessar aðgerð- ir héldu áfram. „Þetta kom okkur dálítið á óvart í morgun, því nú víssu konurnar í vinnslustöðvunum raunverulega ekki hver af annarri. Við fréttum þetta fyrst úr Isfélag- inu í morgun og við fórum þá á stað- inn og þá vissu þær að samskonar aðgerðir voru í gangi úti í Fiskiðju og spurðu okkur hvort við vissum hvort það væri í Vinnslustöðinni einnig. Við vissum það ekki og fór- um þangað. Þegar við komum þar inn þá mætti okkur dúndrandi söng- ur í salnum. Þá höfðu verkstjórarn- ir í salnum mótmælt hægagangin- um með því að slökkva á útvarpinu og þá sungu þær,“ sagði Jóhanna. Jóhanna sagði að meðal krafna verkakvennafélagsins væri að næt- urvinna hæfist strax eftir að dag- vinnu lyki og að starfsfólk fengi að nota allt að einni viku af sinum veikindaréttindum til að sinna veik- indum barna sinna innan 13 ára aldurs. Þá gera kröfurnar ráð fyrir að hádegistími verði greiddur þegar unnið er á helgidögum. Þá sé krafa um launaflokkahækkun vegna þess að þegar unnið sé í bónus séu kon- urnar á 7—12 krónum lægra tíma- kaupi en annars, vegna þess að kauptaxtinn sem bónusinn sé reikn- aður út frá, sé lægri en lágmarks- tekjutryggingin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.