Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 Minning: Einar Pálsson yfirverkstjóri Fæddur 5. apríl 1910. Dáinn 24. febrúar 1984. Einar föðurbróðir minn er fail- inn frá á 74. aldursári. Segja má, að andlát hans hafi komið á óvart eftir skamma dvöl á sjúkrahúsi, þó vitað væri að hann hefði um nokkurt skeið fundið fyrir ein- kennum þess sjúkdóms sem svo marga leggur að velli. Hann var yngstur þriggja sona Maríu Sigurðardóttur og Páls Gestssonar, sem bjuggu að Lækj- arbotnum og Eiði í Mosfellssveit og síðar í Reykjavík, lengst af á Grettisgötu 73. María, amma mín, var ein sautj- án barna Guðrúnar Þorláksdóttur og Sigurðar Guðmundssonar, sem bjuggu fyrst í Helludal og Holta- kotum í Biskupstungum og síðar í Gröf í Mosfellssveit, sem nú heitir Grafarholt. Páll afi minn var ættaður frá Hemru í Skaftártungu. Þau önd- uðust bæði í hárri elli, hún 86 ára en hann 92 ára. Elsti sonur þeirra var Vígmund- ur, bifreiðastjóri og bóndi að Efra-Hvoli í Mosfellssveit, þá Karl, bifreiðastjóri og bifvélavirki í Reykjavík, en þeir eru báðir látn- ir. Auk þeirra ólu þau upp Aðal- stein, son Vígmundar, sem í raun var sem þeirra eiginn sonur. Á uppvaxtarárum þessara bræðra var bifreiðin að ryðja sér rúms sem stórvirkt atvinnutæki og fór svo, að ævistarf þeirra allra varð meira og minna tengt akstri og meðferð bifreiða. Allir unnu þeir um tíma hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og þeg- ar Mjólkursamsalan var stofnuð réðst Einar þangað sem bifreiða- stjóri og starfaði hjá því fyrirtæki alla tíð síðan. Segja má að Mjólkursamsalan hafi komið mjög við sögu þessarar fjölskyldu, því auk Einars vann Karl lengi á bifreiðaverkstæði fyrirtækisins og Aðalsteinn er í dag einn elsti og reyndasti bif- reiðastjórinn þar og sonur hans stefnir í sömu átt. Eftir farsæian feril á bifreiðum fyrirtækisins var Einari falin verkstjórn yfir útkeyrslunni og var í því starfi til ársloka 1980, en leysti þó enn af í sumarleyfum. Mér er kunnugt um, að þetta starf fór Einari vel úr hendi og hann naut vinsælda starfsmanna. Undir hæglátu og prúðu fasi leyndist ákveðin skapfesta, en oftast var stutt í glettið brosið sem lýsti upp andlitið. Eftirlifandi konu sinni, Sigríði Guðmundsdóttur, kvæntist Einar 18. desember 1942. Hún vann þá í Mjólkurstöðinni og síðar veitti hún lengi forstöðu pöntunarfélagi sem starfsmenn stofnuðu þar. Lengst af sínum búskap hafa þau búið að Baldursgötu 1 í Reykjavík. Tvö börn eignuðust þau, Mjöll sem gift er Ásmundi Daníelssyni og Guðmund sem er kvæntur Vil- borgu Runólfsdóttur. Barnabörnin eru þrjú. Fyrir nokkrum árum fengu þau land undir sumarbústað við Hafravatn. Þar dvöldu þau þegar þau gátu því við komið og ber staðurinn þeim fagurt vitni þar sem mikið hefur verið unnið við skógrækt og fleira. Nú verður hann lagður til hinstu hvíldar í nýja kirkjugarð- inum við Gufunes skammt frá fæðingarstað sínum á Eiði. Honum fylgja góðar minningar og þakkir frá okkur sem nutum samfylgdar hans. Ólafur G. Karlsson. Margar aldir eru liðnar síðan menn sögðu fyrst að fjórðungi brygði til fósturs. Mannbætir varð mörgum slíkt fóstur að nú hefur það gerst að maður sem margan annan hefur bætt hverfur af vettvangi. Við mannslát þykir eftirlifend- um þeir hafi misst mikið og á þessari stundu þykir mér stórt höggvið í vinahópinn. Eg geri mér grein fyrir því hvers vegna Einar Pálsson var mér sá sem hann reyndist. Ef til vill skiptir það ekki máli. Hitt er mér ljóst, vinátta okkar Einars var og verður mér dýrmæt. Ungu mennirnir sem hófu störf undir leiðsögn Einars Pálssonar yfirverkstjóra hjá Mjólkursamsöl- unni í Reykjavík fundu fljótt hvern mann hann hafði að geyma. Hann var þeim drengur góður með hollráðum og vináttu. Á unglings- árunum eru menn áhrifagjarnir og skoðanir, álit og framkoma annarra eiga greiðan aðgang til þeirra. Nálægðin við Einar reynd- ist lærdómsrík og holl. Margt var í fari hans sem öðr- um gagnast að kunna. Hvernig umgangast má fólk á farsælan hátt, hvernig ber að virða sjón- armið og skoðanir annarra. Hvernig lítillátur yfirmaður getur stjórnað öðrum, hve samvisku- samur maður er yfirlætislaus og hvernig á að vera vinur vina sinna. Einar Pálsson sá jákvæðar og spaugilegar hliðar á öllum málum. Slíkir kostir gerðu honum auðvelt að stjórna öðrum og iðuiega vissu menn ekki að Einar væri að stjórna. Það sem hann lagði til, þótti öðrum sjálfsagt að fram- kvæma. Margir sem unnu með honum og undir hans leiðsögn hafa nýtt sér reynslu frá sam- starfinu síðar á lífsleiðinni. Á gamla vinnustaðnum sjást þess merki. Það væri miður hefði ein- hverjum yfirsést að reyna að til- einka sér kosti Einars. Ávallt var gott að leita ráða hjá Einari. Skipti engu hvort málið varðaði starfið eða einkahagi. Þegar á þurfti að halda áminnti Einar menn, en á þann einlæga og yfirlætislausa hátt að rökræður voru þarflausar. Fæstum var lagnara að segja allt sem þurfti með fáum orðum. Einar átti sér sælureit skammt utan borgarinnar. í dalverpinu var Hafravatn stundaði hann trjárækt ásamt ræktun annarra jurta. Gjörðir hans þar lýstu hon- um vel. Þó honum ynnist vel, var aldrei meira tekið sér fyrir hendur í einu en hægt var að hafa unun af um leið. Þegar gestir komu stóð ætíð þannig á verki að nógur tími var til að sinna gestunum. Ef til vill kann að sýnast óraunhæft að ætla að tré og plöntur hafi vaxið betur fyrir það eitt að vera í nær- veru Einars og konu hans, en þeir sem til þekkja munu tæpast reyna að afsanna slíka kenningu. Eiginleikar Einars og fram- koma urðu til þess að menn létu góð orð falla í hans garð. En hon- um þótti slík orð um sig sjálfan ofsögð. Öðrum þótti hvergi góð orð betri en af vörum Einars. Við erum mörg sem syrgjum Einar Pálsson en fjölskyldu hans bið ég mestrar blessunar. Minn- ingunni um góðan dreng verður best haldið á lofti, dragi menn lærdóm af kostum hans og nýti sér þá. Hvort menn reki fjórðung at- gervis síns til samferðarinnar með Einari skiptir ekki öllu máli. Höf- uðatriðið er að menn reyni að líkja eftir því besta í umhverfi sínu og samleið með Einari var mörgum mannbætir. Snorri S. Konráðsson. í dag kveðja vinnufélagar Einar Pálsson, yfirverkstjóra, hinstu kveðju. Ungur að árum var hann í fámennum hópi vaskra manna, sem Mjólkurfélag Reykjavíkur lagði til við uppbyggingu Mjólk- ursamsölunnar fyrir nærri fimm- tíu árum. Hjá Mjólkurfélaginu vann Einar við mjólkurdreifingu og hún varð ævistarf hans hjá Samsölunni. Einar var fæddur 5. apríl 1910 að Eiði við Geldinganes í nágrenni hins nýja kirkjugarðs Reykvík- inga, þar sem hann verður til moldar borinn í dag. Einar var kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur, sem lifir mann sinn. Börn þeirra eru Mjöll, fædd 26. maí 1943, gift Ásmundi Daníelssyni, og Guð- mundur, fæddur 28. apríl 1948, kvæntur Vilborgu Runólfsdóttur. Einar og Gógó, sem kona hans var alltaf kölluð, bjuggu allan sinn búskap að Baldursgötu 1. Þar var alltaf gott að koma og oft gest- kvæmt. Einar vann við ræktunar- störf áður en hann réðist til Sigfús Þorleifsson, útgerð- armaður á Dalvík, látinn Látinn er á Dalvík Sigfús Þor- leifsson, fyrrum útgerðarmaður og einn af frumherjum byggðar- lagsins. Hann andaðist 1. mars sl., í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri eftir stutta legu þar. Sigfús var fæddur í Syðra-Holti í Svarf- aðardal 30. janúar árið 1898 og var því nýlega orðinn 86 ára þegar hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Gunnlaugsdóttir og Þorleifur Sigurðsson, bóndi. Sigfús hóf ungur járnsmíðanám á Akureyri og stofnsetti sína eigin smiðju á Dalvík að námi loknu. Um 1918 byrjaði hann sinn út- gerðarferil sem stóð allt til ársins 1966 er hann seldi hlut sinn í Út- gerðarfélagi Dalvíkinga hf. Hann var einn af stofnendum þess fé- lags en með því var brotið blað í útgerðarmálum á Dalvík, en nú um áraraðir hefur útgerð og vinnsla þess afla er skip félagsins hafa borið að landi verið burðarás atvinnulífs á Dalvík. Sigfús hóf útgerð sína við erfið skilyrði, eins og allir brautryðjendur í þeim málum. Þeir börðust við óblíð sjávaröfl hvað hafnleysi snertir en laust fyrir 1940 og á árunum þar á eftir rættist langþráður draumur útvegsmanna um varanlega höfn á Dalvík. Hann var einn af stofn- endum íshússfélags Dalvíkinga sem síðar byggði dráttarbrautina + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför KRISTINS GUNNLAUGSSONAR frá Sauðárkróki. Sigurlaug Kristinsdóttir, Matthildur Kristinsdóttir, Auður Kristinsdóttir, Hulda Ingvarsdóttir, barnabörn og Ásgrímur Stefánsson, Elí Jóhannesson, Guömundur Markússon, Rögnvaldur Finnbogason, barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför mannsins míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa, OLGEIRS VILHJÁLMSSONAR, f.v. bifreiöaeftirlitsmanns, Meöalholti 13. Eulalía Steinunn Guöbrandsdóttir, Karen Olgeirsdóttir, Ólafur Olgeirsson, Helga Jörundsdóttir, Friðgeir Olgeirsson, Edna Falkvard, barnabörn og barnabarnabörn. hér. Hann annaðist í áratugi beitumál Dalvíkinga og sá þá oftast um flutninga fyrst á sjó á mb. Skúmi, báti Beitufélagsins, og síðar á eigin bifreið. Árið 1944 stofnaði Sigfús ásamt öðrum Söltunarfélag Dalvíkur sf. og var í langan tíma fram- kvæmdastjóri þess. Hann starfaði mikið að málefnum útvegsmanna hér og sat Landsambands- og Fiskiþing. Þegar loðdýrarækt hófst á ís- landi á árunum milli 1940—50 stofnsetti hann allstórt minkabú hér á Dalvík og þegar sú búgrein var aflögð seinna var hann eftir það mikill talsmaður þess að hafin væri loðdýrarækt að nýju. Um þetta skrifaði hann greinar í blöð máli sínu til stuðnings. Sigfús var alla tíð bílstjóri og eignaðist með fyrstu mönnum bif- reið hér á Dalvík. Hann var lengi einn af atvinnubílstjórum hér og stofnandi Bílstjórafélags Dalvík- ur. Hann var afar næmur og frjór fyrir hvers konar nýjungum á flestum sviðum atvinnulífsins og í því sambandi má geta að hingað til Dalvíkur flutti hann fyrstu ámokstursvélina en hann hafði um langan tíma malarnám Hrísa- bænda til afnota, bæði er varðaði steypumöl eða fyllingarefni til hvers konar byggingarfram- kvæmda. Þegar hin nýja kirkja okkar Dalvíkinga var byggð var Sigfús lengi formaður byggingarnefndar og var ötull að hrinda þeim málum i framkvæmd. Hann var I ýmsum málum er vörðuðu hreppsfélagið og var m.a. formaður skólanefnd- ar um skeið. Það má því segja að Sigfús Þorleifsson hafi lagt gjörva hönd að flestum þeim málum sem urðu þessu byggðarlagi til fram- dráttar eða vörðuðu uppbyggingu ■ Þökkum innilega samúö viö t andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUÐLAUGARNARFADÓTTUR. Sigurþór Hjartarson, Bergljót Sigurvinsdóttir, Ingveldur Hjartardóttir, Siguröur Sigurösson, Narfi Hjartarson, Halla Janusdóttir, Magnús Hjartarson, Gunný Gunnarsdóttir, Guójón Hjartarson, Sólveig Siguröardóttir, Halldór Bachmann, Anna Bachmann, Ólafur Bachrnann, Hulda Bachmann, börn og barnabörn. þess. Hans starfsvettvangur var í svarfdælskri byggð og hann vildi hag hennar sem mestan. Hann var óragur við að halda á loft skoðun- um sínum hvort heldur það var á opinberum vettvangi eða milli manna. Hann fylgdi alla tíð Sjálfstæðisflokknum að málum og var ákafur talsmaður hans. Þann 29. sept. 1918 kvæntist Sigfús eftirlifandi eiginkonu sinni Ásgerði Jónsdóttur, Gíslasonar frá Grímsgerði í Fnjóskadal. Lifðu þau saman í farsælu hjónabandi og eignuðust 5 börn. Þrjú þeirra eru enn á lífi en þau eru Hlín, húsfreyja í Reykjavík, Hörður, bifvélavirki á Dalvík og Kári viðskiptafræðingur í Reykjavík. Auk þess ólu þau hjón upp eina fósturdóttur, Ragnheiði Sigvalda- dóttur, sem búsett er á Dalvík. Útför Sigfúsar Þorleifssonar verður gerð frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 10. mars nk. Fréttaritarar Birting afmælis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, aó afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.