Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 27 Jt*an-Vvt‘s á sýningu fronsku ópcrunnar þar soni hann t‘r fastráóinn aóaldans- ari. Ilann dansar hlutverk l'rinsins í uppfa‘rslu íslcnska dansflokksins á „Öskubusku." íslenski dansflokkurinn frumsýnir ballettinn • • Oskubuska ÍSLENSKI dansflokkurinn, sem frumsýnir í kvöld ballettinn „Öskubusku" við tónlist rússn- eska tónskáldsins Prokofév, hefur fengið til liðs við sig Jean-Yves Lormeau, aðaldansara við frönsku óperunna. Hann dansar hlutverk prinsins, en Öskubusku sjálfa dansar Ásdís Magnúsdóttir. „Ég er fyrst og fremst undr- andi á því hversu fáir karlmenn dansa ballett hér á Islandi," sagði Jean-Yves er blm. Morgun- blaðsins ræddi við hann nú fyrir skömmu. Og svo er ég einnig undrandi á því hversu ungar stúlkurnar eru sem eru í ís- lenska dansflokknum. Mér lýst ágætlega á aðstæðurnar hér. Til að komast á toppinn þurfa ákveðin grundvallaratriði að vera fyrir hendi, sem ég tel að þið hér á íslandi hafið. Athug- aðu það, að íslenski dansflokkur- inn er ekki nema 10 ára gamall og hann vinnur nú þegar að því að setja upp þennan stóra ballett sem er í þremur þáttum. Þeir ballettflokkar sem áður hafa fengist við uppsetningu „Ösku- busku“ hafa yfirleitt ekki gert það fyrr en eftir miklu lengri starfsferil en 10 ár. Mér skilst að hér á landi fái nemendur, til dæmis í ballett- skólum, ekki mörg tækifæri til að dansa opinberlega. í Frakk- landi er mjög algengt að nem- endur fái statistahlutverk, annaðhvort í ballettum eða leik- ritum og fá þannig smjörþefinn af því að koma opinberlega fram. En það held ég einmitt að sé ákaflega mikilvægt fyrir krakk- ana. Jú, ég geri töluvert af því að ferðast um og dansa með litlum ballettflokkum í Frakklandi," segir hann aðspurður. „Ef ég á að dansa eitthvert ákveðið hlut- verk með balletthóp vil ég æfa hlutverkið með hópnum, en ekki koma á svæðið rétt fyrir frum- sýningu og dansa án þess að vera í nokkru sambandi við mótdans- ara mína. Þess vegna er ég hér núna og hef verið að æfa dans- ana mína með íslenska dans- flokknum. Annars verð ég að fara til Frakklands eftir að sýn- ingar hefjast því ég dansa í „Raymonda“ sem Rudolf Nour- eev hefur sett upp í frönsku óperunni." Jean-Yves hefur verið fastráð- inn dansari við frönsku óperuna frá árinu 1973, eða í 11 ár, og samkvæmt upplýsingum sem Mbl. hafa borist hefur Rudolf — franski bailettdansarinn Jean-Yves Lormeau dansar hlutverk prinsins en Ásdís Magnúsdóttir dansar Öskubusku Svipmyndir af æfingu dansflokksins á „Öskubusku". „V ' f. ^ Noureev unnið í tíu ár að því að þróa ballettinn „Raymonda“ upp í það sem hann er nú í sýningum hjá frönsku óperunni. Meðal mótdansara Jean-Yves í „Ray- monda“ eru Rudolf Noureev sjálfur, Charles Jude og Michael Denard. Stærsti og viöamesti ballett sem viö höfum sett upp — rætt við Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóra Islenska dans- flokksins. „Ballettinn í frönsku óperunni er mjög mikils metinn og því er það afskaplega mikilvægt að Alls taka rúmlega 40 manns þátt í sýningunni. Þessa mynd tók Friðþjófur Helgason á æfingu dansflokksins í Þjóðleikhúsinu nú fyrir skömmu. hafa náð því sambandi við óper- una, sem við höfum náð með heimsókn Jean-Yves,“ sagði örn Guðmundsson, framkvæmda- stjóri íslenska dansflokksins, er blm. ræddi við hann um „ösku- busku“ og heimsókn franska ballettdansarans Jean-Yves Lormeau. „Æfingar á ballettinum hafa gengið mjög vel. Æskilegast hefði verið að hafa Jean-Yves með okkur á öllum æfingum, en vegna anna Jean-Yves og meiðsla Rudolfs Noureev hefur Jean-Yves þurft að taka við hlut- verkum i ballettum sem Noureev átti að dansa sjálfur. Af þessum ástæðum verður Jean-Yves að fara til Parísar á milli sýninga hér, en hann kemur til með að dansa hlutverk Prinsins á öllum sýningum í Þjóðleikhúsinu. Þetta er viðamesti og stærsti ballettinn sem við höfum sett upp fram að þessu. Alls taka rúmlega 40 manns þátt í „Ösku- busku“ og eru þar með talin börn sem eru nemendur í Listdans- skóla Þjóðleikhússins. f þessari uppfærslu er meira lagt í bún- inga og leiktjöld en áður hefur verið gert í ballettuppfærslum íslenska dansflokksins. Fram að þessu hefur verið vandamál að finna karldansara til að dansa með flokknum, en nú höfum við verið heppin og fundið nokkra unga herra til að dansa með okkur. Þegar æfingar hófust, í janú- ar, hafði ég samband við Báru Magnúsdóttur og Sóley Jó- hannsdóttur, sem báðar reka djassdansskóla. Þær sendu okkur átta karldansara og hefur samvinnan við þá gengið mjög vel. Ég vona að fslenski dans- flokkurinn fái að njóta góðs af starfi þeirra í framtíðinni," sagði Örn Guðmundsson að lok- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.