Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 • Það var hart barist í leiknum í gærkvöldi. Hér skorar Sturla Örlygs- son (nr. 9) fyrir Njarðvíkinga. Morgunbiaöiö/Kristján Lárus og félagar yfir- heyrðir í níu klukkutíma LARUS Guömundsson og félagar hans hjá Waterschei voru í yfir- heyrslum í gær vegna mútumáls- ins í belgísku knattspyrnunni. Yf- irheyrslurnar fóru fram í BrUssel og stóðu yfir í níu klukkustundir — frá klukkan 10 í gærmorgun til klukkan 19. „Besta afmælisgjöfin sem ég gat fengið áá — sagði Jón Sigurðsson eftir sigur KR á UMFN í bikarnum „ÞETTA VAR besta afmælisgjöfin sem ég gat óskað mér. Ég bað strákana ekki um neitt annað en sigur í afmælisgjöf,“ sagði Jón Sigurðsson, þjálfari og leikmaður KR í körfuboltanum, eftir aö lið hans hafði sigraö Njarðvíkinga í átta liða úrslitum bikarkeppninn- ar í íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöldi. Sigur KR var öruggur: lokatölur 89:75 eftir að UMFN hafði haft tvö stig yfir í leikhléi — 44:42. „Við höfum verið öfugu megin við þröskuldinn í leikjum okkar eft- ir áramót þangað til í kvöld, en reyndar aðeins vantaö smáskref til aö komast innfyrir. Við erum meö gott lið og getum náð langt i vetur. Vörnin var fráþær hjá okkur í kvöld — það þarf góöan leik til aö sigra jafn gott liö og Njarðvíkingana,1' sagði Jón. KR-ingar voru vel aö þessum sigri komnir — þeir léku frábær- lega vel í sókninni á köflum — en engir þó eins vel og Páll Kolbeins- son og Jón Sigurðsson. Þeir léku snilldarlega í sókninni, og einnig var Garöar Jóhannesson góöur. Garðar var líka sterkur í vörninni og Kristján Rafnsson einnig. Mjög ákveöinn og grimmur í fráköstum. Njarðvíkingar mættu þarna ofjörlum sínum. Valur Ingimund- arson fékk sína 4. villu undir lok fyrri hálfleiksins og var hann því hvildur til að byrja með í seinni hálfleik. Valur var mjög góður er hans naut við — en um miðjan síöari hálfleikinn meiddist hann; sneri á sér ökklann og óttuðust menn jafnvel í gærkvöldi aö hann heföi slitið liöbönd. Sturla Örlygs- son var traustur hjá Njarðvíkingum svo og Gunnar Þorvarðarson. KR-ingar höföu forystu framan af leiknum og það var ekki fyrr en á 10. mín. að Njarðvík komst yfir. Hittni Njarövíkinga var mjög góð í fyrri hálfleik og þeir héldu foryst- unni fram aö hléi. Voru þá tveimur stigum yfir. En Jón Sigurðsson kom KR yfir með tveimur körfum strax í upphafi seinni hálfleiksins og Njarðvíkingar náðu ekki aö jafna eftir það. Mestur varð mun- urinn í lokin: 14 stig. Stigin. KR: Jón Sigurósson 26, Garðar Jó- hannesson 24, Páll Kolbeinsson 16, Kristján Rafnsson 9, Guðni Guðnason 4, Ólafur Guö- mundsson 4, Birgir Guöbjörnsson 2, Agúst Undal 2. UMFN: Valur Ingimundarson 22, Gunnar Þorvaröarson 15, Sturla Örlygsson 15, Hreiöar Hreiöarsson 8. Isak Tómasson 7, Árni Lárusson 6, Astþór Ingason 2. Leikinn dæmdu Gunnar Valgeirsson og Kristinn Albertsson og stóöu þeir mjög vel. — SH. Leikur Dalglish? Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaðsins í Englandi. „EG VEL Dalglish sennilega í sautján manna hópinn fyrir leik- inn — og verð að viðurkenna aö það freistar mín að láta hann leika," sagði Joe Fagan, fram- kvæmdastjóri Liverpooi í gær, en liöið mætir portúgalska liöinu Benfica í átta liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða á Anfield í kvöld. Dalglish kinnbeinsbrotnaði sem kunnugt er fyrr í vetur, en er búinn að ná sér. Hann hefur leikið tvo leiki meö varaliöi Liverpool á skömmum tíma og staðið sig vel. Ekki er víst að Sammy Lee geti leikið í kvöld — hann meiddist á laugardag gegn Everton. Ray Clemence verður að öllum líkindum ekki í markinu hjá Tott- enham i kvöld gegn austurríska liðinu Austria Vín — heldur hinn ungi Tony Parks. „Það að vera landsliösmaður tryggir mönnum ekki sæti í mínu liði,“ sagði Keith Burkinshaw, stjóri Spurs. „Tony hefur leikið vel að undanförnu." Ron Atkinson, stjóri Man. Utd. íhugar aö iáta Mike Duxbury leika sem „sweeper" gegn Barcelona á Spáni í kvöld — og Kevin Moran sem miðvörð með Paul McGrath eöa Martin Hogg. Nota því þrjá miðverði. — SH. Fjölmenn bikarmót í unglingaflokki á skíðum: Akureyringar sigursælir BIKARMÓT Skiöasambandsins er fram átti að fara á Húsavík dag- ana 3. og 4. mars var flutt til Ak- ureyrar. Mótið hófst kl. 10 á laug- ardag og var keppt í svigi í fl. 13—14 ára og 15—16 ára stúlkna og stórsvigi drengja, sömu flokk- ar. Veður var nokkuð stormasamt og setti nokkurn svip á mótshald- iö, þaö er að segja að ekki var hægt aö fara nema eina ferö ( stórsvigi drengja fl. 13—14 ára. Og eftir fyrri ferð var staöan þessi: 1. Valdemar Valdemarsson A. 2. Kristinn Svanbergsson A. 3. Kristinn Grétarsson í. Úrslit á laugardag voru þessi: Fl. 13—14 éra atúlkur Svig 1. Þórdís Hjörleifsdóttir, R. 85,21 2. Kristín Jóhannsdóttir A. 86,12 3. Geröur Guómundsd. Nesk. 87,30 Fl. 15—16 éra stúlkur Svlg 1. Guórún H. Kristjánsdóttlr, A. 82,97 2. Snædis Úlriksdóttir, R. 85,21 3. Bryndis Ýr Viggósdóttir, R. 85,84 Fl. 15—16 éra drengir Stórsvig 1. Guömundur Sigurjónsson, A. 122,24 2. Brynjar Bragason, A. 122,55 3. Þór Ómar Jónsson, R. 122,83 Á sunnudag var fyrirhuguö keppni í svigi drengja og stórsvigi stúlkna og einnig aö klára þaö sem var frestaö á laugardag. En aftur var veðriö óhagstætt, og var bara keppni í svigi drengja en stórsvigi frestað. Úrslit sunnudags: Fl. 15—16 éra drengir Svíq 1. Brynjar Bragason, A. 86,86 2. Þór Ómar Jónsson, R. 88.70 3. Siguröur Bjarnason. H. 90,30 Fl. 13—14 éra drangir Svig 1. Jón Ingvi Arnason, A. 82,18 2. Krlstinn Svanbergsson. A. 82,69 3. Jón Ragnarsson, A. 84.34 j þessu móti tóku þátt um 120 unglingar, víösvegr af landinu óhætt er aö segja aö mótshaldiö • Björn Brynjar Gfslason, Akur- eyri, sigraöi í svigi á báðum mót- unum og varö annar í stórsvigi í bæði skiptin. hafi gengiö vel miöaö við veöur, en íslensk veörátta er svo duttlunga- full að enginn gengur öruggur til leiks við hana. i öllum fl. voru verö- laun fleiri en gengur og gerist í skíöamótum, þaö er aö segja í tveim fjölmennustu fl. voru sex verðlaun en í hinum fimm. Svona á heildina litið viröist vera í öllum héruðum talsverð gróska í ungl- ingafl. og lofar það góðu. Næstu bikarmót í alpagreinum veröa á ísafirði í karla- og kvennafl. 10,—11. mars, og í unglingafl. i Reykjavík 15—16 ára og á Akur- eyri 13—14 ára dagana 17,—18. mars. Á ísafirði fór einnig nýlega fram bikarmót unglinga á skíöum. Keppendur voru 119 frá 9 héruö- um. Keppni var spennandi í öllum flokkum og margir mjög efnilegir skíðamenn tóku þátt í móti þessu. Úrslit urðu sem hér segir: Svtg stúlkna 13—14 éra: 1. Hulda Svanbergsdóttir, A. 96,53 2. Guóbjðrg Ingvarsdóttir, I. 96,98 3. Fjóla Guónadóttlr, Ó. 97,88 SIAravig atúlkna 13—14 éra: 1. Guóbjörg Ingvarsdóttlr, I. 82,44 2. Fjóla Guónadóttir, Ó. 83,03 3. Asta Halldórsdóttlr, I. 83,11 Nítján stúlkur voru skráöar til leiks í svigi stúlkna en 14 luku keppni. I stórsviginu voru tuttugu skráöar til keppni en 17 luku keppni. Svig drangja 13—14 éra: 1. Valdlmar Valdlmarsson, A. 95,92 2. Sæmundur Árnason. Ó. 97.54 3. Kristinn Svanbergsson. A. 99,28 Fjörutíu og fjórir voru skráðir til keppni en aöeins 29 luku henni. Slóravig drangja 13—14 éra: 1. Kristinn Grétarsson, I. 103,46 2. Ólafur Slgurósson, i. 104,51 3. Kristinn Svanbergsson, A. 105,33 Fjörutíu og fjórir voru skráðir til keppni, þrjátíu og fjórir luku keppni. Vélsleðakeppni á Mývatni NÆSTKOMANDI laugardag fer fram mikið vélsleöamót á Mý- vatni. Um fjörutíu keppendur víðsvegar að munu spreyta sig í spyrnukeppni á sleðunum og síð- an keppa í alhliöa þrautum. Keppt verður í 3 km braut. í brautinni verða allskyns þrautir í 60 hliðum. Svig stúlkna 15—16 éra: 1. Snædis Ulríksdóttir, R. 87,54 2. Bryndís Ýr Viggósdóttir, R. 90.62 3. Gunda Vigfúsdóttír, ÚÍA 93,98 20 voru skráöar til keppni, 7 luku keppni. Stórsvig stúlkna 15—16 éra: 1. Katrín Þorláksdóttír, I. 79,51 2. Freygeröur Ólafsdóttir, í. 79,73 3. Jenny Jensdóttir, í. 80,37 20 voru skráöar til keppni, 14 luku keppni. Svig drengja 15—16 ára: 1. Björn B. Gíslason, A. 83,73 2. Brynjar Bragason, A. 84,15 3. Kristján Valdimarsson, R. 87,44 32 skráöir til keppni, 15 luku keppni. Stóravig drengja 15—16 ára: 1. Brynjar Bragason, A. 90,17 2. Björn B. Gislason, A. 90,59 3. Guömundur Sigurjónsson, A. 91,50 32 voru skráöir til keppni, 28 luku keppni. Ipswich í Kuwait Wark og Ostnan sekfir? Frá Bob Henneasy, fréttamanni Morg- unblaósins í Englandi. IPSWICH á í miklum fjár- hagsvandræðum um þessar mundir og tapar félagið átta þúsund sterlingspundum é viku hverri. Liðið flaug til Kuwait á mánudag og lék þar einn leik. Fyrir það fékk félag- ið fjögur þúsund pund. Litlu munaði aö enski varn- armaöurinn Russel Osman væri seldur frá Ipswich til Aston Villa á dögunum en Bobby Fergu- son, stjóri liösins, hætti við á síöustu stundu. Nú er búist viö því aö Osman veröi seldur á næstu dögum, jafnvel fyrir til- tölulega litla upphæð, og John Wark veröi einnig leyft að fara í því skyni aö laga fjárhag félags- ins. Meöaláhorfendafjöldi á heimaleikjum Ipswich þarf aö vera 19.000 manns til aö félag- iö beri ekki fjárhagslegan skaða. Þess má geta að áhorf- endur á leiknum við West Ham á laugardag voru 17.297. Getrauna- spá MBL. ] } Sunday Paopia Sunday Expraaa Newa of tha World I ? H SAMTALS Arsenal — Ipswich 1 1 1 1 1 5 0 0 Liverpool — Tottenham 1 1 1 1 1 5 0 0 Man. Utd. — Leicester 1 1 1 1 1 5 0 0 QPR — Coventry 1 X 1 1 1 4 1 0 Stoke — Aston Villa X 1 X X X 1 4 0 West Ham — Wolves 1 1 1 1 1 5 0 0 Brighton — Man. City X X X X X 0 5 0 Charlton — Grimsby 2 2 2 2 2 0 0 5 Leeds — Blackburn 1 X X X X 1 4 0 Newcastle — Chelsea X X X 1 X 1 4 0 Oldham — Crystal Palace 1 1 1 1 X 4 1 0 Portsmouth — Carlisle 1 X X 2 2 1 2 2 Sunday People spéöi ekki um þessa leiki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.