Morgunblaðið - 07.03.1984, Side 28

Morgunblaðið - 07.03.1984, Side 28
28 Grein og myndir Ulfar Agústsson MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 Kalifornía gullna ríkið Við þurftum að bíða í hálfan dag í Long Beach, útborg Los Angeles, eftir viðtali við blaðafulltrúa Jet America. I’arna er ekki hægt að sitja auöum höndum, svo við feðgarnir lögðum út í iðandi mannlífið til að kynnast einhverju í þessari stórborg þar sem stórævintýri gerast nánast á hverri mínútu. Drottningin og gæsin Við Gísli ákváðum að skoða fyrst sjálfan Langasand. Við ókum strandgötuna Ocen Boule- vard mifli enda og nutum þess að skoða ýmist glæstar hótelhallir eða lágreist íbúðarhús og þéttan skóg siglna á skemmtisnekkjum auðkýfinganna, en eftir að hafa uppgötvað að ekki var hægt að fá ódýrara bílastæði en á 3 dollara, snerum við frá og tókum stefnuna á m.s. Queen Mary, þar sem hún liggur í múrningum í Langa- sandshöfn. Drottningin breska hefur svo sannarlega verið stolt breskra sjó- manna á meðan hún sigldi um heimshöfin 1936—1967. Stærðin er svo yfirgengileg, að gömlum báta- sjómanni af íslandi þótti nóg um. Hún er yfir 81 þúsund tonn, 12 hæða og flutti á stríðsárunum allt að 15.000 farþega í ferð, en það jafngildir því, að allir Vestfirð- ingar hefðu tekið sér far með henni í einu og hoðið öllum Akur- nesingum að fljóta með. Þó er nóg pláss fyrir 1200 manna áhöfn. Skipið var smíðað í Skotlandi fyrir Cunard-skipafélagið breska. Smíðin hófst í desember 1930, en jómfrúrferðin var farin í maí 1936. Ganghraðinn var 28,5 sjó- mílur. í síðari heimsstyrjöldinni flutti hún nær 800 þúsund her- menn auk þess sem hún skrapp með Churchill á 3 meiriháttar ráðstefnur, en María drottning var uppáhalds farkostur hans. Long Beach-borg keypti skipið af Cunard í desember 1967 og er það nú rekið sem glæsihótel og túristaaðdráttur og er upprun'a- legum glæsileika vel til skila hald- ið. Við hliðina á drottningunni er annað tækniundur, ekki síður áhugavert, en það er „Spruce Goose“, Fína gæsin hans Howard Hughes, en hún er, eins og svo margt í Ameríku, svo stór að varla er hægt að lýsa henni. Ég fór heil- an hring í kringum flugvélina til að reyna að finna sjónarhorn, þar sem mynd segði eitthvað um stærðina, en án árangurs. Hún minnti mig þó nokkuð á gömlu Grumman-flugbátana sem notaðir voru á íslandi í kringum 1950, sem búið væri að pumpa upp þannig, að stélið væri álíka hátt og Morg- unblaðshöllin, vængirnir næðu frá Hótel Vík yfir að Heimilistækjum í Hafnarstræti og gengið væri inn í flugstjórnarkiefann af 4. hæð á Búnaðarbankanum. Flugvélin fór aðeins einu sinni á loft, og þá í u.þ.b. hálfa mínútu, undir stjórn Hughes sjálfs, sem var einn fræg- asti flugkappi Bandaríkjanna um þær mundir, og allt og sumt sem hann hafði að segja eftir flugið við hundruð fréttamanna sem biðu hans, var: „Mér þykir svo gaman að koma fólki á óvart." Síðan lá flugvélin lokuð inni í flugskýli þar til fyrir fáum árum, að upp komst að Howard gamli Hughes hafði komið því yfir á bandarískan al- menning að borga húsaleiguna, um eina milljón dala á ári, átti þá að senda vélina í eldinn, en áhuga menn um flugmál komu í veg fyrir það og síðan keypti félag í Long Beach-borg vélina og kom henni fyrir undir stærsta sjálfber- andi hvolfþaki í heimi við hlið drottningarinnar bresku þar sem hún er nú almenningi til sýnis. Að vera eða vera ekki þekktur Þegar við komum aftur á skrifstofu Jet America í eftir- miðdaginn, var Mr. Ray McKee mættur. Hann kannaðist strax við að Flugleiðir hefðu gert fyrir- spurn um hvort þeir væru reiðu- búnir að taka á móti blaðamanni frá Morgunblaðinu, og hann sent skeyti um hæl að maðurinn væri velkominn. Síðan hafði hann ekk- ert heyrt um málið. En hann var hinn elskulegasti og nú byrjuðu hjólin að snúast heldur betur. Hann hafði fyrst samband við Mrs. Terri Villa McDowell hjá Léttmatrósi hvílir lúin bein við ankeriskeðjuna á stefni drottningarinnar. Útsýnis- turnarnir á brúarvængjunum eru 12 hæðum ofar sjávar- máli. Tekið er á móti gestum við landganginn á Queen Mary með dynjandi jassi. Sally selur veitingarnar ódýrt og smitandi hláturinn og lífsgleöina fá allir í kaupbæti. Ef yður er sama, herra forsætisráðherra, þá ætla ég að fá mér vindil. Greinarhöfundur um borð í Queen Mary. ferðamálaráði Long Beach-borgar og skýrði henni frá málavöxtum. Hún bað um klukkutíma frest. Að honum loknum var hún búin að skipuleggja móttöku og gistingu í Solvang og San Francisco og í Long Beach-borg þegar við kæm- um til baka úr ferðinni norður. Við kvöddum McKee með virktum og héldum út á Highway 405 North áleiðis til Solvang, dönsku höfuðborgarinnar í Vesturheimi, þar sem gista átti næstu nótt. Á hraðbrautinni var ekki um annað aö ræða en halda 90—100 km hraða á einni af þessum 6 akrein- um og verandi þarna inni í miðri þvögunni fannst manni þetta lík- ast því að vera í sardínudós, þar sem allt hreyfist á 100 km hraða, en misstórar sardínurnar byltast allt í kring. Sumar í líki gamallar Volkswagen bjöllu, en aðrar í líki 18 hjóla trukka, sem virtust til- búnir að leggjast yfir okkur litlu sardínurnar. Danska höfuðborgin í Ameríku í Solvang beið okkar glæsileg svíta í The Danish Inn Lodge- hótelinu, en það er eina hótelið í þessum 3000 manna bæ. Hótelið er í alla staði fyrsta flokks, nema hvað það hafði ekki vínveitinga- leyfi. Hótelið er svo til nýtt og þeir hafa þannig reglur í Kaliforníu, að þegar sótt er um vínveitingaleyfi, er hengt upp skilti á áberandi stað hjá umsækjandanum, þar sem gefinn er ákveðinn frestur fyrir almenning til að gera athuga- semdir við fyrirhugaða áfengis- sölu. Ef almenningur er svo ekki mjög mótfallinn hugmyndinni er leyfið veitt. Þeir á Danish Inn eru núna líklega búnir að fá leyfið. Danska höfuðborgin í Ameríku er nafnið sem íbúarnir hafa gefið Solvang. Þótt flestir íbúanna séu Ameríkanar, eru norræn áhrif býsna mikil og jafnvel íslendingar hafa haslað sér þar völl. Þannig hefur Lilja Salómonsdóttir van Beer rekið verslunina Heklu um árabil, fyrst ein, en nú með manni sínum, Henry. ísk nskur yfirkokkur Við fréttum að yfirkokkurinn á besta matsölustað bæjarins væri íslendingur og héti Tony. Þótt nafnið hljómaði ekki mjög ís- lenskt, vildum við samt athuga málið nánar. Fórum við á The Danish Inn Restaurant og gerðum boð eftir yfirkokknum. Hann reyndist heita Anton og vera Esk- firðingur að uppruna. Hafði keyrt veitingarekstur í strand í Reykja- vík og farið síðan út til að vinna á íslenska veitingastaðnum Val- halla í Santa Barbara, en sá stað- ur fór líka á hausinn, en eftir að hafa brasað hamborgara í nokk- urn tíma á útiveitingastað í Santa Barbara, var hann nú orðinn yfir- kokkur á þessum vinsæla stað. Eins og sönnum íslendingi á uppleið sæmir, lét Tony sér ekki nægja að vinna 12 tíma á dag sem yfirkokkur á Danish Inn, heldur var hann einnig morgunverðar- kokkur á öðru veitingahúsi í grenndinni. Og Tony er greinilega á uppleið. Á siðustu jólum færði eigandi Danish Inn honum fólks- bíl í jólagjöf. Ég spurði Tony, hvernig honum hefði gengið að fá atvinnuleyfi í Ameríku. Nú, þú kaupir bara far- miða með Flugleiðum, fram og til baka, en ferð ekkert til baka. Síð- an, ef atvinnurekandanum likar við þig, þá sér hann um að útvega atvinnuleyfið. Og Tony bjóst við að vera búinn að fá það fyrir næstu áramót. Tony sér um öll innkaup fyrir veitingastaðinn, vanalega er pantað snemma að morgni, það sem nota á yfir dag- inn. Eg spurði hann um Mafíuna frægu. „Jú, maður veit alveg af henni. En maður lærir að um- gangast þetta, og þá er það alveg vandræðalaust." Tony býr ásamt eiginkonunni, Ragnheiði, og dótturinni. Birtu, í góðu raðhúsi, sem þau eru búin að kaupa. Hann hefur sett sér ákveð- in markmið og keppir ótrauður að þeim, enda segir hann að með sama álagi endist hann ekki nema í mesta lagi í 10 ár og áður ætlar hann að vera búinn að koma sér vel fyrir. Sally þekkja allir Við enduðum daginn í Solvang með samloku og bjór hjá Sally, en Sally og litla veitingastofan henn- ar er líklega bjartasti hlutinn af þessum annars sólríka bæ. Sally, sem allir íbúar Solvangs þekkja, varð fyrir þeirri þungbæru reynslu á miðjum aldri að missa einkason sinn og eiginmann með skömmu millibili. Hún missti trúna á lífið og þunglyndi hrjáði hana, af skiljanlegum ástæðum. Einn daginn sagði hún svo við sjálfa sig, að nóg væri af þung- lyndu fólki í heiminum, sem þyrfti á hjálp að halda og ef til vill væri lífið eins bjart og fagurt og maður vildi sjálfur. Þá fluttist hún til Solvangs þar sem bróðir hennar og mágkona bjuggu. Opnaði litla samloku- sjoppu við aðalgötuna, þar sem hún selur vörur sínar á hagstæðu verði og allir fá ómældan skammt af sólskinsbrosi og gamansögum í kaupbæti. Nú fer nánast enginn um þennan bæ án þess að koma við hjá Sally og fá sér snakk og góðan skammt af andlegum sól- argeislum frá þessari brosmildu konu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.