Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.03.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 37 nokkur kostur. Alltaf var gott að heimsækja Soffíu, enda var hún gestrisin og naut þess að fá vini og kunningja í heimsókn. Hún kunni vel að slá á létta strengi í samræð- um. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir samveru- stundirnar með Soffíu Haralds- dóttur og hjálpsemi hennar við mig og fjölskyldu mína. Dóttur- synir hennar fjórir nutu oft um- önnunar hennar, hinir tveir elstu, t.d. sumarið 1975 í Ósló, þegar móðir þeirra lá veik. Tvíburarnir litlu voru oft í umsjá hennar, jafn- vel eftir að heilsu hennar fór að hraka á síðasta ári. Þeir kveðja allir ömmu sína með góðar minn- ingar um hana. Börnum Soffíu, aldraðri móður, bræðrum hennar og öðrum að- standendum votta ég samúð mína. Hvíli hún í friði. Blessuð veri minning hennar. Sigmundur Sigfússon Soffía var fædd í Reykjavík, dóttir hjónanna Þórunnar Clfars- dóttur og Haraldar Sigfússonar. Þau áttu 4 börn, Njál, Úlfar, Soffíu og Birnu, en þær voru tví- burar. Föður sinn missti Soffía þegar hún var á öðru árinu og kom þá í hlut móðurinnar að sjá fyrir heimilinu og gerði hún það með saumaskap, því ekki komst hún út frá börnunum og má nærri geta hve frístundirnar hafa verið margar hjá henni. Síðan eignaðist Soffía hálfbróður, Björn Harald Sveinsson. Birna og Soffía höfðu verið mjög samrýmdar og það varð Soffíu því þungbær raun þeg- ar hún missti systur sína tæpra sjö ára. Soffía fór fljótlega að vinna við verslunarstörf eftir fermingu og var mjög vel látin bæði af hús- bændum sínum og viðskiptavin- um. Hún giftist Benedikt Kjartans- syni málarameistara og eignuðust þau fimm börn, 2 dætur, Ingi- björgu og Birnu, og 3 drengi, Har- ald, Benedikt og Viðar. Lifa þau öll móður sína. Soffía og Benedikt slitu sam- vistir eftir 34 ára sambúð. Þá var hún orðin sjúk og treysti sér ekki lengur til að berjast gegn þeim ógnvaldi, sem smátt og smátt hafði grafið undan stoðum heimil- ishamingjunnar og hefur reyndar lagt margan góðan dreng að velli. Kynni okkar Soffíu hófust í skátahreyfingunni. Þá vorum við 14 ára og þau kynni urðu að vin- áttu, sem aldrei féll skuggi á. Margt sumarkvöldið hylltum við fánann okkar saman og sungum: „Allt er hljótt, nálgast nótt, sveipast gullroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær.“ Að leiðarlokum er mér ljúft að minnast margra góðra stunda úr útilegum og ferðalögum, sem við fórum saman næstu árin. Soffía var mikill náttúruunn- andi og elskaði útiveru og var þá ekki að setja fyrir sig, ef svo stóð á, þótt andaði köldu. Eitt sinn vor- um við t.d. að koma með Laxfossi af skátamóti sem haldið var á Akranesi. Þá gerði vonzkuveður og var illt í sjóinn og þó nokkur ágjöf, svo flestir voru neðan þilja. Þá stóð Soffía uppi á dekki og ríghélt sér í borðstokkinn rennandi vot, en kafrjóð og alsæl í óveðrinu. Þegar hún svo loks kom niður, sagði hún: „Stelpur, þið vitið ekki af hverju þið misstuð." Mér hefur oft komið þetta atvik í hug í sam- bandi við hennar lífshlaup. Það var eins og hún hafi verið fædd til þess að berjast. Sumum þótti hún hörð í lund, en ég veit að hún átti hlýtt hjarta. Hún bjóst aldrei við neinu af öðrum, sem hún hefði ekki getað framkvæmt sjálf. Heið- arleiki og dugnaður voru hennar aðalsmerki. Soffía hafði ágæta kímnigáfu, en ekki minnist ég þess að hún hafi notað hana gegn ná- unganum, heldur sem góðlátlega glettni. Síðsumars í fyrra ókum við austur fyrir fja.ll. Við fórum Þrengslaveginn og hafði hún orð á því hvað margt væri í þessu kunnuglega umhverfi, sem hún hefði ekki gefið gætur, þó leiðin hefði oft legið um þessar slóðir. Þegar við komum austur á brún- ina, þar sem sést ofan í Ölfusið, bað hún mig að stansa og virti fyrir sér landslagið, sem var baðaö sólskini eftir rigningarskúr. Dagg- ardroparnir glitruðu allt í kring- um okkur og Almættið hafði reist friðarbogann milli himinsins og jarðarinnar. Þá leit hún glettnis- lega til mín og sagði: „Hanna, heldurðu að það sé svona fallegt hinum megin?" Soffía vissi vel að hverju stefndi með hennar veikindi. Manni fannst það næstum ofurmannlegt, hvernig hún tók þessu öllu, ekki eldri manneskja en hún var. Hún sagði einhverju sinni við mig, er við ræddum saman sem svo oft áð- ur: „Ég gæti vel þegið að vera hér dálítið lengur, en ég er búin að fá að sjá börnin mín vaxa úr grasi og hef borið gæfu til þess að geta haldið fyrir þau heimili meðan þau þurftu þess með og þá á mað- ur ekki með að biðja um meira." Hún hafði þá lífsskoðun, að hverj- um manni væri það hollt að þurfa að hafa eitthvað fyrir hlutunum til þess að kunna að meta þau tækifæri sem gæfust. Ég vona að umhverfi vinkonu minnar sé eins ósnortið og Blá- fjöllin voru, þegar við stóðum á skíðunum okkar þrjár unglings- stelpur árla morguns fyrir tæpum fjörutíu árum, rétt ofan við „Himnaríki" og virtum fyrir okkur kalda tignarfegurð fjallanna í al- gerri þögn. Að lokum langar mig til þess að kveðja hana Soffíu með síðasta er- indinu úr sálminum kunna eftir Matthías Jochumsson. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjói, hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól, hljómi samt harpan mín: Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín. Venzlamönnum Soffíu óskum við hjónin Guðs blessunar. Jóhanna I. Birnir Fyrstu björgunar- hundarnir útskrifast HÉR Á landi hafa í fyrsta sinn verió útskrifaðir björgunar- hundar, fullþjálfaðir til leitar á týndu fólki í skriðum, snjóflóð- um og húsarústum. Viku nám- skeið var haldið fyrir hundana og þjálfara þeirra að Úlfljóts- vatni og á Hellisheiði fyrir skemmstu og voru það félagar í Björgunarhundasveit íslands (BHSI) og Björgunarskóli LHS, sem gcngust fyrir nám- skeiði þessu. Alls sóttu námskeiðið 30 manns, þar af 15 þjálfarar með jafnmarga hunda, sem hlotið hafa allt að 3 ára þrot- lausa þjálfun, sem í BHSÍ fer fram að norskri fyrirmynd og hefur reynst afburðavel í 3 áratugi. Ole A. Moen og Kjell Ask- ildt, tveir fremstu hundaþjálf- arar norsku Björgunarhunda- sveitarinnar (FNL) leiðbeindu á námskeiðinu, fylgdust með hundunum og þjálfurum þeirra og gerðu að lokum út- tekt á hæfni manna og hunda. Bestum árangri náðu þrír hundar, en þeir og þjálfarar þeirra uppfylla ströngustu kröfur sem FNL setur og höfnuðu því í A-flokki og eru á útkallslista næstu tvö árin, en fara þá í endurmat. Einn hundur hafnaði í B-flokki og fer einnig á út- kallslista, en aðeins til eins árs til að byrja með. C-flokk fylltu níu hundar sem enn hafa aðeins fengið frumþjálfun. í BHSÍ eru um 30 félags- menn með 22 hunda, sem hafa hlotið mislanga þjálfun. Flest- ir félaga eru búsettir á Stór-Reykjavíkursvæðinu, Akranesi, Akureyri og á Hellu. t Kona mín og móöir, GYDA HJÖRLEIFSDÓTTIR, Bragagötu 29A, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. mars kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Þorbergur Gíslason, Halldór Þorgrimsson. t Maöurinn minn og faöir okkar, ALFREÐ BJÖRNSSON, Brekkubraut 19, Akranesi, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 8. mars kl. 14.30. Sigrún Gísladóttir og dætur. t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför STEINUNNAR B. JÚLfUSARDÓTTUR, Innri-Múla, Barðaströnd. Þórður Ólafsson og börn. t Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlát og útför SVEINS BJARNASONAR, Silfurbraut 8, Höfn í Hornafirði. Steinunn, Hulda, María og fjölskyldur. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför AUÐAR STEINSDÓTTUR, Selvogsgrunni 25, Reykjavík. Þorsteinn Bernharðsson, Halla Kristín Þorsteinsdóttir, Þorgeir Einarsson, Auöur Kristín Þorgeirsdóttir, Þórey Vilborg Þorgeirsdóttir, Þorsteinn Ari Þorgeirsson. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu og samúö viö fráfall móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, EDITHU MÚLLER. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landakotsspítala deild 2A. Unnur MUIIer-Bjarnason, Valdimar Bjarnason, Ragnheiöur Sara, Rakel Ýrr. t Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu samúö og vinarhug viö andlát og útför KRISTÍNAR TH. PÉTURSDÓTTUR frá Bergsholti, Grenimel 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Friöþjófi Björnssyni lækni og starfs- fólki Landspítalans. Ásthildur Lúthersdóttir, Svafa Lúthersdóttir, Petiea Lúthersdóttir, Fjóla Lúthersdóttir, Gisli Jóhannesson, Jón Lúthersson, Ragnheiöur Jónsdóttir, Óli B. Lúthersson, Svana Svanþórsdóttir, Pétur B. Lúthersson, Brigitte Lúthersson, Anton Salómonsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.