Morgunblaðið - 11.04.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 11.04.1984, Síða 16
16T t MIÍMHUBMfUR Ji&[4í5HftKIJ8&IOM Bílasýningin Huröir Voayager-bílsins eru stórar, og Ifklega er þetta fyrsti fólksbfllinn hérlendis raeð rennihurð. Átta manns komast með góðu móti í sæti bflsins. Morgunblaðið/Gunnlaugur. Jöfur hf. Brimborg hf.: Charade Turbo TURBO krfli Daihatsu, nýr bfll á ís- landi, hefur vakið athygli á sýning- unni. Turbo-búnaður Charade er þannig úr garði gerður að hann vinnur á öllum vélarsnúning, dett- ur ekki út á lágsnúning eins og algengt er með slíkan búnað. 80 hestöfl komast til skila í bílnum og því hefur fjöðrunin verið endurbætt. Að innan er Charade Turbo með þægilegum sætum. Þrátt fyrir aukinn vélarkraft á bensíneyðsla ekki að aukast mikið umfram það sem gengur og gerist í venjulega bílnum, sem einnig er kynntur á sýningunni. Peugeot 205 hefur ekki sést á landinu fyrr, en hann er vinsæll í Evrópu. Átta manna fjölskyldubíll ÁTTA manna fólksbfll vekur athygli í sýningarbás Jöfurs hf., en það er glænýr Crysler Vöyager. Bfllinn er óvenjulegur, líkur sendibfl en meö íburð vandaðs fólksbfls. Fjórar hurðir eru á bílnum, ein þeirra rennihurð hægra megin á hlið bílsins. Hurðirnar eru allar stórar og því auðvelt að komast að íburðamiklum sætunum, en tveir sex manna bekkir eru afturí í bíln- um. Aftan á bílnum er síðan stór hurð og farangursrými, en taka má bekkina úr bílnum og þá má flytja í honum stóra hluti. Vél bílsins er 101 hestafl. Hinsvegar er bíllinn hannaður sem fjöl- skyldubíll og því kannski ekki nauðsynlegt að hafa meira afl, nema nota eigi bílinn mikið til flutninga. Skoda er í bás Jöfurs. Tvær gerðir af Skoda eru fáanlegar, 120 og síðan Rapid. Sá síðarnefndi er tveggja dyra. Nýtt létt tann- stangastýri er komið í Skoda, sem gjörbreytir eiginleikum bílsins. Innréttingin er einföld. Charade Turbo. Honda Civic Shuttle er fimm dyra bfll, sem er í laginu eins og hátt byggður station-bfll, þó stuttur sé. Honda: Nýtískulegt útlit NÝJU Honda-bflarnir á sýningunni eru allir með mjög nýtískulegt útlit og með verklegum vélarbúnaði. Þeir allra nýjustu eru Civic Shuttle og Civic Coupe CRX. Sá fyrrnefndi er í útliti eins og hátt byggður station-bíll. Fimm hurðir eru á bílnum og mikið pláss innan þeirra, sem gefur tækifæri til að flytja stóra hluti með því að fella niður aftursætin. Civic Coupe CRX er lítill með sportlega eigin- leika. Innan dyra er ágætt pláss fyrir ökumann og farþega frammí, en aðeins eru barnasæti aftur í bflnum. Felstir Honda-bílar hafa nú 12 ventla vélar, í stað 8, sem er algengast í bílum í dag. Kristinn Guðnason: Nýr Renault RENAULT er nýkominn á mark- aðinn og bíllinn sem Kristinn Guðnason hf. kynnir er búinn 2,0 I vél, sem skilar 103 hestöfl- um I)IN. BMW-bifreiðir eru á sýning- unni, sá stærsli BMWT 728i. Hann er búinn sex strokka vél sem vinnur létt undir álagi og fæst bæði með fimm gíra bein- skiptingu og nýhannaðri sjálf- skiptingu, fjögurra gíra, með hæsta gírinn sem yfirgír. Hafrafell: Tveir smáir Peugeot PEUGEOT 205 hefur selst vel í Evrópu, en hefur ekki sst hér- lendis fyrr en á bás Hafrafells. Peugeot 205 er einn af mörg- um smábílum, sem komið hafa fram að undanförnu. Hægt er að kí \ v ! m fá 205 með 50—80 hestafla vél og með fjögurra eða fimm gíra kassa. Frændi 205-bílsins er Talbot Samba, sem Hafrafell sýnir einnig. Hann er byggður upp á svipaðan hátt. Samban RE\\UI.T2.-» fæst með tveim mismunandi afl- miklum vélum og fjögurra og fimm gíra kassa. Báðir eru bíl- arnir framdrifnir með vélina frammí. Aðrir bílar sem Hafra- fell sýnir hafa sést hér áður. Renault-línan á sýningunni, nýi bfllinn Renault 35 er fremstur á myndinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.