Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 19

Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 19 iRák. Bygging hesthúss gengur greiðlega Ánægjulegt var að sjá hversu vel miðar með hina veglegu hesthúsabyggingu á Hólum. A síð- asta ári var byggt við sjálft hest- húsið og er sá áfangi ætlaður fyrir kennslu og rannsóknarstarfsemi, einnig verður í þessu húsi góð kaffistofa. Síðastliðið sumar var heyjað í vothey í hesthúshlöðuna og voru hestarnir fóðraðir á vot eyi nú í vetur í fyrsta skipti. Að sögn Ingimars Ingimarssonar tamningamanns eru þeir þokka- lega ánægðir með útkomuna á votheysfóðruninni. Eftir því sem Jón Bjarnason skólastjóri tjáði blaðamanni var búið að ákveða framhald á byggingu hesthússins á þessu ári en allt sé nú í óvissu með framhald vegna marg- umrædds fjárlagagats sem stjórn- málamenn glíma nú við að fylla upp í þessa dagana. Stúlka sigrar enn á ný Þá má kannski segja að Hvann- eyringar hafi ekki verið alveg eins óheppnir með veður þó slæmt væri það. { stað mikillar vindhæðar fengu þeir dágóðan skammt af rigningu. f fyrra vann stúlka skeifukeppnina á Hvanneyri í fyrsta skipti frá upphafi og annað árið í röð er það kvenmaður sem sigrar, en það var Rúna Einars- dóttir frá Mosfelli sem hélt uppi merki íslenskra kvenna að þessu sinni en hún keppti á hryssunni Gná frá Krossi í Lundarreykjadal. { öðru sæti varð Leifur Bragason frá Selfossi á hryssunni Stolt frá Hnausum. Hlaut hann einnig ásetuverðlaun Félags tamninga- manna. í þriðja sæti varð svo Kristján Jónsson á Rák frá Völl- um. í heild var útkoman góð og er þá átt við bæði menn og trippin sem tamin voru. Margir efnilegir tamningamenn sýndu getu sína og trippin voru með betra móti. Hestamannafélagið Grani 30 ára Það var fyrir um það bil 30 ár- um að Gunnar Bjarnason gekkst fyrir stofnun hestamannafélags á Hvanneyri og hafa nýir nemendur hverju sinni gengið í þetta félag. í tilefni afmælisins afhenti Hjalti Pálsson félaginu að gjöf inn- rammað plakat með myndum af hinum ýmsu hrossakynjum og voru skýringar á íslensku prentað- ar undir hverja mynd. Var þessi gjöf gefin af innflutningsdeild sambandsins. Gefið var út blað í tilefni skeifu- keppninnar á Hvanneyri og var það selt á skeifudaginn. Ágóðinn af sölu blaðsins verður lagður í sjóð sem stofnaður var í tilefni þrjátíu ára afmælis Grana. Ástæðan fyrir stofnun þessa sjóðs mun vera sú að ekki er útlit fyrir að hið opinbera kosti hesthús- byggingu á næstunni. En í grein í blaðinu sem ber yfirskriftina „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið" skrifar einn nemenda, Gísli Kristjánsson, eftirfarandi: „Það er von okkar og vissa að þegar við komum hingað að Hvanneyri á 50 ára afmæli Grana (það er að segja eftir 20 ár, innskot blaðamanns) til þess að fylgjast með skeifu- keppninni, þá munum við geta gengið inn í nýtt og sómasamlegt hesthús. Það væri óskandi að gamlir Hvanneyringar og aðrir I velunnarar skólans sæju sér fært að stuðla að stækkun sjóðsins og að sjálfsögðu þeir sem koma til með að stunda nám á Hvanneyri í framtíðinni." Er þessu hér með komið á framfæri. Ekki er neinum blöðum um það að fletta að nemendur ríða hér á vaðið með þarft verkefni því segja má að hesthúsið á Hvanneyri sé tímaskekkja og mætti gjarnan vitna þar í orð Skúla Kristjóns- sonar er hann ritar í áðurnefnt blað í tilefni afmælis Grana en þar minnist hann á stofnun fé- lagsins og segir meðal annars: „Ýmsir byrjunarörðugleikar komu fljótlega í ljós. Hesthúsið var lé- legt og óhentugt og er raunar það sama enn í dag.“ Fyrir þrjátíu ár- um þótti þetta hesthús ekki nógu gott og þrátt fyrir nokkrar endur- bætur þykir vanta mikið á að það geti talist boðlegt miðað við þær kröfur sem gerðar eru til gripa- húsa í dag. Að síðustu er svo rétt að geta úrslita í gæðingakeppninni sem haldin var á Hvanneyri. Keppt var í bæði A og B-flokki og voru það bæði nemendur og starfsmenn skólabúsins sem sýndu. { A-flokki sigraði Vending frá Báreksstöð- um, faðir Hlynur 910, eigandi Sig- urborg Jónsdóttir, knapi Leifur Bragason, einkunn 7,85. í öðru sæti var Kúra frá Hvanneyri, fað- ir Borgfjörð 909, eigandi Hjálmar Gíslason, einkunn 7,36. í þriðja sæti varð svo Andvari, eigandi Halldór Steingrímsson, knapi Bjarni K. Þórisson, einkunn 7,21. í B-flokki sigraði Gná frá Krossi, eigandi Óskar Halldórsson, knapi Rúna Einarsdóttir, einkunn 8,14. í öðru sæti Móses frá Krossi, eig- andi Óskar Halldórsson, knapi Jón Halldórsson, einkunn 7,71. í þriðja sæti varð svo Rák frá Völlum, eig- andi Hólmgeir Sigurgeirsson, knapi Kristján Jónsson, einkunn 7,64. Og með þessum úrslitum ljúkum við umfjöllun um skeifu- dag bændaskólanna. Nemendur á Hólum tóku einn lullarann og bundu saman hornstæða fætur þannig að hesturinn ítti ekki annarra kosta völ en að brokka eins og meðfylgjandi myndir sýna. __________Góður matur á gaffíi____________________ Kvöldverðarsveifla með Birni Thoroddsen og félögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.